Morgunblaðið - 13.01.2002, Síða 34
SKOÐUN
34 SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SÍFELLT lengjast
biðlistar sjúkrahús-
anna og ríkisrekin
heilsugæslan ræður
ekki við verkefni sín
sökum læknaskorts og
flótta lækna úr grein-
inni. Hér suðvestan-
lands bíða sjúklingar í
eina til þrjár vikur eft-
ir því að komast að hjá
heimilislækni sínum
og eiga í erfiðleikum
með að ná í hann í
síma. Sérfræðingar í
heimilislækningum
hafa á undanförnum
árum ítrekað sótt um
að gerast sjálfstætt starfandi
heimilislæknar með samning við
Tryggingastofnun ríkisins og hafa
nokkrir þeirra nýlega kvatt sér
hljóðs í blöðum þessa erindis. Þetta
hefur heilbrigðisráðuneytið hins
vegar ekki heimilað, þrátt fyrir
framangreint vandræðaástand, og
vill heldur hafa læknana sem
vinnuhjú hjá sér og helst banna
þeim að fitja upp á nokkurri ný-
breytni, eins og t.d. að bjóða lækn-
isþjónustu í heimahúsum sem tíðk-
ast hefur um aldir. Þá er tilhneig-
ing til að stýra því hvernig fólk
leitar sér læknis og hvar. Í lýðræð-
isríkjum heims er það hinsvegar
fólkið sem velur eða hafnar en ekki
valdsmenn ráðuneyta.
Læknar hafa að
leiðarljósi að gera það
sem unnt er á hverjum
tíma fyrir sjúklinga
sína og hefur flestum
tekist það dável þrátt
fyrir misharðan mót-
vind. Læknar sem
þiggja laun hjá ríkinu
eiga erfiðara með að
berjast fyrir framför-
um en hinir sem starfa
frjálsir á eigin vegum.
Ríkisstarfsmenn verða
að leita til yfirmanna
sinna, eins af öðrum,
nefnda og ráða, út af
minnstu breytingum. Fylgi menn
ekki gefinni línu úr kerfinu kann
þeim að verða sagt upp störfum
eins og dæmin sanna. Þegar taka
skal ákvarðanir um fyrirkomulag
eða tækjakaup verða viðbrögðin
hægari, önnur og dýrari með skrif-
ræðismenn á aðra hlið og lögskipað
hjálparlið á hina, heldur en ef
læknirinn á það við sjálfan sig,
fræðin, starfsbræður sína og sjúk-
lingana hvað gera skuli til þess að
læknisþjónustan verði eins góð og
hún getur verið.
Frelsi og framfarir
Til er ennþá hópur sjálfstætt
starfandi heimilislækna sem hefur
haldið uppi fyrirmyndarþjónustu í
heimilislækningum. Þessi hópur
hefur farið minnkandi vegna þess
að ráðuneytið hefur vísvitandi
stefnt að því að fyrirbyggja nýliðun
sjálfstætt starfandi heimilislækna
svo að hópurinn deyi út. Hvers
vegna? Vegna þess að hann heyrir
ekki beint undir ráðuneyti heil-
brigðismála. Án tuga milljóna
stofnkostnaðar gæti ráðuneytið aft-
ur á móti leyft þeim ungu læknum,
sem að framan er getið, að bætast í
þennan hóp og þannig byrjað strax
að stórbæta ríkjandi ófremdar-
ástand. Sjálfstætt starfandi heim-
ilislæknar sjá um rekstur sinn sjálf-
ir, afla sér húsnæðis og tækja án
tilkostnaðar af almannafé. Þeir eru
OFSTJÓRNARÁRÁTTA Í
HEILBRIGÐISGEIRANUM
Matthías Kjeld
Með lögunum er heil-
brigðisráðherra gefið
vald til þess, segir
Matthías Kjeld, að hafa
nánast alla heilbrigðis-
þjónustu landsins á
stofnunum sem heil-
brigðisráðuneytið sjálft
rekur, beint eða óbeint.
Kæri 10. bekkingur!
Viltu geta haft áhrif á það í hvaða framhaldsskóla þú ferð
næsta haust? Til þess þarftu góðar einkunnir og þá er
NÁMSAÐSTOÐ
fyrir samræmdu prófin góður kostur
Nemendaþjónustan sf. sími 557 9233 namsadstod.is
morgunverðarfundur
16. janúar kl. 8 Sunnusal Hótel Sögu
re
ik
n
in
g
s
s
k
il
í
e
rl
e
n
d
u
m
g
ja
ld
m
ið
lu
m
reikningsskil í erlendum gjaldmiðlum
KPMG býður til opins morgunverðarfundar um gerð reiknings-
skila í erlendum gjaldmiðlum í Sunnusal Hótel Sögu á milli kl.
8 og 10, miðvikudaginn 16. janúar n.k.
Lagt hefur verið fram frumvarp á Alþingi sem heimilar íslenskum
fyrirtækjum að færa bókhald og semja og birta ársreikninga
sína í erlendum gjaldmiðlum að uppfylltum tilteknum skilyrðum.
Á fundinum verður fumvarpið kynnt og rætt um aðferðir og
áhrif slíkra breytinga.
Kynning á frumvarpi um breytingar á lögum um bókhald
og ársreikninga
Ólafur Nilsson, löggiltur endurskoðandi
Aðferðir við gerð reikningsskila í erlendum gjaldmiðlum
Alþjóðlegir staðlar
Sæmundur Valdimarsson, löggiltur endurskoðandi
Áhrif á reikningsskil íslenskra fyrirtækja
Alexander Eðvardsson, löggiltur endurskoðandi
Fundarstjóri
Aðalsteinn Hákonarson, formaður stjórnar KPMG
Engin þátttökugjöld, en léttur morgunverður kostar 1.050 kr.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síma 545 6000 eða í netfang
kpmg@kpmg.is fyrir 14. janúar n.k.
Frönskunámskeið
hefjast 14. janúar
Skráið ykkur sem fyrst
Námskeið fyrir byrjendur og lengra komna.
Námskeið fyrir börn.
Taltímar og einkatímar.
Kennum í fyrirtækjum.
Kennsluefni birt á myndböndum.
Hringbraut 121 - JL-húsið, 107 Reykjavík, fax 562 3820
Veffang: http://af.ismennt.is
Netfang: af@ismennt.is
Upplýsingar í síma 552 3870 og
562 3820 frá kl. 13.30–18.30
Útvegum og seljum gáma undir rusl, í öllum stærðum og gerðum.
Upplýsingar í símum 554 0579 og 852 7322.
Eyfeld ehf.
RUSLAGÁMAR
Heilsurækt
Sjúkraþjálfarans
Hjartahópur
Fjölbreytt þjálfun fyrir hjartasjúklinga
Tækjasalur
Úrval þol- og styrktartækja
Kvennaleikfimi
Hressileg leikfimi fyrir konur
Sjúkraþjálfarinn ehf.,
Strandgötu 75, sími 555 4449,
220 Hafnarfirði.
Einungis fagfólk sem leiðbeinir
Nánari upplýsingar gefur: