Morgunblaðið - 13.01.2002, Qupperneq 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 2002 37
✝ Helga JónsdóttirRocksén fæddist
25. febrúar 1910 í
Reykjavík. Hún lést á
öldrunardeild Land-
spítalans við Hring-
braut fimmtudaginn
3. janúar síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Jón Ólafsson,
bóndi á Þóroddsstöð-
um í Ölfusi og síðar
verkamaður í
Reykjavík, í Neðri-
Dal í Mýrdal, f. 18.
desember 1858, d. í
Reykjavík 4. janúar
1941, og kona hans Guðrún Gísla-
dóttir húsmóðir, f. á Þóroddsstöð-
um 26. ágúst 1870, d. í Reykjavík
22. desember 1910. Helga átti sjö
systkini: 1) Halldór, f. 11. júlí
1889, d. í febr. 1912. Hann fórst
með þilskipinu Geir frá Hafnar-
firði, þá námsmaður í Stýri-
mannaskólanum í Reykjavík og
kominn að lokaprófi. 2) Eydís,
húsmóðir í Reykjavík, f. 24. febr.
1891, d. 12. júlí 1954. Eiginmaður
hennar var Jón Tómasson skip-
stjóri. 3) Ástríður, húsmóðir í
Reykjavík, f. 18. apríl 1893, d. 9.
nóv. 1979. Eiginmaður hennar var
Sigurður Kjartansson kaupmað-
ur. 4) Skúli, f. 8. júlí 1895. Hann
fór 7 ára gamall til Kanada með
fósturforeldrum sínum og dó þar
um 1911. 5) Ólína Marta, húsmóð-
ir í Laufási við Eyjafjörð og síðar í
Reykjavík, f. 1. mars 1898, d. 19.
febr. 1991. Eiginmaður hennar
var Þorvarður G. Þormar sóknar-
prestur. 6) Guðjón, verkamaður í
Reykjavík, f. 2 okt. 1900, d. 23.
okt. 1961. 7) Anna Sigríður, hús-
móðir í Reykjavík, f. 25. febr.
1910, tvíburasystir Helgu. Eigin-
maður hennar er Gunnar Jónas-
son flugvélvirki og forstjóri.
Helga giftist 27.
ágúst 1938, Carli
Gunnari Rocksén,
ræðismanni Svíþjóð-
ar í Reykjavík, f. í
Hovedtorp á Austur-
Gotlandi í Svíþjóð
30. júní 1902, d. í
Reykjavík 21. febr.
1985. Sonur þeirra
er Karl-Erik Rock-
sén, arkitekt í
Reykjavík, f. 28.
ágúst 1939. Kona
hans er Halldóra Ás-
grímsdóttir, ljós-
móðir og fjármála-
fulltrúi í sænska sendiráðinu.
Dætur þeirra eru a) Helga, kenn-
ari og síðar bankastarfsmaður, f.
23. apríl 1972, gift Ásgeiri Loga
Ísleifssyni kerfisfræðingi og eiga
þau tvö börn, Andra Frey og
Magneu Rut, b) Ásgerður, graf-
ískur hönnuður, f. 7. mars 1974,
gift Guðmundi Helga Pálssyni
verslunarstjóra, og c) Gunnhildur,
nemi í grafískri hönnun við
Listaháskóla Íslands, f. 26. nóv.
1980.
Helga stundaði nám í Kvenna-
skólanum í Reykjavík 1925–1927
og lauk þaðan prófi 1927. Lands-
prófi lauk hún frá Kvennaskólan-
um 1953, og kennaraprófi í skrift
1952. Hún var skriftarkennari við
Kvennaskólann í Reykjavík 1954–
1961, hjá Námsflokkum Reykja-
víkur 1958–1960 og við Verzlun-
arskóla Íslands 1959–1968. Þá var
hún prófdómari í skrift við barna-
skólana í Reykjavík um 20 ára
skeið. Á yngri árum starfaði hún í
mörg ár í verslun Marteins Ein-
arssonar við Laugaveg.
Útför Helgu fer fram frá Lang-
holtskirkju á morgun, mánudag-
inn 14. janúar, og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
Ég vil með nokkrum orðum minn-
ast elskulegrar móðursystur minnar
Helgu Rocksén. Ég man eftir Helgu
frænku frá fyrstu bernskuárum mín-
um í Laufási, því það var náið sam-
band á milli móður minnar og henn-
ar. Hún kom í Laufás fyrsta sumarið
sem foreldrar mínir voru þar, og
þangað kom hún oft seinna, bæði ein
og með manni sínum og syni, sem
dvaldist mörg sumur í Laufási á
æsku- og unglingsárum sínum.
Helga og Anna tvíburasystir
hennar voru á fyrsta ári þegar Guð-
rún móðir þeirra lést. Þær kynntust
því aldrei móður sinni. Í september
sama ár dó einnig 82 ára gömul móð-
uramma þeirra, Eydís Eyjólfsdóttir,
sem bjó hjá þeim á Njálsgötu 33b.
Faðir þeirra stóð nú einn með börnin
sín, en elstu dæturnar, Ástríður og
Eydís sem þá voru orðnar 17 og 19
ára, sáu um heimilið fyrstu árin. Það
var erfitt fyrir verkamann á þessum
árum að halda heimilinu saman, og
eftir að elsti sonurinn, sem miklar
vonir voru bundnar við, fórst og eldri
dæturnar giftust og fóru að heiman,
varð að koma yngri börnunum í fóst-
ur. Helga varð ein eftir hjá föður sín-
um, sem annaðist hana eins vel og
hann gat. Jón faðir hennar var mikið
snyrtimenni. Fór orð af því hve vel
og snyrtilega Helga var klædd og
reyndar börnin hans öll á meðan þau
voru heima. Helga erfði þá eiginleika
hans og hafði mjög góðan smekk fyr-
ir fötum og lagði alla tíð mikla
áherslu á að vera vel klædd.
Það kom snemma fram áhugi hjá
Helgu á að menntast og fór hún í
Kvennaskólann í Reykjavík, sem á
þeim tíma var bestur kostur fyrir
ungar stúlkur til menntunar. Næstu
árin eftir að hún útskrifaðist vann
hún við verslunarstörf hjá Marteini
Einarssyni, og þar fékk hún að hand-
leika góð fataefni og fatnað. Árið
1934 fór hún í skóla í Svíþjóð til að
menntast meira og einkum til að
læra sænsku, enda hafði hún þá trú-
lofast Svía, sem varð síðar eiginmað-
ur hennar. Næstu árin vann hún síð-
an við skrifstofustörf, en eftir að hún
giftist helgaði hún heimilinu alla
starfskrafta sína. Gunnar Rocksén,
eiginmaður hennar, kom til Íslands
árið 1930 og starfaði hann fyrst sem
aðstoðarmaður á ræðismannsskrif-
stofu Svíþjóðar, en síðar sem sendi-
ráðsfulltrúi og varakonsúll hjá
sænska sendiráðinu. Oftsinnis veitti
hann sendiráðinu forstöðu í fjarveru
sendiherrans, og einnig um lengi eða
skemmri tíma, þegar skipt var um
sendiherra, því sendiherrarnir komu
og fóru, en Gunnar var alltaf á sínum
stað. Helga var því komin inn í
„diplómatíið“ með öllu sem því
fylgdi, og stóð hún sig vel í því verk-
efni sem öðru. Heimili þeirra Gunn-
ars stóð alltaf opið fyrir Svíum sem
hingað komu og þurftu einhverrar
aðstoðar við og margar voru móttök-
urnar og boðin, sem hún þurfti að
standa fyrir ásamt manni sínum.
Hún eignaðist marga sænska og ís-
lenska vini í þessu starfi og sú vin-
átta entist í mörgum tilvikum ævi-
langt.
Helga var námfús og sjálfstæð og
hjá henni blundaði alltaf löngunin til
að menntast og til að geta unnið sjálf
fyrir kaupi. Hún dreif sig því í að
læra meira, tók kennarapróf og síðan
landspróf 43 ára gömul. Eftir það fór
hún að kenna og kenndi stanslaust til
ársins 1968, en það ár hætti Gunnar
störfum hjá sendiráðinu. Hann hafði
átti sér þann draum að flytjast til
Svíþjóðar, þegar hann hann kæmist
á eftirlaun, þótt hann virtist vera
rótgróinn hér á landi og ætti hér
marga góða vini og þætti mjög vænt
um Ísland. Þau keyptu sér hús í
Sommen, litlum bæ nálægt Tranås
skammt fyrir norðan Jönköping. Þar
undu þau sér vel í nokkur ár í ná-
grenni við skyldfólk Gunnars, og
þangað var gott að koma í heimsókn.
Á þessum árum fór Helga oft til Ís-
lands á vorin, því sóst var eftir að fá
hana sem prófdómara. Þegar heilsu
Gunnars tók að hraka, tóku þau sig
upp og fluttust aftur til Íslands vorið
1976, enda langaði þau til að vera ná-
lægt syni sínum, tengdadóttur og
sonardætrum. Þau keyptu sér nota-
lega íbúð í Sólheimum 25 og þar átti
Helga heimili alla tíð síðan, þangað
til hún varð að leggjast inn á sjúkra-
hús á síðasta ári. Helga átti mörg góð
ár í Langholtshverfi. Hún átti sínar
gömlu vinkonur, sænskar og íslensk-
ar, sem hittust oft hver hjá annarri,
oft við að spila brids. Þeim fækkaði
þó eftir því sem árin liðu. Hún stund-
aði félagslífið í Langholtskirkju
reglulega og átti þar einnig sína
föstu spilafélaga. Starfsfólk kirkj-
unnar var henni einstaklega hjálp-
samt við að komast á milli, eftir að
aldurinn fór að færast yfir, og það
var hún mjög þakklát fyrir. Hún hélt
mjög góðu sambandi við systur sínar
og fjölskyldur þeirra bæði fyrr og
síðar.
Helga var mikill fagurkeri og naut
þess að hafa allt smekklegt og fallegt
í kringum sig. Hún kunni sig vel í
umgengni við annað fólk og lagði
mikla áherslu á stundvísi og áreið-
anleika. Hún fylgdist vel með öllu
sem gerðist í þjóðfélaginu og var
mjög minnug. Gaman var að heyra
hana segja frá gamla tímanum og því
sem á daga hennar hafði drifið um
ævina. Oft minntist hún ferðarinnar
sem hún 8 ára gömul fór með föður
sínum landleiðina austur í Lón, ríð-
andi yfir öll stórfljótin á Suðurlandi,
til að heimsækja Önnu systur sína á
Brekku í Lóni. Ég vil að lokum
kveðja kæra móðursystur mína með
innilegu þakklæti fyrir allar sam-
verustundirnar og það sem hún var
mér og mínum. Ég sendi syni hennar
og fjölskyldu hans innilegar samúð-
arkveðjur frá mér og fjölskyldu
minni. Blessuð sé minning Helgu
frænku.
Guttormur Þormar.
Ég man Helgu móðursystur mína
fyrst þegar ég var á barnsaldri og
hún kom í sumarleyfi norður í Lauf-
ás við Eyjafjörð. Ætíð síðan hafa
kynni okkar verið mikil og góð. Síð-
ast sá ég hana á Landspítalanum í
nóvember sl., hún þá farin að heilsu
og kröftum.
Margar minningar tengjast henni
og allar góðar. Ég á ferð á sumrin frá
Kaupmannahöfn til heimkynnanna
fyrir norðan með viðdvöl í Reykja-
vík, og þá alltaf litið inn hjá Helgu og
Gunnari og oft gist. Árin hér í
Reykjavík að námi loknu, þegar við
um hríð vorum samkennarar við
Kvennaskólann í Reykjavík. Heim-
boð og veislur hjá Helgu og Gunnari
þar sem oft voru framámenn í ís-
lensku menningarlífi, vinir þeirra,
enda menningartengsl Íslands og
Svíþjóðar jafnan sterk. Gunnar átti
þátt í að efla þau þar sem hann starf-
aði við sendiráð Svíþjóðar í áratugi
og var þar verðugur fulltrúi þjóðar
sinnar. Þau Gunnar og Helga voru
höfðingjar, veittu af mikilli rausn og
höfðu bæði jafn mikið yndi af. Í mín-
um huga var Helga alltaf hefðarkona
sem veitti sér frekar minna af því
besta en meira af því næstbesta.
Þetta gilti jafnt um heimili hennar,
klæðaburð og samskipti við vini og
kunningja. Helga átti góðar vinkon-
ur, sem ég kynntist líka, og sem
héldu tryggð við hana til hinsta dags.
Þessi góði vinahópur sagði sína sögu
um mannkosti hennar.
Þótt úthafið skildi okkur að um
áratugi var þráðurinn tekinn upp
þegar ég og fjölskylda mín fluttumst
aftur til Íslands og þau Helga og
Gunnar fluttust líka heim frá Sví-
þjóð. Aldurinn var þá farinn að fær-
ast yfir og Gunnar farinn að heilsu og
lést skömmu síðar. Helga bjó þá ein í
íbúð sinni í Sólheimum og naut ást-
úðar og umhyggju sonar síns og fjöl-
skyldu hans. Alltaf var sama reisnin
yfir henni og þótt við sæjumst alltof
sjaldan seinustu árin fylgdumst við
vel hvort með öðru, og hún lofaði mér
að fylgjast með framgangi sonar-
dætra sinna og barna þeirra sem
voru hennar líf og yndi. Helga var vel
gefin og hugsandi manneskja, til-
finninganæm og viðkvæm. Hún hafði
áhuga á heimsmálum og þjóðmálum,
fylgdist vel með þeim og tók jafnan
málstað þeirra sem eru minni mátt-
ar. Nú þegar komið er að kveðju-
stund eftir nær sjötíu ára kynni
þakka ég kærri frænku minni sam-
fylgdina og góðvild í minn garð og
fjölskyldu minnar. Við vottum Kalla
og Halldóru, dætrum þeirra og fjöl-
skyldum innilega samúð okkar.
Halldór Þormar.
HELGA
ROCKSÉN
!"
!##$
!
" #$%%
" ##&
' "$
" #$%% ( #% ##&
" ##& )#%
* $%%
% +
" ##& , * # -. #$%%
/0 #
" ##& 1 * . ' #$%%
*
" ##&
" 2
#$%%
&*3 3- !
!
"#
$ %
& '
!
()#
! "!
# $ "!
!" % "!
&'( )"!
* %)
%+ ! )
! " ! ##$%%!
" ! # ! &' ($! )#$%%!
*% # ! &'#$%%! !"%
& !+ !& &'#$%%! ! "!
" &'#$%%! ' ! !+ !*&!
! !& ! ! !
!!
"#$ %# # # &
%
'
( %
#
!"#
$%#
&"'( $%#
( $%#
)"")* )"")"")*
'"$ "$"
!"#$
%&'(&
!
"
#
$ #
%&
'
) # *%** + ,
*"# *%**
,-( ! +.# *%**
*!# *%**
,(#/* %' .