Morgunblaðið - 12.05.2002, Side 38

Morgunblaðið - 12.05.2002, Side 38
MINNINGAR 38 SUNNUDAGUR 12. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Bjarni Hólm-grímsson fæddist í Dæli í Fnjóskadal 19. febrúar 1933. Hann lést á heimili sínu 3. maí síðastlið- inn. Faðir hans var Hólmgrímur Sig- urðsson, f. 9.2. 1901, d. 20.5. 1987. Móðir hans var Margrét Bjarnadóttir, f. 31.8. 1901, d. 13.3. 1986. Systkini Bjarna eru Sigurður, f. 1928, Kristín, f. 1932, og Snjólaug Bergljót, f. 1942. Hinn 10. janúar 1959 kvæntist Bjarni Sigríði Guðmundsdóttur frá Reykjavík, f. 10. júní 1939, d. 8. ágúst 2000. Bjarni og Sigríður eiga fimm börn: 1) Margrét hjúkr- unarfræðingur, f. 1959, gift Geir Árdal. Börn þeirra eru Hannes, Bjarni ólst upp í Dæli til sextán ára aldurs er hann flutti með fjöl- skyldu sinni að Ystuvík í Grýtu- bakkahreppi. Eftir hefðbundið barnaskólanám var hann tvo vetur í Laugaskóla og lærði þar meðal annars smíðar. Bjarni og Sigríður hófu búskap á Grýtubakka II árið 1959 en árið 1963 festu þau kaup á Svalbarði á Svalbarðsströnd og bjuggu þar til æviloka. Lengst af bjuggu þau með kýr og kindur, auk þess sem þau stunduðu kart- öflurækt til margra ára. Frá árinu 1986–2000 bjuggu þau félagsbúi með Guðmundi syni sínum og Önnu konu hans. Meðfram bú- störfum sinnti Bjarni lengst af ýmsum félagsstörfum. Hann sat í hreppsnefnd Svalbarðsstrandar- hrepps 1966–1990 og var oddviti í tíu ár. Á þessum árum gegndi hann fjölmörgum trúnaðarstörf- um fyrir Svalbarðsstrandarhrepp, sat m.a. í heilbrigðisnefnd Akur- eyrar 1982–1990. Þá var Bjarni um árabil fulltrúi í sóknarnefnd Svalbarðskirkju. Útför Bjarna fer fram frá Sval- barðskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Bjarni, Úlla, Sigríður og Steinþór. 2) Sess- elja hjúkrunarfræð- ingur, f. 1961, gift Þórði Ólafssyni. Börn þeirra eru Bjarni Ei- ríkur, Ólafur Eiríkur, Sigríður Elín, Jósef- ína Elín og Anna Kristín. 3) Guðmund- ur Stefán búfræðing- ur, f. 1964, kvæntur Önnu S. Jónsdóttur. Börn þeirra eru Jón Ragnar, Sigríður og Bjarni Þór. 4) Kristín Sólveig hjúkrunar- fræðingur, f. 1968. Börn hennar og fyrrverandi eiginmanns hennar, Hauks Eiríkssonar, eru Víkingur og Sóley María. 5) Hólmgrímur Pétur, f. 1973, endurskoðandi. Sambýliskona hans er Guðný Mar- grét Sigurðardóttir og eiga þau eina dóttur, Katrínu. Með Bjarna tengdaföður okkar er genginn einstakur maður. Þau orð sem líklega lýstu honum hvað best eru dugnaður, heiðarleiki og hlýtt hjartalag. Margs er að minnast, margt er að þakka. (V. Briem.) Við kveðjum ekki einungis tengdaföður heldur einstakan vin og félaga sem studdi okkur og styrkti á hvern þann hátt sem hon- um var unnt í hverju því sem við tókum okkur fyrir hendur. Alltaf var hann fyrstur til hjálpar ef eitt- hvað bjátaði á og var fljótur að sjá lausn á þeim vanda sem við glímd- um við. Það er ekki ofsögum sagt að hann átti sér fáa líka. Stórhugur og framkvæmdagleði einkenndi hann alla tíð, alveg sama í hvers þágu það var, ef hann hafði trú á að hann væri gott að gera. Hann var samvinnu- maður sem hafði óbilandi traust og trú á náunganum. Í áranna rás var honum líka treyst fyrir ýmsum fé- lags- og trúnaðarstörfum sem hon- um fórst vel úr hendi að leysa. Fjölskyldan og samheldni hennar var Bjarna afar mikilvæg og alla tíð lagði hann mikla rækt við að styrkja fjölskylduböndin. Þessi dýrmætu og góðu tengsl barna hans og barnabarna hafa einmitt komið svo skýrt í ljós í veikindum hans. Það var okkur öllum mikið áfall þegar Bjarni fékk blóðtappa í heila fyrir nokkrum árum með þeim afleiðing- um að persónuleiki hann breyttist mikið frá því sem áður var. Þetta var þungbær raun fyrir fjölskyldu hans og vini og viljum við hér koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem sýndu skilning og stuðning í veikindum hans. Æðruleysi Bjarna nú síðustu vik- urnar var einstakt og þrátt fyrir al- varleg veikindi tapaði hann aldrei kímnigáfunni. Á fallegum vordegi kvaddi hann síðan þetta jarðneska líf, baðaður sólskini og umvafinn nærveru og hlýju fjölskyldu sinnar allrar. Okkur langar að lokum að minn- ast tengdaföður okkar með eftirfar- andi ljóði sem lýsir svo vel þeim hug sem við berum til hans. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Við þökkum Bjarna samfylgdina, minning hans mun lifa í hjörtum okkar. Anna, Geir, Gréta og Þórður. Mér og frændsystkinum mínum hlotnaðist sá ánægja, sem margir fara á mis við, við þekktum afa okk- ar og ólumst upp í nálægð við hann. Hann hefur nú verið kvaddur frá okkur og hefur haldið á vit nýrra ævintýra í öðrum heimi. Það er allt- af erfitt að kveðja ástvini sína og fjölskyldumeðlimi, sérstaklega þeg- ar þeir eru eins nátengdir og afi var. Hann stóð eins og klettur og hélt vörð um barnabörnin sín og hags- muni þeirra og varði drjúgum tíma í það eitt að plægja og sá fyrir fram- tíð okkar og velferð. Á kveðjustundinni er mér efst í huga innilegt þakklæti fyrir að hafa kynnst öðrum eins manni og afa, takk fyrir allt og allt. Hvíldu í friði elsku afi minn. Þinn Hannes. Elsku afi, það eru svo margar spurningar sem þjóta í gegnum hug minn núna. Af hverju fórstu frá okkur? Hvers vegna gastu ekki bara verið áfram hjá okkur og látið þér batna? Mér hefur liðið svo illa síðan þú fórst. Í skólanum í dag fór ég að gráta og ég grét og grét. Að lokum fór ég heim og lá í rúminu mínu og hugsaði um þig og hvað ég saknaði þín mikið. Núna hef ég eng- an afa til að tína ber fyrir í haust, þér þóttu berin alltaf svo góð. Ég var að borða lakkrís í dag og fór þá að hugsa um hvað þér fannst hann alltaf vondur, „bannsettur krum- maskítur“ sagðirðu alltaf með bros á vör og leist ekkert á hvað við hám- uðum hann í okkur. Þú varst alltaf svo góður við okkur. Ég man hvað þú gafst mér oft pening fyrir ein- hverju glingri sem ég þurfti endi- lega að fá. Og hvað ég var stolt og ánægð þegar þú sagðir að ég væri orðin svo sterk þegar ég var að bera einhverjar vatnsfötur, bara til að sanna mig fyrir þér, því ég vildi að þú værir ánægður með mig. Og ég man líka hvað ég var ánægð þegar þú varst alltaf að segja hvað ég væri lík Björk þegar ég var lítil með tíu tíkarspena sem stóðu út í loftið. En nú er það liðin tíð og þú ert farinn, það var svo erfitt að sjá þig þegar þú varst svona veikur í rúminu þínu. En nú ertu ekki lengur veikur, nú ert þú með þitt eigið kúabú á himn- um og ert ungur og frískur og með ömmu aftur. Já nú eruð þið amma saman aftur og eruð kát og glöð en ég veit að þótt þú sért mjög upptek- inn þá gefurðu þér nægan tíma til að fylgjast með okkur og passa upp á okkur. Elsku afi, ég mun láta þetta stutta bréf nægja í bili. Vertu sæll, ég mun aldrei gleyma þér. Ástar- kveðjur frá „Úllubarninu“ þínu. Úlla Árdal. Afi var góður og hjartahreinn maður. Hann var alltaf svo góður við okkur barnbörnin og reyndist okkur svo vel. Hann gaf okkur ást, vináttu, kærleika og trú. Okkur þótti svo gaman að fara með honum og ömmu í „Afaklúbbsferðirnar“ en þá ferðuðust allir afkomendur þeirra saman. Við fórum í margar stuttar og langar ferðir um Ísland með þeim. Afi var mjög duglegur við vinnu sína á Svalbarði en svo þurfti hann að hætta vegna veikinda sinna. Nú þegar hann er dáinn söknum við hans en innst inni vitum við að hann varðveitir okkur eins og amma gerir. Afi hefur alltaf verið fastur punktur í allri tilveru okkar. Við munum brosandi augun hans og hönd hans sem leiðbeindi okkur. Við undruðumst töframátt hans og hann mun verða hluti af lífi okkar að eilífu. Trú, von, ást í einlægu hjarta leiða þjáninguna brott og lýsa nóttina bjarta. Sigríður Árdal, Sigríður Guðmundsdóttir, Jósefína Elín Þórðardóttir, Víkingur Hauksson. Nú þegar við kveðjum afa okkar, sem var bóndi af líf og sál, finnst okkur eftirfarandi kvæði eiga sér- staklega vel við. Hýstu þér bæ, Hlé fyrir vindum, regni og snæ. Taktu sjálfur tinnu og stál, og tendraðu gneistann – þitt arinbál. Tak hest þinn og plóg. Helga þér jörð … hér er landrými nóg. Moldin geymir hinn mikla auð. Moldin gefur þér daglegt brauð. Uppskeran bætir þinn ytri hag. Umhyggjan mildar þitt hjartalag. Átakið skapar afl og þrótt. Í erfiði dagsins skal gæfan sótt. Og svo kemur nótt. Svartnættið er eins og svalandi veig, er sál þín drekkur í einum teyg. Þreytan breytist í þökk og frið, þögnin í svæfandi lækjarnið, haustið í vor … Hafðu þökk fyrir öll þín spor. Það bezta, sem fellur öðrum í arf, er endurminning um göfugt starf. Moldin er þín. Moldin er trygg við börnin sín, sefar allan söknuð og harm og svæfir þig við sinn móðurbarm. Grasið hvíslar sitt ljúfasta ljóð á leiðinu þínu. Moldin er hljóð og hvíldin góð … (Davíð Stefánsson.) Þökkum elsku afa okkar fyrir dýrmæta leiðsögn, minning hans er ljós í lífi okkar. Bjarni, Jón Ragnar, Bjarni Þór og Steinþór. Við viljum kveðja okkar ástkæra bróður og tileinka honum ljóðið, sem Steingrímur Arason orti í BJARNI HÓLMGRÍMSSON                                           !"#    $              %& "   %    '   %       &(      &    )  (     *        #   *  " '+ "%% ' "       *        ,       -   "     &    "   .  /    0&"1(   (   %-  (   2% (            !"#  #    $  ! %&! %  !!"#     !!"# $ '& '#! "  #  &## !'&                                                     !! ""! #$ !$"%&&   '(&  ""! $ )! !! "%&& !$ *  ""! +,!!  #!"%&&  -!% ."$  ""! / $  $%%&& -!%    ""!  .   -!%"%&&  $.!  (&   %&& % "0 +!1 ! / $   %&&  -!% !!$""!  2  !!  ""! 3" .!%$ /!  "%&&  ! 4 !  !  ! 4 !                                 !"# $%& ' "   " (%"   " (%" ) * " " + ,*  " (%"  -" " (%" .  /% . + *  " (%" 0  1 "+ ( " + )2 .# " 3(%"  +    #                                                 !"#$%&' (" )*  &+" %   &&  ,"-- "). &+" ,"-- /0 ,, %  " " (" )* % /) /0 ,"-- ,, &+" /0 % 1  " %&) % &23  %&) ,"--' Legsteinar Vönduð íslensk framleiðsla Fáið sendan myndalista Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík sími: 587 1960, fax: 587 1986 MOSAIK  Marmari Granít Blágrýti Gabbró Líparít

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.