Morgunblaðið - 27.06.2002, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 27.06.2002, Blaðsíða 26
ERLENT 26 FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Skógræktarfélag Reykjavíkur verður með göngu um skóglendi í Heiðmörk í kvöld kl. 20.00. Samstarfsaðilar eru Skógræktarfélag Íslands og Búnaðarbankinn. Gengið verður frá Vígsluflöt um skógarstíga undir leiðsögn staðkunnugra (sjá kort við innkomuleiðir og á www.skograekt.is). Allir velkomnir SKÓGARGANGA Í HEIÐMÖRK Skógræktarfélag Reykjavíkur Mörkinni 6, 108 Reykjavík sími 564 1770 www.skograekt.is.                               !   "  # # $%& $'() GEORGE W. Bush Bandaríkja- forseti ákvað að taka upp harðari stefnu gagnvart Yasser Arafat, leið- toga Palestínumanna, eftir að bandarískir leyniþjónustumenn fundu gögn um að Arafat hefði greitt hryðjuverkamönnum í hinum her- skáu Al-Aqsa samtökum 20.000 doll- ara, nær 1,8 milljónir króna, í liðinni viku, að sögn bandaríska dagblaðs- ins The New York Times og fleiri fjölmiðla í gær. Forsetinn hvatti til þess í ræðu sinni á mánudag um frið- artilraunir í deilum Ísraela og Pal- estínumanna að hinir síðarnefndu kysu sér nýja forystu sem ekki væri „flækt í hryðjuverk“ og er ljóst að hann átti við Arafat. Arafat mun hafa samþykkt greiðslu til svonefndra Al-Aqsa písl- arvottasveita er lýstu á hendur sér sjálfsmorðsárás í Jerúsalem fyrir viku en þá féllu sjö manns, að sögn embættismanna sem dagblaðið vitn- ar í en þeir vilja ekki láta nafns sín getið. Al-Aqsa samtökin tengjast Fatah hreyfingu Arafats. The New York Times segir að skýrsla leyni- þjónustumannanna hafi einnig vald- ið því að Bush hafi frestað hug- myndum um að efnt yrði til alþjóðlegrar ráðstefnu um deilurnar í Miðausturlöndum í sumar og hann hafi auk þess frestað ferð Colins Powells utanríkisráðherra til átaka- svæðanna. Kanna þyrfti ástandið betur áður en slíkar áætlanir yrðu framkvæmanlegar. Skýrslan hafi valdið því að forsetinn hafi tekið af skarið og ákveðið að hætta að líta á Arafat sem viðræðuhæfan sam- starfsmann um frið á svæðinu. „Þetta var kornið sem fyllti mæl- inn,“ sagði háttsettur embætt- ismaður í Washington. Eining í stjórn Bush um stefnubreytinguna Eining var í ríkisstjórninni um þessa afstöðu eftir að skýrslan lá fyrir en áður hafði verið deilt um það í marga mánuði hvort Arafat skyldi beittur hörðu eða reynt að semja við hann. Powell var talinn helsti tals- maður síðari leiðarinnar en Dick Cheney varaforseti og Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra mæltu með hinni fyrri. Stjórn Bush hefur áður neitað að verða við kröf- um Ísraela um að beita sér gegn Arafat en Ísraelar hafa lengi fullyrt að hann stæði sjálfur á bak við sjálfsmorðsárásirnar og önnur hryðjuverk af hálfu herskárra hópa meðal Palestínumanna, þrátt fyrir ítrekaðar yfirlýsingar leiðtogans um að hann reyndi sitt besta til að hafa hemil á hermdarverkamönnum. Dagblaðið The Washington Post hafði eftir ónafngreindum embættis- manni í Washington að Arafat hefði innt greiðsluna til hryðjuverka- mannanna af hendi um sama leyti er Ariel Sharon, forsætisráðherra Ís- arels, heimsótti Bush 10. júní. Emb- ættismaðurinn sagði að í skýrslunni kæmi fram að Arafat hefði haldið áfram að leika tveim skjöldum og niðurstaða allra æðstu ráðamanna Bandaríkjanna hefði orðið að sam- þykkja orðalagið í ræðu Bush sem að vísu nafngreindi ekki beinlínis Arafat er hann hvatti til þess að skipt yrði um forystumenn. Leiðtogar arabaþjóðanna voru yf- irleitt jákvæðir er þeir fjölluðu um ræðu Bush og gerðu flestir lítið úr ummælunum Bush þar sem hann gagnrýndi Arafat en vitað er að margir þeirra hafa horn í síðu hans. Þeir tóku þó margir fram að það væri hlutverk Palestínumanna sjálfra að velja sér sé leiðtoga. The New York Times segir að arabaleið- togarnir hafi bak við tjöldin hvatt Bandaríkjamenn eindregið til að út- skýra sem fyrst hver næstu skref yrðu, meðal annars hvenær stjórn Bush hygðist fá Ísraela til að draga heri sína á brott frá hernumdu svæðunum. Einnig er ljóst að staða Bandaríkjamanna gagnvart Arafat fram að kosningunum sem Palest- ínuleiðtoginn hefur boðað í janúar verður flókin. Richard A. Boucher, talsmaður utanríkisráðuneytisins í Washington, var spurður hvort Pow- ell myndi yfirleitt hitta Arafat oftar. „Það er ekki kostur sem ég get útilokað núna. Sem stendur er þetta einfaldlega ekki uppi á borðinu,“ svaraði Boucher. Colin Powell var spurður í sjón- varpsviðtali í gær hvað yrði um stefnu forsetans gagnvart Arafat ef Palestínuleiðtoginn yrði endurkjör- inn í frjálsum og lýðræðislegum kosningum í janúar. „Við munum takast á við aðstæður eins og þær verða,“ svaraði hann. Hann sagði ennfremur í viðtali við Sawa- útvarpsstöðina sem Bandaríkja- menn reka í Miðausturlöndum, að ráðamenn þyrftu tíma til að útfæra stefnuna í smáatriðum. „Þetta eru erfið mál og ég held að það sé dálítið ósanngjarnt að ætlast til þess að við eða yfirleitt nokkur geti núna verið tilbúinn með nákvæmt vegakort sem sýni hvernig við komumst á leið- arenda,“ sagði ráðherrann. Talið er að hann muni fara til Miðaust- urlanda eins og stefnt hafði verið að en ferðin gæti frestast um nokkrar vikur. Powell útskýri málið betur Bush sagði í ræðu sinni að Banda- ríkjamenn styddu hugmyndina um sjálfstætt ríki Palestínumanna en skilyrðið væri að árásir hryðju- verkamanna á óbreytta borgara í Ísrael yrðu stöðvaðar og umbætur gerðar á Palestínustjórn. Hann sagði ennfremur að miða ætti landa- mæri ríkjanna tveggja við sam- þykktir Sameinuðu þjóðanna sem kveða á um að Ísraelar dragi heri sína burt frá svæðunum sem voru hernumin 1967 og einnig sagði Bush að Ísraelar yrðu að stöðva uppbygg- ingu landnámsbyggða gyðinga á svæðum Palestínumanna sem ljóst er að brjóta gegn alþjóðalögum. Ráðamenn í Ísrael hafa fagnað stefnu Bush. Að sögn breska blaðs- ins The Guardian hafði ísraelskur blaðamaður þó eftir Shimon Peres, utanríkisráðherra, að bandaríski forsetinn hefði gert afdrifarík mis- tök er hann gerði breytingar á Pal- estínustjórn að skilyrði fyrir því að Palestínuríki yrði að veruleika. Af- leiðingin gæti orðið „blóðbað“. Tals- maður Peres vísaði því síðar alger- lega á bug að ráðherrann hefði látið þessi ummæli falla. Arafat talinn hafa stutt hryðjuverk með fé Fullyrt að skýrsla leyniþjónustunnar um greiðsluna hafi ráðið úrslitum um ákvörðun Bush er hann hvatti til að Arafat viki Reuters Útför Mohumad Abu Marasah, 18 ára gamals Palestínumanns sem ísr- aelskir hermenn skutu til bana, var gerð á Gaza í vikunni. Liðsmaður Íslamska Jihad, sem staðið hefur fyrir mörgum sjálfsmorðsárásum gegn Ísraelum, er hér vopnaður AK-47-riffli við útförina. NEÐRI deild rússneska þingsins, Dúman, samþykkti í gær frumvarp sem leyfir sölu á ríkisjörðum til einka- aðila, í fyrsta sinn frá því í rússnesku byltingunni 1917, en útlendingum verður þó ekki leyft að festa kaup á jörðum. Frumvarpið var samþykkt með dágóðum meirihluta, en 258 lögðu því lið, 149 voru á móti og 5 sátu hjá. Fulltrúar Kommúnista- og Bændaflokksins eru andvígir frum- varpinu og vilja að ræktarjarðir verði áfram í eigu ríkisins. Stjórnarskrá Rússlands frá 1993 gefur svigrúm til einkaeignar á landi en hingað til hefur andstæðingum þess fyrirkomulags tekist að koll- varpa öllum ráðagerðum um löggjöf sem myndi gera einkaeign á ríkisjörð- um mögulega. Ríkisstjórn Pútíns hef- ur þegar fengið samþykkt á þingi lög sem staðfesta rétt til einkaeignar á landssvæði sem er undir mannvirkj- um. Þau lög ná þó næstum einungis til borga, en hin víðáttumiklu landbún- aðarsvæði Rússlands eru enn í hönd- um ríkisins og þar hafa litlar fjárfest- ingar átt sér stað eftir hrun Sovét- ríkjanna. Öfl innan rússneska þings- ins, sem eru hliðholl stjórn Pútíns, fögnuðu niðurstöðu atkvæðagreiðsl- unnar og sögðu að nýju lögin myndu færa hinum vanþróaða landbúnaðar- geira langþráð fjármagn. Mikill sigur fyrir Pútín Þó gætti vonbrigða meðal vissra fulltrúa af hægri væng stjórnmálanna með þær breytingar sem gerðar voru á frumvarpinu áður en það var sam- þykkt, en fulltrúarnir telja þær veikja áhrif nýju laganna. Þar má nefna breytingar sem gera valdamiklum mönnum kleift að viðhalda löngum jarðleigusamningum sem gerðir eru fyrir gildistöku laganna. Efri deild þingsins á eftir að greiða atkvæði um frumvarpið, en fastlega er gert ráð fyrir að það hljóti þar sam- þykki og mun Pútín þá undirrita nýju lögin. Samþykkt frumvarpsins á rúss- neska þinginu nú þykir mikill pólitísk- ur sigur fyrir Pútín, en hann átti frumkvæði að því og hefur beitt sér mikið fyrir framgangi þess. Sala ríkis- jarða til einkaaðila verði leyfð Moskvu. AFP Nýtt frumvarp samþykkt í Rússlandi TANSANÍSKIR embættismenn og hermenn fylgjast með því þegar lestarflökum eftir slysið, sem varð þar í landi á mánudag, var lyft með stóreflis krönum. Slysið á mánudag varð með þeim hætti að 22 vagna farþegalest með rúmlega 1.200 manns innanborðs missti vélarafl, rann niður bratta brekku og lenti í árekstri við flutningalest með þeim afleið- ingum að rúmlega 200 manns létu lífið og mörg hundruð manns slösuðust. Forseti Tansaníu, Benjamin Mkapa, skoðaði ummerki slyssins á þriðjudag og sagði að hann að orsakir þess yrðu rannsakaðar gaumgæfilega. Hrósaði forsetinn björgunarmönnum fyrir starf sitt og sagðist telja að miðað við hversu fátækt ríki Tansanía er hefði tekist að bjarga ótrúlega mörgum mannslífum eftir lest- arslysið. Í gær hafði lík 241 manns fund- ist í lestarflökunum og hafði tek- ist að bera kennsl á 166 þeirra. Reuters Unnið við björgunarstarf í lestarflökum í Tansaníu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.