Morgunblaðið - 12.05.2002, Blaðsíða 21
hefðum við stöðvað framkvæmd-
ina…“
Ríkisábyrgð
Niðurstaðan varð sú að rík-
isstjórnin samþykkti að veita Gull-
skipinu hf. allt að 50 milljóna króna
ríkisábyrgð en af þeirri upphæð
nýtti fyrirtækið sér 12 milljónir.
Aðalkostnaðurinn var stálþil, sem
rekið var niður í sandinn í kring
um skipið til að auðvelda mönnum
að komast að. Og svo var farið að
grafa og í ljós kom að flakið var af
togaranum Albert.
Þrátt fyrir þessi vonbrigði
ákváðu Gullskipsmenn að halda
leitinn áfram að vori eins og segir í
frétt Morgunblaðsins. „…Auðvitað
eru þetta mikli vonbrigði fyrir okk-
ur en það er ákveðinn hugur í
mannskapnum að halda áfram, það
má til, skipið er í sandinum og það
má til að finna það…“ sagði Bergur
Lárusson og Kristinn talar um að
þeir séu þegar farnir að velta fyrir
sér farartæki fyrir leitina að ári.
Það yrði að vera sambland af flug-
vél, bát og bíl og reiknaði hann
með að smíðin yrði tómstundavinna
þeirra félaga á sunnudögum um
veturinn.
Í leiðara Morgunblaðsins þennan
sama dag segir m.a. „…Leitin að
gullskipinu er fyrir löngu orðin
annað og meira en leitin að hol-
lenzku Indíafari með kopar og
demanta innanborðs. Hún er orðin
tákn um þrautseigju, djörfung og
dug nokkurra einstaklinga sem í
aldarfjórðung hafa lagt fram ótalda
fjármuni úr eigin vasa, tíma og
mannafla til þess að leita uppi mikil
menningarsöguleg verðmæti…“
krgu@mbl.is
ur. „Báðar þessar landfyllingar tengj-
ast niðurníddum iðnaðarhverfum,
sem bæjarfélögin eru í vandræðum
með og eru því fegin að fram fari
hreinsun í þessum hverfum. Þessar
hreinsanir eru ekki ósvipaðar þeirri,
sem hefur átt sér stað við Borgartún í
Reykjavík en þar reis iðnaðarhverfi
fyrir um 50 árum, sem nú hefur að
mestu verið rifið og ný hús byggð í
þeirra stað.“ Sigurður sagði að tvö
önnur bæjarfélög hefðu sýnt áhuga á
landfyllingum og þéttingu byggða
með þessum hætti en þær hugmyndir
eru enn á frumstigi.
Tefla saman byggð og sjó
„Í aðra röndina tengjast bryggju-
hverfin oft endurnýjun hnignandi iðn-
aðar- og hafnarhverfa en einnig þeirri
staðreynd að landfyllingar gefa
ákveðna sveigju í skipulagi, þar sem
landið er í raun mótað af skipulags-
hönnuði,“ sagði Sigurður. „Þar að
auki getur skipulagsaðili teflt saman
byggð og sjó á spennandi og
skemmtilegan hátt. Glæsilegustu
dæmin um slíkt eru gömlu borgirnar
Feneyjar og Amsterdam. Nýrri dæmi
eru fjölmörg strand- og bryggju-
hverfi sem byggð hafa verið á síðustu
áratugum s.s. Akersbryggja í Ósló,
Port Grimaud í Frakklandi o.fl. Við
hjá Björgun lítum á Bryggjuhverfið í
Grafarvogi sem ákveðin prófstein á
getu fyrirtækisins til að skila góðu
verki. Á því byggist frekara starf fyr-
irtækisins á þessu sviði.“
Í Garðabæ hefur Björgun hf. hannað og skipulagt strandhverfi í samstarfi við Byggingafélag Gylfa og Gunnars ehf. Þar er
gert ráð fyrir um 750 íbúðum, skrifstofuhúsnæði og smábátahöfn.
krgu@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. MAÍ 2002 21
Dagurinn hennar
mömmu
1.499kr.
10 rósir og glervasi
Reykjavík sími 580 0500 • Selfossi sími 480 0800
www.blomaval.is
HJÓNAEFNI - SAMBÚÐARFÓLK
HJÓNAEFNANÁMSKEIÐ VERÐUR Í
GRAFARVOGSKIRKJU MÁNUDAGSKVÖLD KL. 20.00
Fyrirlestur „GÓÐ SAMSKIPTI“ - Benedikt Jóhannsson, sálfræðingur.
Fyrirlestur „HJÓNABANDSSAMNINGURINN“ -
Elísabet Berta Bjarnadóttir, félagsráðgjafi.
Leikararnir Halla Jóhannesdóttir og Gunnar Hansson flytja gamanmál.
Kjartan Sigurjónsson, organisti, gefur tóndæmi fyrir brúðkaup.
„KRISTILEGT INNIHALD HJÓNAVÍGSLU“ -
séra Jakob Hjálmar Ágústsson.
HJÓNABANDSSÆLA MEÐ RJÓMA OG KAFFI - ALLIR VELKOMNIR
FÓLK Í FRÉTTUM