Morgunblaðið - 27.06.2002, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 27.06.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ einhver mesta einstaka malbikun sem gerð hefur verið í Reykjavík frá upphafi, að sögn Sigurðar I. Skarphéðinssonar gatnamála- ÞESSIR ungu menn unnu að mal- bikunarframkvæmdum við Ártúns- höfða og Grafarholt í sólskinsveðr- inu í gær en á svæðinu stóð yfir stjóra. Hann segir verkið hafa gengið eftir áætlun og góða veðrið í gær hentað afar vel til fram- kvæmda en unnið var við verkið í samfellt 23 tíma. Búist var við að verkinu yrði lokið um fjögurleytið í nótt og því eiga ekki að verða taf- ir á umferð á svæðinu í dag. Morgunblaðið/Þorkell Malbikað í góða veðrinu YFIRLÆKNIR Vinnueftirlits ríkis- ins og landlæknir hafa sent Jóni Kristjánssyni heilbrigðisráðherra bréf þar sem þeir segja brýnt að hvíldartímaákvæði sem almennt gilda á vinnumarkaði nái einnig til unglækna og lækna í framhaldsnámi. Félag ungra lækna fundaði í gær með fulltrúum stjórnar Landspítala – há- skólasjúkrahúss fyrir milligöngu Læknafélags Íslands. Í bréfi yfirlæknis Vinnueftirlitsins og landlæknis segir að mikilvægt sé að hvíldartímaákvæðin nái einnig til unglækna, bæði vegna öryggishags- muna almennings og vinnuverndar. Því telja þeir brýnt að heilbrigðisráð- herra, samninganefnd ríkisins, stjórnir sjúkrastofnana, Læknafélag Íslands og Félag ungra lækna taki höndum saman um að leiða til lykta þá deilu sem nú er uppi vegna hvíld- artíma ungra lækna og lækna í fram- haldsnámi. „Er það krafa embætta okkar að við lausn þessarar deilu verði jafnt hugað að almennum vinnuverndar- sjónarmiðum sem og öryggishags- munum almennings,“ segja Kristinn Tómasson, yfirlæknir Vinnueftirlits- ins, og Sigurður Guðmundsson land- læknir í bréfinu. Þar segja þeir að ónóg hvíld vegna langs vinnudags auki líkur á slysum í vinnu og leik og spilli auk þess fjöl- skyldulífi starfskraftsins. „Líkur á mistökum aukast og þekkt eru ýmis dæmi um mistök lækna sem rekja má að öllu eða hluta til óhóflegs vinnu- tíma. Til lengdar eykur þreytan sem þessu fylgir ennfremur líkur á alvar- legum líkamlegum og andlegum sjúkdómum. Krafa okkar allra um „hágæðaheil- brigðisþjónustu“ tengist þeirri kröfu að við höfum aðgang að vel hæfu og menntuðu starfsfólki til að veita þessa þjónustu á öllum tímum sólar- hringsins. Hluti af því er að starfs- fólk, þ.m.t. unglæknar og læknar í framhaldsnámi, sé úthvílt þannig að hætta á mistökum vegna þreytu sé sem minnst,“ segir í bréfinu. Bréfið til skoðunar í ráðuneytinu Jón Kristjánsson heilbrigðisráð- herra segir að bréfið verði tekið til skoðunar í ráðuneytinu. Í framhaldi af fundi formanns Læknafélags Ís- lands, forsvarsmanna Landspítala – háskólasjúkrahúss og fulltrúa Félags ungra lækna í gær verði fundað með samninganefnd ríkisins um málið. Ráðherra vildi ekki tjá sig um málið meðan það er þar til umfjöllunar. „Við verðum auðvitað að finna heppilega lausn á þessu máli og for- svarsmenn spítalanna eru að fara yfir það í tengslum við þessa samninga og í tengslum við þau erindi sem hafa komið upp um þetta,“ segir ráðherra. „Við höfum auðvitað áhyggjur af þessu máli.“ Að sögn Odds Steinarssonar, for- manns Félags ungra lækna, höfðu fulltrúar stjórnar Landspítala – há- skólasjúkrahúss í raun lítið fram að færa á fundinum í gær, heldur vildu þeir heyra óskir unglækna og eru þeir nú að fara yfir málin. Unglæknar kynntu stjórn- endum Landspítala kröfur sínar Hann segir Félag ungra lækna í raun setja fram þrjár kröfur og hafa kynnt þær á fundinum. Oddur bendir á að ungir læknar óski eftir að fá EES-hvíldarákvæðin eins og aðrir aðilar að samningnum. Þeir telji ekki rétt að undanskilja unglækna, þar sem í raun hafi ekki verið gengið frá því lagalega að læknar í starfsnámi falli ekki undir þessi ákvæði. Í frum- varpi til laga um breytingu á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum eru læknar í starfs- námi undanþegnir umræddum hvíld- arákvæðum, en frumvarpið var ekki afgreitt á síðasta þingi. Oddur segir hins vegar óvíst hvort frumvarpið fari í gegn óbreytt í haust þar sem Félag ungra lækna hafi hvatt þingmenn til að reyna að koma í veg fyrir að þetta fari í gegn, auk þess sem heilbrigðisráðuneytið hafi ekki skilgreint hverjir séu læknar í starfs- námi og hverjir ekki og leggur hann áherslu á að deildarlæknar séu til dæmis læknar sem hafi öðlast fullgild lækningarleyfi. „Í öðru lagi virðist þess ekki gætt nógu vel í samningnum hver heildar- vinnutími í viku sé og óskuðum við eftir því að við hefðum einhverjar takmarkanir á því hversu mikið við ættum að vinna,“ segir hann. Oddur segir að Félag ungra lækna hafi lagt fram ósk til spítalanna að þeir reyndu að gera eitthvað til þess að snúa við þróun undanfarinna ára. „Þeir eru að fá færri og færri ung- lækna inn til sín. Ungir læknar virð- ast fara fyrr út í sérnám og menn leita annað á innlendum vinnumark- aði,“ bætir hann við og bendir á að spítalarnir hafi farið halloka út úr samkeppni um unga lækna. Að hans sögn ætlar Félag ungra lækna að óska eftir fundi með heilbrigðisráð- herra í framhaldi af áðurnefndu bréfi. Samtökin Lífsvog hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þau skora á stjórn Ríkisspítalanna að endurskoða vinnuálag á unglækna. Samtökin segja eðlilegra að reyndari starfs- menn ykju við sig vöktum ef þörf væri á. „Sjúklingar eiga rétt á því á hverjum tíma að faglegt skipulag sé hluti af fullkominni þjónustu og síst af öllu á það að skipta máli hvort veitt þjónusta er að vetri eða sumri. Ofálag á heilbrigðisstéttir eykur því hættu á mannlegum mistökum og á ekki að vera fyrir hendi á þessu sviði ef fag- legur metnaður ræður ferð,“ segir í tilkynningu Lífsvogar. Bréf landlæknis og yfirlæknis Vinnueftirlits ríkisins til heilbrigðisráðherra Telja brýnt að hvíldartíma- ákvæði nái til unglækna DeCODE hækkar um 11,29% GENGI hlutabréfa í deCODE Genet- ics hækkaði verulega á Nasdaq-hluta- bréfamarkaði í gær. Nam hækkunin 11,29% og við lokun markaða í gær var gengi bréfanna 4,6 dollarar. Verð á bréfum í deCODE fór niður í 3,72 dollara fyrr í mánuðinum en þrátt fyrir breytinguna nú er verðið mun lægra en í upphafi árs. Club Diablo sviptur áfengisleyfi BORGARRÁÐ hefur á grundvelli áfengislaga svipt handhafa áfengis- leyfis fyrir veitingastaðinn Club Diablo í Austurstræti tímabundið leyfi til áfengisveitinga dagana 28.– 30. júní næstkomandi. Samkvæmt upplýsingum frá skrif- stofu Reykjavíkurborgar veitti lög- reglustjórinn í Reykjavík handhafa áfengisleyfisins áminningu 18. apríl síðastliðinn vegna brota í rekstri og hefur hann ítrekað síðan verið áminntur af lögreglustjóra af sömu ástæðu. Með úrskurði 4. júní síðastliðinn komst lögreglustjórinn í Reykjavík að þeirri niðurstöðu að vegna ítrek- aðra brota leyfishafa væru skilyrði áfengislaga um tímabundna svipt- ingu áfengisleyfis fyrir hendi, en hin ítrekuðu brot varða meðal annars dvöl unglinga undir aldursmörkum á veitingastaðnum. Leyfishafa var tilkynnt um tilætl- unina og veittur frestur til 14. júní síðastliðinn til að koma að athuga- semdum, en engar bárust. Núgild- andi áfengisleyfi leyfishafa gildir til 1. nóvember næstkomandi. Loftbelgurinn á Blönduósi LOFTBELGSFARARNIR Thomas Seiz og Urs Mattle eru nú staddir á Blönduósi og er ætlunin að fljúgja loftbelgnum þaðan í dag ef veður leyfir. Í samtali við Morgunblaðið sagði Urs að flugið hefði gengið tiltölulega vel fram að þessu. Fyrsta flug þeirra var á laugardag og síðan hafa þeir tvívegis farið á loft. Í fyrrakvöld flugu þeir í nágrenni Borgarness og lentu í nokkrum erfiðleikum þar sem vindáttin breyttist í sífellu auk þess sem belgurinn rennblotnaði í regn- skúr. Þeir Thomas og Urs verða hér á landi út júlímánuð við loftbelgja- flug og myndatökur. Hægt er að lesa um ferðalagið á heimasíðu Inserto AG sem er í eigu Thomasar Seiz. Slóðin er: www.inserto.ch. Bíll valt á Krísu- víkurvegi BÍLVELTA varð á Krísuvíkurvegi sunnan í Selvogsheiði um hálfsjö- leytið í gærkvöldi. Bíllinn rann í lausamöl, lenti út af veginum og valt, að sögn lögreglu á Selfossi. Farþeg- ar sem voru þýsk feðgin á ferðalagi, slösuðust lítið en voru flutt til skoð- unar á Landspítalann í Fossvogi. Fólkið var í bílbeltum. Bíllinn er mikið skemmdur en um var að ræða nýjan bílaleigubíl sem hafði verið á götunni í fimm daga. Hann var fjarlægður með kranabíl. ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ STUTT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.