Morgunblaðið - 27.06.2002, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 27.06.2002, Blaðsíða 39
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2002 39 HVAÐ segir þú um að koma niður á Aust- urvöll fyrir hádegi og sjá forsetann leggja blómsveig að fótstalli Jóns Sigurðssonar, sagði konan við mig yf- ir morgunmatnum? Ég samþykkti á auga- bragði, sannleikurinn er sá að eftir þriggja ára námsdvöl erlendis er ég orðinn svipaður ættjarðarsinni og þeg- ar ég var unglingur að alast upp í Reykjavík fyrir og eftir lýðveldis- stofnunina 1944. Nú var það ekki að mér hefði verið í kot vísað þar sem ég bjó, fyrst í Danmörku og í Bandaríkjunum síð- asta árið. Mér leið ákaflega vel hjá báðum þjóðunum en einhvern veginn þá fór ég að meta Ísland betur. Ég hef alltaf vitað að það er gott að búa á Íslandi en með því að búa hjá þess- um þjóðum gat ég sannreynt þetta. Það sem greip mig einna mest þegar ég bjó erlendis var hvað mér fannst ég vera einstakur, ég var ekki þegn einhverrar milljónaþjóðar, heldur þegn fámennrar einstakrar þjóðar langt norður í dumbshafi, með mína eigin sögu, lýðræði og hefðir. Lífs- skilyrði eins og þau gerast best í heiminum í dag. Þar sem veðrið er síbreytilegt, stormur og logn, myrkrið er svart og sólin skín stund- um nánast allan sólarhringinn og allt þar á milli. Það er langt síðan ég hef verið á Austurvelli 17. júní, og við vorum tímanlega hjónin aldrei slíku vant þegar við erum að fara eitthvað út. Við fengum bílastæði hjá gamla VR- húsinu og gengum síðan þennan spöl út á Austurvöll. Á leiðinni mættum við fjölda af lögregluþjónum sem létu okkur alveg afskiptalaus. Ég saknaði þess að í gamla daga þekkti maður andlit flestra lögregluþjón- anna og suma með nafni en núna kannaðist ég ekki við neinn, þetta fylgir því að eldast. Við komumst al- veg að afgirta svæðinu sem ætlað var fyrir hina tignu gesti. Í fjarska heyrðum við að skrúðgangan var að nálgast og skátarnir fóru að mynda heiðurs- vörð. Það fyrsta sem ég rak augun í þegar ég var kominn í mitt stæði var Björn R. hljómlist- armaður sem sat á ein- um bekknum fyrir aft- an styttuna af Jóni Sigurðssyni. Hann á efalaust að spila einleik hugsaði ég, en seinna kom í ljós að hann var að bíða eftir lúðrasveit- inni sem var að koma með skrúð- gönguna. Hann hefur líklega þurft að spara sér sporin. Annars hefur Björn R. enst vel hugsaði ég og fimmtíu ára gamlar minningar komu upp í hugann. Björn R. spilaði nefni- lega fyrir dansi þegar ég var tán- ingur í Reykjavík, í samkomuhúsun- um allt í kringum Austurvöll, í Gúttó, Listamannaskálanum, Oddfellow, Sjálfstæðishúsinu og Borginni og mér hlýnaði um hjartaræturnar. Og enn batnaði það þegar Fóstbræður fóru að stilla sér upp og þar þekkti ég ótrúlega marga t.d. gamlan skóla- bróður, einnig starfsfélaga frá árun- um þegar ég var flugstjóri hjá Flug- leiðum, þarna var líka áfengisráðgjafi og þarna var Valdi- mar Örnólfsson sem ég hef þekkt síðan við vorum báðir á Kolviðarhóli fyrir hálfri öld. Góðar minningar streymdu fram og söngurinn var frá- bær og ættjarðarlögin hittu beint í æð. Heiðursgestirnir gengu nú til sæt- anna sinna, þar á meðal öll ríkis- stjórnin og forsetinn og biskupinn ásamt mökum. Nýkjörna borgar- stjórnin og sendimenn erlendra ríkja og flestir með maka með sér. Nú hafði safnast fjöldi af áhorfendum í kringum mig og ég veitti því eftir- tekt að fólk talaði hin ýmsu tungu- mál. Nú fóru að leita á mig slæmar minningar frá dvöl minni í New York en ég bjó þar 11. september í fyrra. Fylgdist með berum augum með hryðjuverkunum þegar tvíburaturn- arnir voru eyðilagðir og þúsundir saklausra manna myrtar. Komu nú upp í hugann óttinn, skelfingin og reiðin og sorgin, sem einkenndi lífið hjá New York-búum eftir þessa at- burði og gera enn. Hinar óskaplegu öryggisráðstafanir sem voru þar og á flugvöllunum. Einnig komu upp í hugann sjálfsmorðsárásir og mót- mæli víða um heim þar sem öfga- menn fórna lífinu til að vekja athygli á sínum málstað. Nú kom þessi hræðilega hugsun upp í kollinum á mér að ef ég hefði verið hryðjuverkamaður og væri í nöp við Íslendinga þá hefði ég með einni handsprengju getað myrt alla ríkisstjórn Íslands ásamt forseta og biskupi. Einnig alla stjórn höfuð- borgarinnar og alla sendimenn er- lendra ríkja á Íslandi. En eins og ég sagði fyrr í þessari grein gat ég labb- að algörlega óáreittur inn á Austur- völl og stóð í seilingarfjarlægð frá þessu tigna liði. Þessi nánd sem tíðk- ast á Íslandi er eitt af því sem mér finnst frábært á Íslandi. Samt sem áður finnst mér að hún þurfi endur- skoðunar við á Austurvelli 17. júní í ljósi þess ástands og hryðjuverka sem eru staðreynd í heiminum í dag. Það lyftist heldur á mér brúnin við að sjá þá ganga að styttu Jóns Sig- urðssonar, forsetann og forsætisráð- herrann, eftir allt sem á undan er gengið milli þeirra og Davíð gang- andi á eftir eftir Ólafi Ragnari. En Davíð er í miklu uppáhaldi hjá mér, því að hann vill, eins og ég, vera 100% Íslendingur frekar en ½ % Evrópubúi. Brúnin þyngdist aftur þegar dag- skráin hófst með því að formaður þjóðhátíðanefndarinnar hélt ræðu og notaði tækifærið til að skamma stjórnvöld fyrir að hafa reynt til hins ýtrasta að vernda öryggi forseta Kína meðan hann var í opinberri heimsókn hér á landi. Efalaust er þetta smekksatriði en mér fannst þetta hvorki staður né stund fyrir svona ræðu. Falun Gong er efalaust merkileg samtök en oft leynist mis- jafn sauður í mörgu fé. Einangrun landsins og einföld landamæravarsla er einn af kostum þess að búa á Ís- landi. Því skyldum við ekki nýta okk- ur hann og banna tilteknum fjöl- mennum mótmælaendahópum að koma til landsins, tímabundið, ef stjórnvöld telja það sér í hag til að vernda öryggi gesta okkar? Brúnin lyftist aftur þegar fjallkon- an kom, hún var glæsileg og kvæðið fallegt sem hún flutti með prýði. Því miður varð hún fyrir aðsúg þegar hún gekk til baka til Alþingishússins. Sannar það sem ég sagði áðan, um að endurskoða þarf öryggismálin þarna. Davíð flutti skemmtilega og fróð- lega ræðu og minntist meðal annars á 30. mars 1949 og enn streymdu minningarnar fram og urðu ljóslif- andi. Ég var þá í fyrsta bekk í Ingi- marsskólanum. Ég átti að vera í tíma en kennarinn gaf okkur frí og skund- að sjálfur niður á Austurvöll til að mótmæla, en ég og nokkrir aðrir fór- um á eftir honum. Ég kom mér fyrir uppi á skúrbyggingu sem var áföst við suðurgafl Landssímahússins og hafði stúkusæti til að fylgjast með atburðunum þarna og mér fannst ég finna táragasþefinn. Það var svo sem líka fjör í pólitíkinni í gamla daga. Þetta var sem sagt prýðilegur morgunn. Það voru ánægð hjón sem keyrðu austur Skúlagötuna og nutu útsýnisins til Esjunnar þennan 17. júní á leið sinni heim. Að loknum 17. júní Rúnar Guðbjartsson Þjóðhátíð Einangrun landsins og einföld landamæra- varsla, segir Rúnar Guðbjartsson, er einn af kostum þess að búa á Íslandi. Höfundur er fyrrverandi flugstjóri og starfar sem sálfræðingur. www. lyf ja . i s Ferðadagar Hættulaus aðferð til að stöðva kláða, bólgur og önnur óþægindi eftir flugnabit. Uppblásinn fótanuddpúði sem eykur blóðflæði í fótum. Má einnig nota sem bakstuðning. Talnalásar með hengju og stálkapli til að festa poka og lausa hluti við ferðatöskur. Leg Works M-Zap Scholl-taska Snyrtitaska Töskulásar Njóttu lífsins á ferðalaginu – komdu við hjá okkur áður en þú leggur af stað. Komdu og kíktu á úrvalið! Mýkjandi fótabað, rakagefandi krem, náttúrulegur pimpsteinn með bursta o.fl. Allt það nauðsynlegasta í einni tösku! Allt á góðu verði!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.