Morgunblaðið - 27.06.2002, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2002 9
ÚTSALA - ÚTSALA
Dæmi um verð: Áður: Nú:
Bómullarpeysa 4.900 2.900
Jakkapeysa 4.900 2.900
Blúndubolur 3.800 2.400
Bodybolur 2.800 1.900
Dömuskyrta 3.200 1.900
Gallajakki 4.900 2.900
Túnika 3.900 2.400
Sítt pils 3.900 2.500
Dömubuxur 3.000 1.900
Kjóll 4.500 2.900
Rúskinnbuxur 7.600 4.600
Kápa pvc 6.600 3.900
Vesti m/belti 3.900 2.300
Dömuskyrta 3.300 1.900
Vatteraður jakki 4.600 2.900
...og margt margt fleira
40—70% afsláttur
Síðumúla 13, sími 568 2870,
108 Reykjavík.
Opið frá kl.10.00-18.00
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00.
Útsala
FYRIR
SUMARIÐ
Úrval af
sumarfatnaði
frá Gardeur
Kringlunni,
sími 588 1680,
v/Nesveg,
Seltjarnarnesi,
sími 561 1680.
iðunn
tískuverslun
Laugavegi 56, sími 552 2201
afsláttur
af drögtum næstu viku.
Mjög góð kaup.
kvenfataverslun
Skólavörðustíg 14.
Sími 551 2509.
20-40%
Útsalan
er hafin
Laugavegi 66,
sími 552 5980
UNDANFARIN ár
hefur verið verulegur
vöxtur í umsvifum ís-
lenskra kvikmynda-
fyrirtækja sem koma
að gerð leikinna
mynda og auglýs-
ingamynda fyrir er-
lend félög og horfir
mjög vel með verk-
efnastöðu nú. Atriði
úr kappakstursmynd á
vegum franska leik-
stjórans Luc Besson
verða væntanlega tek-
in hér á landi síðsum-
ars en skemmst er að
minnast þess að atriði
úr nýjustu James
Bond-myndinni voru tekin við Jök-
ulsárlón nú í vor.
Verkefnum vegna auglýsinga-
mynda hefur þó fjölgað mest en þar
er bílaauglýsingar fyrirferðar-
mestar. Erlendu fyrirtækin sækjast
einkum eftir hinu einstaka lands-
lagi Íslands og eins að taka upp
myndir í snjó eða á jöklum, hvort
sem er að sumri eða vetri.
Tvö fyrirtæki, Saga Film og
Pegasus, eru langstærst á þessu
sviði.
Talsmenn Saga Film segja að
stöðugur vöxtur hafi verið hjá fé-
laginu vegna erlendra verkefna,
einkum auglýsingamynda. Þeir
segja umsvifin hafa vaxið jafnt og
þétt síðastliðin fjögur ár og að Saga
Film hafi komið að mörgum erlend-
um verkefnum allt þetta ár; vel líti
út með framhaldið og félaginu ber-
ist nýjar fyrirspurnir nánast á
hverjum degi.
Þeir taka og fram að þetta sé
ekki lengur árstíðabundin vinna,
þ.e. bundin við sumarið, heldur
dreifist verkefnin nú á allt árið.
Margir framleiðendur sækist eftir
að taka upp í snjó, bæði á veturna
og sumrin, jöklarnir séu að vissu
leyti orðnir annað heimili sumra
starfsmanna Saga Film og þeir
orðnir sérfræðingar í slíkum tök-
um. Menn sækist fyrst og fremst
eftir hinu einstaka landslagi og
birtuskilyrðum sem hér er að finna
og eins skipti hitt miklu að Ísland sé
einn af fáum aðgengilegum stöðum
þar sem menn geti á tiltölulega
auðveldan hátt tekið upp í snjó all-
an ársins hring. Þá sé fagþekking
Íslendinga á þessu sviði einnig róm-
uð.
Koma ekki hingað til þess
að taka upp í stúdíói
Að sögn Snorra Þórissonar hjá
kvikmyndafyrirtækinu Pegasus
mun félagið væntanlega koma að
gerð tveggja leikinna
franskra kvikmynda síðla
sumars. Önnur er kapp-
akstursmynd á vegum
Luc Besson en hin er
hluti úr sjónvarps-
myndaröð.
Snorri segir að Luc
Besson hafi reynt að
koma hingað fyrir nokkr-
um árum: „Við skoðuðum
ákveðna möguleika þeg-
ar hann var að gera
myndina Fifth Element.
Við kíktum þá á nokkra
staði en það gekk ekki
upp þá. Ég veit aftur á
móti að Besson hefur eitt-
hvað ferðast hér sjálfur.“
Snorri segir að Pegasus sé einnig
að vinna að nokkrum erlendum
auglýsingamyndum, m.a. nokkuð
stóru verkefni fyrir fyrirtækið
Nexium. „Yfirleitt eru þessi er-
lendu fyrirtæki að sækjast eftir um-
hverfinu hér á landi við gerð aug-
lýsingamynda, sérstöðunni sem
íslensk náttúra hefur. Hér koma
menn ekki til þess að taka upp í
stúdíói, það segir sig sjálft.“
Aðspurður segir Snorri að það
hafi smám saman verið að færast í
vöxt að Pegasus hafi fengið verk-
efni vegna erlendra auglýsinga-
mynda og nóg sé að gera vegna
slíkra verkefna í sumar. „Þetta hef-
ur undið upp á sig og það hjálpar
auðvitað til að ríkið endurgreiðir
erlendum framleiðendum 12% af
kostnaði vegna gerðar bíómynda
hér á landi. Það ýtir svona heldur
undir að menn sjái sér fært að
koma hingað þótt það eitt og sér sé
ekki nóg.“
Sífellt fleiri erlend kvikmyndaverkefni
Atriði úr mynd Luc
Besson tekin hér á landi
Morgunblaðið/RAX
Við tökur á James Bond-myndinni á Jökulsárlóni í vor unnu
um 250 manns og kostnaðurinn var um 30 milljónir á dag.
SÉRA Örn
Bárður Jóns-
son var valinn
í embætti
prests í Nes-
prestakalli í
Reykjavík á
fundi val-
nefndar í vik-
unni.
Biskup Ís-
lands mun því
skipa hann í embættið til fimm
ára en nefndin var einróma í
niðurstöðu sinni. Um stöðuna
sótti einnig sr. Skírnir Garðars-
son.
Örn Bárður
valinn í Nes-
prestakalli
Örn Bárður
Jónsson
STÓRA THAILANDSFERÐ
Frábær ferð 16. okt. Lægsta verð.
Heimsklúbbur Ingólfs-PRÍMA