Morgunblaðið - 13.01.2002, Page 35

Morgunblaðið - 13.01.2002, Page 35
SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 2002 35 fulltrúar sjúklinga sinna. Þeir hafa sjálfir forræði á sínum vinnustað. Sem frjálsir menn berjast lækn- arnir fyrir því besta í lækningum til handa skjólstæðingum sínum. Sjálfstæð læknisþjónusta verður gjarnan persónulegri og trúnaðar- samband síður rofið. Ólíklegt er að sjálfstæðir læknar og sjúklingar þeirra virði í nokkru skipanir frá „kerfiskörlum“, t.d. vegna samn- inga þeirra síðarnefndu um framsal „upplýsinga um viðskipti læknis og sjúklings“ til óviðkomandi aðila. Hnýsni og virðingarleysi fyrir við- kvæmum einkamálum undir yfir- skini eftirlits verður aldrei liðið í siðuðu umhverfi. Sjálfstæð lækn- isþjónusta breytir því rekstrarfyr- irkomulagi sem illa reynist. Aukin tækni – aukin utanspítalaþjónusta Vegna lamandi áhrifa þess kerfis sem heilsugæslulæknum er nú gert að starfa undir hefur almenningur leitað æ meir beint til sérfræðinga. Áhugasömum og afkastamiklum heilsugæslulæknum er lítt umbun- að í mikilvægu forvarnar- og leit- arstarfi. Tækniframfarir hafa á sama tíma haft þau áhrif að sjálf- stæðar rannsóknarstofur í blóð-, vefja-, efna- og röntgenfræðum hafa verið settar á stofn til að- stoðar starfandi læknum. Framfar- ir í lyflækningum sem og skurð- lækningum og svæfingum hafa leitt til öflugrar starfsemi sjálfstæðra lækningastofa í þessum greinum. Með tilkomu þessara stofa hefur létt mjög á sjúkrahúsunum og færri hafa þurft þangað að leita. Ný tækni og framfarir birtast því ekki bara á sjúkrahúsunum heldur hvar sem er í læknisþjónustunni. Íslendingar fylgjast vel með. Þeir vilja bestu fáanlegu þjónustu og vilja ekki þurfa að bíða eftir henni mánuðum eða árum saman. Það er nógu þungbært að veikjast þótt ekki bætist þar við að vera með- höndlaður eins og réttlaus þurfa- maður. Nú kunna þeir að finnast sem af hugsjónaástæðum láta sig einu gilda þótt þeir „beri bein sín á biðlista“, en telja má líklegt að þeir séu í minnihluta. Einræði – ráðstjórn? Eftir nýlega sameiningu tveggja stærstu spítalanna hefur nú nýlega verið samþykkt á alþingi ríkis- stjórnarfrumvarp um breytingu á eldri lögum um heibrigðisþjónustu og almannatryggingar. Þessi nýju lög eru afleit. Með lögunum er heil- brigðisráðherra gefið vald til að hafa nánast alla heilbrigðisþjón- ustu landsins á stofnunum sem heilbrigðisráðuneytið sjálft rekur, beint eða óbeint. Með öðrum orð- um ráðstjórnarfyrirkomulag. – Hvað með atvinnufrelsi? – Hvað með samkeppnislög? – Í greinar- gerð er klifað á óljósum hugtökum eins og t.d. „ráðherra markar stefnu um forgangsröðun ... stuðla að aukinni hagkvæmni og tryggja gæði heilbrigðisþjónustu“ ... – „sem heilbrigðisyfirvöld telja eðlilegt að séu unnin á sjúkrahúsum“. Loks er þessa spaklegu setningu að finna: „Mikilvægt er að fagleg rök og hagkvæmni ráði því hvar þjónustan er veitt en ekki ákvarðanir ein- stakra heilbrigðisstarfsmanna eða hópa.“ Ef greinargerð hliðstæð þessari hefði verið lögð fram t.d. af sjávarútvegsráðuneytinu hefði hún verið einhvern veginn svona: „...ráðherra markar stefnu um göngu fiska og stærð þeirra og hvar eðlilegt sé að fiskarnir veiðist til að tryggja gæði og hagkvæmni samkvæmt markmiðum ráðuneyt- isins ...“. Það er með öðrum orðum nokkuð sérkennilegt að skipa ráðherra með lögum að taka fyrirfram einhverja ákveðna af- stöðu til óþekktra uppákoma í breytileika náttúrunnar! – Á ráð- herra að forgangsraða þróun nýrra lyfja eða uppkomu farsótta? Eiga læknar að spyrja ráðuneytið hvort leggja beri sjúklinga inn á sjúkra- hús eða ekki? – Í viðleitni sinni til að ná algerum yfirráðum yfir háþróaðri, flókinni starfsemi, sem þeir virðast lítt þekkja, gefa höfundar frumvarps- ins í skyn að sérmenntað fólk, læknar og hjúkrunarfræðingar, láti sig litlu varða fagleg rök og hag- kvæmni. Ákvarðanir séu því best teknar í ráðuneytinu. Framfarir í faginu eins og ný lyf, nýjar aðferðir við greiningu og meðferð sjúk- dóma, nýir og/eða breyttir sjúk- dómar og áhættuþættir þeirra, svo og óskir sjúklinga, svo fátt eitt sé tínt til, virðast ekki eiga að hafa mikið að segja um þróun lækn- isþjónustunnar eða markmið. En það er ekkert nýtt undir sólinni. Skeggvöxtur karla og „burkas“ (hauspokaserkir) kvenna voru tal- ibönum í Afganistan mikilvægari mál heldur en menntun og heil- brigði afgönsku þjóðarinnar. Ráðuneytisspítalinn Þótt ráðherra hafi látið það yfir sig ganga að mæla fyrir þessum lögum hefur hann væntanlega ekki samið þau. Þau voru samin fyrir hans tíð í ráðuneytinu. Aðrir hafa setið þar lengur. En nú er kannski komin skýringin á því hvers vegna það er svona erfitt að vera heil- brigðisráðherra. Ráðuneytismenn hyggjast stjórna lækningum í smáu og stóru! Ekki var leitað álits læknasamtakanna þegar framan- greind lög voru í undirbúningi. Læknasamtökin hafa einróma og harðlega mótmælt lagasetningunni en, ef læknarnir fá ekki varið fræðigrein sína eða störf kunna þeir að hrekjast til annarra landa þar sem læknisfræði er enn stund- uð og fólki veitt læknishjálp. En fátt er svo með öllu illt … Verði þróunin með þessum hætti mætti nota þjálla nafn á hið sameinaða sjúkrahús er nú kallast því stirð- busalega nafni „Landspítalinn við Hringbraut/í Fossvogi – háskóla- sjúkrahús“. Öll dýrin í skóginum ættu að geta verið glöð yfir nafninu Ráðuneytisspítalinn; þar verða allir vinir, allt lýtur þar einföldum vilja. Höfundur er læknir. ÞÝSKUNÁMSKEIÐ Í GOETHE-ZENTRUM Námskeiðin hefjast 28. janúar. Skráning og beiðni um upplýsingar í síma 551 6061 kl. 15-18 frá þriðjudegi til föstudags og á netfanginu goethe@simnet.is. Skráningu lýkur 25 janúar. Námskeið á vorönn 2002: Byrjendur mánudaga kl. 20-21.30; Katharina Gross Grunnstig 1 mánudaga kl. 18-19.30; Katharina Gross Grunnstig 2 þriðjudaga kl. 18-19.30; Magnús Sigurðsson Talþjálfun þriðjudaga kl. 20-21.30; Angela Schamberger Talþjálfun og málfræði miðvikudaga kl. 18-19.30; Angela Schamberger Miðstig fimmtudaga kl. 18-19.30; Angela Schamberger Literaturkurs fimmtudaga kl. 20-21.30; Angela Schamberger Barnanámskeið: . Yngri: Laugad. kl. 13.30-14.15; Katharina Gross Eldri: Laugad. kl. 14.30-15.15; Katharina Gross Grunnnám í kvikmyndagerð Einnar annar nám (15 vikur) sem hefst 28. janúar. Námið er að stærstum hluta verklegt og felst í þjálfun í að ná valdi á tækniþáttum kvikmyndagerðar og beitingu þeirra á skapandi hátt. Kennd er notkun helstu tækja og fjallað um gerð heimildamynda, auglýsinga, tónlistarmyndbanda, vinnslu fyrir sjónvarp og möguleika myndmáls í margmiðlun. Að loknu grunnnámi eiga nemendur að hafa skilning og þekkingu á hinum ýmsu sviðum kvikmyndaframleiðslu, tækjum og tækni og vera vel undirbúnir fyrir frekara nám á sérsviði í kvikmyndagerð. Nemendur eiga að geta unnið sjálfstætt að gerð einfaldra kvikmyndaverka og boðið fram krafta sína til starfa í kvikmynda- og sjónvarpsiðnaðinum. Skráning stendur yfir. Takmarkaður fjöldi nemenda. Kvikmyndaskóli Íslands er spennandi valkostur fyrir þá sem vilja mennta sig til starfa í hinum ört vaxandi kvikmynda- og sjónvarpsiðnaði. Fáar greinar í heiminum hafa vaxið jafn hratt á síðustu árum og fjölmiðlaiðnaðurinn. Fjölgun sjónvarpsstöðva, auknar vinsældir kvikmyndahúsa, tölvur og margmiðlun gera eftirspurn eftir nýju hæfileikafólki sífellt meiri. Á næstu árum munu þúsundir nýrra starfa verða til í þessum iðnaði í heiminum. Þeirra sem hafa góða menntun og hæfileika bíður því fjöldi tækifæra. Ný önn að hefjast: Kvikmyndaskóli Íslands í framsæknum skóla Fagnám Skráning og nánari upplýsingar í síma 511 2720 Skúlagötu 51, 101 Reykjavík kvikmyndaskoli@kvikmyndaskoli.is www.kvikmyndaskoli.is T-sett aðeins 650 kr. NETVERSLUN Á mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.