Morgunblaðið - 06.01.2002, Qupperneq 28
LISTIR
28 SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KERAMIK- OG LEIRLISTAFÓLK!
Listasmiðjan Keramikhús, Skeifunni 3a, sími 588 2108
Tilbúnir hlutir á broslegu verði
Fyrstir koma — fyrstir fá!
Mánudaginn 7. janúar hefst
verðhrun á glerjungum
Útsala
á jólakeramiki
Í ÓPERUHÚSINU í Köln í Þýska-
landi stendur nú yfir sýning á óp-
erunni Valkyrjunni eftir Richard
Wagner. Tveir íslenskir óperusöngv-
arar taka þátt í sýningunni. Kristinn
Sigmundsson bassi er þar í hlutverki
Hundings, en Magnea Tómasdóttir í
hlutverki Geirhildar, fyrstu val-
kyrju. Valkyrjan er ein fjögurra
ópera Niflungahringsins, en hinar
eru Rínargullið, Sigurður Fáfnis-
bani og Ragnarök. Niflungahringur-
inn er byggður á þýska Niflunga-
ljóðinu og íslenskum fornsögum og
persónurnar þekktar úr norrænni
goðafræði og sögnum. Niflungar
reyna að ná til sín stolnum hring
þeirra, Rínargullinu, en bölvun hef-
ur verið lögð á hvern þann sem
hringinn ber. Sögupersónur í Val-
kyrjunni eru Hundingur og Signý
kona hans, Sigmundur bróðir henn-
ar, Óðinn, Frigg, valkyrjan Bryn-
hildur og skörulegur flokkur, val-
kyrjuflokkur með Geirhildi í
fararbroddi.
Uppfærslan í Kölnaróperunni er í
höndum kanadíska leikstjórans Pat-
ricks Carsens en hljómsveitarstjóri
er Jeffrey Tate. Sviðsetning Carsens
á óperunni í stríðshrjáðum nútíma
hefur vakið mikla athygli, og blöð
ytra hafa keppst við að lofa hana.
Ruddalegur valdníðingur
Marianne Zelger-Vogt gagnrýn-
andi Neue Zürcher Zeitung lofar
sérstaklega Kristin Sigmundsson í
hlutverki Hundings, en í uppfærsl-
unni er Hundingur eins konar stríðs-
herra eða jafnvel hryðjuverkamað-
ur. Hann situr í greni sínu eða
tjaldbúðum innan um vopnabirgðir
og drasl, íklæddur hermannagalla.
Hún segir að Kristinn hafi verið afar
sannfærandi og rödd hans og æði
hafi dregið fram ruddalegan vald-
níðing sem þó er getulaus gagnvart
aðstæðum sínum. Í frábærri túlkun
Kristins hafi fyrsti þáttur óperunnar
strax verið einn af hápunktum henn-
ar. Valkyrjurnar fá einnig afbragðs-
dóma, en ólíkt þeim dæmigerðu, með
hjálm og horn, eru valkyrjur Car-
sens íklæddar léttum rósóttum sum-
arkjólum.
Gerhard Bauer gagnrýnandi
Kölner Stadt-Anzeiger fer ekki síður
lofsamlegum orðum um sýninguna
og segir listræn gæði hennar mikil.
Hann lofar alla söngvarana fyrir frá-
bæran söng og valkyrjurnar með
Magneu Tómasdóttur fremsta í
flokki. Hann segir þær hafa verið
hverja annarri betri, en lofar einnig í
hástert alla þá sem að sýningunni
stóðu. Tvö atriði þótti honum þó vert
að nefna; að Alan Titus í hlutverki
Óðins hefði mátt vera ögn hljóðari og
yfirvegaðri og að rödd Kristins á
dýpsta raddsviði hans hefði verið
næstum of falleg fyrir Hunding.
Magnea Tómasdóttir sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að sýningin
væri mikið umtöluð og hefði alls
staðar fengið mjög góða dóma, enda
væri uppfærslan alveg frábær. Óp-
erugestir hefðu tekið henni vel og
þótt hún mjög sannfærandi.
Mjög góður söngvarahópur
„Þegar við valkyrjurnar komum
inn, liggja fimmtíu dauðir menn í
valnum á snævi þaktri jörð, og blóð
út um allt. Valkyrjurnar eiga hins
vegar að vera vanar svona aðstæð-
um, og fyrir okkur er þetta ekkert
mál. Það er ítrekað með því að hafa
okkur bæði vopnlausar og í blóma-
kjólum. Signý, kona Hundings, er
hins vegar eins og hann, klædd eins
og terroristi; og Óðinn er eins og vel
klæddur valdsmaður í teinóttum vel
pressuðum jakkafötum og Frigg í
Dior dragt. Það besta við sýninguna
er þó að þetta er rosalega góður
söngvarahópur. Ég held að þetta
verði ekkert betur gert á Metropolit-
an.“
Magnea segist lítið hafa hitt Krist-
in Sigmundsson, því hann sé alltaf
„dauður“ þegar hún komi til skjal-
anna. „Það er þó mjög heimilislegt
og gott að vita af honum þarna.“
Magnea segist mjög ánægð með
að hafa fengið að syngja „einn lítinn“
Wagner til að undirbúa sig fyrir
hlutverk Sentu í uppfærslu Listahá-
tíðar á Hollendingnum fljúgandi í
vor.
Hjörtur Torfason fyrrverandi
hæstaréttardómari lagði lykkju á
leið sína heim frá Ítalíu til að geta
verið viðstaddur frumsýningu Val-
kyrjunnar í Köln 16. desember. „Ég
kom til Kölnar rétt áður en frumsýn-
ingin hófst, og var ekkert áttaður á
því hvernig uppfærsla þetta væri.
Kristinn Sigmundsson var þó búinn
að segja mér að hún væri mjög nú-
tímaleg. Ég hafði mjög gaman af
þessu og fannst uppfærslan ákaflega
sannfærandi. Þetta gerist í nútíman-
um – gæti þess vegna verið Bosnía
þótt ég viti það ekki. Fyrsti þáttur-
inn gerist hvort eð er á ófriðarsvæði
í óperunni, og kannski var það ekki
erfitt að laga það til, en mér fannst
þeim takast vel til með það. Heimili
Hundings var eins og skæruliðabæli
með pallettum og vopnakössum út
um allt – mjög skemmtilegt og sann-
færandi. Upphaf annars þáttar var
heldur ekki sviðsett uppí klettum
einhvers staðar eins og venjan er,
heldur á stofugólfinu heima hjá Óðni
í Valhöll. Það tók mig svolítinn tíma
að átta mig á þessu. En þar voru her-
menn og verðir hlaupandi um, þann-
ig að maður sá að þetta var valds-
mannsbústaður. Það var líka frábær
hugmynd að hafa allt þar inni í tvö-
faldri stærð, sófa og annað. Maður
fann heldur ekki þennan hefðbundna
uppreisnaranda Brynhildar – venju-
lega stormar hún inn á sviðið með
hjálm, skjöld og sverð, ríðandi á
Grana, en þarna lá hún bara uppí
sófa að lesa tímarit. Það var líka
gaman að sjá valkyrjurnar berfætt-
ar í sumarkjólum í snjónum – mér
brá þó nokkuð við það, eins og við
innkomu Brynhildar. Þetta verkaði
þó allt vel á mig, þóttt mitt viðhorf til
ópera Wagners hafi alltaf mótast af
fornsögunum okkar. Maður ætti
kannski þess vegna að vera á móti
þessu, en þetta var bara alveg frá-
bært. Það var líka stórkostlegt að sjá
tvo Íslendinga á sviðinu. Ég hef nú
svolítið setið um Kristin áður, en það
var enn magnaðra að hafa Magneu
þarna líka. Valkyrjurnar voru ákaf-
lega samstilltar og fínar og hver
annarri betri. Þetta voru allt mjög
góðir söngvarar, tenorinn sem söng
Sigmund, Christopher Ventris, var
sérstaklega góður og passaði ná-
kvæmlega í hlutverkið og Óðinn,
sunginn af Alan Titus, var sömuleið-
is fínn. Sú sem söng Frigg, Doris
Soffel, var alveg frábær. Hún hefur
geysilega fína rödd og er góð söng-
kona. Maður fann það svo strax í lok-
in að óperunni var vel tekið. Það var
reyndar einn maður uppi á svölum
sem púaði, en salurinn hló að honum
og klappaði enn meira en áður.“
Magnea og Kristinn eru ekki einu
íslensku söngvararnir sem verma
svið Kölnaróperunnar í vetur. Gunn-
ar Guðbjörnsson syngur í Don Giov-
anni eftir Mozart, Kolbeinn Ketils-
son tenor syngur í þremur óperum
og Tómas Tómasson bassi í fimm óp-
erum. Næstu sýningar á Valkyrj-
unni í Köln verða 8. og 12. janúar, en
ekki er búið að tilkynna dagsetning-
ar á sýningum eftir það.
Kristinn Sigmundsson og Magnea Tómasdóttir syngja í Valkyrjunni í óperunni í Köln
Í búðum hryðjuverkamanna
Kristinn Sigmundsson í hlutverki Hundings á miðri mynd. Með honum eru Sigmundur og Signý kona hans.
Ljósmynd/Klaus Lefebvre
Valkyrjurnar. Magnea Tómasdóttir er fjórða frá vinstri.
LEIKFÉLAG Reykjavíkur brá á
leik fyrir sýningu á Beðið eftir God-
ot á föstudagskvöldið. Þá afhenti
Árni Tryggvason Godot-bikarinn í
fyrsta sinn við hátíðlega athöfn og
sagði Sigrún Valbergsdóttir, kynn-
ingarstjóri Borgarleikhússins, að
þeim hefði dottið þetta í hug þar
sem Beðið eftir Godot hefur aldrei
verið sýnt oftar en 10 sinnum í þeim
fjórum uppfærslum sem verið hafa
á leikritinu hér á Íslandi.
„Sýningar LR árið 1960 voru sjö,
hjá Leikfélagi Akureyrar 1980
voru þær samtals 9 (á Akureyri og
á Listahátíð í Reykjavík), Stúdenta-
leikhúsið sýndi 10 sinnum 1990 og
Leikfélag Selfoss var með 9 sýn-
ingar 1994/95.
Hér á Nýja sviði Borgarleikhúss-
ins er búið að sýna 11 sinnum og
okkur þótti rétt að fagna þessum
tímamótum við upphaf 12. sýning-
arinnar með því að Árni Tryggva-
son, sem lék annan flakkarann á
móti Brynjólfi Jóhannessyni í sýn-
ingu LR 1960 og síðan aftur á Ak-
ureyri 20 árum síðar, afhenti leik-
endum sýningarinnar
Godot-bikarinn.“
Að sögn Sigrúnar á Godot-
bikarinn að verða farandbikar og
gengur þá væntanlega til þeirrar
sýningar á verkinu sem nær að
brjóta tíu sýninga múrinn næst.
Godot-bikarinn afhentur
í fyrsta sinn við athöfn
Morgunblaðið/Sverrir
Björn Ingi Hilmarsson, Halldór Gylfason, Hilmir Snær Guðnason, Bene-
dikt Erlingsson og Arnmundur Ernst Björnsson taka við Godot-bik-
arnum af Árna Tryggvasyni.