Morgunblaðið - 13.12.2001, Síða 32
ERLENT
32 FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
meistar inn. is
GULL ER GJÖFIN
ZACARIAS Moussaoui var strangtrúaður
múslími, og einu sinn áreitti hann vin sinn
vegna síddarinnar á buxum hans. Íslömsk lög,
sagði Moussaoui, krefjast þess að buxur karl-
manna nái ekki niður fyrir ökkla. Moussaoui er
33 ára, franskur ríkisborgari af marokkóskum
uppruna. Þegar hann kom til Bandaríkjanna til
að læra flug sagði hann ættingjum sínum að
hann væri einfaldlega flugáhugamaður.
Moussaoui var ákærður í Bandaríkjunum í
fyrradag, sakaður um að hafa lagt á ráðin um
hryðjuverkin þar í landi 11. september sl., í
samráði við Osama bin Laden. Ákæran er í sex
liðum og liggur dauðarefsing við fjórum þeirra.
Hann var handtekinn 14. ágúst vegna ábend-
inga frá flugskólanum, þar sem hann var í
námi, en þar þótti mönnum undarlegt, að Mo-
ussaoui vildi einungis læra að fljúga beint, en
hvorki flugtak né lendingu.
Talið hefur verið, að Moussaoui sé hinn svo-
nefndi 20. flugræningi, og hafi átt að vera um
borð í þotunni sem hrapaði til jarðar í Penn-
sylvaníu, en í henni voru fjórir flugræningjar.
Fimm ræningjar voru í hinum vélunum þrem
sem rænt var 11. september.
Moussaoui fæddist í frönskum smábæ, en
hélt til London í byrjun tíunda áratugarins þar
sem hann nam alþjóðaviðskipti við South
Bank-háskólann, og lauk þaðan meistaraprófi.
Á meðan hann dvaldi í Englandi varð hann
strangtrúaður. Kunningjar hans segja að hann
hafi stundum verið ótrúlega smámunasamur
varðandi trúna.
Khalid Abdulqaadir, fyrrverandi ruðnings-
hetja í bandarískum framhaldsskóla, kynntist
Moussaoui í mosku í Oklahóma fyrr á þessu
ári. Hann sagði að Moussaoui hefði gagnrýnt
ruðningsleikinn (bandarískan fótbolta), og
sagt hann stangast á við íslamska trú „vegna
ofbeldisins.“ Moussaoui gagnrýndi líka bux-
urnar hans Abdulqaadirs.
Leið Moussaouis til strangrar, íslamskrar
trúar hófst er hann tók að venja komur sínar í
moskur bókstafstrúaðra í London. Breytingin
á hátterni hans olli fjölskyldu hans áhyggjum.
Abd Saman, bróðir Moussaouis, hefur for-
dæmt öfgar bróður síns í viðtölum við franska
fjölmiðla. „Hann lenti ofan í einskonar kreddu-
fari,“ sagði Saman nýlega. „Hann hélt því alltaf
fram að hann væri aldrei metinn að verðleik-
um, og hann sagðist vera fórnarlamb kyn-
þáttahaturs. Það er kjörlendi fyrir hugsjónir
sem byggja á hatri og höfnun.“
Þá er sagt að Moussaoui hafi hreytt ónotum
í móður sína er hann heimsótti hana síðast,
vegna þess að hún var ekki með blæju. „Hann
sagði að ég væri trúleysingi,“ sagði hún í blaða-
viðtali. „Það var þá sem ég áttaði mig á því að
ég hafði glatað syni mínum.“ Í bréfi er hann
skrifaði úr fangelsinu fyrir skömmu baðst
Moussaoui afsökunar á þeim þjáningum sem
hann hefði valdið henni, en fullyrti að hann
hefði hvergi komið nálægt hryðjuverkunum
11. september.
Um miðjan tíunda áratuginn vakti Moussa-
oui athygli frönsku hryðjuverkalögreglunnar,
sem hóf eftirlit með honum. Síðar fór Moussa-
oui til Afganistans, að því er fram kemur í
ákærunum er birtar voru í fyrradag. Þar er
sagt að 1998 hafi hann verið í þjálfun í búðum
er hafi starfað í tengslum við al-QAeda samtök
Osama bin Ladens.
Í febrúar í fyrra kom hann til Bandaríkjanna
með 35 þúsund dollara í reiðufé, að sögn yf-
irvalda, og fór til bæjarins Norman í Okla-
homa, þar sem Airman-flugskólinn er staðsett-
ur. Þar er líka Háskólinn í Oklahoma. Tveir
flugræningjanna, þ. á m. meintur forsprakki
þeirra, Mohamed Atta, höfðu heimsótt þennan
sama flugskóla ári áður. Moussaoui keypti
einnig myndbönd til æfinga á Boeing-þotum,
líkt og nokkrir aðrir flugræningjanna höfðu
gert. Og líkt og Atta spurðist hann fyrir um
möguleika á að stofna uppskeruúðunarfyrir-
tæki og hvernig farið væri að því að úða rækt-
arland úr lofti.
Það sem tengir hann þó líklega hvað helst
við hina flugræningjana er að hann fékk senda
15 þúsund dollara, skömmu fyrir 11. septem-
ber, frá Þýskalandi, og sendandinn var fyrr-
verandi samleigjandi Attas. Sá er nú horfinn
og er eftirlýstur af yfirvöldum.
Moussaoui blandaði geði við stúdentana í há-
skólanum, og margir töldu hann nemanda þar.
Í moskunni í bænum var hann aufúsugestur,
og var tekið eftir því hversu trúrækinn hann
var. „Það mæta ekki margir til morgunbæn-
anna, en hann kom reglulega,“ sagði Ibrahim
Anderson, sem var við guðsþjónustu ásamt
Moussaoui. Afdráttarlausar skoðanir hans
urðu til að hann lenti upp á kant við suma með-
limi moskunnar. „Hann hafði harkalegt skap,“
sagði Anderson. „Hann vildi ekki láta segja sér
fyrir verkum.“
Svo fór, að Moussaoui hætti náminu í Norm-
an, og fór úr bænum í ágúst sl. Vinur hans ók
honum til Minneapolis þar sem hann hóf nám
við annan flugskóla og greiddi í reiðufé. Und-
arlegur áhugi hans á að læra á Boeing-þotur
varð til þess að hringt var í yfirvöld, sem hand-
tóku hann fyrir brot á innflytjendalögum, fá-
einum vikum áður en hryðjuverkin voru fram-
in.
Hinn svonefndi „20. flugræningi“ ákærður og sakaður um aðild að árásunum í september
Zacarias Moussaoui
Strangtrúaður og
smámunasamur
Washington. The Los Angeles Times, AP.
FLEST bendir til þess að sprengj-
urnar sem varpað var á borgina
Kandahar í suðurhluta Afganistans
hafi hæft skotmörkin og ekki valdið
miklu mannfalli meðal óbreyttra
borgara eins og talibanar héldu fram.
„Við tókum ekki á móti mörgu
særðu fólki hérna,“ sagði læknir á
stærsta sjúkrahúsi Kandahar. „Við
fréttum að nokkrir óbreyttir borgar-
ar hefðu fallið en ég veit raunar ekki
hversu margir.“
Tugir særðra borgara voru fluttir á
sjúkrahús í Quetta og fleiri borgum í
Pakistan. Talið er að 26 hafi látið lífið í
sprengjuárás bandarískra flugvéla á
þorpið Daman, nálægt Kandahar, og
mannfall varð einnig meðal óbreyttra
borgara í árásum á skotfærageymslu
í Kila Jedid og stöðvar talibanahers-
ins nálægt flugvelli borgarinnar. Frá
þessu var skýrt í fjölmiðlum fyrir fall
talibanastjórnarinnar en fullyrðingar
hennar um mikið mannfall meðal íbúa
Kandahar virðast ekki réttar.
Þrjú hús í íbúðahverfi í Kandahar
voru jöfnuð við jörðu í loftárásunum
en borgarbúar sögðu að arabískir fé-
lagar í al-Qaeda hefðu búið í þeim.
Þau hefðu verið mannlaus því arab-
arnir hefðu farið út úr borginni dag-
inn fyrir árásirnar.
Loftárásirnar á Kandahar
Lítið mannfall með-
al óbreyttra borgara
Kandahar. The Washington Post.
boð um að Hicks væri við góða
heilsu, en vildi ekki segja hvar hann
væri í haldi.
Ástralska sjónvarpsstöðin Chann-
el Seven sagði að fyrir þrem árum
hefði maður að nafni David Hicks
boðið stöðinni að kaupa frásögn af
bardögum sínum sem málaliði í Suð-
ur-Afríku eða Afganistan. Maður í
Adelaide, sem sagðist þekkja Hicks,
taldi að hann berðist sem málaliði,
fremur en fyrir málstað er hann
tryði á.
„Ég held að hann hafi frekar verið
að þessu vegna peninganna og
spenningsins,“ sagði Adelaide-mað-
urinn, sem aðeins var nafngreindur
sem Nick. Hicks hefði tekið þátt í
bardögum með Frelsisher Kosovo
gegn Serbum í Kosovo. Eftir það
hefði hann farið í nóvember 1999 til
Pakistans, þar sem hann hefði tekið
þátt í æfingum með hersveit er barð-
ist í Kasmír-héraði gegn Indverjum,
sagði Williams. Í fyrra hefði Hicks
síðan haldið til Afganistans.
TUTTUGU og sex ára Ástrali, er
lærði skæruhernað hjá al-Qaeda-
samtökum Osama bin Ladens, var
handtekinn þar sem hann barðist
með hersveitum talibana í Afganist-
an, að því er áströlsk stjórnvöld
greindu frá í gær.
Maðurinn er sagður vera David
Hicks, frá Adelaide, og náðist af her-
sveitum Norðurbandalagsins fyrir
tveim eða þrem dögum. Daryl Will-
iams, dómsmálaráðherra Ástralíu,
sagði að yfirvöld hefðu fengið skila-
„Ástralskur talibani“
tekinn höndum
Sydney. AFP.