Morgunblaðið - 12.05.2002, Blaðsíða 30
LISTIR
30 SUNNUDAGUR 12. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Stökkpallur
Sí›ustu sætin til
Mallorca
20. og 27. maí
Gistista›ur gefinn upp 4 dögum fyrir brottför.
Á stökkpalli getur flú jafnt lent á d‡rustu sem
ód‡rustu íbú›argistingu okkar.
* Innifali›: Flug, flugvallarskattar, gisting, fer›ir til
og frá flugvelli og íslensk fararstjórn.
kr.
*48.467
m.v. tvo fullor›na
og tvö börn í viku
Ver›:
Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100 • Keflavík: 420 6000
Akureyri: 460 0600 • Selfossi: 482 1666 • og hjá umbo›smönnum um land allt www.urvalutsyn.is
Úrval-Úts‡n
Betri fer›ir – betra frí
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
1
77
51
05
/2
00
2
kr.
*59.900
m.v. tvo fullor›na í viku
Ver›:
Sunnudagur 12. maí
kl. 13.00 Við Sæbraut á móts við Snorrabraut: Fjöruverk eftir Sigurð Guð-
mundsson afhjúpað.
kl. 13.15 Vatnsveitan eftir Kari Elise Mobeck vígð
kl. 13:30 Ráðhús Reykjavíkur:Opnun myndlistasýningarinnar Listamaðurinn á
horninu. Við opnunina leikur Kventett, málmblásarakvintett skipaður
Karen Sturlaugsson og Ásdísi Þórðardóttur trompetleikurum, Lilju
Valdimarsdóttur hornleikara, Vilborgu Jónsdóttur básúnuleikara og
Þórhildi Guðmundsdóttur túbuleikara, bandaríska slagara og söng-
leikjatónlist frá 20. öld.
kl. 14.00 Hljómskálinn: Mobile homme, franskir trommuleikarar verða hífðir upp
í krana við Hljómskálann og leika listir sínar í 40 metra hæð yfir Tjörn-
inni.
kl. 15.00 Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi: Opnun myndlistasýningarinnar
Mynd – íslensk samtímalist. Sýningin var opnuð í Heine Onstad lista-
miðstöðinni í Noregi 2001. Við opnunina spinna Jóel Pálsson saxófón-
leikari, Hilmar Jensson gítarleikari og Matthías MD Hemstock slag-
verksleikari bæði á hefðbundin hljóðfæri og rafræna hljóðgjafa í
tónleikaröðinni Fyrir augu og eyru.
kl. 16.00 Listasafni Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum: Opnun ljósmyndasýning-
arinnar American Odyssey eftir Mary Ellen Mark.Í samvinnu við Ljós-
myndasafn Reykjavíkur. Við opnunina flytur hljómsveitin Gras sem
skipuð er Dan Cassidy og Kristján Kristjánsson (KK) gítarleikarar,
Magnús Einarsson mandólínleikari og Tena Palmer söngkona ameríska
grasrótartónlist.
kl. 17.00 Galleríi i8:Opnun sýningar Ólafs Elíassonar.
kl. 18.00 Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi: Dans/myndverk eftir Helenu
Jónsdóttur Íslenska óperan kl. 20:30: Cenizas de tango argentínskur
dans fluttur af argentínska danshópnum El Escote. Danshöfundur Rox-
anne Grinstein.
Mánudagur 13. maí
kl. 12:30 Ráðhús Reykjavíkur: Guðmundur Kristmundsson víóluleikari og Há-
varður Tryggvason kontrabassaleikari flytja þætti úr sónötum eftir Jo-
hann Matthias Sperger (1750-1812) og Karl Ditters von Dittersdorf
(1739-1799) í tónleikaröðinni Fyrir augu og eyru.
kl. 17:05 Rás 1. Skólavörðuholt:Bein útsending á Örverki í röðinni Níu virkir dag-
ar. Hvers vegna elskar mig enginn eftir Karl Ágúst Úlfsson og Fjölni
Björn Hlynsson, í leikstjórn Ásdísar Thoroddsen.
kl. 20.00 Þjóðleikhúsið:Hollendingurinn fljúgandi 2. sýning
kl. 20:30 Íslensk óperan:Cenizas de tango 2. sýning.
Listahátíð í Reykjavík
Dagskrá
NÝTT útilistaverk, Fjöruverk, eftir
Sigurð Guðmundsson, verður af-
hjúpað við Sæbraut skammt fyrir
neðan gatnamót Sæbrautar og
Snorrabrautar í dag, sunnudag, kl.
13. Verkið var pantað af menningar-
málanefnd Reykjavíkur og er af-
hjúpunin á dagskrá Listahátíðar.
Listamaðurinn og Guðrún Jónsdótt-
ir formaður menningarmálanefndar
afhjúpa verkið.
Í tilefni aldamótanna efndi menn-
ingarmálanefnd Reykjavíkurborgar
til opinnar hugmyndasamkeppni um
gerð útilistaverks í Reykjavík. Alls
bárust dómnefnd 147 tillögur og
varð tillaga Sigurðar Guðmundsson-
ar hlutskörpust.
Dómnefndin taldi verkið mjög sér-
stætt listaverk, lifandi og frumlegt
og falla vel að uppbyggingu strand-
lengjunnar sem er hin nýja ásýnd
Reykjavíkur. Sigurður Guðmunds-
son nýtur alþjóðlegrar viðurkenn-
ingar sem myndlistarmaður. Verk
hans voru m.a. valin til sýningar er
Pompidou-listamiðstöðin í París var
opnuð 1977 og hefur hann sýnt tvisv-
ar á Feneyjatvíæringnum. Verk Sig-
urðar eru í eigu allra helstu safna í
Evrópu og hefur hann hlotið margar
viðurkenningar á listferli sínum.
Hann hlaut Prins Eugen orðuna í
Stokkhólmi 1985, DAAD styrk í
Berlín 1987–88, Henrik-Steffens-
Preis í Hamborg 1989 og A. Roland
Holst, hollensku skáldaverðlaunin
árið 2000. Þá var skáldsaga Sigurð-
ar, Ósýnilega konan, tilnefnd til Ís-
lensku bókmenntaverðlaunanna
2000.
Sigurður er með heimili og vinnu-
stofur í Hollandi, Íslandi, Svíþjóð og
á síðustu árum í hafnarborginni
Xiamen í Suður-Kína þar sem hann
hefur unnið að listsköpun sinni,
myndlist og ritstörfum. Fjöruverk
Sigurðar er úr granítsteinum er
fluttir voru frá námum í Svíþjóð til
vinnustofu Sigurðar í Kína, þar sem
þeir voru handslípaðir áður en þeir
yrðu ferðbúnir til að setjast endan-
lega að hér í brimgarðinum við norð-
urströnd Reykjavíkur í svonefndri
Rauðarárvík.
Vatnspóstur vígður
Þá verður kl. 13.15 vígður vatns-
pósturinn Vatnsveitan, rétt við
Fjöruverk Sigurðar, u.þ.b. 50 m í
vestur. Vatnsveitan er hönnuð af
norsku listakonunni Kari Elise Mob-
eck og er einn af fjórum vatnspóst-
um sem valdir voru í hugmyndasam-
keppni Vatnsveitu Reykjavíkur í
tilefni af 90 ára afmæli hennar 1999.
Fjöruverk eftir Sigurð
Guðmundsson afhjúpað
MARKÚS Þór Andrésson opnar
sýningu í rými undir stiganum í
i8 í dag, sunnudag, kl. 17. Verkið
sem hann mun sýna undir stig-
anum er innsetning með málverki
og ber nafnið: „Lögmálin sjö um
velgengni“.
Markús Þór, f. 1975, útskrif-
aðist í fyrra frá Listaháskóla Ís-
lands. Frá útskrift hefur hann
unnið að myndlist á ýmsan hátt,
meðal annars haldið vinnustofu-
sýningu, sinnt myndskreytingum
og útbýr nú málverk fyrir umslag
fyrstu plötu orgelkvartettsins
Apparat. Þá vinnur hann að
myndskreytingum í heimild-
armynd Ragnheiðar Gestsdóttur
um Vespertine-tónleikaferð
Bjarkar.
i8 er opið þriðjudaga til laug-
ardaga 13–17. Sýningin stendur
til 2. júní.
„Are you talking to me?“ Mál-
verk eftir Markús Þór.
Innsetning
með mál-
verki í i8
SÍÐASTA sýning á Myndlistarvori
Íslandsbanka í Vestmannaeyjum var
opnuð í gær. Það er Vestmannaey-
ingurinn Bjarni Ólafur sem sýnir.
Þetta er 5. einkasýning Bjarna Ólafs
í Vestmannaeyjum en hann hefur að
auki tekið þátt í samsýningum í Kan-
sas City, Detroit og London á vegum
Goldsmiths College í London, þaðan
sem hann lauk námi árið 1992.
Sýningin er í Vélasalnum, gamla
áhaldahúsinu á horni Græðisbrautar
og Vesturvegar og er opin í dag kl.
15–18. Þá verður hún opin annan
laugardag, hvítasunnudag og annan í
hvítasunnu kl. 15–18.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Bjarni Ólafur Magnússon við eitt verka sinna.
Síðasta sýn-
ing á Mynd-
listarvori
ÁTTUNDU og síðustu Tíbrár-
tónleikar KaSa hópsins á starfs-
árinu, og jafnframt síðustu Tíbrár-
tónleikar vetrarins í Salnum, verða
kl. 16.30 í dag, sunnudag.
Tónleikarnir hefjast á tónleika-
spjalli Þorkels Sigurbjörnssonar
tónskálds sem kynnir bandaríska
tónlist eftir Foote, Copland og
Gershwin. Að því loknu, um kl. 17,
eru fjögur verk á efnisskránni.
Fyrst leika þær Áshildur Haralds-
dóttir og Nína Margrét Grímsdóttir
„Þrjú stykki“ op. 31 fyrir flautu og
píanó eftir Arthur Foote og þá
„Dúó“ eftir Copland. Að því búnu
leika þeir Miklós Dalmay og Peter
Máté á tvö píanó, Danzon Cubano
eftir Copland og Ameríkumaður í
París eftir Gershwin. Mun þetta
vera í fyrsta sinn sem þessi verk
eru flutt hérlendis á tvo flygla.
Morgunblaðið/Golli
KaSa-hópurinn er að þessu sinni skipaður Peter Máté, Áshildi Haralds-
dóttur, Miklós Dalmay og Nínu Margréti Grímsdóttur.
Leikið á tvo flygla
mbl.isFRÉTTIR