Morgunblaðið - 06.01.2002, Side 64

Morgunblaðið - 06.01.2002, Side 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. STREKKINGSVINDUR hefur lam- ið rigningu framan í Reykvíkinga undanfarið í óvenjulegum hlýind- um í ársbyrjun. Þótt vart sé hundi út sigandi þarf mannfólkið að sinna sínum erindum þó að vindar blási og regnið falli í stríðum straumum. Þá er gott að hafa góðar skjólflíkur til að sveipa um sig þegar strunsað er milli húsa, þrátt fyrir að það gildi væntanlega enn sem fyrr að enginn sé verri þótt hann vökni. Flestir eru þó sammála um að væt- an getur verið ónotaleg inn við beinið og því best að búa sig vel. Morgunblaðið/Kristinn Rigning í Reykjavík FORVARNADEILD lögreglunnar í Reykjavík hefur í fyrsta skipti gripið til þeirrar ráðstöfunar, að senda bréf til íbúa í Seljahverfi í Breiðholti vegna innbrotaöldu í bíla þar sem kynntar eru ýmsar leiðir til að verjast innbrot- um. Bílainnbrot í hverfinu hafa verið áberandi tíð á liðnu hausti, en tilkynnt var um 68 innbrot á þriggja mánaða tímabili, frá september til desember. Verulegt tjón getur hlotist af einu bílainnbroti, þótt ekki sé nema vegna rúðubrota. Segir lögreglan að algengt verð einnar hliðarrúðu í bíl sé 30 til 50 þúsund krónur að ótöldu því tjóni sem verður við sjálfan þjófnaðinn. Þá bendir lögreglan á að tjón sem bíla- eigendur verða fyrir í innbrotum fáist að jafnaði ekki bætt af trygginga- félögum. Að sögn Stefáns Alfreðssonar, hverfislögreglumanns í Breiðholti, hefur í 44 tilvikum af 68 verið brotist inn í bíla þar sem þeir standa í lok- uðum bílageymslum. Oft beita þjóf- arnir þeirri aðferð að brjótast inn um glugga eða hliðardyr til að komast inn í geymslurnar, en nota sjaldnast að- albílskúrsdyr. Í haust var gengið svo hart fram í innbrotunum að brotist var inn í 17 bíla í einu og sama tilvik- inu. „Íbúar í hverfinu hafa rætt saman vegna þessarar innbrotahrinu og sumstaðar eru í bígerð ýmsar úrbæt- ur auk þess sem málin sæta rannsókn lögreglunnar,“ segir Stefán. Hann hvetur eigendur bíla- geymslna til að huga vel að manna- ferðum þar og rekist fólk á ókunnuga sé rétt að spyrja hver sé á ferð og hvaða erindi viðkomandi eigi þangað. Þá er gott að huga vel að dyra- og gluggaumbúnaði og útilýsingu og huga að lyklakerfi geymslnanna enda hefur komið í ljós að þjófar hafa kom- ist inn í þær með gömlum lyklum. Benda má á forvarnavef lögregl- unnar þar sem farið er yfir helstu varnir gegn bílainnbrotum. Slóðin er www.lr.is. Varað við bílainnbrot- um í Selja- hverfi MINNINGARSTUND um hjónin og ungan son þeirra sem létust í eldsvoðanum á Þingeyri aðfara- nótt föstudags var haldin í Þing- eyrarkirkju í gær klukkan 17. Guðrún Edda Gunnarsdóttir, sóknarprestur á Þingeyri, stjórn- aði athöfninni. Í samtali við Morg- unblaðið sagði hún að íbúar á Þingeyri og í nærsveitum væru sem lamaðir af sorg. Lögreglan á Ísafirði fékk að- stoð tveggja sérfræðinga frá rík- islögreglustjóra auk sérfræðings frá Löggildingarstofu við að rann- saka hvað orsakaði eldsvoðann. Vettvangsrannsókn fór fram í gærkvöld og stóð fram yfir mið- nætti í fyrrinótt. Rannsóknin var á lokastigi í gær en niðurstaða lá ekki fyrir þegar Morgunblaðið fór í prentun. Minningarstund í Þingeyrarkirkju MEÐ bættum árangri af krabba- meinsmeðferð barna sem fengið hafa hvítblæði hafa ýmsar síðkomnar og langvinnar aukaverkanir orðið æ ljósari. Koma þær m.a. fram á vexti barnanna, innkirtlastarfsemi og and- legum þroska. Samkvæmt niður- stöðum rannsóknar sex lækna sem greint er frá í grein í Læknablaðinu hefur hvítblæðismeðferð í æsku merkjanleg áhrif á hæð og þyngd sjúklinganna en áhrifin á innkirtla- starfsemi og árangur í skóla eru þó greinilegust. Er mjög mikilvægt að mati höf- unda rannsóknarinnar að þekkja langtímaáhrif hvítblæðis og hvít- blæðismeðferðar. Rannsóknin var gerð á 20 börnum sem greinst höfðu með hvítblæði á Íslandi á árunum 1981 til 1990. Rannsakaðar voru aukaverkanir meðferðar og safnað var upplýsing- um um hæð, þyngd, árangur í skóla, blóðhag, starfsemi innkirtla og fleira. „Þrátt fyrir umtalsverða lækkun á sumum mótefnaflokkum er sjúkling- unum ekki hættara við sýkingum. Erfitt reyndist að meta áhrif á lungu og heyrn. Þessar niðurstöður eru sambærilegar við erlendar rann- sóknir og sýna að nauðsynlegt er að fylgja börnum sem læknast hafa af hvítblæði markvisst eftir í langan tíma,“ segja sérfræðingarnir í nið- urstöðum sínum. Margir þurfa sérkennslu Þar kemur einnig fram að óvenju- margir sjúklinganna þurfa á sér- kennslu að halda og segir í greininni að mjög mikilvægt sé að skólayfir- völdum sé gerð grein fyrir þessu, „því þau börn sem hafa lifað af krabbamein eru fleiri í almenna skólakerfinu en heyrnarskert, sjón- skert eða mjög fötluð börn […]. Erf- itt er að draga afgerandi ályktanir af niðurstöðum okkar hvað þetta atriði varðar. Einstaklingarnir eru fáir og auk þess á misjöfnum aldri. Niður- stöður okkar renna þó stoðum undir það álit að meðferðin hafi nokkur áhrif á námsárangur,“ segir m.a. í niðurstöðum sérfræðinganna. Fram kemur að fyrir 30 árum var hvítblæði í flestum tilvikum ban- vænn sjúkdómur í börnum en síðan þá hefur árangur meðferðar batnað til muna og nú ná 65–70% bata. Á Norðurlöndunum greinast á hverju ári rúmlega 6.000 börn 15 ára og yngri með krabbamein. Af þeim eru 32% með hvítblæði og 27% með heilaæxli. Nýgengi krabbameina í börnum á Norðurlöndunum er því 14,6 af hverjum 100.000 börnum, að því er fram kemur í greininni. Á Ís- landi greinast að meðaltali átta börn með krabbamein ár hvert, þar af þrjú með hvítblæði. Höfundar eru sérfræðingarnir Valur Helgi Kristinsson, Jón R. Kristinsson, Guðmundur Kr. Jón- mundsson, Ólafur Gísli Jónsson, Árni V. Þórsson og Ásgeir Haralds- son en þeir starfa við læknadeild Há- skóla Íslands, Barnaspítala Hrings- ins, Landspítala við Hringbraut og á barnadeild LSH í Fossvogi. Rannsaka aukaverkanir hvítblæðismeðferðar hjá börnum Áhrif á námsárangur og andlegan þroska HIÐ þekkta bandaríska tímarit The National Geographic hefur blásið af úttekt um Kárahnjúkavirkjun og áhrif hennar á umhverfið sem birtast átti í aprílhefti tímaritsins. Ákvörðun var tekin um það sl. fimmtudag að hætta við birtingu hennar á þeim for- sendum að úrskurður Sivjar Frið- leifsdóttur umhverfisráðherra um að leyfa virkjunina að uppfylltum skil- yrðum geri úttektina ótímabæra. „Greinin er algjörlega tilbúin með myndum, kortum og texta en hún mun því miður ekki birtast. Afstaða ritstjórnar tímaritsins er sú að úr- skurður ráðherra setji málið allt í loft upp og staðan sé of flókin nú um stundir og of margir óvissuþættir til þess að borgi sig að birta viðamikla úttekt á Kárahnjúkavirkjun,“ sagði John Swan, blaðamaðurinn sem skrifaði greinina. Hann átti hér við- töl við forráðamenn Landsvirkjunar og Reyðaráls, en einnig umhverfis- verndarfólk, enda segir hann rit- stjóra tímaritsins hafa lagt áherslu á að fá hlutlausa úttekt á stöðu mála og þeim framkvæmdum sem væru fyr- irhugaðar. „Í þessum bransa getur þetta allt- af komið fyrir og ég skil vel sjón- armið stjórnenda blaðsins. Mikil óvissa er um verkefnið á Íslandi og því er ekki að undra þótt Bandaríkja- mönnum þyki það flókið. Ráð- herrann hefur sett flókin skilyrði fyrir framkvæmdinni, það er enn óvissa með þátttöku Norsk Hydro og fleira er enn ófrágengið,“ sagði hann. Kárahnjúkaúttekt blásin af

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.