Morgunblaðið - 29.05.2002, Side 21
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 2002 21
ÞEGAR rithöfundur getur ekki
hugsað sér að setja staf á blað og
verður stjarfur af tilhugsuninni
um auða síðuna fyrir framan hann
er það kallað ritstífla. Getur verið
að ritstífla sé ástæðan fyrir því að
J.K. Rowling hefur enn ekki sent
frá sér fimmtu bókina um Harry
Potter? Þegar er komið nafn á
bókina, sem á (væntanlega) að
heita: Harry Potter og Fönix-
reglan.
Hvort heldur þetta er nú ástæð-
an nýtur Rowling lítillar samúðar
meðal margra ungra aðdáenda
töfradrengsins og vina hans í
Hogwarts-skóla – jafnvel þótt
þessir sömu aðdáendur viðurkenni
að vera sjálfir haldnir ritstíflu.
Óþolinmóðir lesendur
„Hún hefur haft tvö ár!“ sagði
Emma Smith, 12 ára stúlka í Elli-
cott í Maryland í Bandaríkjunum.
„Ég meina, þegar ég þarf að læra
heima fresta ég því en ég geri það
samt á réttum tíma.“
Emma og vinkona hennar, Tam-
ika Jacobs, voru í bókabúð að
skoða bækur. „Ég verð mjög
ánægð þegar hún skrifar hana
loksins,“ sagði Tamika, sem er 13
ára, „en það verður öðru vísi.
Kannski bara af því að ég er orðin
eldri. Þegar ég las fyrstu bókina
fannst mér að það væru í rauninni
galdrar til í heiminum.“
Líkt og milljónir barna (og full-
orðinna) um allan heim lásu Emma
og Tamika bækurnar um Harry
Potter jafnóðum og þær komu út,
nú síðast Harry Potter og Eldbik-
arinn, sem kom út í júlí 2000 (2001
í íslenskri þýðingu). En svo virðist
sem Rowling hafi ekki dottið fleira
í hug.
Neitar ritstíflu
Ef Rowling hefði haldið sama
hraða og áður hefði fimmta bókin
átt að koma út í júlí í fyrra. Svo var
vonast til að hún kæmi nú í sumar.
En nú mega lesendur búast við að
þurfa að bíða að minnsta kosti til
áramóta.
Talsmaður bókaforlagsins
Scholastic, sem gefur út Harry
Potter-bækurnar í Bandaríkj-
unum, er ekkert hæft í þeim
vangaveltum að Rowling sé með
ritstíflu. Að vísu sagði hún í viðtali
fyrir tveim árum að það hefði ver-
ið erfitt að skrifa Eldbikarinn
vegna þess að hún hefði verið farin
að finna verulega fyrir „ut-
anaðkomandi þrýstingi“.
En talsmaður Scholastic segir að
frekar megi ætla að ástæðan fyrir
því að Rowling hafi ekki þegar
klárað fimmtu bókina sé sú, að hún
hafi haft svo mörgu öðru að sinna í
lífinu undanfarið – gifta sig, kaupa
og flytja í óðalssetur í Skotlandi,
hafa hönd í bagga með gerð kvik-
mynda eftir bókunum og fram-
leiðslu á óteljandi söluvörum er
tengjast bókunum.
Næsta kvikmynd í nóvember
Á meðan geta aðdáendur Harr-
ys, Hermione og Rons hlakkað til
næstu kvikmyndar um þau, Harry
Potter og Leyniklefinn, sem á að
frumsýna í nóvember nk.
En fyrir Emmu í Maryland kem-
ur ekkert í staðinn fyrir stóra,
þykka og spennandi bók um nýj-
ustu ævintýri Harrys. „Þegar ég
var að lesa bækurnar um Harry
Potter þoldi ég það ekki þegar ég
var búin með þær. Það var svo leið-
inlegt að þær væru búnar. Ég faldi
mig á baðherberginu og las þegar
ég átti að vera farin að hátta.“
Hún ætlar að bíða eftir næstu
bók, sama hversu langt er í hana:
„Ójá, ég ætla kaupa fimmtu bók-
ina. Jafnvel þótt hún komi ekki út
fyrr en ég verð komin í mennta-
skóla.“
Engin samúð
með Rowling
J.K. Rowling og eiginmaður hennar, dr. Neil Murray.
The Washington Post.
’ Hún hefur hafttvö ár! ‘
BANDARÍSKIR hershöfðingjar
telja sig hafa talið æðstu embættis-
menn varnarmálaráðuneytisins í
Washington á að fresta hugsanlegri
innrás í Írak að minnsta kosti þar til
á næsta ári og hætta jafnvel alveg
við hana. The Washington Post hef-
ur þetta eftir háttsettum embættis-
mönnum í varnarmálaráðuneytinu.
Bandaríska herráðið hefur beitt
sér fyrir því á bak við tjöldin að
stjórn George W. Bush Bandaríkja-
forseta endurskoði harða afstöðu
sína til Íraks sem talin er geta orðið
til þess að stríð verði óhjákvæmilegt.
Meðal annars átti Tommy R. Franks
hershöfðingi, sem myndi stjórna
hernaðinum í Írak, leynilegan fund
með Bush um málið í Hvíta húsinu
fyrr í mánuðinum.
Franks sagði forsetanum á fund-
inum að til ráðast inn í Írak í því
skyni að steypa Saddam Hussein,
leiðtoga Íraks, þyrfti að beita að
minnsta kosti 200.000 hermönnum,
sem er miklu meiri liðsafli en nokkrir
hernaðarsérfræðingar hafa áætlað
að þurfi til að ná þessu markmiði.
Þetta mat hershöfðingjans er í sam-
ræmi við afstöðu bandaríska her-
ráðsins, sem hefur lagt áherslu á að
innrás krefjist tímafreks undirbún-
ings, auk þess sem hætta sé á að her
Saddams beiti sýkla- og efnavopnum
og mikið mannfall verði í liði Banda-
ríkjahers komi til átaka í íröskum
borgum. Hershöfðingjarnir segja
einnig að ekki sé ljóst hver geti tekið
við völdunum og ekki sé víst að eft-
irmaðurinn verði betri en Saddam.
Leggur áherslu á
leynilegar aðgerðir
Stjórn Bush virðist enn vera stað-
ráðin í að steypa Saddam Hussein af
stóli en leggur nú meiri áherslu á
leynilegar aðgerðir til að grafa und-
an stjórn hans, meðal annars vegna
afstöðu herráðsins, að sögn tveggja
heimildarmanna The Washington
Post. „Það eru margar leiðir til að ná
markmiðinu og herför til Íraks er að-
eins ein af þeim,“ sagði annar emb-
ættismannanna, sem mun vera
kunnugt um afstöðu Donalds H.
Rumsfelds varnarmálaráðherra.
Forsetinn tekur lokaákvörðun í
málinu. Bush var harðorður í garð
Íraks og annarra landa, sem hann
segir mynda „öxul hins illa“ í heim-
inum, þegar hann var í Berlín fyrir
skömmu, en neitaði því að hann væri
að undirbúa innrás. „Ég er ekki með
neinar stríðsáætlanir á borðinu, það
er sannleikurinn, og við verðum að
beita öllum tiltækum ráðum til að
takast á við Saddam Hussein,“
kvaðst Bush hafa sagt Gerhard
Schröder, kanslara Þýskalands.
Ráðamenn í mörgum Evrópuríkj-
um hafa efasemdir um að ráðlegt sé
að heyja nýtt stríð í Írak. Schröder
kvaðst vera hlynntur því að reynt
yrði að knýja Saddam Hussein til að
heimila vopnaeftirlit í Írak á vegum
Sameinuðu þjóðanna en vildi ekki
ræða möguleikann á innrás við
fréttamenn.
Nokkrir embættismenn í banda-
ríska varnarmálaráðuneytinu eru
enn hlynntir innrás í Írak og hafa
ekki gefið upp vonina um að fá her-
ráðið á sitt band. Aðrir heimildar-
menn The Washington Post sögðu að
enn væri of snemmt fyrir hershöfð-
ingjana að lýsa yfir sigri í deilunni.
Þeir benda á að Rumsfeld varnar-
málaráðherra hefur ekki enn tekið af
skarið og látið helstu aðstoðarmenn
sína um að blanda sér í deiluna,
þeirra á meðal Paul D. Wolfowitz að-
stoðarvarnarmálaráðherra, sem er
álitinn einn af helstu stuðnings-
mönnum hernaðar í Írak.
Bandaríska her-
ráðið leggst gegn
innrás í Írak
The Washington Post.