Morgunblaðið - 29.05.2002, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 2002 45
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú hefur mikla sam-
skiptahæfileika og gefur þig
allan í það sem skiptir þig
máli. Nánustu sambönd þín
munu dýpka og verða ástrík-
ari á komandi ári.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Gættu þess að leggja vel við
hlustir í öllum samskiptum
þínum við aðra í dag. Láttu
það vera takmark þitt í dag
að gefa skýr skilaboð.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Gefðu þér tíma til að íhuga
hvað það er sem skiptir þig
máli. Skoðaðu samband þitt
við eigur þínar. Átt þú þær
eða eiga þær þig?
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú kemur vel fyrir í dag. Þú
ættir engu að síður að leggja
þig fram við að sinna þörfum
annarra.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Reyndu að taka frá fimmtán
mínútur til að vera með sjálf-
um þér í dag. Þú þarft á þess-
um tíma að halda til að end-
urhlaða orku þína.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ættir að eiga mikil sam-
skipti við einstaklinga og
hópa í dag. Þú nærð mestum
árangri í samvinnu við aðra.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Gefðu þér tíma til að endur-
meta líf þitt. Íhugaðu hvar þú
vilt vera staddur eftir tíu ár,
fimm ár og eitt ár og ákveddu
síðan hvað þú ætlar að gera á
morgun.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Hvers konar ný og framandi
reynsla gleður þig í dag.
Reyndu að snúa erfiðri
reynslu upp í jákvætt tæki-
færi til þoska og lærdóms.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú hefur ríka þörf fyrir að
upplifa hluti í gegnum snert-
ingu í dag. Það er ekki alltaf
nóg að skilja hlutina vitrænt.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú ættir ekki að reyna að
gera hlutina upp á eigin spýt-
ur í dag. Leitaðu samvinnu
við aðra eða a.m.k. ráðlegg-
inga frá öðrum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Íhugaðu hvernig þú getur
bætt lífsgæði þín sérstaklega
varðandi heilsu þína. Oft skil-
ur fólk ekki fyrr en það hefur
misst heilsuna að hún skiptir
öllu máli.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Láttu það eftir þér að gera
eitthvað skemmtilegt og gef-
andi í dag. Þú hefur mikla
þörf fyrir að fara út að
skemmta þér og það er ekk-
ert sem ætti að standa í vegi
fyrir því.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Leggðu þig fram við að gera
heimili þitt að stað sem þig
langar til að snúa heim til.
Það er mikilvægt að eiga
hreiður þar sem við getum
safnað kröftum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
50 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 29.
maí, er fimmtugur Halldór
Kristjánsson, verkfræðing-
ur, Hraunbrún 52, Hafnar-
firði. Hann og eiginkona
hans, Jenný Ágústsdóttir,
tannlæknir, halda afmælis-
daginn hátíðlegan með fjöl-
skyldu og vinum í Hafnar-
firði.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu til styrktar Rauða
krossi Íslands og söfnuðu þær kr. 2.847. Þær heita Bára
Atladóttir, Karen Ýr Jóelsdóttir, Karen Ýr Sigurjónsdóttir
og Hrafnhildur Edda Magnúsdóttir.
Hlutavelta
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesend-
um sínum að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælis-
tilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns
og símanúmer. Fólk
getur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
LJÓÐABROT
AÐ LIFA
Er dagur rís á fætur,
sem dregur allar nætur
á tálar, –
hann geisar fram í veldi
og fer um hugann eldi
og brjálar.
Hann vekur oss af svefni,
þótt viti hann ei hvert stefni
vor hagur, –
og áfram allir þjóta
og upp til handa og fóta.
– Ó, dagur!
- -
Andrés Björnsson
UM miðjan júní hefst á Ítal-
íu Evrópumót í opnum
flokki og kvennaflokki og
sendir Ísland lið í báða
flokka. Í kvennaflokki spila:
Hjördís Sigurjónsdóttir,
Ragnheiður Nielsen, Guðný
Halldórsdóttir, Hrafnhildur
Skúladóttir, Alda Guðna-
dóttir og Dóra Axelsdóttir.
Fyrirliði er Haukur Inga-
son. Opni flokkurinn er
þannig skipaður: Karl Sig-
urhjartarson, Snorri Karls-
son, Þröstur Ingimarsson,
Bjarni Einarsson, Stefán
Jóhannsson og Steinar
Jónsson. Fyrirliði er Guðm.
P. Arnarson. Spilið í dag
kom upp í æfingaleik opna
flokksins í síðustu viku:
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♠ Á2
♥ G9743
♦ 2
♣75432
Vestur Austur
♠ D9643 ♠ 75
♥ K ♥ 852
♦ KG97 ♦ Á108643
♣KD9 ♣G10
Suður
♠ KG108
♥ ÁD106
♦ D5
♣Á86
Þröstur og Bjarni voru í
NS gegn Ásmundi Pálssyni
og Magnúsi E. Magnússyni:
Vestur Norður Austur Suður
Magnús Bjarni Ásmundur Þröstur
-- -- -- 1 grand
Pass 2 tíglar Pass 3 hjörtu
Pass 4 hjörtu Allir pass
Grandopnun Þrastar er á
punktabilinu 14-16 og hann
sýnir hámark og fjórlitar-
stuðning með því að stökka í
þrjú hjörtu við yfirfærsl-
unni. Bjarni ætlaði sér aldr-
ei nema í tvö hjörtu, en
hækkaði í geim í ljósi nýrra
tíðinda.
Magnús var óheppinn
með útspilið, valdi lítinn
spaða, sem Þröstur tók
ódýrt heima. Þröstur tók
næst á spaðaásinn, fór heim
á laufás og henti tígli niður í
spaðakóng. Ásmundur
trompaði og spilaði laufi, þar
sem Magnús tók tvo slagi.
Vörnin hefur fengið bókina
og nú snýst allt um hjarta-
kónginn. Magnús spilaði
tígli, sem Þröstur trompaði
og spilaði fumlaust hjarta á
ásinn og felldi kónginn.
Hvers vegna? Jú, Magnús
hefði að sjálfsögðu spilað
spaða, en ekki tígli, ef hann
ætti von á að Ásmundur
gæti yfirtrompað blindan.
Þröstur og Magnús hafa
spilað saman í landsliði á
nokkrum mótum undanfarin
ár, en Magnús býr nú í Sví-
þjóð og treystir sér ekki til
að taka þátt í landsliðsvinnu
á Íslandi. Magnús er hér í
fríi og notar tækifærið til að
æfa félaga sína fyrir átökin á
Ítalíu.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
1. d4 g6 2. c4 Bg7 3. Rf3 d6
4. Rc3 Rd7 5. e4 e5 6. Be2
Rgf6 7. 0–0 0–0 8.
Be3 h6 9. dxe5 dxe5
10. Rd2 Rh7 11. c5
f5 12. exf5 gxf5 13.
f3 Rg5 14. Hc1 Kh8
15. b4 Re6 16. Rb3
Dh4 17. a3 Rf6 18.
De1 Dh5 19. Rd2
Dg6 20. Rc4 Rh5
21. Rd5 Df7 22.
Dh4 f4 23. Bf2 Rd4
24. Bxd4 exd4
Staðan kom upp
á fyrsta bikarmóti
FIDE sem haldið
var í Dubai. Teimo-
ur Radjabov (2.599) hafði
hvítt gegn Saleh Jasim
(2.280). 25. Rxc7! Bf6 26.
Rd6! Dg6 27. Bd3! Dxd3
28. Dxh5 Hb8 29. Dxh6+
Kg8 30. Rd5 Bg7 31. Re7#.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Með morgunkaffinu
Það verða svo 7 krónur í viðbót þegar ég er búin að
fá skilagjaldið fyrir flöskuna.
Fjölskyldudagur Astma-
og ofnæmisfélagsins 2. júní
Sunnudaginn 2. júní kl. 11.00 hefst fjölskyldu-
dagur fyrir félagsmenn okkar. Endurhæfingarmið-
stöð Reykjalundar býður upp á aðstöðu í húsa-
kynnum sínum, þ.e. í nýjum íþróttasal og 25 m
innisundlaug. Auk sunds verður m.a. boðið upp
á, borðtennis, hoppkastala og ratleik.
Við bjóðum einnig upp á grillaðar pylsur, gos,
kaffi og meðlæti.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku ykkar
í síma 552 2150.
Takið með ykkur sundföt og létta lund upp á
Reykjalund.
Stjórnin.
Gúmmíbátaþjónustan Reykjavík ehf.
Eyjarslóð 9, 101 Reykjavík
hættir starfsemi 31. maí 2002
Þökkum viðskiptavinum okkar gott samstarf á liðnum árum.
Ný skoðunarstöð fyrir gúmmíbáta tekur til starfa 1. júní nk.
Viking-Björgunarbúnaður
Hvaleyrarbraut 27, Hafnarfirði
Gullsmárabrids
Eldri borgarar spiluðu tvímenn-
ing á níu borðum mánudaginn 27.
mai að Gullsmára 3. Miðlungur 168.
Beztum árangri náðu:
NS
Valdimar Láruss. og Björn Bjarnas. 212
Páll Guðmundss. og Filip Höskuldss. 196
Þorgerður Sigurgeirsd og Stefán Friðbj. 193
AV
Kristinn Guðm. og Sigurður Gunnlaugss 212
Sig. Björnss. og Auðunn Bergsveinss. 199
Sigurður Jóhannss. og Kristján Guðm. 182
Síðasti spiladagur fyrir sumarhlé
er fimmtudagur 30. maí. Mæting kl.
12.45 á hádegi. Stuttur tvímenning-
ur. Sumarkaffi!
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Kynning í Gjábakka
og Gullsmára
Sumarstarfsemi Gjábakka og
Gullsmára verður kynnt í dag, mið-
vikudaginn 29. maí, kl. 8 í félags-
heimilinu Gjábakka, Fannborg 8,
Kópavogi. Kynningin er öllum opin.
Kaffiveitingar.
Kynnt verður m.a. starfsemi Fé-
lags eldri borgara í Kópavogi, starf-
semi Hana-nú og ferðir fyrir eldra
fólk í Kópavogi sem skipulagðar eru
í samráði við félagsstarfið. Einnig
verða kynntir ferðamöguleikar á
vegum Vestfjarðaleiðar, segir í
fréttatilkynningu.
Risaskor hjá Guðlaugi
og Jörundi í sumarbrids
Góð stemmning var mánudags-
kvöldið 27. maí, 18 pör mættu til
leiks í blíðskaparveðri, spilaður var
eins kvölds Mitchell tvímenningur
og var meðalskor 216. Guðlaugur
Sveinsson og Jörundur Þórðarson
náðu afbragðsskori í keppni kvölds-
ins, fengu 300 stig, eða ríflega 69,4%
skor og telst það mjög gott hjá þeim,
ekki síst vegna þess að þeir eru
óvanir saman. Annars urðu þessi
pör efst í NS:
Gylfi Baldurss. - Hermann Friðrikss. 251
Soffía Daníelsd.- Jón Stefánss. 242
Heiðar Sigurj.- Vilhjálmur Sigurðs. jr 238
Guðm. Baldur. - Hallgr. Hallgrímss. 238
AV
Guðlaugur Sveinss. - Jörundur Þórðars. 300
Halldóra Magnúsd.- Þórir Sigursteinss. 234
Eggert Bergsson - Björn Friðriksson 230
Vegna aðalfundar Bridsfélags
Reykjavíkur sem haldinn verður
með pomp og prakt seinna í dag,
hefst spilamennska SUMARBRIDS
klukkan 19:45 í kvöld, en ekki klukk-
an 19:00 eins og venjulega. Spilarar
eru þó hvattir til að mæta tíman-
lega, hægt er að skrá sig á staðn-
um.Allir eru velkomnir og keppnis-
stjóri aðstoðar við að mynda pör,
mæti spilarar stakir. Reynt er að
taka vel á móti byrjendum og óvön-
um spilurum.
Nánari upplýsingar fást hjá BSÍ
eða hjá Matthíasi í síma 860-1003.
Einnig má senda tölvupóst til sum-
arbridge@bridge.is.
Nýjar
línur
á
nýjum stað
undirfataverslun
Síðumúla 3-5
Begga fína