Morgunblaðið - 29.05.2002, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 2002 47
Í KVÖLD frumsýnir Filmundur
nýja íslenska heimildarmynd sem
ber heitið Varði goes Europe. Þeim
sem finnst þetta nafn hljóma kunn-
uglega hafa líklega séð forvera
myndarinnar, Varði fer á vertíð,
sem sýnd var í Sjónvarpinu í fyrra.
Þá slóst Varði í för með sveita-
ballahljómsveit og reyndi að aðlag-
ast þeirra heimi. Í þetta sinn ferð
umræddur Varði þó til meginlands
Evrópu til að reyna fyrir sér sem
götulistamaður. Í för með honum
er sem fyrr vinur hans, Grímur,
sem sér um að taka ævintýri þeirra
félaga upp á myndband. Afrakstur
ferðarinnar er svo frumsýndur í
kvöld og tók Morgunblaðið þá
Varða og Grím tali af því tilefni.
„Já við gerðum Varði fer á ver-
tíð árið 2000 og svo var þessi mynd
tekin sumarið 2001. Það má segja
að þetta sé einskonar sjálfstætt
framhald en þessi er þó í fullri
lengd,“ upplýsir Grímur.
„Varði er enn aðalpersónan og
hann er að kanna einhverjar nýjar
slóðir í tónlistarheiminum sem
hann hefur ekki gert áður. Myndin
fjallar sem sagt um götuspilara og
þeirra menningu í Evrópu.“
Þeir félagar eru sammála um að
kæruleysi einkenni þó vönduð
vinnubrögð þeirra við gerð mynd-
arinnar.
„Já Varði goes Europe byrjaði
bara sem brandari hjá okkur. Það
trúði því enginn að við ætluðum að
fara að gera framhald af myndinni.
En svo fórum við bara af stað og
húkkuðum okkur far á Seyðisfjörð
og boltinn var farinn að rúlla. Við
vorum samt ekki búnir að ákveða
neitt fyrirfram,“ segir Grímur.
„Við ferðuðumst með Norrænu
til að byrja með. Fórum fyrst til
Færeyja, þaðan til Noregs þar sem
við heimsóttum Þrándheim, Osló
og lítil sveitaþorp,“ segir Varði og
félagi hans tekur við í ferðasög-
unni:
„Við vorum sem sagt að leita að
konungi götuspilaranna, Leo Gill-
espie, og við fundum hann í smábæ
í Noregi. Stór hluti af myndinni er
um leit Varða að þessum manni,“
segir Grímur.
„Eftir að við fundum Leo hófst
svona sjálfstæður trúbadúrsferill
Varða og við fórum til Hamborgar,
París, Amsterdam og enduðum svo
í Berlín. Í Berlín kynntumst við
manni sem skipulagði tónleika fyr-
ir Varða. Hann heitir Wolfgang
Müller og er álfasérfræðingur og
hefur því mikinn áhuga á Íslandi.
Hann er meira að segja búinn að
flytja Varða út einu sinni eftir
þetta.“
Yfirvaldið kæfir menninguna
Aðspurðir segja þeir það hafa
komið sér hvað mest á óvart
hversu strangar reglur eru um
götuspilamennsku á meginlandi
Evrópu og segjast þeir oft hafa
verið stoppaðir af yfirvöldum við
listiðkun sína á götum úti.
„Það kemur einmitt kafli í mynd-
inni þar sem við tökum þetta svolít-
ið fyrir, hvernig yfirvaldið er í
rauninni að kæfa mennnguna,“
segir Grímur.
„Í Noregi þykir þessi spila-
mennska mjög rómantísk. Það má
því segja að myndin sé rómantísk á
köflum,“ segir Varði í gríni og
uppsker hlátur félaga síns.
Þeir Grímur og Varði segjast
ekki skrifa handrit að myndum sín-
um fyrirfram, þær séu í raun bara
spunnar á staðnum.
„Við erum náttúrulega góðir fé-
lagar og ég þekki Varða mjög vel
sem er mjög gott fyrir mig sem
kvikmyndagerðarmann,“ segir
Grímur.
„Þetta byggist líka svolítið á því
að við erum bara tveir, við erum
ekki með neinn hljóðmann eða
ljósamann. Fyrir vikið verður þetta
aldrei neitt formlegt,“ bætir Varði
við.
„Nei ég bað fólk aldrei að færa
sig til að sitja í betri birtu eða end-
urtaka eitthvað sem það hefur
sagt. Margir sem hafa séð báðar
myndirnar trúa því varla að þetta
sé allt ekta, að atriðin séu ekki
sviðsett,“ segir Grímur.
En hvernig fjármagna tveir ung-
ir menn heila kvikmynd?
„Á yfirdrætti,“ svarar Varði að
bragði.
„Við verðum nú að geta þess að
sjóðurinn Ungt fólk í Evrópu styrk-
ir okkur ásamt Menningarsjóði
Kópavogs. Afgangurinn er svo
bara greiddur á yfirdrætti,“ upp-
lýsir Grímur.
Varði búinn að meika það
Ásamt því að frumsýna kvik-
mynd í fullri lengd víla þeir Grím-
ur og Varði ekki fyrir sér að gefa
út geisladisk í leiðinni sem inni-
heldur þau lög sem koma fram í
myndinni í bland við önnur sem
þeir tóku upp á ferðalagi sínu.
„Þetta er allt tekið upp úti á
götu,“ segir Varði.
„Ég tók þetta sjálfur upp á upp-
tökutæki með umhverfishljóðnema
til að ná réttu stemmningunni.“
„Þetta eru aðallega lög frægra
einstaklinga í mjög abstrakt út-
gáfum. Þarna er til dæmis lag með
Iron Maiden,“ segir Grímur og
Varði bætir við:
„Svo er þetta líka spuni. Til
dæmis er fyrsta lagið á disknum
nokkurs konar götuteknó.“
Aðspurðir segjast þeir félagar
ekki hafa fleiri myndir um afrek
Varða í bígerð og ástæðan er ein-
föld:
„Varði er búinn að meika það,
við þurfum ekki að gera fleiri
myndir,“ segir Grímur að lokum.
Varði goes Europe verður frum-
sýnd í Háskólabíói klukkan 20 í
kvöld en þeim sem vilja taka for-
skot á sæluna er bent á að Varði og
Eiríkur Örn Norðdahl ætla að leika
á Lækjartorgi klukkan 16–18 til að
hita fólk upp í götustemmningu
fyrir frumsýninguna.
Varði kemst í kast við lögin fyrir
að spila á götum úti.
Morgunblaðið/Sverrir
Þeir Grímur Hákonarson og Hallvarður Ásgeirsson leyfa áhorfendum
að fylgjast með Varða ferðast um Evrópu.
Menning götu-
listamanna
könnuð
birta@mbl.is
Filmundur frumsýnir Varði goes Europe
betra en nýtt
Sýnd kl. 8. B. i. 10.
Sýnd kl. 10.20.
„Fylgist með á www.borgarbio.is“
1/2kvikmyndir.is
kvikmyndir.com
DV
Stærsta bíóupplifun
ársins er hafin
Sýnd kl. 5, 8 og 11. B. i. 10.
1/2
kvikmyndir.is
1/2
kvikmyndir.com
Sánd
SV Mbl
Sýnd kl. 5.30.
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
Sýnd kl. 6.
Vit 379.
150 kr. í boði VISA
ef greitt er með VISA kreditkorti
Sýnd kl. 10.40.
Síðustu sýningar
kvikmyndir.is
1/2kvikmyndir.isÓHT Rás 2
Sýnd kl. 8. Vit 380. Síðustu sýningar
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
J I M C A R R E Y
T H E M A J E S T I C
J I
J I
1/2
Kvikmyndir.is
Sánd
RadioX
/
i i i
i
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
421 -1170
1/2
kvikmyndir.is
1/2
kvikmyndir.com
Sánd
SV Mbl
Sýnd kl. 8 og 10.30. Sýnd kl. 8 og 10.
1/2
Kvikmyndir.is
Sánd
RadioX
/
i i i
i
SÍMI 564 0000 - www.smarabio.is
Miðasala opnar kl. 15.30
5 hágæða bíósalir
1/2 kvikmyndir.is
1/2 RadioX
kvikmyndir.com
DV
Sánd
Stærsta bíóupplifun ársins er hafin
Yfir 34.000
áhorfendur
Sýnd kl. 4. Íslenskt tal.
Power-
sýning
kl. 10.50
i
l. .
Yfir 25.000 áhorfendur
Sýnd kl. 4, 5, 7, 8, 10 og Powersýning kl. 10.50. B. i. 10.
kl. 4.30, 7.30 og 10.30.
Yfir 42.000
áhorfendur!
Sýnd kl. 5, 6, 8, 9 og 10.30 B. i. 10.
1/2 kvikmyndir.is 1/2 kvikmyndir.com
Tímaritið Sánd SV Mbl Rás 2
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 5.30. B.i. 16 ára
Sýnd kl. 6 og 9.
42.000 áhorfendur !
1/2 kvikmyndir.is 1/2
RadioX
kvikmyndir.comDV
Sánd
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15.
B. i. 10.
Stærsta bíóupplifun ársins er hafin
Yfir 20.000 áhorfendur á sjö dögum!
1/2 kvikmyndir.is 1/2 kvikmyndir.com
Tímaritið Sánd SV Mbl Rás 2