Morgunblaðið - 06.01.2002, Qupperneq 1
MORGUNBLAÐIÐ 6. JANÚAR 2002
4. TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
Síðustu fílarnir
Síðustu fílarnir sem verða fluttir frá Taílandi voru gefnir Margréti Þórhildi Danadrottningu fyrir skemmstu. Jóhann Sigfússon
kvikmyndagerðarmaður fylgdist með fílunum í sínu náttúrulega umhverfi og flutningnum til Danmerkur. Guðjón Guðmundsson
rekur hér söguna sem sýnd verður í formi heimildarmyndar, Dronningens elefanter, í danska sjónvarpinu í endaðan janúar./12
ferðalögHestaferðir að vetri til bílarCorolla Verso börnTalandi kýr bíóSigurganga Diller
Sælkerar á sunnudegi
Ástardrykkur og vetrarelixír
Hús eiga að
vera tímalaus,
að mati Péturs
Ármannssonar
arkitekts.
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
Sunnudagur
6. janúar 2002
B
Eitrað
peð á
Hannes
tveir
16
Myntbandalag
er engin töfralausn
12
Hjálp til sjálfshjálpar
10
LEIÐTOGAR Indlands og Pakist-
ans komu hvor öðrum á óvart í
gær, annar með handabandi og
hinn með fálæti. Pervez Musharraf,
forseti Pakistans, kom Atal Bihari
Vajpayee, forsætisráðherra Ind-
lands, á óvart með því að rétta
fram hönd sína eftir að hafa haldið
ræðu þar sem hann bauð vináttu
og viðræður.
„Ég rétti Vajpayee forsætisráð-
herra höndina, sem raunverulegan
og einlægan vináttuvott,“ sagði
Musharraf. „Við skulum sameinast
í ferð til friðar, eindrægni og fram-
fara í Suður-Asíu.“ Með daufu
brosi reis Vajpayee á fætur og tók
í útrétta hönd Musharrafs.
Aðrir leiðtogar á fundi ráða-
manna í ríkjum í Suður-Asíu, sem
haldinn er í Katmandú í Nepal,
virtust varpa öndinni léttar og
fundarmenn klöppuðu, í þeirri von
að indverski og pakistanski leiðtog-
inn myndu hefja viðræður um leiðir
til að draga úr þeirri spennu sem
ríkt hefur á landamærum ríkjanna
undanfarið. Þetta var í fyrsta sinn
sem Musharraf og Vajpayee tókust
í hendur síðan fundurinn hófst á
föstudagsmorgun.
Vajpayee brást síðan við ræðu
Musharrafs og var harðorður.
Hann krafðist þess að Pakistanar
hættu að skjóta skjólshúsi yfir ísl-
amska öfgamenn, sem gefið hefur
verið að sök að hafa ráðist inn á
indverska þingið 13. desember sl.
Sá atburður er rótin að aukinni
spennu í samskiptum ríkjanna und-
anfarið.
Vajpayee sagðist ennfremur
glaður yfir að Musharraf hefði boð-
ið fram sáttarhönd. „Þið eruð vitni
að því, að ég hef tekið í hönd hans.
Nú verður Musharraf forseti að
fylgja handtakinu eftir með því að
leyfa ekki að í Pakistan starfi
hryðjuverkamenn er gera tilefnis-
lausar árásir í Indlandi.“
Vajpayee virti
Musharraf ekki viðlits
Að lokinni ræðu sinni hunsaði
Vajpayee Musharraf og gekk hægt
fram hjá honum án þess að líta í
átt til hans. Musharraf hafði heils-
að forseta Maldíveyja, Abdul
Gayoom, og beið síðan uppi á sviði
á meðan Vajpayee heilsaði upp á
Chandrika Kumaratunga, forseta
Srí Lanka. En Vajpayee virti
Musharraf ekki viðlits, og fór af
sviðinu. Musharraf yfirgaf sviðið
um leið og Vajpayee var farinn.
Herir landanna tveggja, sem bæði
eru kjarnorkuveldi, hafa verið í við-
bragðsstöðu á landamærunum síð-
an íslömsku öfgamennirnir gerðu
árásina á indverska þingið. Segja
indversk stjórnvöld að með árás-
inni hafi verið „farið yfir nýjan
þröskuld“ í hryðjuverkastarfsemi,
og Vajpayee hefur gefið í skyn að
sér hafi þótt sem árásin beindist að
sér.
Indverjar saka Pakistana um að
veita íslömsku öfgamönnunum
þjálfun og vopn en pakistanska
stjórnin neitar því. Segja Pakist-
anar að öfgamennirnir berjist fyrir
frelsi og að stjórnin geti ekki heft
ferðir þeirra í Kasmírhéraði, sem
Indverjar og Pakistanar hafa tvisv-
ar háð styrjöld vegna.
Vajpayee fagnar
sáttaboði Musharrafs
Katmandú í Nepal. AP.
AP
Forseti Pakistans, Pervez Musharraf, til vinstri, steig úr pontu og gekk til forsætisráðherra Indlands, Atals
Biharis Vajpayees, og rétti honum hönd sína á fundi leiðtoga ríkja Suður-Asíu í Katmandú í gær.
HVERGI er meira spik í Banda-
ríkjunum en í Houston í Texas.
Heilsutímaritið Men’s Health
hefur veitt borginni þann vafa-
sama heiður að vera „feitasta
borg í Bandaríkjunum“. Við val-
ið var stuðst við upplýsingar um
loft- og vatnsmengun, sjónvarps-
áhorf, offitu, fjölda almennings-
garða og opinna svæða, loftslag
og næringargildi fæðu.
Síðar í mánuðinum ætla borg-
aryfirvöld í Houston að hefja
heilsuátak og fylgja þar frum-
kvæði yfirvalda í borginni Phil-
adelphia, sem hófu slíkt átak
eftir að tímaritið veitti borginni
þennan vafasama heiður árið
1999. Árangurinn lét ekki á sér
standa og í fyrra var Phila-
delphia í þriðja sæti á lista Men’s
Health og nú í ár í fjórða sæti.
Chicago er í öðru sæti núna og
Detroit í þriðja.
Heilsusamlegasta borg
Bandaríkjanna, samkvæmt
könnun tímaritsins, er Colorado
Springs, Denver er í öðru sæti
og svo koma San Diego, Seattle
og San Francisco.
Feitasta borgin
Houston. AP.
KREPPA vofir yfir í japönsku fjár-
málalífi og stjórnvöld munu neyðast
til að koma bönkunum til bjargar
með einni billjón (milljón milljónum)
dollara. Kemur þetta fram í áliti
bandarískrar rannsóknastofnunar.
„Japanir virðast fljóta sofandi að
feigðarósi,“ segir John H. Makin í
grein, sem birtist í mánaðarritinu
Economic Outlook, en hann starfar
hjá stofnun, sem fæst við að greina
efnahagsmál og stefnu stjórnvalda
víða um heim.
„Neikvæð eign japanska banka-
kerfisins er eitthvað um ein billjón
dollara og þegar það hrynur mun
ríkisstjórnin eða seðlabanki landsins
neyðast til að leggja fram það fé til
að tryggja innstæðurnar,“ segir
Makin. Við það myndu gífurlegar
skuldir ríkisins aukast um 15% og
þetta aukna peningamagn myndi
síðan leiða til þess, að gengi gjald-
miðilsins og ríkisskuldabréfa hryndi.
Segir Makin, að verðhjöðnunin og
skuldakreppan í Japan séu alvarleg
ógnun við efnahagslífið í heiminum.
Líkt við dautt hross
Í skýrslunni eru japönsk stjórn-
völd harðlega gagnrýnd fyrir að hafa
ekki náð tökum á verðhjöðnuninni,
sem hafi gert mörgum ókleift að
borga af skuldum sínum, og aðgerð-
um seðlabankans er líkt við mann,
sem reynir að berja áfram dautt
hross. „Dauða hrossið er japanska
bankakerfið, sem er í raun komið í
greiðsluþrot og getur ekki lengur
tekið lán hjá seðlabankanum til að
lána aftur til atvinnulífsins í land-
inu.“
Varað við
banka-
hruni
í Japan
Tókýó. AFP.
LEIÐTOGI talibanahreyfingarinn-
ar, múllann Mohammad Omar, virð-
ist hafa komist undan á flótta frá
fylgsni sínu í borginni Baghran í
Helmand-héraði í Afganistan, að
sögn afganskra leyniþjónustu-
manna. Breska ríkisútvarpið, BBC,
sagði í gærmorgun að Omar hefði
flúið á mótorhjóli við fimmta mann.
Aftur á móti hefðu allir aðrir fylgis-
menn talibana sem höfðust við í
Baghran og nágrenni gefist upp.
„Hópurinn sem við sendum til
Helmand-héraðs til viðræðna við tal-
ibana greindi frá því að Omar hefði
flúið frá Baghran og væri farinn úr
héraðinu,“ sagði leyniþjónustu-
fulltrúi við fréttastofuna AFP. Afg-
önsk yfirvöld höfðu gefið í skyn að
einungis væri tímaspursmál hvenær
samið yrði um uppgjöf Omars.
Omar sagð-
ur flúinn á
mótorhjóli
Kabúl. AFP.
♦ ♦ ♦