Morgunblaðið - 13.01.2002, Side 9

Morgunblaðið - 13.01.2002, Side 9
 Almennt skrifstofunám Almenna skrifstofunámið er valkostur þeirra sem vilja starfa í viðskipta- lífinu. Kennd er tölvunotkun, bókhald, verslunarreikningur, tollskýrslugerð, stjórnun, íslenska og enska. Námið hefur opnað fjölda nemenda leið til að skipta um starfsvettvang og sækja um áhugaverð og krefjandi störf. Nemendur eru í góðum tengslum við bekkjarfélaga og kennara sem auð- veldar allt nám. Nemendum úr Almenna skrifstofunáminu vegnar vel og hefur nám þeirra nýst við fjölbreytt skrifstofustörf. Fjármála- og rekstrarnám Fjármála- og rekstrarnám er fyrir þá sem vilja starfa í fjármálageiranum. Lögð er megináhersla á bókhald, rekstrarhagfræði, fjármál, markaðsfræði og stjórnun, auk tölvunotkunar. Unnin eru verkefni úr atvinnulífinu sem tengir námið raunverulegu starfsumhverfi og gerir nemendur hæfa til að sjá um bókhald smærri fyrirtækja eða vinna í fjármáladeildum. Markaðs- og sölunám Markaðs- og sölunámið sækja þeir sem ætla sér að starfa að markaðs- og sölumálum. Þungamiðja námsins er markaðsfræði, markaðsrann- sóknir, sölutækni, rekstrarhagfræði, stjórnun og aðferðafræði, auk þess sem stór hluti námsins er tölvunotkun. Námið byggir á raunhæfum verk- efnum og mikilli tengingu við atvinnulífið. Unnin eru verkefni í samvinnu við fyrirtæki þar sem reynir mikið á þekkingu og færni nemenda. Alhliða tölvunám Alhliða tölvunám er fjölbreytt nám sem er kjörið fyrir þá sem vilja vinna við tölvur eða hyggja á frekara tölvunám. Megin áhersla er lögð á Office for- ritin og taka nemendur hin alþjóðlegu MOUS próf (Microsoft Office User Specialist) sem meta þekkingu og færni í Word, Excel, PowerPoint og Access. Kennt er hvernig hægt er að aðlaga Office umhverfið að þörfum notenda með Visual Basic forritun. Jafnframt er lögð áhersla á vefsíðu- gerð og myndvinnslu. Kennt er á vélbúnað, Windows stýrikerfi og netkerfi. Námið hefst 11. febrúar og er að fullu lánshæft. Opið hús laugardaginn 19. janúar kl. 13-17. Nám í Viðskipta- og tölvuskólanum greiðir leið inn á atvinnumarkaðinn og opnar fyrir möguleikann á því að sækja um störf í viðskiptalífinu. Viðskipta- og tölvuskólinn hefur því alltaf verið eftirsóttur valkostur fyrir þá sem hyggja á starfsnám og hefur hann áunnið sér virðingu fyrir hnitmiðað nám og framúrskarandi nemendur. Innr itun hafi n fy rir v orön n 2002 á vinnumarkaðinum? Ertu samkeppnisfær Faxafeni 10 ( Framtíð ) · 108 Reykjavík Sími 588 5810 · Fax 588 5822 framtid@vt.is · www.vt.is S k ó l i v i ð s k i p t a l í f s i n s

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.