Morgunblaðið - 27.06.2002, Síða 1
148. TBL. 90. ÁRG. FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 27. JÚNÍ 2002
MIKIÐ verðfall varð á fjármála-
mörkuðum í gær eftir að upplýst var
um mikil bókhaldssvik hjá banda-
ríska fjarskiptarisanum WorldCom
og hugsanlegt gjaldþrot fyrirtækis-
ins. George W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, sagði í gær um tíðindin, að
þau væru „yfirgengilegt“ hneyksli
og hét nákvæmri rannsókn á málinu.
Óttast er, að þetta geti orðið stærra í
sniðum en Enron-gjaldþrotið og
ásamt öðru tafið fyrir auknum hag-
vexti í Bandaríkjunum.
Mikið verðfall varð á helstu fjár-
málamörkuðum um allan heim í gær
þegar það fréttist, að WorldCom,
sem starfar í 65 löndum og er með
85.000 starfsmenn, hefði vantalið út-
gjöldin á þessu ári og í fyrra um 334
milljarða íslenskra króna. Um leið
var ljóst, að uppgefinn hagnaður á
þessum tíma var aðeins blekking.
Dow Jones-vísitalan lækkaði um
190 punkta og fór niður fyrir 9.000 í
fyrsta sinn frá 10. október á síðasta
hausti. Þá fór Nasdaq niður fyrir
það, sem hún var lægst eftir hryðju-
verkin í Bandaríkjunum 11. septem-
ber.
Minnkandi traust
Óttast er, að þetta nýjasta
hneyksli í bandarísku viðskiptalífi
eigi eftir að draga úr tiltrú manna á
bandarískum fjármálamarkaði og
styrkja þær efasemdir, sem margir
hafa um áreiðanleika bókhaldsins
hjá mörgum stórfyrirtækjum. Eru
ýmsir fjárfestar farnir að beina sínu
fé frá Bandaríkjunum til Evrópu og
það ásamt lækkun dollarans hefur
valdið því, að gengi evrunnar er nú
um það bil jafnt gengi dollarans.
Bandarískir bankar eiga allmikið á
hættu verði WorldCom gjaldþrota
þótt ekki sé talið, að það verði nein-
um þeirra að falli. Ýmsir bankar utan
Bandaríkjanna skýrðu í gær frá við-
skiptum sínum við WorldCom og
hafa bandarískir bankar verið hvatt-
ir til að gera það sama til að róa
markaðinn. Þýska líftryggingafélag-
ið Allianz upplýsti í gær, að það gæti
tapað um níu milljörðum ísl. kr. færi
allt á versta veg. Talið er, að úti-
standandi skuldir WorldCom séu
rúmlega 2.800 milljarðar kr.
Bush heitir ítarlegri rannsókn
Bush Bandaríkjaforseti sagði í
gær er hann kom til G8-fundarins í
Kanada, að fréttirnar um WorldCom
væru „yfirgengilegar“ og lofaði ítar-
legri rannsókn á málinu. Kvað hann
það skelfilegt hvernig farið væri með
hluthafa og starfsmenn og bætti við:
„Ég hef miklar áhyggjur af þeim
bókhaldsvenjum, sem eru stundaðar
hjá ýmsum bandarískum fyrirtækj-
um.“
Viðskipti með hlutabréf í World-
Com á Nasdaq voru stöðvuð í gær
þegar gengi þeirra var komið niður í
10 sent en hjá sumum verðbréfamiðl-
urum á Netinu var það skráð 1 sent.
Olíuverð féll nokkuð í gær vegna
áhyggna af efnahagslífinu í heimin-
um í kjölfar þessara tíðinda og efa-
semda um eftirspurn á næstu mán-
uðum.
Bandaríski fjarskiptarisinn WorldCom faldi 334 milljarða króna útgjöld
Órói á mörkuðum vegna
hugsanlegs gjaldþrots
New York. AP, AFP.
Gjaldþrot/24
YASSER Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, mun bjóða sig fram í for-
setakosningum sem Palestínumenn
hafa boðað í janúar, að því er náinn
ráðgjafi Arafats sagði í gær, þótt
George W. Bush Bandaríkjaforseti
hafi nýlega hvatt til þess að Palest-
ínumenn kysu sér nýjan leiðtoga.
Fastlega hafði verið gert ráð fyrir
að Arafat myndi bjóða sig fram en
yfirlýsingu ráðgjafans, Nabils
Shaaths, ráðherra í heimastjórninni,
var harðlega andmælt af öðrum
háttsettum, palestínskum embættis-
manni, Abed Rabbo, sem sagði yf-
irlýsinguna ótímabæra.
Skömmu áður hafði heimastjórn
Palestínumanna tilkynnt að forseta-
og þingkosningar yrðu haldnar um
miðjan janúar og einnig greint frá
áætlunum um endurskoðun á pal-
estínskum fjármála- og öryggis-
málastofnunum.
Shaath tjáði AP að öruggt væri
að Arafat myndi bjóða sig fram og
hefði leiðtoginn sagt það sjálfur. En
Abbo kvaðst ekki geta staðfest
þetta. „Þetta er fáránlegt, fáránlegt
– að tala um að synda án þess að
maður hafi sundlaug.“ Hann bætti
því við að áður en hægt væri að fara
að ræða um frambjóðendur yrði að
binda enda á hersetu Ísraela á
svæðum Palestínumanna á Vestur-
bakkanum.
Ísraelar efast
Talsmaður ísraelsku ríkisstjórn-
arinnar, Avi Pazner, sagði í gær að
stjórnin væri „full efasemda“ um
fyrirhugaðar umbætur Palestínu-
manna. „Við fögnum þessari yfirlýs-
ingu [Palestínumanna] fullir efa-
semda, vegna þess að svo lengi sem
Arafat hefur tögl og hagldir mun
hann gera allt sem hann getur til að
koma í veg fyrir raunverulegar um-
bætur,“ sagði Pazner.
Bush hótaði í gær að Bandaríkja-
menn kynnu að hætta aðstoð við
Palestínumenn ef þeir ekki gerðu
umfangsmiklar umbætur á stjórn-
og öryggismálakerfi sínu. Bandarík-
in veita ekki beina aðstoð til Palest-
ínumanna, en koma henni til þeirra í
gegnum Sameinuðu þjóðirnar og
sjálfstætt starfandi hjálparsamtök.
Palestínu-
menn
boða til
kosninga
Jeríkó, Jerúsalem, Kananaskis. AP, AFP.
Arafat talinn/26
ÍTALSKI tenórinn Luciano
Pavarotti hefur tilkynnt að
hann hyggist ljúka söngferli
sínum á 70. afmæli sínu. Pav-
arotti verður sjötugur 12.
október 2005 og hyggst því
syngja í nokkur ár til við-
bótar. Kom þetta fram í við-
tali Pavarottis við CNN sl.
þriðjudagskvöld.
Ekki er talið að söngvarinn
hafi áður rætt möguleg enda-
lok söngferils síns. Nokkuð
hefur hins vegar verið um
getgátur þess efnis í kjölfar
þess að Pavarotti hefur und-
anfarið tilkynnt forföll nokkr-
um sinnum og hætt við að
koma fram á síðustu stundu,
m.a. í Metropolitan-óperunni í
New York nú fyrir skemmstu.
Pavarotti virtist þó láta
væntanleg endalok söngferils-
ins sér í léttu rúmi liggja og
kvaðst m.a. ekki einu sinni
myndu syngja í sturtunni eft-
ir að sjötugsaldrinum yrði
náð.
Pavar-
otti boð-
ar þögn
KÍNVERSKIR lögreglumenn fylgja
hópi meintra fíkniefnasmyglara til
opinberrar dómsuppkvaðningar í
borginni Guiyang í gær, í tilefni af
því að gærdagurinn var dagur al-
þjóðlegs átaks gegn fíkniefnum.
Kínverjar tilkynntu í gær að þeir
hefðu líflátið að minnsta kosti 50
fíkniefnasmyglara undanfarna
viku, og voru sumir þeirra skotnir
um leið og dauðadómurinn hafði
verið kveðinn upp yfir þeim.
Reuters
Smyglarar líflátnir í Kína
BRASILÍSKI landsliðsmaðurinn
Ronaldo skaut í gær Brasilíu-
mönnum í úrslitaleikinn á HM með
glæsilegu marki gegn Tyrkjum í
Saitama í Japan. Mark Ronaldos,
sem hann skoraði á 49. mínútu, var
eina markið í leiknum.
Á sunnudag munu Brasilíumenn
mæta Þjóðverjum í úrslitaleik um
heimsmeistaratitilinn. Þá kemur í
ljós hvort Þjóðverjar jafna met
Brasilíumanna og verða heims-
meistarar í fjórða sinn eða hvort
Brasilíumenn snúa heim að heims-
meistaramótinu loknu með fimmta
titilinn í farteskinu.
Þessi tvö lönd hafa aldrei fyrr
mæst í leik í heimsmeistarakeppn-
inni, þótt hvort um sig hafi sjö sinn-
um komist í úrslitakeppnina. Þetta
verður í fimmta sinn í röð sem
landslið Evrópuríkis mætir liði rík-
is frá S-Ameríku í úrslitaleik HM.
Mikill fögnuður braust út í Bras-
ilíu er leiknum lauk, og var dansað
og sungið á götum úti. Forseti
landsins, Fernando Henrique Card-
oso, sem fylgst hafði með leiknum í
sjónvarpi, óskaði landsliðinu til
hamingju.
Reuters
Brasilía í úrslit
Við Völler/B1