Morgunblaðið - 06.01.2002, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 06.01.2002, Qupperneq 42
MINNINGAR 42 SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Ég vil með nokkr- um orðum og með söknuð í huga minn- ast frænda míns Guð- mundar Þórarins Pálssonar sem lést á heimili sínu 22. des- ember sl. Skyldleiki okkar var sá að feður okkar voru bræður en mæðurnar þremenningar. Fjöl- skylda hans bjó í Reykjavík þar sem Páll faðir hans starfaði lengst af sem húsasmíðameistari. Mjög duglegur og hæfur maður. Guðmundur var einbirni. For- eldrar mínir ásamt fjórum börnum sínum bjuggu við lítil efni á erfiðri jörð efst uppi í Borgarfjarðardöl- um. Mér er í barnsminni hve mér þótti þessi jafnaldri minn og frændi snyrtur, prúður og upp- dubbaður er hann ásamt foreldrum sínum kom í heimsókn til okkar í sveitinni. Mér þótti sem ég stæðist engan veginn samjöfnuð við hann. Allra síst í klæðaburði. Ég hafði mestan áhuga á hrossa- og kúa- smölun, einkum þó hrossa, einnig ýmsum öðrum snúningum og barnaleikjum. Það kom í ljós að honum þótti nokkuð til um færni mína í þessu stússi, einkum þó í sambandi við hestana. Hann leitaði leyfis að fá að fara á hestbak með mér. Það fékkst eftir nokkra um- fjöllun. Hann hafði aldrei áður á hestbak komið og mér þótti sem minn hagur vænkaðist er ég sá hve verr hann stóð að vígi en ég og fann einnig að honum þótti mikið til um mína kunnáttu, sem þó var ekki til að hæla sér af. Hverfum nú frá þessum mannjöfnuði okkar frændsystkina. Örfáum árum síð- ar, er heilsuleysi föður míns og erfiðleikar því tengdir steðjuðu að fjölskyldunni, varð það að ráði að ég færi vetrarlangt til dvalar hjá Páli frænda mínum og konu hans Theodóru til að létta undir með móður minni sem nú stóð ein fyrir búi ásamt ungum börnum. Það var bæði tilhlökkun og kvíði í brjósti tíu ára stúlku er hún kvaddi systkini og móður og hélt ásamt Páli frænda áleiðis til Reykjavíkur. Er þangað kom, eftir langan Hvalfjörð og bílveiki, tók Dadda frænka mín, kona Páls, á móti mér opnum örmum. Mér er það enn í minni hve hlýjan frá henni streymdi til mín. Nú tókust á ný samskipti og kynni okkar Guðmundar. Á þessu heimili, á Kirkjuteigi 13, dvaldi ég vetrar- langt í góðu yfirlæti. Guðmundur átti ýmiskonar leikföng, litabækur, liti og fleira sem ekki hafði mikið borið mér fyrir augu í sveitinni. Hann leyfði mér vinsamlega að deila þessu öllu með sér. Áttum við saman góðan og systkinalegan vet- GUÐMUNDUR ÞÓR PÁLSSON ✝ Guðmundur ÞórPálsson fæddist 7. júlí 1934 í Reykja- vík. Hann lést 22. desember síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Fríkirkj- unni í Reykjavík 3. janúar. ur við leiki og ýmis- legt brall. Þarna á heimilinu voru einnig, til margra ára, tvær systur Döddu, Sól- veig, sem bjó þar í húsinu, og Elín, sem átti heimili skammt frá. Báðar voru þær þarna í fæði. Einnig var kostgangari þeirra hjóna í áratugi kennari við Laugar- nesskóla, Skeggi Ás- bjarnarson. Hann var þekktur sem úrvals- kennari, einnig sá hann á tímabili um barnatíma í Ríkisútvarpinu. Þarna var oft glatt á hjalla þegar allt þetta fólk var samankomið á matmálstímum. Páll frændi sat við annan borðsendann og ég við hlið hans og við hinn sat Dadda og Guðmundur við hlið hennar. Við töluðum þá gjarnan saman á merkjamáli yfir borðið. Þær systur Sólveig og Elín fóru ekki dult með dálæti sitt á syst- ursyni sínum. Stundum hefi ég hugleitt það síðar á ævinni að ekki mátti það meira vera svo það gæti talist honum hollt. Um vorið kom móðir mín til Reykjavíkur og þá kvaddi ég allt þetta góða fólk og hélt með henni heim í sveitina aft- ur. Síðan göngum við frændsystk- inin sitt hvorn æviveginn. Hann tók stúdentspróf frá Verslunarskólanum. Að því loknu fer hann til Svíþjóðar til háskóla- náms og útskrifast þar arkitekt. Heim kominn frá námi stofnaði hann teiknistofu ásamt öðrum og þar liggur hans ævistarf. Á þess- um árum kvæntist hann glæsilegri og góðri konu, Ragnhildi Vil- hjálmsdóttur. Þau eignuðust fjögur efnileg börn sem öll eru vel menntaðir og metnir þjóðfélags- þegnar. Þau Ragnhildur slitu sam- vistir fyrir fáeinum árum. Þar sem leið mín lá austur á Fljótsdals- hérað til búsetu um áratugi varð minna um samfundi og sambandið því slitróttara en við hefðum ósk- að. Frændsemisböndin voru þó sterk, það finn ég best að honum gengnum. Ég vil votta honum látn- um virðingu mína og þökk og eft- irlifandi fjölskyldu hans samúð. Far þú í friði frændi. Guðrún Gunnarsdóttir. Við fráfall Guðmundar Þórs Pálssonar leitar á hugann sú spurning, að hve miklu leyti hver og einn ræður sínum örlögum sjálfur og hvern þátt eiga utanað- komandi öfl – óháð vilja og hæfi- leikum einstaklingsins – í æviferl- inum. Við vorum bræðrasynir að skyldleika og bárum báðir nafn sama föðurbróður okkar sem fórst á ungum aldri, árum fyrr en við fæddumst. Tvo vetur af skóla- göngu minni í Reykjavík átti ég samastað á heimili foreldra hans og kynntist honum þá sem dreng, rétt innan við fermingu. „Frændur eru frændum verstir,“ segir máls- hátturinn og kom það að nokkru leyti fram á okkur, við áttum ekki alltaf skap saman. Það kom jafnvel fram í raunverulegum áflogum þar sem hann hafði næstum í fullu tré við mig þótt ég væri fjórum árum eldri. Faðir hans var vel metinn húsa- smíðameistari sem stóð m. a. fyrir byggingu landsþekktra húsa svo sem Borgartúns 6, Rúgbrauðs- gerðarinnar, og húss skáldsins, Gljúfrasteins hjá Laxnesi. Það fór því að líkum að einkasonur hans veldi sér arkitektúr að námsefni eftir stúdentspróf frá Verslunar- skólanum. Nýútskrifaður arkitekt þurfti tæplega að kvíða verkefnaleysi á árunum kringum 1960, þá hófust uppgangstímar og viðreisnarstjórn var yfir landinu. Framtíðin virtist því blasa björt við frænda mínum, hann var kvæntur glæsilegri konu, byggði sér stórt og vandað ein- býlishús og setti á stofn arkitekta- stofu sem fékk næg verkefni. Hann lagði sérstaka stund á hönn- un skólabygginga sem margar risu á þessum árum vítt og breitt um landið. Hverjum þeim sem þá til þekkti hefði virst það harla ótrúlegt að allt þetta, sem hér var talið, væri honum úr greipum gengið meðan hann var enn á miðjum aldri og hefði átt að eiga þó nokkur ár eftir af starfsferli sínum. „Einn er sér- hver of sefa,“ er forn málsháttur. Innstu hugarfylgsni okkar eru víst ókunnn jafnvel þeim sem okkur eru nákomnastir. Þar leynist án efa oft sú orsök sem vísar einum á farsælan æviveg en öðrum á braut ógæfunnar. Sú tilgáta hefur komið fram að dulið þunglyndi hafi búið með frænda mínum og beint hon- um inn á þá braut sem hann gekk síðustu æviárin. Þá var honum e.t.v. ekki að öllu leyti gott vega- nesti að vera einbirni velmegandi foreldra sem allt vildu honum gott gera og greiða veg hans sem best. Enn verður þess að geta að í hann læsti klóm sínum sá demón sem engan gerir sér mannamun, áfeng- issýkin, er braut niður heilsu hans svo að nokkur síðustu ár var hann sviptur orku og löngun til starfa. Fyrir honum lá þá að eyða dögum sínum oftast sem einbúi í íbúð sem aðrir völdu handa honum og vera þar háður umönnun og eftirliti sinna nánustu. Þrátt fyrir það sem áður segir um samkomulag okkar þá ræktum við frændsemi á fullorðinsárum. Ég var þá búsettur fjarri höfuð- borginni en leit gjarnan við hjá honum ef ég átti leið þangað. Fyrr á árum gat ég oft ekki fundið af orðum hans og viðmóti að hann gleddist sérstaklega af komu minni. Það breyttist hin síðustu ár eftir að hann var orðinn einbúi og þrotinn að heilsu. Þá hafði hann á stundum frumkvæði að því að hringja í mig hingað norður til Ak- ureyrar. Einnig fann ég að honum þótti ekki verra að ég héldi á hans fund ef ég var staddur í höfuð- borginni. Ein og sama hugsunin kemur oft að manni þegar einhver nákominn eða kunnugur hverfur af þessum heimi: „Ég hefði getað rækt samband, kunningsskap eða vináttu við hann betur en ég gerði.“ Þannig er mér farið eftir fregnina um andlát frænda míns. Úr því verður ekki bætt svo sem komið er. Um leið og nánustu að- standendum er vottuð samúð og hluttekning fylgir honum frá minni hendi ósk um tilveru bjartari, betri og gæfuríkari en sú sem hann átti hérna megin grafar. Guðmundur Gunnarsson. Leiðir okkar Guðmundar Þórs Pálssonar arkitekts lágu fyrst saman í kringum 1965. Þá setti hann á fót eigin arkitektastofu á Óðinsgötu 7 í sama húsi og við á Teiknistofunni Óðinstorgi störfum í. Áður hafði hann starfað hjá Húsameistara ríkisins, en það var að loknu námi, og síðan vann hann skamma hríð hjá menntamálaráðu- neytinu m.a. að gerð staðla fyrir skólabyggingar. Mikill samgangur og samvinna var milli okkar og bar aldrei skugga á. Guðmundur var mikil- hæfur arkitekt sem hafði næmt auga fyrir byggingarlist. Vand- virkni og vinnusemi var honum í blóð borin og féll honum einkar vel mótun steyptra mannvirkja. Sam- starf okkar var mikið og sáum við um verkfræðihlutann við marga skóla og íþróttamannvirki sem hann hannaði. Þannig voru mörg stór mannvirki hönnuð og boðin út undir góðri stjórn Guðmundar Þórs. Hann vandaði alla sína vinnu og skilgreindi nákvæmlega allt í útboðsgögnum enda fátítt í hans verkum að vandkvæði kæmu upp á framkvæmdatímanum. Guðmundur var hæglátur og meinfyndinn og margar skemmti- legar sögur sagði hann okkur og ekki sakaði ef þær voru eilítið tví- ræðar. Þannig var ávallt auðvelt að slá á létta strengi þegar unnið var að hinum ýmsu verkefnum. Það var mjög einkennandi fyrir Guðmund hversu umtalsgóður hann var og minnist ég þess ekki að hafa heyrt hann tala illa um nokkurn mann öll þau ár sem við störfuðum saman. Í huga okkar geymum við minn- inguna um góðan dreng sem kom mörgu góðu í verk á sínu allt of stutta lífshlaupi. Við samstarfsfólk Guðmundar á Teiknistofunni Óðinstorgi vottum Ragnhildi og börnum þeirra okkar innilegustu samúð. Blessuð sé minning Guðmundar Þórs Pálssonar. Vífill Oddsson. Ég sat á biðstofu fræðslustjór- ans í Reykjavík og beið eftir að ganga til fundar við starfsmenn Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur og arkitekta á teiknistofunni Ark- hönn. Inn ganginn stormuðu seint og um síðir tveir menn og gustaði af. Sá sem fyrr kom var fremur hár maður vexti og þéttur, klædd- ur í gallabuxur sem haldið var uppi af rauðum axlaböndum, bláa skyrtu, svartan leðurjakka og tréklossa. Í munni var hálfreyktur vindill og stóð reykstrókurinn aft- ur. Þetta var Guðmundur Þór Pálsson arkitekt. Á eftir kom þá- verandi samstarfsmaður hans, Jón Ólafsson innanhússarkitekt, róleg- ur í fasi og yfirvegaður að vanda. Þetta var vorið 1976 og hittumst við Guðmundur þarna í fyrsta skipti. Til umræðu var samstarf um hönnunarverkefni. Þetta var stór fundur þar sem báðir sögðu fátt, ég nýgræðingur og óöruggur en Guðmundur fámáll að eðlisfari og stíl. Fundurinn varð langur og margt skeggrætt en undir lok fundarins sneri Guðmudur sér að mér og spurði „Vilt þú vinna með okkur?“ Þessi spurning kom mér í opna skjöldu, hafði ekki reiknað með að nýgræðingurinn ætti nokk- urt val. Ég svaraði að bragði „Já.“ Guðmundur kinkaði kolli, fundin- um var lokið og hafið var farsælt samstarf sem stóð vel á annan ára- tug. Guðmundur var hamhleypa til vinnu og vann mikið. Hann vildi hafa hlutina á ákveðinn hátt og lagði mikið upp úr að orð stæðu. Hann var af kynslóð arkitekta sem litu fyrst og fremst á sig sem lista- menn en Guðmundur hafði einnig góðan skilning á praktískum þátt- um byggingarframkvæmda enda lærður smiður. Hann var útsjón- arsamur arkitekt, lagði mikla áherslu á notagildi húsa og bera skólar sem Guðmundur hannaði þess glögg merki. Nefna má Fjöl- brautaskólann í Breiðholti, Fjöl- brautaskólann við Ármúla, Selja- skóla, Foldaskóla, Selásskóla, Grandaskóla og Hjallaskóla sem dæmi um þetta auk margra ann- arra bygginga. Stíll Guðmundar var sérstakur og auðþekkjanlegur þar sem beinar línur og hreinir fletir gegndu miklu hlutverki. Raunar var það svo að börn mín ung gerðu sér það að leik í öku- ferðum um borgina að giska á hvaða byggingar væru hannaðar af Guðmundi enda farin að þekkja stílinn því þau fylgdu mér oft á eft- irlitsferðum mínum í byggingar sem við höfðum unnið að hönnun á saman. Guðmundur var fagurkeri, hann málaði og teiknaði á sínum yngri árum og naut alls þess sem glatt getur skynfæri mannsins. Minn- isstæður er t.d. eftirmiðdagur þar sem við sátum á teiknistofunni hans og hann las upp fyrir mig vís- ur sem skrifaðar voru aftan á göm- ul ávísanahefti, vísur sem hann hafði heyrt og hnoð sem hann sjálfur hafði gert. Með hverri vísu fylgdi saga. Við hlógum mikið, Guðmundur bak við reykskýið hall- andi undir flatt til þess að geta les- ið gegnum reykinn, kímandi niður í bringu sér. Guðmundur var þenn- an eftirmiðdag að vinna í bókhaldi. Við urðum fljótt vinir og á milli okkar myndaðist trúnaðartraust sem náði ekki aðeins til vinnunnar heldur einnig til annarra þátta mannlegra samskipta. Oft fór lang- ur tími í að leysa lífsgátuna og í umræður um dægurmál þar sem sitt sýndist hvorum. Alltaf gat ég leitað ráða um stórt og smátt og er ég ævinlega þakklátur Guðmundi fyrir að hafa oft leitt mig inn á réttar brautir þegar þörf var á í hita leiksins, þá gjarnan með hnit- miðuðum stuttum spurningum eða setningum sem enduðu á „það verð ég hreint að segja“. Þegar svo brá við vissi ég að best væri að fara eftir því sem sagt var. Guðmundur var trygglyndur maður sem hægt var að treysta. Ég kynntist fjölskyldu Guð- mundar. Hann sagði sögur af „stelpurófunni“ og strákunum og fylgdist ég því óbeint með helstu afrekum þeirra. Guðmundur var stoltur af fjölskyldu sinni og taldi það sína mestu gæfu í lífinu að hafa auðnast að eignast svo heil- brigða og góða fjölskyldu sem raun ber vitni. Síðustu samtöl okkar fjölluðu um stöðu hans í lífinu, börnin og barnabörnin en fyrst og fremst um konuna í lífi hans sem sýndi honum ótrúlega ást og trygglyndi til síðasta dags þrátt fyrir að þau hefðu skilið. Guðmundur var hjartagóður maður sem ekkert aumt mátti sjá. Aldrei heyrði ég hann hallmæla nokkrum manni eða sá hann leggja illt til. Stutt var í húmorinn undir alvörugefnu og þöglu yfirbragði. Hann var vinur sem stóð með vin- um sínum í gegnum súrt og sætt. Það reyndi ég. Ég kveð nú vin og samferða- mann með virðingu og þökk. Við hjónin sendum ástvinum Guð- mundar okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Megi guðs blessun fylgja þeim sem stóðu honum næst. Ágúst Þór Jónsson. Þegar Guðmundur Þór er fallinn frá hrannast minningarnar upp. Minningar um góðan vin, sem allt- af var tilbúinn að veita liðsinni ef þess var þörf, sem ekkert mátti aumt sjá og lét sér sífellt annt um hag vina sinna og sinna nánustu. Þannig vil ég muna hann, þótt seinustu árin hafi verið honum erf- ið og vágestur mikill náð tökum á honum, uns slys á heimili hans batt enda á ævi hans. Guðmundur var gæddur listræn- um hæfileikum og góðum gáfum, sem snemma komu í ljós og nýtt- ust honum vel í starfi hans. Sem unglingur spilaði hann á orgel og margar fallegar myndir hef ég séð sem hann málaði á þeim árum. Á sumrum vann hann við húsbygg- ingar hjá föður sínum, sem var tré- smíðameistari, svo það lá beint við hvaða fag hann lærði, enda tók hann þá ákvörðun snemma. Ég man þegar ég tók fyrst eftir Guð- mundi. Það var í fjórða bekk í Verzlunarskóla Íslands. Bekkjar- systir okkar var að fá aðsvif við töfluna, en enginn tók eftir því eða bara horfði, en allt í einu kom hlaupandi ljóshærður ungur mað- ur, sem sat á aftasta bekk, og bjargaði málum. Þannig var Guð- mundur, fljótur að hugsa og fljótur að bregðast við til hjálpar. Haustið eftir stúdentspróf hélt hann til Gautaborgar þar sem hann stund- aði nám í arkitektúr við Chalmers-                                  !" "! "##$  %  &#$ " "!'   &#$  ()#  '  &' *!" +$#$ ,!"  &' -.' &#$ /  &#$  "  ' ..,'...,0
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.