Morgunblaðið - 06.12.2001, Síða 68
FÓLK Í FRÉTTUM
68 FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
!" ###$
%
& ' ()
&
"(
*)
+$
,
*$- .
/0
*//1$
231$
"
!" &
"
4
!" 1
5
6
1
&
"7,$%
&"
"8
!" & $$
*
&8
9
- :;(
<<
=$&$
> $
?;
/
###$
%
' 1
<$
""
4$
5
@
6 '$-
.
A
4
@/
5; $
(
1$
$
$
?;
$8
' )/(
+ /' $ $
?;
BC
* /
2
A
?
'$D-
$
,88
$
?;
BE
&"
*
9
-$999
9
6
FGGF
B
H
I
I
J
I
K
B
H
F
FJ
J
J
H
F
C
IG
F
I
I
I
F
FJ
B
FL
F
J
B
F
F
&8$
+"
$
?;
&(
&8$
&(
M
.
/
A
&(
$8
M
$
?;
N
A
$
?;
N
&(
&$
2"
&$
519
$
?;
2"
519
2"
&8$
F
I
B
C
K
G
H
FL
BE
@
FJ
BB
FK
FB
@
FI
FH
@
BL
BJ
FE
BC
FC
J
FF
E
FG
IG
IK
IH
.'
" 8)
$ ( $
"O
P
'
- %
$ 6$$8 &"/
"8)
"
$ 1$
/("
Q* , R*
R+ 8R1 ($ 1
(1R&(
<
R4
$ (&"
R
13"
$ *'
=
=
=
<
*B
@
Á MEÐAN heimsbyggðin
sættir sig við strákasveit-
ir á borð við Backstreet
Boys og N’Sync getur ís-
lenska þjóðin yljað sér við
söng strákasveitarinnar
Álftagerðisbræður, sem
hlýtur að teljast sú vinsælasta hér á landi.
Álftirnar kvaka er þriðja plata Álftagerðisbræðra.
Þar syngja þeir bræður, Sigfús, Pétur, Gísli og
Óskar, skemmtilega og fjölbreytta blöndu af ís-
lenskum og erlendum dægurperlum, líkt og
þeim einum er lagið. Flestar ef ekki allar eru
þær margfrægar og nægir þar að nefna „Bláu
augun þín“ eftir Gunnar Þórarson
við ljóð Ólafs Gauks, „Hamraborg-
in“ eftir Sigvalda Kaldalóns við ljóð
Davíðs Stefánssonar, „Haga-
vagninn“ eftir Jónas Jónasson
við ljóð Ragnars Jóhann-
essonar og „Erla, góða Erla“
eftir Pétur Sigurðsson við
ljóð Stefáns frá Hvítadal.
Vinsæl
stráka-
sveit!
Söngur
og
harpa!
EF ÉG sofna ekki í nótt, plata Páls Óskars Hjál-
týssonar og Moniku Abendroth, hefur þegar
vakið mikla athygli og fengið lofsamlega dóma
gagnrýnenda. Með plötunni kemur Páll Óskar
ef til vill mörgum unnendum sínum í opna
skjöldu – einkum þeim sem eru í yngri kant-
inum – því undanfarin ár hefur hann verið hvað
mest áberandi sem diskódrottning eða hömlu-
laus stuðsöngvari með Milljónamæringunum.
En hann hefur alltaf átt sínar mjúku og við-
kvæmu hliðar og að margra mati nýtur söng-
rödd hans sín best þegar hún er á lágstemmdu
nótunum, ljúfsár og tregafull. Á nýju plötunni
sýnir Páll Óskar einmitt á sér þá hliðina við
undirleik himneskra hörpuhljóma Moniku
Abendroth, hörpuleikara Sinfóníuhljómsveitar
Íslands til fjölda ára.
ÞAÐ ER engum blöð-
um um það að fletta
að Páll Rósinkranz
er orðinn ástsælasti
dægurlagasöngvari
þjóðarinnar. Í fyrra
átti hann eina af
söluhæstu plötum
ársins og af fyrstu
viðbrögðunum við
hans nýjustu að
dæma þá bendir
ekkert til annars en að hún ætti að geta
gengið álíka vel – jafnvel enn betur. Páll
heldur sig líka við sama heygarðshornið,
greinilega búinn að finna skothelda upp-
skrift. Plata með vel völdum dægurflugum,
mestmegnis erlendum en þó einni íslenskri,
„When I Think of Angels“ eftir KK, sem Páll
hefur einmitt gert myndband við.
Ástsæll!
KANADÍSKA söngdívan
Celine Dion sagði ein-
hvern tímann: „Ef Guð er
með söngrödd þá hljóm-
ar hún líkt og söngrödd
Andrea Bocelli.“ Hógvær
og jarðbundinn að eðlisfari kýs þessi dáði
ítalski söngvari trúlega að sér yrði lýst á öllu
látlausari máta. En samt sem áður þá er eitt-
hvað við rödd hans sem snert hefur milljónir
manna um allan heim og hafa plötur hans all-
ar selst í bílförmum. Ísland er þar engin und-
antekning því af Tónlistanum einum að dæma
á Bocelli sér fjölmarga trygga unnendur hér á
landi. Nýjasta plata hans Cieli Di Toscana hef-
ur vermt listann í á annan mánuð en tekur nú
stórt stökk upp á við og er reyndar hástökkvari
vikunnar. Þetta er því plata sem á sannarlega
eftir að blanda sér af hörku í jólaplötuflóðið.
Söngrödd
Guðs!
Barry Adamson og Pan Sonic –
The Hymn of the 7th Illusion
„Hugmyndin að blanda saman raf-
tónlist og kór er verulega áhuga-
verð…Krafturinn fer hinsvegar
forgörðum í endurblöndun Hafler
Trio, „The Illusion of the 7th
Hymn.“ (SH).
Björgvin Halldórsson –
Eftirlýstur
„Nokkuð brokkgeng afurð frá Bo
verður að segjast.“ (AET)
Bubbi og Stríð og friður –
Nýbúinn
„ Í grunninn eru þetta hrein og
beinskeytt rokklög sem taka mel-
ódísk hliðarspor…“ (SH)
Dýrin í Hálsaskógi –
Láttekkieinsoðúsértekkiðanna
„…Ferfalt húrra fyrir Óskari og
félögum. Þeir hafa hér gert eina af
bestu plötum ársins.“ (OH)
Geirfuglarnir – Tímafiskurinn
„Þegar á heildina er litið er þetta
hin prýðilegasta plata, ferð í gegn-
um íslenska poppsögu með við-
komu á suðrænni slóðum…“ (SH)
Ham – Skert flog
„Láttu það því eftir þér að bæta
sjöundu Hamplötunni í safnið. Það
er vel þess virði.“ (AET)
Guðjón Bergmann og Einar
Ágúst Víðisson – Slökun
„Á Slökun er efalaust um margt
gott, andlegt fóður. Hér er hins
vegar einungis tekin beinhörð, tón-
listarleg afstaða til verksins sem
fær einfaldlega falleinkunn.“ (OH)
Friðrik Karlsson –
Morgunn/Kvöld
„Langþreyttir streituþolar finna
hér eflaust eitthvað til að hægja á
hjartslættinum en leita þarf á önn-
ur mið eftir ferskmetinu.“ (SH)
Gissur Björn Eiríksson –
The Beginning
„The Beginning er fágætur glaðn-
ingur.“ (AET)
Herbert Guðmundsson – Ný spor
„Á Nýjum sporum sýnir Herbert á
sér sínar bestu og verstu hliðar
sem tónlistarmaður. Mun meira er
þó af þeim betri.“ (OH)
Hörður Torfason – Lauf
„Hörður gerir hlutina af einlægni
og heiðarleika sem hefja lög hans
og texta upp úr miðjumoðinu.“
(SH)
Klink – 666 gráður norður
„…platan, þótt stutt sé, sýnir að
Klink er ekki bara mögnuð tón-
leikasveit, henni fer líka vel að
hamast á plasti.“ (ÁM)
Larry Otis –
A New Beginning / Nýtt upphaf
„Tónlistin…er rólyndisleg, slétt og
felld þó sumstaðar skapist dulin
spenna með smekklegri notkun
rafgítara í bland við órafmagnaða.“
(ÁM)
KUAI – KUAI
„KUAI er á heildina litið í ófull-
búnara lagi. Það hefði kannski ver-
ið vissara að gefa sér ögn meiri
tíma, leyfa KUAI–inu að þróast
aðeins og losna við helstu vaxt-
arverkina…“ (AET)
Lace – Zeitgeist
„Lace hefur samt fest hendur á
öðruvísi poppblöndu sem sker sig
úr flestu sem maður heyrir í dag…
(SH)
Ný dönsk – Pólfarir
„Platan er einfaldlega ofsamin og
formúlur hafa fengið að ráða meiru
en tilfinningar. Mjög gleymanlegt.“
(HS)
Páll Óskar og Monika Abend-
roth – Ef ég sofna ekki í nótt
„Ef ég sofna ekki í nótt hefur allt
til að bera til að ná þeim eftirsókn-
arverða árangri að verða gripur
sem hlustað verður á aftur og aft-
ur.“ (SH)
Prince Valium/Plastik –
Prince Valium/Plastik
„Í heild er hlutur Prince Valium
virkilega góður en Plastik nær
ekki fyllilega að mynda sér sterka
rödd á plötunni.“ (HS)
Quarashi –
Kristnihald undir Jökli
„Þótt leikritið sjálft veki manni
alltof oft geispa er tónlistin fersk
og áhugaverð og vel að því komin
að vera sett á varanlegt form.“
(SH)
Sálin hans Jóns míns –
Logandi ljós
„Þótt útkoma þessara þreifinga
Sálarinnar sé um margt vafasöm
hafa þær þó getið af sér ágæt pop-
plög sem eru þess virði að leggja
sig eftir.“ (AET)
Sesar A –
Stormurinn á eftir logninu
„Sesar A fer á kostum á Storm-
inum á eftir logninu…“ (ÁM)
Rússíbanarnir – Gullregnið
„Í heild er platan þó bráð-
skemmtileg og styrkist við hverja
hlustun.“ (ÁM)
Megas – Far…þinn veg
„Í heildina þá er Far…þinn veg
fyrirtaks plata…“ (OH)
Sign – Vindar og breytingar
„...þeir félagar hafa gert góða
rokkskífu og eiga eflaust eftir að
vinna betur úr áhrifunum sem þar
má heyra í framtíðinni.“ (ÁM)
Sigurður Guðjónsson/ Arnar
Guðjónsson – Leðurstræti
„Hér er á ferðinni merkilega
þroskað og heildstætt verk…Svo
sannarlega ein af gleðilegri upp-
götvunum ársins.“ (AET)
Skurken/Heckle&Jive –
Skurken/Heckle&Jive
„Bæði Skurken og Heckle&Jive
eru að fara að gefa út sólóskífur
og er þessi útgáfa mjög góður inn-
gangur að tónsmíðum þeirra…“
(HS)
Smaladrengirnir – Strákapör
„Þótt maður kútveltist ekki um af
hamingju og hlátri allan tímann
býr diskurinn á heildina litið yfir
góðum anda og ástríðu.“ (AET)
Trabant – Moment of Truth
„Þeim Viðari og Þorvaldi hefur
tekist áætlunarverk sitt með ein-
dæmum vel.“ (HS)
Sofandi – Ugly Demos
„Sofandi sýnir með Ugly Demos að
sveitin er til alls vís. Í vor má
segja að sveitin hafi verið efnileg,
en nú er hún einfaldlega fyr-
irtaks.“ (ÁM)
Peter Einarsson – Serenity
„Serenity er góð plata; einmenn-
ingsverk í háum gæðaflokki.“ (HS)
Svala – The Real Me
„Vonandi reynast kostir plötunnar
gott veganesti og vegvísir fyrir
næstu plötu og menn verði vakandi
fyrir því hvaða ágalla þarf að sníða
af fyrir næstu tilraun.“ (AET)
Tvö dónaleg haust –
Mjög fræg geislaplata
„Hér er aðallinn gáski og gleði,
sundurlaus samtíningur „sem varð
að gefa út“.“ (AET)
Url – Þröngsýni
„Um er að ræða bærilegustu slag-
araplötu og ég held að Url gæti
gert margt vitlausara en að bjóða
sig sveitaballasenunni.“ (HS)
Úlpa – Mea Culpa
„Þetta er nokkuð góð plata en alls
ekki gallalaus.“ (HS)
Védís – In the Caste
„Allt í allt er þetta hin boðlegasta
frumraun og vaxtarverkirnir hérna
eru ekki nema sjálfsagðir fylgi-
hlutir er listamenn byrja að þreifa
fyrir sér.“ (AET)
Ýmsir listamenn – From Iceland
to Kentucky and Beyond
„Tónlist er samtvinnuð ljóðunum
og flutningur oft spunakenndur,
eins og tónlistin sé að verða til um
leið og ljóðin. Það gefur einkar
skemmtilega lifandi stemmningu...“
(ÁM)
XXX Rottweilerhundar –
XXX Rottweilerhundar
„Það verður að segja eins og er að
með því að rappa á íslensku og af
slíkum krafti taka Rottweiler-
hundarnir samkeppnina í nefið.“
(ÁM)
Arnar Eggert Thoroddsen
Árni Matthíasson
Heimir Snorrason
Orri Harðarson
Steinunn Haraldsdótt ir
GÓÐAR HLJÓMPLÖTUR