Morgunblaðið - 13.01.2002, Blaðsíða 57
Atriði úr sjónvarpsleikritinu Framboðsmyndir.
Í KVÖLD kl. 20.00
verður nýtt íslenskt
sjónvarpsleikrit frum-
sýnt og nefnist það
Framboðsmyndir.
Höfundur er rithöf-
undurinn og útvarps-
maðurinn góðkunni
Ingólfur Margeirsson
og fjallar það um
skelk þann og skjálfta
sem sest í fólk stuttu
fyrir kosningar. Sagan
gerist á ljósmynda-
stofu þar sem verið er
að mynda hina ýmsu
frambjóðendur og að
sjálfsögðu er tækifær-
ið notað og skrafað og
skeggrætt um yfirvofandi kosning-
ar. Morgunblaðið setti sig í sam-
band við Ingólf og innti hann eftir
upplýsingum.
„Jú, jú, þetta er fyrsta sjón-
varpsleikritið mitt,“ svarar Ingólf-
ur, aðspurður hvort þetta sé ný-
lunda hjá honum.
„Þetta er gömul hugmynd sem
ég er búinn að ganga með í mag-
anum. Svo var ég beðinn að skrifa
inn í ákveðið umhverfi sem Sjón-
varpið var búið að búa til, þ.e.
þessa ljósmyndastofu. Þannig að
ég henti þessari hugmynd inn
þar.“
Ingólfur segir að á sínum tíma
hafi hann starfað sem þingfrétta-
maður og þar hafi hann kynnst
flokkunum vel, bæði að innan og
utan.
„Þarna var gott efni sem ég taldi
að væri örugglega hægt að nota
síðar á lífsleiðinni,“ segir hann.
Ingólfur vann leikritið með sjó-
uðum sjónvarpsmönnum.
„Ég og Lárus Ýmir Óskarsson í
Sjónvarpinu settumst niður saman
og fórum yfir handritið. Einnig fór
ég yfir það með Sigurði Sigurjóns-
syni leikstjóra. Ég er mjög ánægð-
ur með þeirra innlegg.
Þetta eru vanir menn.“
Ingólfur segir að
hann sé með ýmislegt
fleira inni á harða disk-
inum.
„Ég er með nokkra
lausa þætti sem ég var
beðinn um að gera í
framhaldi af þessu. Þeir
eru alveg óskyldir
þessu efni en þá var ég
að skrifa síðasta sumar.
En það er of fljótt að
spá um hvað verður um
það efni.“
Með aðalhlutverk í
Framboðsmyndum fara
Jóhann Sigurðarson,
Þorsteinn Gunnarsson, Sigurður
Hallmarsson, Halldóra Björnsdótt-
ir, Kjartan Guðjónsson og Rúnar
Freyr Gíslason.
Skelkur og skjálfti
Leikritið Framboðsmyndir sýnt í Sjónvarpinu
Ingólfur
Margeirsson
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 2002 57
Drepfyndin mynd um vináttu, stinningarvandamál
og aðrar bráðskemmtilegar uppákomur!
Framlag Svía til Óskarsverðlauna.
Sími 552 3030
úts
ala
O
p
ið
á
su
nn
ud
ög
um
fr
á
kl
.
13
—
17
MYNDIN af Mónu Lísu með
yfirvararskegg sem dadaist-
inn Marcel Duchamp málaði
árið 1919, er nú til sýnis fyr-
ir utan París í fyrsta sinn.
Málverkið sem ætíð hefur
hangið uppi í höfuðstöðvum
franska kommúnistaflokks-
ins verður nú til sýnis í
London. Formaður flokks-
ins, Robert Hue, segist oft
hafa fengið fyrirspurnir um
málverkið varðandi lán á
ýmsar sýningar um allan
heim, og eftir samninga-
umræður við breska sendi-
herrann í París verður verk-
ið sýnt í Konunglegu
listaakademíunni í London,
frá og með 26. janúar.
Duchamp gerði nákvæma
eftirmynd af Mónu Lísu hans
Leonardo da Vinci nema það
að hann bætti litlu yfirvar-
arskeggi á stelpuskjátuna.
Myndin heitir LHOOQ,
(aha! þaðan fékk hljóm-
sveitin nafnið!) og ef nöfn
þessara stafa eru lesnir upp
á frönsku hljómar það eins
og verið sé að segja „henni
er heitt á rassinum“ eða
með öðrum orðum er verið
að saka hana um vergirni.
Listamaðurinn sem dó ár-
ið 1968 var einn af stofn-
endum dadaista-hreyfing-
arinnar, Félags sjálfstæðra
listamanna, sem hafði það að
markmiði að gera lítið úr
viðteknum viðhorfum til list-
arinnar.
Hann er sagður hafa fund-
ið upp „ready-made“ listina
sem hefur fengið nafnið hen-
tilist á íslensku. Þá setti
hann á sýningu ýmsa hvers-
dagslega hluti sem hann átti
og kallaði listaverk. Fræg-
asta verkið hans er án efa
„Gosbrunnur“ sem var í
raun bara pissuskál.
Frumlegur gos-
brunnur Duchamps,
fyrir árið 1917.
Henni er heitt á rassinum
Yfirvararskegg fer
henni áreiðanlega vel.
Prófið bara að teikna.