Morgunblaðið - 27.06.2002, Page 18
AKUREYRI
18 FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
www. .is
ÍBÚÐIR TIL SÖLU • ÍBÚÐIR TIL LEIGU • TÆKJALEIGA • ÚTBOÐ
KÍKTU
Á NETIÐ
HÚSNÆÐI TIL LEIGU
Á besta stað í miðbæ Akureyrar (ekki göngugötunni).
120 bílastæði.
Ódýr húsaleiga, laust 1. júlí.
Allar innréttingar og tæki fyrir matvöruverslun ásamt
sælgætisbar.
Upplýsingar í síma 42-3088 eftir kl. 18 á daginn.
GESTKVÆMT var á Akureyri í
gær en þá komu þrjú skemmti-
ferðaskip í heimsókn með samtals
um 3.000 farþega. Farþegarnir eru
flestir Þjóðverjar en einnig Bretar
og Bandaríkjamenn.
Skipin þrjú eru samtals um
70.000 brúttólestir og heita Black
Watch, Albatros og Delpin. Á
myndinni er Albatros á Pollinum en
það er ekki að sjá að þessi heim-
sókn raski ró veiðimannanna sem
voru að reyna fyrir sér á athafna-
svæði Siglingaklúbbsins Nökkva.
Alls verða komur skemmti-
ferðaskipa 36 í sumar og er gert
ráð fyrir að farþegar með þeim
verði um 20.000 talsins.
Morgunblaðið/Kristján
Gestkvæmt á Akureyri
FÉLAGSKONUR í Lionsklúbbnum
Ösp á Akureyri afhentu slysadeild
FSA myndarlega peningaupphæð
nýlega til kaupa á hjartarafsjár-
tæki.
Slíkt tæki er nauðsynlegt til að
fylgjast með lífsmörkum fólks sem
kemur á bráðamóttökuna mikið
slasað eða veikt og einnig í sjúkra-
flutningum.
Ari H. Ólafsson, yfirlæknir bækl-
unardeildar, sagði tækið afar hand-
hægt og að það kæmi sér afskap-
lega vel fyrir deildina.
Hann sagði að með tækinu væri
hægt að fylgjast með púls sjúklinga,
blóðþrýstingi, súrefnismettun og
hjartalínuriti svo eitthvað sé nefnt.
Auk þess væri handhægt að fara
með tækið í sjúkraflug.
Á myndinni eru lionskonur og
starfsfólk FSA við nýja tækið.
Morgunblaðið/Kristján
Lionskonur styðja
við slysadeildina
APÓTEKIÐ í Hagkaupum Akureyri
og vistheimilið Hornbrekka í Ólafs-
firði hafa gert með sér samning um
skömmtun og kaup á lyfjum fyrir
vistmenn stofnunarinnar. Apótekið
mun í samvinnu við Lyfju Kringl-
unni skammta allar töflur og hylki
fyrir vistmenn í poka sem merktir
eru hverjum einstaklingi og inntöku-
tíma. Þetta fyrirkomulag eykur
verulega öryggi við lyfjagjöf, auk
þess sem það mun spara tíma starfs-
fólks stofnunarinnar. Einnig á að
nást veruleg hagræðing í lagerhaldi
á lyfjum með þessum samningi þar
sem lyfin eru einungis keypt inn til
tveggja til fjögurra vikna í senn fyrir
hvern einstakling. Sé notkun hætt
situr Hornbrekka ekki uppi með
stóran lager af lyfinu. Eins sparast
fyrningar á lyfjum sem oft geta verið
verulegar.
Lyfja hf. er nýfarin að bjóða þessa
þjónustu í sínum apótekum fyrir ein-
staklinga og stofnanir og hefur hún
fengið mjög góðar viðtökur, að sögn
Þórbergs Egilssonar, lyfjafræðings
og markaðsstjóra Lyfju hf., en
Hornbrekka í Ólafsfirði er fyrsta
stofnunin á Norðurlandi sem gerir
samning um vélskömmtun lyfja fyrir
vistmenn sína.
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Rúnar Guðlaugsson og Þórbergur Egilsson skrifa undir samninginn.
Samningur
um kaup á
lyfjum
Ólafsfjörður
FÉLAGSMÁLRARÁÐ samþykkti
á fundi sínum í vikunni að hafna
öllum umsækjendum um starf
framkvæmdastjóra Öldrunarstofn-
unar Akureyrarbæjar. Alls bárust
18 umsóknir um stöðuna.
Umsóknarfrestur um stöðuna
rann út í byrjun júní en hann hafði
þá verið framlengdur frá 27. maí
þar sem mjög fáar umsóknir höfðu
borist þá og lítið var um fyrir-
spurnir. Jakob Björnsson, for-
maður félagsmálaráðs, sagði að
nokkrir umsækjenda hefðu verið
teknir í viðtal „en við fundum ekki
þann umsækjanda sem við vorum
að leita að og því var þessi leið far-
in,“ sagði Jakob og bætti við að
staðan yrði auglýst að nýju næsta
haust.
Framkvæmdastjóri Öldrunar-
stofnunar sér um rekstur hjúkr-
unar- og dvalarheimila hjá bænum
en velta þeirra er um 600 milljónir
króna á ári og stöðugildi um 135. Í
rekstri eru 180 hjúkrunar- og
dvalarrými á þrem mismunandi
stöðum á Akureyri.
Deildarstjóri búsetudeildar
Félagsmálaráð samþykkti hins
vegar að ráða Brit Bieltvedt, verk-
efnisstjóra á Akureyri, í starf
deildarstjóra búsetudeildar. Alls
sóttu 14 manns um stöðuna.
Starf framkvæmdastjóra Öldrunarstofnunar Akureyrar
Öllum umsækjendum hafnað
AKUREYRARBÆR leitar nú leiða
til þess að leysa þann vanda sem
sjúkir, aldraðir einstaklingar og að-
standendur þeirra standa frammi
fyrir með fjölgun hjúkrunarrýma í
bænum. Að sögn Jakobs Björnsson-
ar, formanns félagsmálaráðs, eru
ýmsir möguleikar til skoðunar, m.a.
viðbygging við Dvalarheimilið Hlíð
eða nýta ónotaða álmu á FSA.
Jakob sagði að Félagsstofnun
stúdenta við Háskólann á Akureyri
hefði einnig lýst yfir áhuga á að selja
Útstein, stúdentagarða við Skarðs-
hlíð, og að sú hugmynd hefði fæðst í
kjölfarið hvort hægt væri að breyta
því húsnæði í hjúkrunarheimili. „Allt
miðar þetta að því að leita leiða sem
eru hvað fljótvirkastar til að fjölga
hjúkrunarrýmum. En málið er í
vinnslu og það hefur engin ákvörðun
verið tekin enn.“ Í málefnasamningi
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks, sem mynda meirihluta í bæj-
arstjórn Akureyrar, kemur m.a.
fram að forgangsverkefni er að leysa
vanda þessa fólks. Bærinn mun
leggja fram starfskrafta og fjármuni
í samstarfi við ríkissjóð með það að
markmiði að í fyrstu verði bið eftir
hjúkrunarrými aldrei lengri en 90
dagar. Þar til því markmiði verði náð
þurfi að auka við heimahjúkrun og
heimaþjónustu bæjarins.
Unnið að
fjölgun
hjúkrunar-
rýmis
♦ ♦ ♦
SKÓGRÆKTARFÉLAG Eyfirð-
inga efnir til göngu- og skoðunar-
ferðar um skógarreitinn á Miðháls-
stöðum í Öxnadal í kvöld,
fimmtudagskvöld, 27. júní kl. 20.
Á Miðhálsstöðum hefur verið
stunduð skógrækt í hálfa öld og
margt fróðlegt er þar að sjá. Flestir
þekkja Miðhálsstaði sem berjaland
en nú verður sjónum beint að skóg-
inum og trjánum ásamt öðrum
gróðri og náttúru. Skógræktarmenn
munu með aðstoð góðra gesta leiða
gönguna og benda á það helsta sem
fyrir augu ber. Að göngu lokinni
mun Skógræktarfélagið bjóða upp á
hefðbundnar trakteringar; ketilkaffi
og með því. Áætlað er að dvalið verði
í skóginum í um tvær klukkustundir.
Miðhálsstaðir eru vestan í hálsin-
um milli Öxnadals og Hörgárdals og
einfaldasta leiðin þangað liggur yfir
Öxnadalsá á móts við Bægisá, um 20
mín. akstur frá Akureyri, þar sem
skógurinn blasir við af þjóðvegi 1.
Safnast verður saman rétt við hliðið
inn í reitinn. Fólki er bent á að vera
vel skóað og klætt með hliðsjón af
veðri. Áhugafólk um trjá- og skóg-
rækt er hvatt til að mæta og taka
með sér gesti.
Upplýsingar um Miðhálsstaði er
m.a. að finna á nýjum vef Skógrækt-
arfélagsins á slóðinni: www.est.is/
kjarni
Skógar-
ganga
í Öxnadal