Morgunblaðið - 13.01.2002, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
www.bi.is
f
í
t
o
n
/
s
í
a
TÆPUR helmingur landsmanna tel-
ur fallvötn landsins hæfilega mikið
nýtt, tæpur þriðjungur landsmanna
telur auðlindir hafsins ofnýttar og
rúm 70% telja jarðhita vannýtta auð-
lind.
Þetta kemur fram í niðurstöðum
viðhorfskönnunar Gallup sem gerð
var fyrir Morgunblaðið. Í könnun-
inni var spurt um viðhorf lands-
manna til auðlindanýtingar hérlend-
is og var spurt hvort auðlindir
hafsins, fallvötn og jarðhiti væru of-
nýtt, vannýtt eða hæfilega mikið
nýtt.
Munur milli kynja
Tæpur helmingur aðspurðra telur
fallvötn landsins hæfilega mikið nýtt,
45,2% telja þau vannýtt og 5% of-
nýtt. Marktækur munur er á viðhorfi
karla og kvenna, en mun fleiri konur
en karlar telja auðlindina vannýtta.
Enginn munur er hins vegar á
svörum fólks eftir búsetu, en því hef-
ur oft verið haldið fram að munur
væri á viðhorfi til nýtingar fallvatna
milli höfuðborgarsvæðis og lands-
byggðar.
30% telja auðlindir
hafsins ofnýttar
Tæp 30% telja að auðlindir hafsins
séu ofnýttar, rúm 52% að þær séu
hæfilega mikið nýttar og tæp 18%
vannýttar.
Langstærst hlutfall í hópi þeirra
elstu, 55–75 ára, telur auðlindir hafs-
ins vera ofnýttar en engin augljós
skýring er á þessum mikla skoðana-
mun aldurshópanna.
Rúm 70% landsmanna telja að
jarðhiti sé vannýtt auðlind. 28,1%
telur jarðhita hæfilega mikið nýttan
og 1,7% ofnýttan. Verulegur og
marktækur munur er á viðhorfum
kynjanna en tæplega tvöfalt fleiri
konur en karlar telja jarðhita hæfi-
lega nýttan eða ofnýttan.
Þá er einnig marktækur munur á
viðhorfi eftir aldri en langhæst hlut-
fall í yngsta aldurshópnum, 16–24
ára, telur jarðhita ofnýttan eða hæfi-
lega nýttan. Með vaxandi aldri
aukast líkur á að menn telji jarðhita
vannýttan.
Könnunin var gerð á tímabilinu 31.
október til 13. nóvember 2001.
Hringt var í fólk á aldrinum 16–75
ára af öllu landinu. Úrtak var 1.200
manns og svarhlutfall 69,9%.
Helmingur telur fall-
vötnin hæfilega nýtt
Á hverju munum við lifa?/C1
Skoðanakönnun um nýtingu á auðlindum landsmanna
TVEIR menn, sem slösuðust í
umferðarslysi á Kambabrún-
um á föstudagskvöld, voru í
lífshættu í gær á gjörgæslu-
deild Landspítalans í Fossvogi.
Þeir voru í fólksbifreið sem
lenti framan á jeppabifreið og
slasaðist annar þeirra sýnu
meira en hinn. Aðgerð á öðrum
þeirra stóð yfir aðfaranótt
laugardags og var hann enn í
aðgerð í gærmorgun. Var líðan
hans eftir atvikum, að sögn
vakthafandi læknis á gjör-
gæsludeild. Aðgerð á hinum
sjúklingnum var fyrirhuguð í
gær.
Mennirnir voru meðal sjö
sjúklinga sem voru fluttir á
sjúkrahús eftir áreksturinn þar
sem þrjár bifreiðir lentu sam-
an. Þrír sjúklingar voru lagðir
inn á skurðdeild Landspítalans
í Fossvogi og einn sjúklingur,
sem talinn var alvarlega slas-
aður á Landspítalann við
Hringbraut. Karlmaður á sjö-
tugsaldri lést í slysinu.
Tveggja ára drengur, sem
slasaðist alvarlega í bílslysi á
Kísilvegi á Hólasandi milli Mý-
vatns og Húsavíkur á föstu-
dagskvöld, þegar faðir hans á
þrítugsaldri lést í sama slysi,
liggur á gjörgæsludeild Land-
spítalans við Hringbraut. Hann
gekkst undir aðgerð og er líðan
hans eftir atvikum að sögn
læknis á gjörgæsludeild.
Sjö látnir á árinu
Sjö Íslendingar hafa látist af
slysförum fyrstu ellefu daga
ársins. Þrír létust í umferðar-
slysum eftir árekstra á þjóð-
vegum landsins, þrír í eldsvoða
og einn féll niður af svölum
hótels erlendis.
Tveir
menn
ennþá í
lífshættu
Afleiðingar umferð-
arslysa á föstudag
ÖLL uppistöðulón Landsvirkjunar
eru nánast full vegna óvenju mikils
rennslis í jökulám á allra síðustu
dögum. Rennsli í neðri hluta Þjórs-
ár í leysingunum að undanförnu
hefur verið 1.200–1.500 rúmmetrar
á sekúndu, sem er 4–5 sinnum
venjulegt rennsli. Þessu mikla
rennsli veldur úrkoma á hálendinu.
Úrkoman skilar sér strax niður í
Efri-Þjórsá, Tungnaá og Köldu-
kvísl.
Á fimmtudagskvöld var vatni
hleypt framhjá Sultartangavirkjun,
en á föstudagsmorgun var vatn far-
ið að renna yfir yfirfall Sultartanga-
stíflu. Þá var gripið til þess ráðs að
hleypa vatni úr lóninu á yfirfallinu.
Virkjunar-
lónin full
lags íslenskra flugumferðarstjóra,
segir félagið standa við að yfirvinnu-
bannið hefjist kl. 7 í fyrramálið.
Muni það standa þar til nýr kjara-
samningur hafi verið undirritaður.
Hann segir túlkun ráðuneytisins nú
þveröfuga við það sem var árið 1995
þegar félagið boðaði yfirvinnubann.
MÁLFLUTNINGUR verður í fé-
lagsdómi á morgun vegna máls Fé-
lags íslenskra flugumferðarstjóra og
samninganefndar ríkisins. Nefndin
telur yfirvinnubann flugumferðar-
stjóra, sem hefjast á í fyrramálið,
ólöglegt og vísaði málinu til dómsins.
Loftur Jóhannsson, formaður Fé-
Málflutningur í fé-
lagsdómi á morgun
FJÖLMENNI var við útför
hjónanna Ingibjargar Eddu Guð-
mundsdóttur og Hreiðars Snæs
Línasonar og sonar þeirra, Leons
Arnar, sem létust í eldsvoða á Þing-
eyri aðfaranótt föstudagsins 4. jan-
úar sl. Áður hafði Hreiðar Snær
náð að bjarga eldri syni þeirra,
Antoni Lína, út úr brennandi íbúð-
inni og er hann hér ásamt ömmu
sinni við upphaf athafnarinnar.
Jarðarförin fór fram frá Þing-
eyrarkirkju í gær. Hver bekkur var
þéttskipaður og sjónvarpskapall
var lagður yfir í íþróttahúsið þar
sem fjöldi manns gat fylgst með og
tekið þátt í athöfninni. Má gera ráð
fyrir að milli 400 og 500 manns hafi
verið við jarðarförina.
Séra Guðrún Edda Gunnars-
dóttir og sr. Einar Sigurbjörnsson
jarðsungu, kirkjukórar Þingeyrar
og Önundarfjarðar sungu og Jónas
Tómasson lék á þverflautu. Org-
anisti var Guðmundur Vilhjálms-
son. Að athöfn lokinni var boðið til
erfidrykkju í íþróttahúsinu sem
Dýrfirðingar höfðu undirbúið í
sameiningu.
Morgunblaðið/RAX
Fjölmenni
við útför
á Þingeyri