Morgunblaðið - 27.06.2002, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
SUMARIÐ sýndi íbúum höfuð-
borgarsvæðisins sínar betri hliðar
á ný í gær og kunnu þeir vel að
meta það. Fjölmenni spókaði sig
um í bænum og á Austurvelli naut
fjöldi fólks veðurblíðunnar. Enn
aðrir heimsóttu sundlaugar borg-
arinnar og lét þetta unga par
þreytuna líða úr kroppnum í
Laugardalslaug.
Helgin nálgast óðfluga og marg-
ir hyggja eflaust á ferðalög. Um
helgina er spáð hægri vestlægri
eða breytilegri átt, skýjað verður
með köflum og dálítil súld, einkum
við ströndina. Hiti verður á bilinu
8 til 17 stig, hlýjast inn til landsins. Morgunblaðið/Jim Smart
Lúr í
Laugar-
dalslaug
STJÓRN SPRON telur yfirtökutil-
boð Búnaðarbankans ekki standast
lög og vill bíða úrskurðar Fjármála-
eftirlitsins um hvort það veiti sam-
þykki fyrir þessum viðskiptum.
Vegna þess hefur stjórnin afboðað
fyrirhugaðan fund stofnfjárfesta sem
vera átti á morgun. Stjórn SPRON
segir að ef niðurstaða fjármálaeftir-
litsins verði sú að þessi viðskipti fái
staðist muni hún engu að síður hvetja
stofnfjáreigendur til þess að hafna
tilboðinu enda muni stjórnin þá meta
málið í ljósi nýrra viðhorfa og leita
hagkvæmari kosta fyrir SPRON og
stofnfjáreigendur en Búnaðarbank-
inn býður.
Stofnfjáreigendurnir fimm sem
hafa milligöngu um tilboð Búnaðar-
bankans telja afboðun fundarins
ólöglega og andstæða lögum og sam-
þykktum sparisjóðsins. Ekki verður
vikið frá þeirri ákvörðun stjórnar
SPRON að afboða fund stofnfjáreig-
enda sem vera átti á morgun, að sögn
Guðmundar Haukssonar sparisjóðs-
stjóra. „Ummæli þeirra vegna afboð-
unarinnar kalla ekki á nein viðbrögð
og öfugt við það sem þeir halda fram
er fundurinn eingöngu felldur niður
vegna þess að lagaleg staða þessa
máls liggur ekki ljós fyrir.“
Guðmundur segir að menn bíði nú
eftir úrskurði Fjármálaeftirlitsins
en: „það er hins vegar ekki víst að
það verði lokapunkturinn vegna þess
að það geta komið miklar skýringar
eða skilyrði fyrir túlkun sem geta
þýtt að málið liggi ekki ljóst fyrir.“
Ætla að knýja fram fund
Að tilstuðlan fimmmenninganna
var byrjað að hringja í stofnfjáreig-
endur SPRON í gærkvöldi og segir
Pétur H. Blöndal inntakið í þeim sím-
tölum hafa verið að hvetja stofnfjár-
eigendur SPRON til að styðja sjón-
armið stofnfjáreigendanna fimm.
„Við leitum til stofnfjáreigenda um
að þeir styðji okkur í því að krefjast
fundar eins fljótt og auðið er.“ Þriðj-
ungur stofnfjáreigenda eða um 350
manns þarf að krefjast fundar og
frestur til fundarboðunar er að lág-
marki tíu dagar samkvæmt lögum, að
sögn Péturs.
„Ég hef heyrt af því að stjórn
SPRON telji sig geta fengið betra til-
boð en Búnaðarbankinn gerði. Við
hljótum að fagna því sem stofnfjár-
eigendur að það sé allt í einu hægt að
borga meira en fjórfalt fyrir féð
núna, þegar stjórnin taldi sér áður
ekki fært að borga meira en einfalt
verð með hlutabréfum sem óvíst er
um verðmæti á. Það má því segja að
stjórnin hafi fallist á að sú lausn sem
við fórum geti hugsanlega gefið
stofnfjáreigendum miklu meiri arð
og við erum afskaplega ánægðir með
það,“ segir Pétur.
Málið er nú til meðferðar hjá Fjár-
málaeftirlitinu og segir Páll Gunnar
Pálsson, forstjóri þess, að verið sé að
afla gagna og upplýsinga vegna þess,
en hann treysti sér ekki til að segja til
um hvenær niðurstaða liggur fyrir.
Yfirlýsingar gengu á víxl í gær.
Frá stofnfjáreigendunum fimm
komu þrjár yfirlýsingar, þar af ein
greinargerð. Starfsmenn SPRON
lýstu yfir stuðningi við stjórn
SPRON og áhyggjum af hag starfs-
manna og viðskiptavina SPRON ef
tilboðið næði fram að ganga. Stjórn
SPRON hvatti stofnfjáreigendur til
að halda að sér höndum í yfirlýsingu
þar sem fundurinn var einnig afboð-
aður.
Í greinargerð sem fimmmenning-
arnir sendu frá sér í gærkvöldi er
gerð grein fyrir tilboði Búnaðarbank-
ans og því sjónarmiði aðstandenda
tilboðsins að bankinn muni ekki eign-
ast SPRON fyrir tvo milljarða, held-
ur 5,7 milljarða ef af yrði.
Aðspurður um ummæli Jóns G.
Tómassonar stjórnarformanns
SPRON þess efnis að tilboðið feli að-
eins í sér tveggja milljarða greiðslu,
segir Árni Tómasson, bankastjóri
Búnaðarbankans, að það sé ekki rétt.
Bankinn greiði tvo milljarða í pen-
ingum auk 3,7 milljarða í útgefnu
hlutafé. „Ef ég kann eitthvað að
reikna gerir þetta meira en tvo millj-
arða því með því að gefa út nýtt
hlutafé erum við vitaskuld að ganga á
fé annarra hluthafa sem eru fyrir í
Búnaðarbankanum.“
Inntur eftir því hvernig kaupverð
sé fengið segir Árni að nær enginn
hagnaður hafi verið af rekstri
SPRON í fyrra og því ekki hægt að
nota V/H hlutfall. „Við tókum því
hlutfallið milli bókfærðs eigin fjár
fjármálafyrirtækja og markaðsverðs.
Hjá okkur var þetta hlutfall um 1,8
og við notum það hlutfall við að
reikna út verðið á SPRON.“
Deilt um lögmæti yfirtöku-
tilboðs og afboðunar fundar
Bitist um/32–33
Ekki tveir/46
SPRON segist munu leita hagkvæm-
ari kosta fyrir stofnfjáreigendur leyfi
lagaheimildir tilboð Búnaðarbankans
NÝJAR reglur um fisflug, sem
koma til framkvæmda um komandi
mánaðamót, auka mjög á öryggi
íþróttarinnar, að mati Ágústs Guð-
mundssonar, formanns Svifdreka-
félags Reykjavíkur. Samkvæmt
reglunum þarf próf til að fljúga
vélknúnum fisum og er eigendum
gert að tryggja farartæki sín. Þá
er leyfilegt að taka farþega, sem
hefur ekki verið til þessa.
Ágúst segir fis vera léttar flug-
vélar, ýmist með eða án vélar auk
þess sem til séu svifdrekar og svif-
hlífar, eins konar fallhlífar sem eru
t.d. notaðar til að fljúga fram af
fjöllum. Hámarksflugtaksþyngd
farartækisins er 450 kg samkvæmt
nýju reglunum. Ágúst segir að um
50 einstaklingar hér á landi stundi
íþróttina og þeim fari ört fjölgandi.
Hann segir búnaðinn geta kostað
allt frá 100 þúsundum til tveggja
milljóna. Viðurkennd fisfélög í um-
boði Flugmálastjórnar sjá um að
halda próf og kenna nemendum.
Ljósmynd/Kjartan P. Sigurðsson
Kampakátir fisflugmenn að loknu prófi, sem allir stóðust.
Nýjar reglur auka
öryggi í fisflugi
UNGT fólk virðist mun síður leyfa
reykingar á heimili sínu en eldra
fólk, að því er fram kemur í könnun
PricewaterhouseCoopers fyrir Tób-
aksvarnarnefnd. Þar kemur einnig
fram að á meira en helmingi ís-
lenskra heimila er bannað að reykja
og að næstum helmingur reykinga-
manna bannar að reykt sé á heim-
ilum sínum.
Heimili eru helst reyklaus hjá
fólki í aldurshópnum 20–39 ára þar
sem ekki er leyft að reykja á hátt í
70% heimila. Í hópnum frá 40–69 ára
er hlutfallið rétt um helming en hjá
fólki á aldrinum 70–79 ára minnkar
hlutfallið talsvert en þar er einungis
bannað að reykja á tæplega 40%
heimila. Reykingar eru leyfðar í
tæplega helmingi tilvika á heimilum
fólks á aldrinum 80–89 ára og sama
gildir um aldurshópinn 15–19 ára.
Bannað er að reykja á 56% ís-
lenskra heimila og hefur reyklausum
heimilum fjölgað jafnt og þétt síðast-
liðin ár, samkvæmt upplýsingum frá
Tóbaksvarnarnefnd. Hlutfall reyk-
lausra heimila er hæst þar sem börn
yngri en 12 ára eru, en þar er í 68%
tilvika bannað að reykja. Þar sem
unglingur er á heimilinu eða ein-
göngu fullorðnir er einnig meira en
helmingur heimila reyklaus. Athygli
vekur að 42% reykingamanna segja
að ekki sé leyft að reykja á heimilum
þeirra.
Í könnuninni var spurt: Er leyft að
reykja á þínu heimili? Könnunin var
gerð í byrjun mánaðarins og var úr-
takið 1.400 manns. Svarendahópur-
inn var fólk á aldrinum 15–89 ára á
öllu landinu og var svarhlutfall 63%.
Yngra fólk bannar frek-
ar reykingar á heimilinu
TEKJUTAP vegna skerðingar
hörpudisksafla við Breiðafjörð er
talið geta numið 400 milljónum
króna á næsta fiskveiðiári.
Vinnsla hörpudisks, sem veiddur
er við Breiðafjörð, fer að mestu fram
í Stykkishólmi en einnig á Grund-
arfirði. Bæjaryfirvöld í Stykkishólmi
vilja að útgerð og vinnslu verði bætt
tapið með auknum kvóta í öðrum
tegundum.
Með skerðingu aflans styttist
vinnslutímabilið úr 5-6 mánuðum í
3-4 mánuði. Ellert Kristinsson, út-
gerðarmaður hjá Sæfelli hf. í Stykk-
ishólmi, segist óttast að markaðs-
hlutdeild íslensks hörpudisks minnki
í kjölfarið.
Skerðing
bitnar á
veiðum og
vinnslu
400 milljóna króna/C1