Morgunblaðið - 13.12.2001, Side 55
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2001 55
ÖLL
JAKKAFÖT
5000 kr. afsláttur Ath Sendum í póstkröfu. Smáralind Kringlunni Laugavegi 18b Glerártorgi Akureyri
Sími 565-9730 Sími 568-0800 Sími 562-9730 Sími 462-7800
Fax 565-9731 Fax 568-0880 Fax 562-9731 Fax 462-7801
Skyrtupakki 4990,-
Skyrta og rakspíri
Skyrtupakki 2990,-
Skyrta og silkibindi
Smartskyrtur 1990,-
Náttsloppar 4990,-
Náttföt 2990,-
tæknivörur sem seldar eru víða um
lönd.
Ég nefni sem dæmi verksmiðju
SiNor AS, sem framleiðir einkrist-
alla úr kísilmálmi (Prime Grade
Ingots)fyrir hátækniiðnað, afar
viðkvæm og vandasöm framleiðsla.
Einnig verksmiðju ScanWafer AS,
þar sem framleiddar eru sólarsellu-
skífur úr kísilmálmi (Multi-cristall-
ine wafers) fyrir sólarorkuver, um
50 MW á ári inná mjög ört vaxandi
heimsmarkað. Báðar þessar verk-
smiðjur eru í nýjum byggingum,
afar snyrtilegum og aðbúnaður
starfsmanna til fyrirmyndar. Þessi
fyrirtæki hafa vaxið upp af engu á
örfáum árum en veita nú um 200
manns atvinnu.
Ég nefni einnig Promeks ASA,
fyrirtæki sem er að þróa fram-
leiðslu á verðmætu kísildufti úr
verðlitlum kvartssandi. Þetta fyr-
irtæki er að hluta til í eigu Íslend-
inga, þar sem er Allied- EFA.
Nýr iðnaður í Mývatnssveit
Í Mývatnssveit binda menn vonir
við að kísilduftsverksmiðja komi í
stað núverandi Kísiliðju innan
fárra ára og fái þá notið kosta
sveitarinnar, sem felast m.a. í þjálf-
uðu starfsfólki og verðmætum mý-
vetnskrar náttúru, þar sem er jarð-
gufa og raforka, sem hvorutveggja
er að kalla framleitt á verksmiðju-
lóðinni. Batnandi hafnarskilyrði á
Húsavík og bættar samgöngur
milli þessara staða munu stuðla að
því að þetta verði mögulegt, en
fleira þarf til að koma.
Sú spurning var áleitin við mig
eftir þessa heimsókn hvort við höf-
um ræktað okkar garð þannig að
fýsilegt sé fyrir iðnaðarfyrirtæki
að setja sig niður í dreifbýli á Ís-
landi.Við þeirri spurningu átti ég
ekki mjög uppörvandi svar, en ann-
að er vissulega jákvætt, því að:
„Landið það á ærinn auð, ef menn
kunna að not’ann.“ Óvíða á þetta
betur við en í Þingeyjarsýslu.
Ekkert eitt atriði annað en nýtt
atvinnuframboð á svæðinu getur
stöðvað þá óheillaþróun sem
minnst var á í upphafi. Ekkert
stuðlar frekar að iðnaðaruppbygg-
ingu í dreifbýlinu, en það að hið op-
inbera rækti þann garð sem felst í
auðlindum einstakra landsvæða og
bjóði hagstæð skilyrði fyrir fjár-
magnseigendur, til að þeir sjái sér
hag í að nýta þann garð til að
planta hugmyndum sínum og fjár-
magni.
Ég er þess fullviss að á svæðinu
Mývatnssveit-Húsavík eru frábær
skilyrði til að þar dafni fjölbreyttur
orkufrekur iðnaður. Til að áhuga-
vert verði að nýta orku svæðisins
er óhjákvæmilegt að ríkið komi að
málum með öfluga fyrirgreiðslu til
þess að það verði a.m.k. jafnfýsi-
legt að staðsetja iðnaðarfram-
leiðslu í Þingeyjarsýslu eins og í
dreifbýli Noregs. Öðruvísi erum
við ekki samkeppnisfærir. Ekkert
afl annað en ríkið ræður yfir þeim
meðulum sem til þess þarf. Það er
löngu orðið tímabært að slík stefna
verði mörkuð og markaðssett. Ég
treysti því að þingmenn kjördæm-
isins undir forystu iðnaðarráð-
herra, láti hér eftirminnilega til sín
taka.
Höfundur er sveitarstjórnarmaður í
Mývatnssveit.
Atvinnulíf
Höfum við ræktað
okkar garð þannig, spyr
Birkir Fanndal
Haraldsson, að fýsilegt
sé fyrir iðnaðarfyr-
irtæki að setja sig
niður í dreifbýli?