Morgunblaðið - 29.05.2002, Page 31
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 2002 31
ÉG bauð mig fram í kosningunum
til að verða borgarfulltrúi í Reykjavík
til að vinna að nýjum hugmyndum
um aukið lýðræði með beinni þátt-
töku íbúanna sjálfra í gerð fjárhags-
áætlun borgarinnar. Einnig til að all-
ir fái fullnægt sínum grundvallar-
þörfum fyrir heilbrigðisþjónustu,
menntun og möguleikann til að hafa
áhrif á samfélagið sem þeir búa í,
einnig einstæðingar, nýbúar, börn og
unglingar, leigjendur og aðrir þeir
sem ekki er sinnt í borginni.
Það er sagt að á Íslandi sé lýðræði
og í stjórnarskránni okkar kveður á
um jafnræði íbúanna. En það er ekki
jafnræði ef einn getur komið skoð-
unum sínum á framfæri á öldum ljós-
vakans, en annar ekki, og jafnræðið
er grundvallarforsenda lýðræðis. Þar
má aflsmunur og aðstöðumunur ekki
mismuna skoðunum. Ljósvakamiðlar
fá úthlutað (frá heildinni) rásum til að
miðla efni til almennings. Þeir sem fá
þannig úthlutað rásum bera siðferði-
lega og lagalega skyldu (sjá útvarps-
réttarlög) til að „halda í heiðri lýð-
ræðislegar grundvallarreglur,“
„virða tjáningarfrelsi og stuðla að því
að fram komi í dagskrá rök fyrir mis-
munandi skoðunum í umdeildum
málum.“
Í nýloknum kosningum, eins og
reyndar á hverjum tíma þarf að
skiptast á skoðunum varðandi ýmis
„umdeild“ mál. Við Húmanistar ger-
um ágreining við ríkjandi stefnu í
þjóðfélaginu sem „kerfisflokkarn-
ir“allir fylgja í reynd, en við fengum
nánast engan aðgang að ljósvaka-
miðlunum nú fyrir kosningarnar, fyr-
ir utan umræðuþátt í RÚV kvöldið
fyrir kjördag.
Við höfum tjáð friðsamleg mót-
mæli og krafist réttar okkar vegna
fyrrnefndrar mismununar, gagnvart
Skjá 1 og Stöð 2, en verið sýnd sem
hálfgerðir „hermdarverkamenn“
þess vegna í ríkissjónvarpinu. Svona
lagað gerist ætíð þegar almenningur
krefst réttar síns af þeim sem á vald-
inu halda. Þannig var það þegar
verkafólk krafðist réttar síns til
mannsæmandi launa og réttarins til
að bindast samtökum. Einnig voru
konur úthrópaðar þegar þær kröfð-
ust kosningaréttar og fullra mann-
réttinda. Þeir sem um völdin halda
láta ekkert af hendi nema þess sé
krafist og kröfunni fylgt eftir af ein-
urð. Krafa okkar er að allir fái jafnan
aðgang að fjölmiðlum a.m.k. fyrir
kosningar. Nóg er misréttið sem ólík-
ur efnahagur framboðanna veldur,
þar sem valdaframboðin skammta
sjálfum sér af almannafé hundruð
milljóna árlega, – en þetta verður
fjallað um síðar.
Til að fylgja eftir kröfunum um
jafnan rétt til aðgengis að fjölmiðlum
munum við nú fara fram á að út-
varpsréttarnefnd afturkalli leyfi
þeirra fjölmiðla sem gerast endur-
tekið brotlegir við útvarpsréttarlög
og jafnræðisreglu Stjórnarskrárinn-
ar. Ennfremur munum við fara fram
á það við Sýslumanninn í Reykjavík
að hann kanni forsendur þess að
ógilda kosningarnar í Reykjavík
vegna ástæðna sem lúta að mismun-
un um aðgengi að fjölmiðlum til að
kynna stefnumál framboða í Reykja-
vík og ólýðræðislegum og ólöglegum
vinnubrögðum RÚV, Skjás 1 og ljós-
vakamiðla fyrirtækisins Norðurljósa
í því sambandi.
Því miður var það ekki mikill fjöldi
fólks sem greiddi H-listanum at-
kvæði í kosningunum, enda komumst
við hvergi að til að kynna stefnumál
okkar. Áhugavert er hvernig fjöldi
atkvæða virðist nokkuð í samræmi
við þann tíma sem okkur var
skammtaður í fjölmiðlum miðað við
önnur framboð í Reykjavík. Fjöldi at-
kvæða hefur hinsvegar ekkert með
rétt okkar til jafnræðis um aðgengi
að fjölmiðlum á við önnur framboð að
gera, enda var misréttið framið áður
en kosið var. Ef ekkert er að gert
munu fyrrnefnd vinnubrögð festa sig
í sessi og verður það dökk framtíð
sem blasir við unga fólkinu þegar
tjáningarfrelsið og lýðræðið verður
alfarið skammtað til þeirra sem
greitt geta fyrir með m.a. með kaup-
um á auglýsingum, á líkan hátt og
gerst hefur með fiskikvótann. Þá
munu engir möguleikar verða fyrir
unga fólkið að hafa áhrif á þjóðfélagið
nema í gegnum hina stofnanakenndu
kerfisflokka sem engar breytingar
vilja. Þau atkvæði sem greidd voru
H-listanum voru dýrmæt atkvæði því
þau voru greidd breytingum og því
að við íbúarnir höfum vaxandi áhrif á
samfélagið og ég þakka kjósendun-
um okkar heilshugar.
Við skorum á alla þá sem vilja efla
lýðræðið í landinu að leggja okkur lið
og taka þátt í að skipuleggja aðgerðir
til varnar lýðræðinu.
Hvers vegna Methúsalem?
Methúsalem
Þórisson
Reykjavík
Við munum fara fram á,
segir Methúsalem Þór-
isson, að útvarpsrétt-
arnefnd afturkalli leyfi
þeirra fjölmiðla sem
gerast endurtekið brot-
legir við útvarpsrétt-
arlög og jafnræðisreglu.
Höfundur var talsmaður
Húmanistaflokksins og fyrsti maður
á lista flokksins í nýafstöðnum
kosningum í Reykjavík.
S
U
N
D
F
Ö
T
undirfataverslun
Síðumúla 3-5