Morgunblaðið - 13.12.2001, Page 22
LANDIÐ
22 FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
tískuskartgripir
Laugavegi 23
s. 511 4533
Kringlunni
s. 533 4533
Smárinn
s. 554 3960
LJÓSMYNDARINN Anthony
Nagelmann frá New York hefur
verið að mynda hér á landi í
nokkra daga, meðal annars við
Dyrhólaey, Reynisfjöru, Gull-
foss, Geysi og í Bláa lóninu.
Hann er staddur hér á landi til
að ná vetrarmyndum og er á
vegum Panarctica produktions.
Að sögn Einars Sveins Þórð-
arsonar, starfsmanns hjá Pan-
arctica, var Anthony ánægður
með landið en frekar dimmt
hefur verið yfir síðan hann
snerist í sunnanátt og snjórinn
hvarf og hefur hann hug á að
koma aftur í sumar og mynda
meira.
Í fylgd með Anthony voru
þrjár íslenskar fyrirsætur og
tveir aðstoðarmenn frá New
York.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Anthony ræðir við fyrirsæturn-
ar um næstu myndatökur.
Frá New
York til
Dyrhóla-
eyjar
Fagridalur
FULLTRÚAR Reykjavíkurborgar
og Borgarbyggðar undirrituðu þann
10. desember sl. viljayfirlýsingu um
að Orkuveita Reykjavíkur og Hita-
veita Borgarness og 21,3% eignar-
hlutur Borgarbyggðar í Hitaveitu
Akraness og Borgarfjarðar – HAB –
verði sameinuð frá og með 1. janúar
2002 í Orkuveitu Reykjavíkur sf.
Einnig skrifuðu fulltrúar Reykjavík-
urborgar og Borgarfjarðarsveitar
undir viljayfirlýsingu um að Orku-
veita Reykjavíkur og 4,3% eignar-
hlutur Borgarfjarðarsveitar í Hita-
veitu Akraness og Borgarfjarðar–
verði sameinuð frá sama tíma Orku-
veitu Reykjavíkur sf.
Í fréttatilkynningu kemur fram að
eftir sameininguna verði eignarhlutur
Borgarbyggðar í Orkuveitu Reykja-
víkur sf. 0,75% og eignarhlutur Borg-
arfjarðarsveitar verði 0,17%. Sama
gjaldskrá og þjónusta verður í Borg-
arnesi og í Reykjavík. Í Borgarfjarð-
arsveit og á öðrum svæðum í Borg-
arbyggð verður leitast við að veita
góða þjónustu á hagstæðu verði.
Starfsmönnum fyrirtækjanna
verða tryggð áframhaldandi störf hjá
sameinuðu fyrirtæki.
Ástæða þess að ákveðið hefur verið
að sameina rekstur þessara fyrir-
tækja er að framundan eru breyting-
ar í orkumálum sem nauðsynlegt er
að bregðast við auk þess sem Hval-
fjarðargöng hafa aukið mjög sam-
skipti byggðar á höfuðborgarsvæðinu
og byggðar norðan Hvalfjarðar og í
Borgarfirði.
Orkuveitan mun í framhaldi sam-
einingar leggja áherslu á að kannaðir
verði möguleikar þess að veita þjón-
ustu í hinum dreifðari byggðum
Borgarbyggðar og Borgarfjarðar-
sveitar svo og hvort hagkvæmt geti
verið að Orkuveitan komi að rekstri
vatnsveitna í Borgarbyggð.
Með þessari sameiningu og sam-
einingu Orkuveitu Reykjavíkur og
Akranesveitu og Andakílsárvirkjunar
er Orkuveita Reykjavíkur eigandi að
79,3% eignarhlut í HAB. Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri lýsti
yfir ánægju sinni með þessa samein-
ingu. Sagði Ingibjörg að það hefði ef-
laust þótt mikil frétt fyrir kannski tíu
árum að Reykjavíkurborg væri að
opna sínar veitur fyrir öðrum og sam-
einast öðrum veitum. En menn hefðu
nú áttað sig á því að með því að sam-
eina krafta sína þá yrðu þeir sterkari.
Síðan sagði Ingibjörg; „Við stöndum
frammi fyrir því hér á Suðvesturlandi
að þetta horn er ekki í samkeppni við
Norðurland eða Austurland, það er í
samkeppni við útlönd. Við verðum
auðvitað að nýta allan þann styrk sem
að við höfum til þess að standast þá
samkeppni, þegar til framtíðar er lit-
ið. Orkuveitan er mjög öflugt fyrir-
tæki og hefur lagt grunn að mikilli at-
vinnuuppbygingu í höfuðborginni og
á höfuðborgarsvæðinu á undanförn-
um áratugum, er enn að því og mun
gera það áfram. Ég vil nefna í því
sambandi nærtækt dæmi. Ég held að
það sé enginn vafi á því að það hefði
ekki verið farið í uppbygginguna á ál-
verinu á Grundartanga ef Orkuveita
Reykjavíkur hefði ekki verið tilbúin
til að virkja fljótt og vel á Nesjavöll-
um og framleiða þar raforku og selja
þeim aðilum. Það sama er verið að
undirbúa núna á Hellisheiðinni, þar er
verið að undirbúa virkjanir sem verða
þá tilbúnar eftir fjögur til fimm ár.
Það er mjög mikilvægt að Orkuveitan
hugsi fram í tímann og sé tilbúin þeg-
ar á hlutunum þarf að halda.“ Guðrún
Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar
Borgarbyggðar sagði að bæjarstjórn-
in hefði staðið einhuga að þessu máli.
Markmið Borgarbyggðar með þessu
samkomulagi væru að tryggja sama
verð á heitu vatni í Borgarnesi og í
Reykjavík til framtíðar og að öflugur
aðili eins og Orkuveitan komi að
veituframkvæmdum í dreifbýlinu.
Hvort tveggja er mikilvægur áfangi í
að treysta búsetuskilyrði íbúa sveit-
arfélagsins og í að koma til móts við
þarfir sívaxandi frístundabyggðar í
héraðinu.
Sameining hitaveitna
Morgunblaðið/Theodór Þórðarson
Fulltrúar Borgarfjarðarsveitar og Reykjavíkurborgar undirrita vilja-
yfirlýsingu um sameiningu Orkuveitu Reykjavíkur og eignarhluta
Borgarfjarðarsveitar í Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar. Frá
vinstri: Þórunn Gestsdóttir sveitarstjóri og Ríkharð Brynjúlfsson, odd-
viti Borgarfjarðarsveitar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og
Alfreð Þorsteinsson, formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur.
Morgunblaðið/Theodór Þórðarson
Fulltrúar Borgarbyggðar og Reykjavíkurborgar undirrita viljayfirlýs-
ingu um sameiningu Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Borgarness
og eignarhluta Borgarbyggðar í HAB. Sitjandi frá vinstri; Guðrún Jóns-
dóttir, forseti bæjarstjórnar Borgarbyggðar, Stefán Kalmansson bæj-
arstjóri, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og Alfreð Þorsteins-
son, formaður stjórnar Orkuveitunnar.
Borgarnes
Reykjavíkurborg og Borgarbyggð undirrita viljayfirlýsingu
Á AÐVENTUNNI koma nemendur grunnskóla
Bolungarvíkur saman hvern mánudag og
tendra ljós á aðventukransinum, hlýða á hljóð-
færaleik og syngja saman jólalög.
Framundan eru svo litlu jólin sem haldin
verða 20. desember.
Nemendur og starfslið skólans leggja svo sitt
af mörkum til þess að skreyta bæinn því að fyr-
ir hver jól eru allir gluggar skólahúsnæðisins
fagurlega skreyttir myndum sem tengjast jól-
unum.
Kveikja á að-
ventukertinu
Bolungarvík
Ljósmynd/Gunnar Hallsson
ÁRLEGT forvarnar-
og æskulýðsball var
haldið í lok nóvember
á Hótel Borgarnesi.
Skemmtunin er á veg-
um nemendafélags
Grunnskólans í Borg-
arnesi og félagsmið-
stöðvarinnar Óðals.
Þarna komu saman
unglingar úr 12 skól-
um og félagsmið-
stöðvum af Vest-
urlandi eða alls um
340 manns.
Að venju voru
skemmtiatriði frá
skólunum sem tóku þátt, auk þess
sem Dóra Guðrún frá Geðvernd
hélt fyrirlestur um ýmis málefni
ungmenna í nútímasamfélagi og
mikilvægi þess að vera jákvæður og
leita sér aðstoðar ef eitthvað bjátar
á. Hljómsveitir sem tróðu upp frá
skólunum voru fjórar
og allar mjög fram-
bærilegar. Einnig
voru önnur skemmti-
atriði í boði, s.s. leikir,
glæsileg dansatriði
o.fl.
Hljómsveitin Írafár
steig síðan á svið og
lék fyrir dansi til mið-
nættis. Þrátt fyrir
leiðindaveður þetta
kvöld náðu nemendur
frá öllum skólunum á
áfangastað og mættu
fyrstir hressir nem-
endur frá Hólmavík en
þeir fóru um lengstan
veg. Þetta var í níunda
skiptið sem ballið er haldið, en hug-
myndin er komin frá unglingunum
sjálfum um hvernig standa megi að
forvarnarstarfi. Að sögn Birgittu,
söngkonu Írafárs, höfðu þau fé-
lagarnir sjaldan eða aldrei spilað
fyrir jafnfjörugan hóp unglinga.
Æskulýðsball 2001
Æskulýðsball 2001.
Borgarnes