Morgunblaðið - 13.01.2002, Qupperneq 9
Almennt skrifstofunám
Almenna skrifstofunámið er valkostur þeirra sem vilja starfa í viðskipta-
lífinu. Kennd er tölvunotkun, bókhald, verslunarreikningur, tollskýrslugerð,
stjórnun, íslenska og enska. Námið hefur opnað fjölda nemenda leið til að
skipta um starfsvettvang og sækja um áhugaverð og krefjandi störf.
Nemendur eru í góðum tengslum við bekkjarfélaga og kennara sem auð-
veldar allt nám. Nemendum úr Almenna skrifstofunáminu vegnar vel og
hefur nám þeirra nýst við fjölbreytt skrifstofustörf.
Fjármála- og rekstrarnám
Fjármála- og rekstrarnám er fyrir þá sem vilja starfa í fjármálageiranum.
Lögð er megináhersla á bókhald, rekstrarhagfræði, fjármál, markaðsfræði
og stjórnun, auk tölvunotkunar. Unnin eru verkefni úr atvinnulífinu sem
tengir námið raunverulegu starfsumhverfi og gerir nemendur hæfa til að
sjá um bókhald smærri fyrirtækja eða vinna í fjármáladeildum.
Markaðs- og sölunám
Markaðs- og sölunámið sækja þeir sem ætla sér að starfa að markaðs-
og sölumálum. Þungamiðja námsins er markaðsfræði, markaðsrann-
sóknir, sölutækni, rekstrarhagfræði, stjórnun og aðferðafræði, auk þess
sem stór hluti námsins er tölvunotkun. Námið byggir á raunhæfum verk-
efnum og mikilli tengingu við atvinnulífið. Unnin eru verkefni í samvinnu
við fyrirtæki þar sem reynir mikið á þekkingu og færni nemenda.
Alhliða tölvunám
Alhliða tölvunám er fjölbreytt nám sem er kjörið fyrir þá sem vilja vinna við
tölvur eða hyggja á frekara tölvunám. Megin áhersla er lögð á Office for-
ritin og taka nemendur hin alþjóðlegu MOUS próf (Microsoft Office User
Specialist) sem meta þekkingu og færni í Word, Excel, PowerPoint og
Access. Kennt er hvernig hægt er að aðlaga Office umhverfið að þörfum
notenda með Visual Basic forritun. Jafnframt er lögð áhersla á vefsíðu-
gerð og myndvinnslu. Kennt er á vélbúnað, Windows stýrikerfi og netkerfi.
Námið hefst 11. febrúar og er að fullu lánshæft.
Opið hús laugardaginn 19. janúar kl. 13-17.
Nám í Viðskipta- og tölvuskólanum
greiðir leið inn á atvinnumarkaðinn
og opnar fyrir möguleikann á því að
sækja um störf í viðskiptalífinu.
Viðskipta- og tölvuskólinn hefur því
alltaf verið eftirsóttur valkostur fyrir
þá sem hyggja á starfsnám og hefur
hann áunnið sér virðingu fyrir
hnitmiðað nám og framúrskarandi
nemendur.
Innr
itun
hafi
n fy
rir v
orön
n
2002
á vinnumarkaðinum?
Ertu samkeppnisfær
Faxafeni 10 ( Framtíð ) · 108 Reykjavík
Sími 588 5810 · Fax 588 5822
framtid@vt.is · www.vt.is
S k ó l i v i ð s k i p t a l í f s i n s