Morgunblaðið - 13.01.2002, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 2002 11
Bókhald 1
Námið er fyrir byrjendur og hentar þeim sem hafa áhuga á
að kynna sér eða starfa við bókhald.
Fjallað er um grundvallaratriði bókhalds, tilgang þess og hlutverk
bókarans. Farið er í dagbókarfærslur s.s. sölu og kostnað, viðskipti
við útlönd, kaup og sölu eigna og skuldabréfa- og veðlánaviðskipti.
Efnahags- og rekstrarreikningar gerðir. Farið í launaútreikninga og
skýrslur þeim viðkomandi. Meðferð virðisaukaskatts í bókhaldi og
útfylling á vsk-skýrslu. Kenndur er reikningsjöfnuður með einföldum
lokafærslum s.s. fyrirfram og ógreiddur kostnaður, tapaðar kröfur,
vextir, afskriftir tækja og áhalda og tilgangur þeirra. Nemendum eru
afhent raunhæf fylgiskjöl og þeir látnir færa bókhald eftir þeim.
Kennt er mánudaga og miðvikudaga
frá kl. 17:00 - 20:00
Kennsla hefst 28. janúar
Bókhald 2 (tölvubókhald)
Námið er fyrir þá sem hafa faglegan grunn
í bókhaldi og hafa áhuga á frekara námi.
Í náminu læra nemendur flóknari þætti bókhalds
og tölvubókhalds. Tekið er fyrir m.a.
dagbókarfærslur, reikningsjöfnuður og vaxta-
og prósentureikningur. Þá er farið í lög og
reglugerðir um bókhald og virðisaukaskatt
og skil vsk-skýrslu. Nemendur fara yfir lög
um staðgreiðslu opinberra gjalda, gerð
launaseðla, mat á hlunnindum til tekna og
skilagreinar staðgreiðslu. Einnig er tekið fyrir
afstemmingar, fyrningar, endurmat og
verðbreytingarfærslur, tekju- og eignaskattur
og skattaskil. Farið er í lestur ársreikninga og
verkefni í tölvubókhaldi færð samhliða yfir
námstímann.
Kennt er þriðjudaga og fimmtudaga
frá kl. 17:00 - 20:00
Kennsla hefst 29. janúar
Skráning í síma 588 5810
ókhald
Alhliða bókhaldsnám þar sem tekið er á
flestum þáttum bókhalds. Nemendur vinna
raunhæf bókhaldsverkefni úr viðskiptalífinu og
geta að námi loknu séð um bókhald smærri
fyrirtækja eða unnið í fjármáladeildum.
B
Faxafeni 10 · 108 Reykjavík · Sími 588 5810
Bréfasími 588 5822 · framtid@vt.is · www.vt.is
Innritu
n
í fullum
gangi
S k ó l i v i ð s k i p t a l í f s i n s
ÁKVÖRÐUN AngeluMerkel, formanns CDU,flokks kristilegra demó-krata í Þýskalandi, um aðverða ekki kanslaraefni
flokksins í þingkosningunum í haust
og láta það Edmund Stoiber, leiðtoga
CSU, systurflokks CDU í Bæjara-
landi, eftir hefur legið í loftinu. Merkel
tók við forystu kristilegra demókrata
þegar þeir voru í miklum öldudal
vegna peningahneykslis, sem varpaði
skugga á flokkinn og Helmut Kohl,
fyrrverandi kanslara.
Hún tók við þegar enginn annar
treysti sér til þess og hófst þegar
handa við reyna að greiða úr óreið-
unni, koma á breytingum og gera
flokkinn og innviði hans nútímalegri
með því að innleiða umræðu í stað ein-
ræðis hins sterka leiðtoga, en fékk
hins vegar lítinn stuðning hjá forystu-
mönnum kristilegu flokkanna heima í
héraði og þingflokkunum. Tilraunir
hennar til að sniðganga forystumenn
og höfða beint til grasrótarinnar
tryggðu henni ekki nægilega sterka
stöðu til að fá flokkssystkin sín til að
sameinast um framboð sitt til kansl-
ara.
Ráðast kosningarnar á miðjunni?
Fréttaskýrendur segja að undir
forystu Merkel hefðu kristilegir
demókratar leitað inn á miðju þýskra
stjórnmála, en margir eru þeirrar
hyggju að þar muni úrslit komandi
kosninga ráðast. Þeir benda á að
óflokksbundnir, óráðnir kjósendur
hafi aldrei verið fleiri. Einnig hefur
verið til þess tekið að í næstu kosn-
ingum verða tveimur milljónum fleiri
konur en karlar með atkvæðisrétt og
Merkel hefði verið líklegri til að nýta
sér það en Stoiber. Skoðanakannanir
hafa hins vegar gefið til kynna að
þýskir kjósendur séu þeirrar hyggju
að Stoiber yrði sigurstranglegra
kanslaraefni en Merkel.
Stoiber er forsætisráðherra Bæj-
aralands og þar leikur allt í lyndi í
efnahagsmálum á meðan annars stað-
ar í Þýskalandi eru erfiðleikar. Sömu-
leiðis er hvergi í Þýskalandi minna at-
vinnuleysi en í Bæjaralandi. CSU
hefur verið við völd í Bæjaralandi frá
lokum seinni heimsstyrjaldar, en
flokkurinn býður fram með CDU í
kosningum á landsvísu. Forystumenn
flokksins þakka sér að hafa gert
sveitahéruð Bæjaralands að mið-
punkti hátækni og iðnaðar, hvort held-
ur sem er á sviði upplýsingatækni eða
bílaframleiðslu með því að gangast
hnattvæðingunni á hönd án þess að
gleyma eigin siðum, Bæjarar gangi
áfram í leðurstuttbuxum þótt þeir séu
með fistölvuna í kjöltunni.
Undir verndarvæng Strauss
Stoiber hóf pólitískan feril sinn
undir verndarvæng Franz-Josef
Strauss. Strauss var mjög áberandi í
vestur-þýskum stjórnmálum á sínum
tíma og var kanslaraefni kristilegu
flokkanna árið 1980, en tapaði fyrir
Helmut Schmidt. Síðan hefur CSU
ekki átt kanslaraefni þar til nú.
Strauss lést árið 1988 og hefur leið
Stoibers legið upp á við síðan.
Stoiber er sagður munu draga
kristilegu flokkana til hægri. Bæjarar
eru katólskir og íhaldsamir og Stoiber
hefur slegið sér upp með því að boða
hörku í málefnum innflytjenda og lög-
gæslu. Hins vegar er búist við að
hann muni reyna að klekkja á sósíal-
demókrötum, SPD, með því að hamra
á stöðnun efnahagslífsins og hinu þrá-
láta atvinnuleysi, sem gert hafa að
verkum að Gerhard Schröder kansl-
ari virðist ekki lengur ósigrandi, en
ný skoðanakönnun, sem sýnir að SPD
og CDU/CSU standa nánast jafnfæt-
is, hefur óneitanlega vakið athygli.
Stoiber telur að lykillinn að því að
koma þýsku efnahagslífi á réttan kjöl
sé að leggja áherslu á að leysa efna-
hagsvandann í austurhluta landsins.
Stoiber notaði fyrsta sjónvarpsvið-
tal sitt eftir að hann hlaut útnefningu
sem kanslaraefni kristilegu flokkanna
til að gagnrýna Schröder fyrir að hafa
ekki staðið við heit sitt um að draga úr
atvinnuleysi. Hann sagði jafnframt að
kristilegu flokkarnir gætu sigrað í
kosningunum 22. september, þótt það
væri ofdramb að segja að þeir ættu
sigurinn vísan. Í öðru viðtali sagðist
hann mundu falla frá áætlun Schröd-
ers um að leggja af notkun kjarnorku
og leggja meira fé í herinn.
Stoiber og Merkel hittust yfir
morgunverði í heimabæ þess fyrr-
nefnda, Wolfratshausen, á föstudags-
morgun til að skera úr um hvort
þeirra yrði fyrir valinu og með
ákvörðuninni var bundinn endi á bak-
tjaldamakk, sem margir töldu að væri
farið að veikja flokkana. Menn eru lít-
ið farnir að velta fyrir sér hvað val
Stoibers muni hafa í för með sér fyrir
utan sveiflu kristilegra demókrata til
hægri. Þó hefur verið bent á að at-
burðarás föstudagsins megi kalla
valdarán bæverska systurflokksins í
CDU. Staða CSU hefur ekki verið svo
sterk frá tíð Strauss og segir blaða-
maðurinn Markus Deggerich í frétta-
skýringu á heimasíðu vikuritsins Der
Spiegel að CDU hafi kastað sér fyrir
fætur Bæjaranna vegna þess að
flokksmenn hafi óttast stjórnunarstíl
Merkel: „CDU hljóp til CSU vegna
þess að þar er allt enn eins og það var
í CDU: Sterkur leiðtogi, sem er hold-
tekja árangurs og gefur fyrirheit ef
fótgönguliðarnir í flokknum safnast
gagnrýnislaust saman að baki honum.
Kerfi Kohls hafði vetursetu í CSU og
nú ætlar CDU að sækja það aftur.
Með Merkel var tekið eitt skref fram
á við, en nú hafa verið tekin tvö skref
til baka. Vegna eigin óöryggis þorir
flokkurinn ekki að fara þá leið hug-
rekkis að bjóða konu fram til kanslara
og grípur þess í stað til hins gamal-
kunnuga.“
Merkel í góðri stöðu
hvernig sem fer
Deggerich bendir hins vegar á að
þótt hann telji CDU tapa á þessari
niðurstöðu muni Merkel standa með
pálmann í höndunum. Ef Stoiber sigr-
ar geti hún nánast valið sér ráðherra-
stól því hún hafi sýnt óeigingirni og
gefið Stoiber eftir kanslarastólinn til
að afstýra deilum í flokknum. En tapi
Stoiber mætti líta svo á að hún hefði
verið betri kostur. Sem stendur hafi
kristilegir demókratar hins vegar selt
örlög sín í hendur systurflokknum í
Bæjaralandi.
Kanslaraefni
af hægri
vængnum
Kristilegu flokkarnir í Þýskalandi hyggjast tefla fram
Edmund Stoiber gegn Gerhard Schröder kanslara í
þingkosningunum í september. Þykir þetta val boða
hægri sveiflu kristilegu flokkanna, en ekki eru menn
á eitt sáttir um það hvort þeir verði sigurstranglegri
fyrir vikið. Karl Blöndal lítur á stöðuna.
Reuters
Edmund Stoiber svarar spurningum blaðamanna í Munchen á föstudag með
Tutankahmum.
Angela Merkel, formaður kristilegra
demókrata, ræðir við blaðamenn.