Morgunblaðið - 29.05.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isPatrekur í 200 leikja-klúbbinn / B1
Fyrsti sigurinn hjá Eyjamönnum / B2
4 SÍÐUR
Sérblöð í dag
UNGMENNAHREYFING Rauða krossins setti í
gær á svið alvarlegt umferðarslys á Hafravatns-
vegi á árlegum starfsdegi lögreglunnar í
Reykjavík, sem er umfangsmikil björgunaræfing
sem haldin hefur verið síðan árið 2000. 25 lög-
reglumenn tóku þátt í æfingunni auk 10 sjálf-
boðaliða frá RKÍ sem léku slasaða. Áhöfn á TF-
SIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, tók ennfremur
þátt í æfingunni auk Slökkviliðs Reykjavíkur
sem var með tækjabíl á staðnum. Þegar komið
var á slysstað höfðu tvær bifreiðir lent í hörðum
árekstri. Fimm manns voru í hvorri bifreið. Æfð
var björgun slasaðra úr bílflökunum og um-
gengni við björgunarþyrluna. Hinir slösuðu voru
útbúnir þannig að þeir áttu að vera með allt frá
minniháttar meiðslum upp í alvarlega áverka.
Æfingin gekk mjög vel og verður árangurinn
metinn í framhaldinu.
Morgunblaðið/Júlíus
Hlúð að „slösuðum“ ökumanni bifreiðar. Mjög er lagt upp úr því að hafa æfingarnar sem raunverulegastar.
Alvarlegt bílslys sviðsett á Hafravatnsvegi
KYNNISFERÐIR hf. brutu gild-
andi kjarasamning er fyrirtækið
sagði upp Óskari Stefánssyni, for-
manni Bifreiðastjórafélagsins
Sleipnis, og öðrum bílstjóra úr félag-
inu til viðbótar um síðustu áramót.
Þetta er niðurstaða Félagsdóms í
máli sem Sleipnir höfðaði gegn Sam-
tökum atvinnulífsins fyrir hönd Sam-
taka ferðaþjónustunnar vegna Kynn-
isferða. Samtök atvinnulífsins voru
dæmd til að greiða Sleipni 200 þús-
und krónur í málskostnað.
Málavextir eru þeir helstir að
fólksflutningafyrirtækið Kynnisferð-
ir sagði upp tíu starfsmönnum sínum
sl. haust vegna samdráttar í rekstri
og áttu uppsagnir þeirra að taka gildi
um síðustu áramót. Þeir héldu hins
vegar störfum sínum en um svipað
leyti var þeim Óskari og Birni Briem,
bílstjórum og félagsmönnum í
Sleipni, sagt upp hjá fyrirtækinu.
Sleipnir ákvað að höfða mál fyrir
Félagsdómi þar sem það taldi
Kynnisferðir hafa brotið gegn
ákvæðum í gildandi kjarasamningi
sem fjallaði um forgangsrétt til
vinnu.
Benti félagið á að Óskari og Birni
hefði verið sagt upp störfum á sama
tíma og aðrir bílstjórar, sem ekki áttu
aðild að stéttarfélagi sem hefði samið
um forgangsrétt við fyrirtækið fyrir
bílstjóra, hefðu haldið störfum sín-
um. Nafngreindir voru í stefnunni tíu
bílstjórar sem Sleipnir taldi vera fé-
lagsmenn í Verslunarmannafélagi
Reykjavíkur. Taldi Sleipnir það
stéttarfélag ekki hafa samið um for-
gangsrétt fyrir rútubílstjóra Kynnis-
ferða og raunar ekki gert kjarasamn-
ing fyrir launþega sem starfa við
stjórn rútubíla. Um þetta barst dóm-
inum staðfesting frá þáverandi for-
manni VR, Magnúsi L. Sveinssyni.
Stefndu gerðu kröfu um sýknu í
málinu á þeim forsendum að for-
gangsréttarákvæðið takmarkaði ekki
rétt Kynnisferða til uppsagna. Þess-
ari kröfu hafnaði Félagsdómur og tók
undir með kröfu Sleipnismanna um
að fyrirtækið hefði brotið gildandi
kjarasamning. Ekki var gerð krafa
um að uppsagnirnar yrðu afturkall-
aðar.
Lára V. Júlíusdóttir hrl. var lög-
maður Sleipnis í málinu. Hún sagði
við Morgunblaðið að félagsmenn
Sleipnis ættu nú rétt á bótum vegna
ólögmætrar uppsagnar og það skref
yrði væntanlega stigið næst í málinu.
Lára sagði þetta mál athyglisvert
að því leyti að formanni stéttarfélags
hefði verið sagt upp. Þeir nytu ekki
sérstakrar verndar í lögum um stétt-
arfélög og vinnudeilur, líkt og fé-
lagskjörnir trúnaðarmenn á vinnu-
stöðum. Augljóst væri í þessu máli að
Óskar hefði verið látinn gjalda þess
að vera formaður Sleipnis. Ekki hefði
samt verið hægt að byggja á þessu
fyrir Félagsdómi þar sem formenn
stéttarfélaga nytu ekki viðurkenndr-
ar verndar.
Félagsdóm í þessu máli skipuðu
Eggert Óskarsson, Gylfi Knudsen,
Valgeir Pálsson, Kristjana Jónsdótt-
ir og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson.
Lögmaður stefndu var Ragnar Árna-
son hdl.
Félagsdómur í máli Sleipnis gegn Kynnisferðum hf.
Uppsögn tveggja starfs-
manna talin ólögmæt
HAFDÍS Gísladóttir, formaður Fé-
lags heyrnarlausra, segir að
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur hefði
mátt hafa meira samráð við félagið í
tengslum við fyrirhugað nánara
samstarf eða sameiningu Hlíðaskóla
og Vesturhlíðarskóla, en hinn síð-
arnefndi er skipaður heyrnarlausum
nemendum. Hún vill þó taka fram
að félagið sé ekki óánægt með að
ráðist sé í þessa sameiningu.
Hafdís segir að ónægar upplýs-
ingar liggi fyrir til að hægt sé að
ráðast í framkvæmdina, en búið er
að samþykkja hana í fræðsluráði.
Afgreiðslu málsins hefur verið frest-
að þrisvar í borgarráði. „Við vitum
ekki hvernig verkefnið hefur geng-
ið.
Undirbúningur síðan 1999
Við vitum ekki hvort til staðar séu
félagsleg tengsl milli barnanna í
þessum tveimur skólum. Við viljum
slá á frest að Vesturhlíðarskóli verði
lagður formlega niður þar til við
höfum viðhlítandi rannsóknir og at-
huganir í höndunum,“ segir hún.
Undirbúningur sameiningarinnar
hefur staðið síðan árið 1999.
Fræðsluráð Reykjavíkur samþykkti
3. apríl 2000 að stofnaður yrði svo-
kallaður tvíburaskóli. „Okkar skiln-
ingur á orðinu tvíburaskóli hefur
alltaf verið að tveir skólar starfi á
sömu skólalóð, en haldi sérstöðu
sinni og starfi á jafnréttisgrund-
velli,“ segir Hafdís.
Hún segir að málefni heyrnar-
lausra barna séu sérstök að því leyti
að þau eigi táknmál að móðurmáli.
Viðurkennt sé í A-námskrá grunn-
skóla að táknmál eigi að vera fyrsta
mál, en íslenska annað mál. Hún
segir að farið hafi verið rólega af
stað í undirbúningi sameiningarinn-
ar. Börnin hafi verið saman í skóla-
skjóli og ýmsum fögum, svo sem
sundi. „Við viljum fá faglegar rann-
sóknir á því hverju það starf hefur
skilað,“ segir Hafdís. Hún segir að
staðan núna sé dæmigerð fyrir sögu
heyrnarlausra, sem fái oftast litlu
um málefni sér tengd ráðið.
Félag heyrnarlausra um nánara sam-
starf Hlíðaskóla og Vesturhlíðarskóla
Frekari rannsóknir
og frestun samstarfs
FIMMTÍU starfsmönnum Flug-
þjónustu Keflavíkur verður sagt upp
um mánaðamótin, að sögn Huldu
Hauksdóttur, rekstrarstjóra flugaf-
greiðslu hjá Flugþjónustunni í
Keflavík.
Flugþjónustan er dótturfyrirtæki
Flugleiða og að sögn Huldu vinna
þar að jafnaði um 250 til 350 manns.
Hún segir að grípa þurfi til uppsagn-
anna vegna samdráttar í flugi síð-
ustu mánuði. Flugþjónustan sér um
ýmsa þætti sem snúa að þjónustu við
flugvélar á Keflavíkurflugvelli, s.s.
mat, hreingerningar og fleira.
Að sögn Huldu koma uppsagnirn-
ar niður á öllum deildum fyrirtæk-
isins og taka þær gildi næsta haust.
Hún segir að við ákvörðun um upp-
sagnir starfsmannanna verði tekið
mið af starfsaldri og hæfni starfs-
manna.
Segir upp
50 manns
VERZLUNARSKÓLI Íslands
áformar í ár að bjóða grunnskóla-
nemendum sem náðu hæstu einkunn
á samræmdu prófunum fría skóla-
vist fyrsta árið.
Þetta kom fram í ræðu Þorvarðar
Elíassonar, skólameistara Verzlun-
arskólans, við skólaslit skólans á
laugardag. Þorvarður sagði að
Verzlunarskólinn væri sífellt að
bæta árangur sinn og þetta væri lið-
ur í að halda áfram á þeirri braut.
Verzlunarskólinn
Dúxum boðin
frí skólavist
Nýstúdentar/12
♦ ♦ ♦