Morgunblaðið - 06.01.2002, Page 6
FRÉTTIR
6 SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 30/12 – 5/1
ERLENT
INNLENT
FYRSTI Íslendingurinn
sem fæddist á árinu 2002
kom í heiminn í Dan-
mörku en það var stúlka.
Fyrsta barnið sem fædd-
ist hérlendis var einnig
stúlka en hún kom í
heiminn á Landspítala-
háskólasjúkrahúsi laust
fyrir klukkan 11 á nýárs-
morgun.
VEÐURSPÁRGÖGN
frá samevrópsku reikni-
miðstöðinni í Reading í
Bretlandi hættu að berast
Veðurstofu Íslands um
áramótin. Þó að Veð-
urstofunni berist spágögn
víðar að segir veð-
urstofustjóri þetta baga-
legt þar sem að jafnaði
hafi bestu spárnar komið
frá Reading.
ÍSLENSKUR karl-
maður mátti dúsa á
fjórða tíma í fangaklefa á
flugvellinum í Wash-
ington í Bandaríkjunum á
miðvikudagskvöld eftir
að hafa sagt að hann
væri „alla vega ekki með
sprengjur í skónum“.
Dómsmálaráðuneytið
hefur samþykkt að fram-
selja 25 ára gamlan Letta
til þarlendra yfirvalda.
Maðurinn er grunaður
um aðild að þremur
morðum í heimalandi
sínu áður en hann fluttist
til Dalvíkur og hóf þar
störf á síðasta ári.
ÓLAFUR F. Magn-
ússon borgarfulltrúi, sem
sagði sig úr Sjálfstæð-
isflokknum skömmu fyrir
jól, segist alvarlega vera
að íhuga sérframboð fyr-
ir borgarstjórnarkosning-
arnar í maí næstkomandi.
Þrír fórust í eldsvoða
UNG HJÓN og eins og hálfs árs gam-
all sonur þeirra fórust í eldsvoða á
Þingeyri aðfaranótt föstudags. Mann-
inum hafði tekist að koma eldri syni
þeirra hjóna út úr brennandi húsinu
áður en hann fór aftur inn til að freista
þess að bjarga konu sinni og yngra
barninu. Foreldrar mannsins og systir,
sem bjuggu á efri hæð hússins, komust
öll ómeidd út úr húsinu.
Virðist sem eldsprenging hafi orðið
eftir að maðurinn sneri aftur inn í hús-
ið en tiltölulega lítill eldur hafi verið í
húsinu áður. Reykkafarar fundu fólkið
á gólfi svefnherbergisins og voru þau
úrskurðuð látin skömmu síðar. Sonur
þeirra sem bjargaðist er á fjórða ári og
var hann fluttur á Fjórðungssjúkra-
húsið á Ísafirði vegna gruns um reyk-
eitrun.
Útflutningur meiri
en spáð var
VÖRUSKIPTI við útlönd voru hag-
stæð um 1,9 milljarða í nóvember síð-
astliðnum, samkvæmt frétt frá Hag-
stofu Íslands. Samdráttur varð í
innflutningi til landsins en útflutningur
í mánuðinum varð meiri en gert hafði
verið ráð fyrir í efnahagsspám. Að
sögn Bolla Þórs Bollasonar, skrifstofu-
stjóra efnahagsskrifstofu fjármála-
ráðuneytisins, kann þetta að verða til
þess að vöruskiptahallinn verði minni
en gert var ráð fyrir í forsendum fjár-
laga.
Skemmdarvargar
um áramót
UM 150 rúður í eigu Reykjavíkurborg-
ar voru brotnar um og eftir áramótin.
Flestar rúðurnar voru í grunnskólum
en einnig voru rúður brotnar í leikskól-
um og einstaka stofnun. Er tjónið met-
ið á um 3–4 milljónir króna. Þá voru
rúður brotnar í fimm grunnskólum og
leikskóla í Kópavogi um áramótin.
Evran vel af stað
ENGIN meiriháttar vandkvæði
fylgdu upptöku evrunnar, sameigin-
legs gjaldmiðils tólf Evrópusambands-
ríkja, um áramótin en á miðvikudag-
inn reyndi í fyrsta skipti verulega á,
enda sneri fólk þá aftur til vinnu og
verslanir og bankar voru opnaðir á ný
eftir áramót. Umbreytingin gekk al-
mennt vel þó að í mörgum verslunum
tæki lengri tíma en ella að afgreiða
fólk með skiptimynt. Gengi evrunnar
gagnvart bandaríkjadalnum hækkaði
jafnframt um tvö prósent, og var kom-
ið yfir 90 sent seinnipartinn á fimmtu-
dag. Ein evra jafngildir rúmlega 91 ísl.
kr. Biðraðir mynduðust sums staðar í
bönkum og pósthúsum og margir
verslunareigendur reyndust ekki hafa
nægilega mikið magn af evrumynt við
höndina. Ótti manna um að þolinmæði
fólks myndi þrjóta, vegna þess að öll
afgreiðsla gengi hægar, reyndist hins
vegar hafa verið óþarfur og fólk sýndi
hvarvetna stillingu. Á hinn bóginn var
nokkuð um bankarán enda vitað mál
að mikið magn evra yrði í geymslu í
bönkum evrulandanna tólf. Leitaði
lögregla í Þýskalandi fjögurra manna,
sem komist höfðu undan með tugi þús-
unda evra í borginni Habkirchen í
Suðvestur-Þýskalandi, og bankarán
voru einnig framin á Írlandi og í
Grikklandi.
Fimmti forsetinn
EDUARDO Duhalde, vinstrisinnaður
þingmaður, var kjörinn fimmti forseti
Argentínu á tólf dögum í atkvæða-
greiðslu á argentínska þinginu á ný-
ársdag. Duhalde hét því að afnema
tengingu argentínska pesóans við
bandaríkjadal. Þúsundir manna komu
saman á götum Buenos Aires eftir
kjörið og kröfðust þess að efnt yrði til
almennra kosninga þegar í stað.
Duhalde er fimmti forseti Argentínu á
tæpum hálfum mánuði.
YFIRVÖLD í Banda-
ríkjunum munu fara fram
á að fyrrverandi leiðtogi
talibanastjórnarinnar í
Afganistan, múllann Mo-
hammad Omar, verði
framseldur til Bandaríkj-
anna gefi hann sig fram
við andstæðinga talibana í
Afganistan. Bandaríska
varnarmálaráðuneytið
(Pentagon) greindi frá
þessu á miðvikudaginn.
„Við væntum þess að hann
verði á okkar valdi,“ sagði
Victoria Clarke, fulltrúi
Pentagon, við fréttamenn.
NEFND öldunga-
deildarþingmanna í
Bandaríkjunum mun
leggja fram stefnu á
hendur stjórnendum og
endurskoðendum fyr-
irtækisins Enron og krefj-
ast þess að þeir láti nefnd-
inni í té öll skjöl sem
varða rannsókn hennar á
skyndilegu gjaldþroti
fyrirtækisins. Þingmað-
urinn Joseph Lieberman
tilkynnti fyrirhugaða
rannsókn á miðvikudaginn
og útilokaði ekki að tengsl
Enron við George W.
Bush forseta yrðu rann-
sökuð.
MEGRUNARPILLUR
eru ekki lengur í tísku og
fólk vill nú frekar snæða
kvöldverð með fjölskyldu
sinni og njóta lífsins en
rembast við að ná kjör-
þyngd ef marka má
bandarískar skoðanakann-
anir. Niðurstöðurnar
benda til þess að hryðju-
verkin 11. september hafi
breytt gildismati Banda-
ríkjamanna.
HRÆÐSLA hefur brotist út meðal
íbúa New York á ýmsan hátt und-
anfarna fjóra mánuði, meðal annars
í mjög sýnilegri þjóðerniskennd, að
sögn Margrétar Theodóru Hjalte-
sted víóluleikara sem búið hefur í
New York í 13 ár. Hún segir að þótt
fólk sé að rétta úr kútnum sé það
innst inni varnarlaust.
„Fólk heldur sig helst heima og
fer ekkert,“ segir hún og áréttar að
fólk hafi misst öryggið og trúna á
framtíðina. Því hafi verið áberandi
að fólk hafi tekið veigamiklar
ákvarðanir varðandi líf sitt að und-
anförnu, ekki frestað því til morg-
uns sem hægt væri að gera í dag
eins og að ganga í hjónaband, skilja,
gera erfðaskrá og svo framvegis.
Sjálfboðaliði í athvarfi
Margrét Hjaltested hefur unnið
sem sjálfboðaliði í athvarfi fyrir
heimilislausa á vegum samtaka
heimilislausra í samvinnu við kirkju
í New York frá kvöldi til morguns
einu sinni í mánuði í á fjórða ár, en
markmið þessara samtaka er að að-
stoða fólk við að verða sjálfbjarga.
Svona samtök eru víðs vegar í
Bandaríkjunum og víðs vegar í New
York en Margrét Hjaltested segir
að fyrir nokkrum árum hafi tvær
milljónir manna verið heim-
ilislausar í Bandaríkjunum og þeim
hafi fjölgað, því kerfið bjóði ekki
upp á félagslega aðstoð og hafi fólk
ekki heldur fjölskyldur til að fara til
bíði þess ekkert nema gatan. Íbúar
Bandaríkjanna séu mjög meðvitaðir
um góðgerðarstarfsemi og láti fé af
hendi rakna til þeirra en hreinlega
sé ekki nægur mannskapur til að
sinna þeim sem þurfi á aðstoð að
halda. Kerfið sé sprungið. „Það má
ekkert út af bera og þegar svona
gerist, eins og árásin í haust, bætast
stöðugt fleiri í þennan hóp og börn
fæðast inn í hann. Þetta er þjóð inn-
an þjóðarinnar.“
Athvarfið, þar sem Margrét
Hjaltested vinnur, er hugsað fyrir
átta gesti og segir hún að þeir séu
betur settir en margir aðrir í álíka
athvörfum. Þeir séu í ákveðnu milli-
bilsástandi, til dæmis í meðferð
vegna eiturlyfjaneyslu, og séu því
yfirleitt ekki þar til lengri tíma.
Hins vegar hafi fjöldi gesta tvöfald-
ast í vikunni eftir árásina og þannig
hafi ástandið verið úti um alla borg.
Til viðbótar við svonefnda fasta-
gesti hafi bæst við aðrir sem hafi
ekki átt í nein hús að venda, því ekki
hafi verið hægt að fara áfram í
kirkjukjallara í grennd við Twin
Towers.
Versta ástand í 70 ár
Hún segir að ástandið í borginni
hafi ekki verið verra síðan í krepp-
unni á þriðja áratug nýliðinnar ald-
ar eða í um 70 ár, en vegna árás-
arinnar á Bandaríkin 11. september
sl. og lægðar í efnahagsmálum hafi
aldrei verið eins margir heim-
ilislausir. „Ástandið hefur mikil
áhrif á starfið í athvörfunum, því
aldrei hafa verið eins margir svang-
ir, kaldir og heimilislausir í New
York,“ segir hún og bætir við að
hún hafi valið sér þetta áhugamál,
að sinna öðrum, vegna trúarinnar á
betri heim. „Sumir fara í golf og
sumir hjálpa öðrum,“ segir hún.
Í þessu sambandi bendir hún á að
margir efnaminni í láglaunastörfum
hafi misst vinnuna og þar sem hús-
næði sé mjög dýrt í New York sé
fólk fyrst og fremst að reyna að
halda því sem það hafi. „Ein milljón
New York-búa fær matargjafir á
einhvern hátt, hvort sem um er að
ræða í svonefndum súpueldhúsum
eða athvörfum og biðraðirnar í
þessum súpueldhúsum hafa ekki
verið eins langar í 70 ár.“
Að sögn Margrétar Hjaltested
varð mikil breyting á New York við
árásina og hún leyni sér ekki fjórum
mánuðum síðar því þó atvinnuhjólin
séu farin að snúast á ný kraumi
mikil hræðsla undir niðri hjá íbúun-
um. Vegna árásarinnar á New York
hafi um 100.000 manns misst vinn-
una í borginni og síðan hafi tala at-
vinnulausra aukist mikið. Auk-
inheldur fari öll framlög til
góðgerðarstarfsemi í sjóði sem
tengjast árásinni og uppbyggingu
vegna hennar. Þá hafi nýi borg-
arstjórinn tilkynnt 20% niðurskurð
á framlagi borgarinnar til ýmissa
mála vegna árásarinnar.
Þótt fjórir mánuðir séu frá árás-
inni segir Margrét Hjaltested að
stöðugt sé verið að minna á 11. sept-
ember. Víða séu uppi myndir af
fólki sem ættingjar auglýsi eftir og
allir hafi þekkt einhvern sem hafi
látist í árásinni eða eigi um sárt að
binda í kjölfar hennar eftir að hafa
misst ástvini eða kunningja.
Aldrei fleiri heimilislausir
í New York en nú
Morgunblaðið/Ásdís
Margrét Theodóra Hjaltested, víóluleikari í New York.
AÐSÓKN í Kringluna í jólavik-
unni, þ.e. næstsíðustu viku árs-
ins, var betri en á sama tíma
árið áður, svo munaði um 6%.
Að sögn Arnar Kjartanssonar,
framkvæmdastjóra Kringlunn-
ar, ríkir gríðarleg ánægja með-
al kaupmanna í Kringlunni
með jólaverslunina, enda sé
auking á aðsókn þrátt fyrir
stóraukna samkeppni á árinu
með tilkomu Smáralindar.
Samkvæmt mælingum
Kringlunnar á aðsókn sóttu ríf-
lega 200.000 manns verslunar-
miðstöðina í jólavikunni árið
2000. Í nýliðinni jólaverslun
sóttu hins vegar um 215 þús-
und manns Kringluna og segir
Örn þetta sérstaklega athygl-
isvert í ljósi þess að árið 2000
hafi verið algjört metár í sögu
Kringlunnar.
„Fyrirfram höfðu menn
áhyggjur af áhrifum aukinnar
samkeppni á haustverslunina
og þess vegna koma þessar
niðurstöður okkur ánægjulega
á óvart. Sérstaklega kemur
jólaverslunin vel út,“ segir
Örn.
Aðsókn í Kringluna
6% fleiri
gestir í
jólavikunni
en í fyrra
GUNNAR B. Guð-
mundsson, fyrrverandi
hafnarstjóri í Reykja-
vík, er látinn, 76 ára að
aldri. Gunnar fæddist í
Breiðavík í Rauða-
sandshreppi 18. júlí
1925, sonur hjónanna
Guðmundar B. Ólafs-
sonar, búfræðings og
bónda, og Maríu Torfa-
dóttur húsfreyju.
Gunnar varð stúdent
frá MA árið 1945, lauk
fyrrihlutaprófi í verk-
fræði frá Háskóla Ís-
lands 1948 og prófi í
byggingarverkfræði frá Danmarks
Tekniske Højskole 1952. Hann stund-
aði framhaldsnám í strandverkfræði
við Tækniháskólann í Delft í Hollandi
á árunum 1963–1964 og lauk prófi
þaðan í sjávarfalla- og strandverk-
fræði. Gunnar sótti einnig námskeið í
stjórnun og rekstri hafna við TH í
Delft og ACTIM í París.
Gunnar var verkfræðingur hjá
Vita- og hafnamálastjóra í Reykjavík
1952–1954 og hjá bæjarverkfræð-
ingnum í Reykjavík 1954–1960. Hann
rak eigin verkfræðistofu í Reykjavík
ásamt Stefáni Ólafssyni 1960–1964.
Gunnar var hafnarstjóri í Reykjavík
árin 1965–1989. Gunnar fór sem ráðu-
nautur um fiskihafnir á vegum FAO,
Matvæla- og þróunar-
stofnunar Sameinuðu
þjóðanna, til Máritaníu
árið 1972 og til Kúveit
árið 1985.
Gunnar sat í stjórn
Verkfræðingafélags Ís-
lands og gegndi ýmsum
öðrum trúnaðarstörf-
um fyrir félagið. Þá var
hann aðalhvatamaður
að stofnun Hafnasam-
bands sveitarfélaga og
formaður frá stofnun
1969 til 1988. Hann sat í
samstarfsnefnd um
hafnamál, síðar hafna-
ráði, 1975–1988 og gegndi ýmsum
nefndastörfum á vegum Alþjóða-
hafnasambandsins.
Gunnar var félagi í Rótarýklúbbi
Reykjavíkur frá 1965 og forseti þar
1980–1981. Hann var í félagi borgar-
starfsmanna á Norðurlöndum og í
stjórn Landsmálafélagsins Varðar ár-
in 1966–1970. Hann hlaut ýmsar við-
urkenningar fyrir störf sín: Riddara-
kross Hinnar íslensku fálkaorðu og
finnsku Ljónsorðunnar, stórriddara-
kross dönsku Dannebrogsorðunnar
og norsku St. Olavsorðuna. Þá var
honum einnig veitt heiðursmerki
finnska Hafnasambandsins úr gulli.
Gunnar kvæntist 1950 Guðrúnu J.
Þorsteinsdóttur og áttu þau sex börn.
Andlát
GUNNAR B.
GUÐMUNDSSON