Morgunblaðið - 13.01.2002, Page 60
60 SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
1/2
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 1, 2, 3, 4, 6 og 8. Vit 328
Mánudagur kl. 4, 6 og 8.
1/2
Kvikmyndir.is
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 1.40 og 3.40. Ísl. tal. Mán 3.40. Vit 320
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30. Vit 319
Sýnd í Lúxus VIP kl. 2.30, 5.30, 8 og 10.30.
Mánudagur í Lúxus VIP kl. 5.30, 8 og 10.30.
Tvöfaldur Óskarsverð-
launahafi í magnaðri
mynd sem þú verður að
sjá og munt tala um.
HJ MBLÓHT Rás 2 DV
„Leikararnir standa sig einstaklega vel, ekki aðeins stórleikararnir
Spacey og hinn óviðjafnanlegi Bridges, heldur er valið af slíkri
kostgæfni í hvert og einasta aukahlutverk, að minnir á Gaushreiðrið.“
SV MBL
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Vit 327
1/2
RadíóX
1/2
Kvikmyndir.is
1/2
Kvikmyndir.com
strik.is
Sýnd kl. 1 og 4. Íslenskt tal. Mánudagur 4. Vit 325
Sýnd kl. 5 og 8. Enskt tal. Mánudagur 4 og 8. Vit 307Sýnd sun. kl. 2 og 3.50. Ísl tal. Vit nr. 292
Sýnd kl. 8 og 10.15.
Vit 326
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 10.20.
Vit 299
Frábær grín- og spennumynd undir leikstjórn óskarsverð-
launahafans Steven Soderbergh með hreint ótrúlegum
leikurum eða þeim Brad Pitt, Matt Damon, Andy Garcia,
Juliu Roberts ásamt George Clooney, en hann leikur einmitt
Daniel Ocean sem vill ræna 3 stærstu spilavítin í Las
Vegas, sem eru rammgerðari en nokkurt kjarnorkubyrgi.
1/2
Kvikmyndir.com
1/2
Kvikmyndir.is
1/2
Kvikmyndir.is
strik.is
ÓHT Rás 2MBL
1/2
RadíóX
Sýnd kl. 2 og 5. Mán 5.
Sýnd sunnudag kl. 2 og 4. ísl tal
Ó.H.T Rás2
Strik.is
Kvikmyndir.com
Ein persóna getur
breytt lífi þínu að eilífu.
Frá leikstjóra Delicatessen
Sýnd kl. 6.15. Mán kl. 6.
Edduverðlaun6
SG. DV
HL:. MBL
1/2
Kvikmyndir.is
Kevin Spacy er tvöfaldur Óskarsverð-
launahafi í magnaðri mynd sem þú
verður að sjá og munt tala um.
„Leikararnir standa sig einstaklega vel,
ekki aðeins stórleikararnir Spacey og hinn
óviðjafnanlegi Bridges, heldur er valið af
slíkri kostgæfni í hvert og einasta
aukahlutverk, að minnir á Gaushreiðrið.“
SV MBL
Sýnd kl. 8 og 10.30. Mán 8 og 10.30
Kvikmyndir.com
HJ MBLÓHT Rás 2 DV
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Mán 6.
Comme elle respire
Sýnd kl. 2
A Vendre Sýnd kl. 4
Ceux qui m´aiment
prenddront le train Sýnd kl.
8.15
Peut-être Sýnd kl. 10
Mánudagur
Jeanne et le garçon
formidable Sýnd kl. 8
Dieu seul me voit Sýnd kl. 10
La maladie de sachs
KEVIN SPACEY JEFF BRIDGES
ÞÞ Strik.is ÓHT Rás 2
HL Mbl SG DV
Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 8 og 10.30.
Mánud. 5.30, 8 og 10.30.
4 evrópsk kvikmyndaverðlaun.
M.a. Besta mynd Evrópu,
Besta leikstjórn og
Besta kvikmyndataka.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
ÞETTA var búið að vera ær-leg törn en ekki hvarflar aðblaðamanni að kvarta. Þaðer ekki á hverjum degi sem
til boða stendur að heimsækja mið-
aldakastala í nærsveit Cannes-borg-
ar á Suður-Frakklandi. Ekki á hverj-
um degi sem til boða stendur að ræða
við nær alla helstu þátttakendur í
kvikmynd sem nær örugglega á eftir
að verða í hópi þeirra stærstu í sög-
unni – kvikmynd sem milljónir ef ekki
milljarðar manna eiga eftir að sjá og
dást að. En törnin var samt sem áður
ærleg. Þriggja daga stífur pakki til að
kynna eina kvikmynd! Jæja, þrjár.
Sannarlega óvenjulegt fyrirbrigði,
meira að segja á mælikvarða hinnar
sögufrægu kvikmyndahátíðar í
Cannes, þar sem menn töldu sig hafa
upplifað allt í kvikmyndabransanum.
Allt byrjaði þetta með því að blaða-
menn fengu að sjá 20 mínútna bút úr
myndunum þremur; 14 mínútur úr
hinni fyrstu (atriðið í námum Moría)
og 6 mínútur úr hinum tveimur, sem
okkar á milli virðast vera hreinn og
klár háspennuhasar frá upphafi til
enda. Þetta staðfesti og Peter Jack-
son leikstjóri á blaðamannafundi sem
haldinn var daginn eftir í áðurnefnd-
um kastala. Hann sagði að fyrsta
myndin yrði kannski sú slakasta af
þrennunni, allavega sú langdregn-
asta. Einfaldlega vegna þess að óum-
flýjanlegt hefði verið að kynna per-
sónurnar til sögunnar og rekja
aðdragandann fyrir þeim sem ekki
hefðu lesið bækurnar, því myndirnar
ættu jú ekki síður að höfða til þeirra
sem hvorki þekktu haus né sporð á
Tolkien og verkum hans.
Góðir vinir
Að loknum blaðamannafundinum
með Jackson og öðrum nánum sam-
starfsmönnum sem stóðu við hlið
hans bak við myndavélarnar var
komið að því að sleppa blaðamönnum
lausum á sjálfar stjörnur myndanna,
leikarana. Nær allir þeir helstu voru
mættir til Cannes, enda ku merkilegt
nokk óþarfi að snúa upp á hendur
stjarnanna til að fá þær til að sýna sig
á þeirri mætu hátíð.
Sátu leikararnir fyrir svörum í
litlum hópum og fór vel á því að í ein-
um hópnum væru saman komnir
Hobbitarnir fjórir í föruneyti hrings-
ins. Drengirnir léku við hvurn sinn
fingur og ekki leyndi sér að um end-
urfund væri að ræða. Það duldist
heldur engum að þeim hafði orðið vel
til vina þá 16 mánuði sem tökur fóru
fram á Nýja-Sjálandi. Eins og jafnan
gerist þegar fjórir ungir og hressir
karlmenn koma saman reyttu þeir
líka af sér aulabrandarana, mis-
fyndna og misprenthæfa.
„Hún er nú þegar orðin fræg sagan
af því að ég hafi sent inn upptöku með
sjálfum mér í hlutverki Fróða til Pet-
ers (Jacksons) og hvað get ég annað
sagt en að hún sé sönn,“ byrjaði sá
yngsti í hópnum, hinn rétt tvítugi El-
ijah Wood sem leikur Hobbitann
Fróða, þann eina sem hefur mátt og
vilja til að farga Hringnum.
Strákarnir fjórir þeir Woods, Sean
Astin sem leikur Sám, hægri hönd
Fróða og Bretarnir Dominic Mon-
aghan og Billy Boyd sem leika fjör-
kálfana Kát og Pípin sitja fyrir fram-
an blaðamann í ægifögrum og
ævintýralega grænum trjágarði rétt
neðan við kastalann. Hér ætti að ríkja
friður og ró en í staðinn er þetta eins
og í mávageri, skvaldrið í blaðasnáp-
unum yfirgengilegt, allir að gera sitt
til að ná þessu einstaka gullkorni úr
leikurunum sem engum öðrum tókst.
„Auðvitað var ég alveg ólmur í að
fá þetta hlutverk,“ heldur Woods
áfram í keppni við mávagargið. „Ekki
bara vegna þess að mér líkaði það
heldur einnig vegna þess að alveg síð-
an ég heyrði af þessu risaverkefni þá
þráði ég að taka þátt í því á einn eða
annan hátt. Ég var þess fullviss að ég
mætti ekki láta það framhjá mér
fara.“
Fló á skinni
Þurftuð þið að undirbúa ykkur eitt-
hvað sérstaklega fyrir hlutverkin, ut-
an þess að læra línurnar?
„Ég þurfti að fita mig,“ segir Astin
ofurhress og hlær hvellhátt. Hann er
sá framfærnasti af fjórmenningun-
um. Öruggastur með sig, sprelligos-
inn í hópnum, en samt yfirmáta kurt-
eis og hafði greinilega áunnið sér
fulla virðingu félaga sinna.
Þeir sem bera aldur til muna
kannski eftir hinum þrítuga Astin
sem barnastjörnu. Hann lék nefnilga
burðarhlutverkið í unglingaævin-
týramyndinni The Goonies, eða
Gröllurunum, eins og hún hét á ís-
lensku, en sú mynd kom úr smiðju
Stevens Spielbergs og náði miklum
vinsældum um miðbik 9. áratugarins.
Síðan hefur vart spurst til hans og
maður átti síður en svo von á að sjá
hann dúkka upp á ný í annarri eins
stórmynd.
„Svo þurftum við stöðugt að vera
að raka okkur því Hobbitum vex ekki
grön.“
„Segðu honum Gillette-söguna,“
skýtur Woods inní uppveðraður og
gefur glöggt til kynna að hún sé
Hér eftir
verðum við
alltaf álitnir
Hobbitar Kátur, Fróði, Sámur og Pípinn: Skegglausir Hobbitar, þökk sé Gillette.
Hringadróttinssaga hefur slegið í gegn hér
á landi og eru íslenskir ævintýraunnendur,
börn á öllum aldri, í miðri svaðilför með
Fróða og félögum hans í Föruneyti hrings-
ins. Skarphéðinn Guðmundsson hitti fjóra
unga leikara – áður en þeir urðu að ævar-
andi Hobbitum í huga bíógesta.
Örlög hringsins eina eru í höndum Hobbitans Fróða og félaga hans
’ Mér var sagt ígegnum síma að
hlutverk Pípins væri
mitt og það leið yfir
mig! Sem var alveg
ferlegt því ég var að
keyra. ‘