Morgunblaðið - 13.01.2002, Side 58

Morgunblaðið - 13.01.2002, Side 58
58 SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ SÍMI 564 0000 - www.smarabio.is5 hágæða bíósalir Miðasala opnar kl. 13 Sýnd kl. 2, 4 og 6. Mánudagur kl. 4 og 6.Sýnd kl. 8 og 10. Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. Mánudagur kl. 5.30, 8 og 10.30.  1/2 Ungfrú Skandinavía Íris Björk Ljóskur landsins sameinist! „Besta mynd ársins“ SV Mbl „Þvílík bíóveisla“ HVS Fbl DV Mbl Ævintýrið lifnar við ÓHT Rás 2 Kvikmyndir.com Magnaður og blóðugur þriller frá Hughes-bræðrum sem fór beint á toppinn í USA Frumsýning Þegar London var heltekin hræðslu þurfti leynilögreglumann sem var á undan sinni samtíð til að leysa dularfyllsta morðmál allra tíma. Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. B.i. 12 ára Sýnd í LÚXUS kl. 2, 6 og 10. Mánudagur kl. 4, 6, 8 og 10 Mánudagur í LÚXUS kl. 6 og 10. Glæsileg leysigeislasýning á undan myndinni Leikfimi — fyrirlestur Leikfimi fyrir konur sem glíma við þvagleka - Fyrirlestur um grindarbotn og þvagleka 12 vikna námskeið fyrir konur sem glíma við þvagleka hefst nk. miðvikudag, 16. janúar. Lögð verður áhersla á styrkingu grindar- botnsvöðva og annarra bolvöðva, rétta lík- amsbeitingu, líkamsvitund, slökun og teygj- ur. Námskeiðið hefst á opnum fyrirlestri um grindarbotn og vandamál tengdum honum. Leiðbeinendur eru Heidi Andersen og Þor- gerður Sigurðardóttir, löggiltir sjúkraþjálfarar. Námskeiðsgjald 9.300 kr. (fyrirlestur innifalinn) Fyrirlestur 1.500 kr. Skráning og frekari upplýsingar veitir starfsfólk Táps í síma 564 5442. Táp ehf. Sjúkraþjálfun og æfingastöð Hlíðasmára 14, 200 Kópavogi, sími 564 5442 CHYNNA Clugston-Major er ungur höfundur af nýrri kynslóð sem veit að í myndasögumiðlinum er allt hægt. Möguleikar á umfjöllunarefni eru óþrjótandi, stílreglur eru til þess gerðar að brjóta og ægivald karlkynshöfunda í geiranum eru ekki nauðsynleg sannindi til fram- búðar. Í bók sinni, Blue Monday hef- ur hún valið hið hversdagslegasta umfjöllunarefni; vaxtar- og tilfinn- ingaverki unglingsstelpu í gaggó. Bleu Finnegan á í stanslausu ástar/ haturs stríði við hitt kynið og sjálfs- myndin er ekki upp á marga fiska þótt hún sé töffari útá við. Lífið snýst mest um að skemmta sér með vinkonunum, klekkja á strákbjálf- unum sem láta þær ekki í friði, arg- ast út í leiðinlega og skilningssljóa (en þó stundum líka svolítið sæta) kennara og eltast við tískuna og átrúnaðargoð í tónlist. Teiknistíll Chynnu er æði sér- stakur. Japanska myndasöguhefðin er hér höfð í fyrirrúmi. Andlits- drættir sögupersóna eru einfaldaðir mjög og ýktir þar sem helst ber á undirskálastórum augum. Þetta verður sérstaklega áberandi þegar hún sýnir persónurnar í miklu upp- námi en þá kastar hún frá sér öllum tilraunum til þess að teikna raun- sannar persónur og lætur teikni- myndina ráða. Svipbrigði eru þá einfölduð niður í frumeiningar sínar og skaptáknin fá að njóta sín. Þessi aðferð er vinsæl til að ná fókus á sterkar tilfinningar í myndasögum. Oftast ganga þessi stílbrigði vel í meðförum Chynnu en hún á þó til að ofnota þau sem gerir að verkum að persónurnar verða ekki jafn- raunsæislegar og skipta lesandann því minna máli en ella. Chynna fer ekki í grafgötur með dálæti sitt á menningu níunda ára- tugarins. Vísanir í hljómsveitir ný- rómantíkurinnar eru ótalmargar og sjálfur Adam Ant (sem átti nokkur vinsæl lög í byrjun 9. áratugar síð- ustu aldar, fyrir þá sem ekki þekkja til) er í stóru hlutverki í bókinni. Það rennir stoðum undir þann grun manns að Chynna kafi nokkuð djúpt í eig- in persónureynslu til að gefa Bleu það fas sem birtist á blaðsíð- unum og gætir því nokkurs ósam- ræmis í bókinni vegna þess. Fátt er mikilvægara á þessum árum en að samsama sig fjöldanum og vek- ur því furðu að jafnlítill bógur og Bleu skuli sýna jafneinarðar skoð- anir í tónlist og tísku sem ekki er í takt við tíðarandann. Höfundurinn virðist því vera að skrifa handritið af hinum fullkomnu unglingsárum eins og hún hefði viljað lifa þau. Set- ur vonir sínar og væntingar í nýjan búning. Sú skoðun styrkist í ljósi þess að allar sögupersónurnar eru alveg sérdeilis huggulegar á sinn teiknimyndalega hátt með geit- ungsmjó mitti og mjög framstæð brjóst. Skrítið að Chynna skuli ekki velja raunsannari leið í lýsingum sínum á líkamlegu atgervi söguhetj- anna. Þegar hins vegar er litið til allra þeirra sjónvarpsþátta um sama málefni, þar sem unglingarnir líta flestir út eins og fyrirsætur, þá ætti þetta kannski ekki að koma manni á óvart. Þannig var það reyndar ekki í mínum gagnfræða- skóla en ætli maður verði ekki bara að sætta sig við þá draumveröld sem höfundar þessa efnis kjósa að birta. Þrátt fyrir þá galla sem ég hef talið hér upp er Blue Monday mjög góð og átakalaus skemmtun. Dæg- ursögur af krökkunum í hverfinu þar sem ævintýrin leynast í hvers- deginum. Persónurnar eru sterkar og lífsglaðar þrátt fyrir alla sína vanmáttarkennd og tilvistarkreppu sem vill fylgja unglingsárunum. Samtöl eru oft frábærlega skrifuð og reynt að forðast að hefja söguna á einhvern óverðskuldaðan há- menningarstall. Þetta eru poppbók- menntir og skammast sín ekkert fyrir það. MYNDASAGA VIKUNNAR Krakkar í krapinu heimirs@mbl.is Myndasaga vikunnar er Blue Monday: The Kids are allright eftir Chynna Clugston-Major sem bæði skrifar og teiknar. Gefið út af Oni Press, 2000. Bókin fæst í mynda- söguversluninni Nexus.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.