Morgunblaðið - 27.06.2002, Qupperneq 24
AP
AUNG San Suu Kyi, stjórnarand-
stöðuleiðtogi í Burma, ávarpar
stuðningsmenn sína í Mandalay,
næststærstu borg landsins, þegar
hún kom þangað í gær, en hún er
nú í fyrstu ferð sinni um Burma
frá því að hún var látin laus úr
stofufangelsi 6. maí. Suu Kyi
hyggst dvelja í borginni í nokkra
daga til að ræða við stuðnings-
menn sína og endurskipuleggja
flokk sinn, Lýðræðisbandalagið.
Er þetta í fyrsta sinn sem herfor-
ingjastjórnin leyfir stjórnarand-
stöðuleiðtoganum að ferðast í
pólitískum tilgangi frá því að Suu
Kyi hóf baráttu sína fyrir lýðræði
fyrir um 14 árum.
Suu Kyi í sögulegri heimsókn
BANDARÍSKA stórfyrirtækið
WorldCom, sem er það næst-
stærsta í Bandaríkjunum í lang-
línufjarskiptum, hefur viðurkennt,
að útgjöld þess hafi verið vantalin
um 3,8 milljarða dollara eða um
rúma 334 milljarða íslenskra króna.
Þar með er horfinn allur uppgefinn
hagnaður fyrirtækisins frá því í
upphafi síðasta árs. Haft er eftir
heimildum, að bandaríska dóms-
málaráðuneytið hafi hafið saka-
málsrannsókn á fyrirtækinu.
Flest bendir til, að þetta mál sé
það mesta í viðskiptasögunni hvað
varðar tekjur eða uppgefinn hagn-
að og kemur eins og köld vatns-
gusa yfir bandarískt atvinnulíf þar
sem hvert hneykslið hefur rekið
annað.
John Sidgmore, nýskipaður aðal-
framkvæmdastjóri WorldCom,
sagði í fyrrakvöld, að æðstu stjórn-
endur fyrirtækisins væru orðlausir
yfir þessum tíðindum en stefna
þeirra væri að reka það í samræmi
við ströngustu siðareglur. Hafa
þeir nú þegar rekið aðalfjármála-
stjóra þess og tekið við afsögn ann-
ars.
Uppgangur á
fölskum forsendum?
Þessar upplýsingar um stöðuna
hjá WorldCom eru aðeins nýjasta
uppákoman í bandarísku viðskipta-
lífi. Er það nú farið að einkennast
af vantrú og tortryggni og margir
farnir að setja stórt spurningar-
merki við gífurlegan vöxt ýmissa
fyrirtækja á síðara helmingi síðasta
áratugar. Hneykslismálin eru
mörg, gjaldþrot Enrons, nýlegur
dómur yfir endurskoðunarfyrirtæk-
inu Arthur Andersen og ákærur á
aðalframkvæmdastjóra ImClone
Systems og Tyco International. Svo
virðist sem WorldCom muni slá
þessu öllu við og hugsanlega draga
úr tiltrú manna á bandarískum
fjármálamarkaði.
„Það kæmi mér á óvart ef þessar
nýju upplýsingar jafngilda ekki
gjaldþroti,“ sagði Rob Gensler, sér-
fræðingur hjá T. Rowe Price í
Baltimore. „Ég er raunar alveg
viss, að sá verður endirinn á.“
Útgjöld færð sem fjárfesting
Forsvarsmenn WorldCom segj-
ast geta haldið áfram daglegri
starfsemi en fyrirtækið á langlínu-
fyrirtækið MCI Group UUNet,
sem ræður stórum hluta „hrygg-
lengjunnar“ í Netinu, það er að
segja kerfinu, sem leyfir aðgang að
tölvupósti og vefsíðum um allan
heim. Talsmenn WorldCom segja,
að Scott Sullivan, aðalfjármálastjóri
fyrirtækisins, hafi verið rekinn og
David Myers, aðstoðarforstjóra
þess, sagt upp.
Samkvæmt síðustu upplýsingum
voru um 334 milljarðar ísl. kr. í
venjulegum útgjöldum ekki færðir
inn í afkomureikning fyrirtækisins,
heldur sem fjárfestingarútgjöld en
þau eru ekki gjaldfærð strax á móti
tekjum, heldur á löngum tíma. Áð-
ur hafði fyrirtækið gefið upp, að
hagnaður á síðasta ári hefði verið
132 milljarðar kr. og 11,44 millj-
arðar á fyrsta fjórðungi þessa árs.
Hefðu útgjöldin verið færð rétt
til bókar, hefði fjármagnsflæðið í
fyrirtækinu verið 6,3 milljörðum
dollara, 554 milljörðum kr., minna
á síðasta ári en uppgefið var og 123
milljörðum kr. minna á fyrsta árs-
fjórðungi nú. Hin eiginlega niður-
staða var því tap á síðasta ári og
Bandaríski fjarskiptarisinn WorldCom vantaldi útgjöldin um rúma 334 milljarða króna
Gjaldþrot myndi slá
Enron-hneykslinu við
Reuters
Bernard Ebbers, fyrrv. aðalframkvæmdastjóri WorldCom, þegar allt
virtist leika í lyndi. Hann var neyddur til að segja af sér í apríl og nú
blasir hugsanlega við eitt mesta gjaldþrot í bandarískri viðskiptasögu.
einnig á fyrstu mánuðum þessa árs.
Talið er, að skuldir WorldCom séu
rúmlega 2.800 milljarðar kr.
Bókhaldið var samþykkt af Arth-
ur Andersen, sem annaðist endur-
skoðun fyrir WorldCom fram í maí
sl. þegar KPMG LLP tók við. Hef-
ur WorldCom látið Andersen vita
af þessari nýju stöðu en í yfirlýs-
ingu frá Andersen segir, að unnið
hafi verið í samræmi við reglur
bandaríska fjármálaeftirlitsins en
aftur á móti sé ljóst, að Sullivan,
hinum brottrekna fjármálastjóra,
hafi tekist að villa um fyrir því
varðandi fyrrnefnd útgjöld.
John Sidgmore tók við sem aðal-
framkvæmdastjóri WorldCom í
apríl þegar fyrirrennari hans,
Bernard Ebbers, var í raun neydd-
ur til að segja af sér. Þegar upp-
gangur tæknifyrirtækjanna var
sem mestur beitti Ebbers sér fyrir
meira en 70 sameiningum eða upp-
kaupum á öðrum fyrirtækjum með
það fyrir augum að gera World-
Com að alþjóðlegum fjarskiptarisa
en það starfar nú í 65 löndum og
hefur 85.000 starfsmenn. Þegar
tæknibyltingarbólan fór að hjaðna
misstu fjárfestar hins vegar trú á,
að Ebbers tækist að grynnka á
skuldunum. Þegar Sidgmore tók
við hét hann að ráðast gegn skuld-
unum, selja óarðbærar einingar og
draga úr kostnaði, meðal annars
með því að segja upp 17.000 manns.
Lánaði Ebbers
36 milljarða kr.
Þegar Ebbers sagði af sér var
bandaríska fjármálaeftirlitið farið
að skoða bókhaldsvenjurnar hjá
WorldCom en upplýst hefur verið,
að Ebbers skuldi fyrirtækinu meira
en 408 milljónir dollara, um 36
milljarða kr. Var mikið af þeim lán-
um veitt til að bæta honum upp
pappírstapið, sem hann varð fyrir
er gengi hlutabréfa í fyrirtækinu
lækkaði.
Fyrir þremur árum skein stjarna
Ebbers skærast og þá tilkynnti
hann um það, sem kallað hefur ver-
ið heimskulegasta sameiningar-
áætlunin. Hann hugðist kaupa upp
Sprint Group fyrir 129 milljarða
dollara, meira en 11.000 milljarða
ísl. kr., með það fyrir augum að
spanna allt fjarskiptasviðið fyrir
fyrirtæki og einstaklinga. Lög um
hringamyndun komu í veg fyrir
þetta og nú fóru hlutabréf í tækni-
fyrirtækjum að lækka í verði. Tími
stöðugs vaxtar hjá WorldCom var
liðinn og ljóst, að fyrirtækið yrði
eingöngu að byggja á eigin starf-
semi í þeirri miklu samkeppni, sem
er á þessum markaði.
Þegar tilkynnt var, að ekkert
yrði af kaupunum á Sprint var
gengi hvers hlutabréfs í WorldCom
48 dollarar. Í gær var gengið komið
niður í 10 sent.
Hvert hneykslismálið á fætur öðru
farið að draga úr tiltrú á fjármála-
markaðinum í Bandaríkjunum
Los Angeles Times.
ERLENT
24 FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
EKKI verður drifið í því að
halda þjóðaratkvæðagreiðslu í
Bretlandi um hvort landið skuli
gerast aðili að myntbandalagi
Evrópu, þrátt fyrir að sterlings-
pundið hafi undanfarið fallið
gagnvart hinum sameiginlega,
evrópska gjaldmiðli, evrunni.
Þetta kom fram í máli Gordons
Browns, fjármálaráðherra Bret-
lands, í gær.
Brown tjáði Financial Times í
viðtali að fall pundsins fyrr í vik-
unni gagnvart evrunni hefði ekki
haft áhrif á umræðuna um aðild
Bretlands að myntbandalaginu.
„Þessar ákvarðanir verður að
taka með tilliti til framtíðar efna-
hagslífsins til lengri tíma, en ekki
á grundvelli skammtímahorfa,“
sagði Brown.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, hefur ekki farið í
launkofa með það, að hann óski
þess að Bretar gangi í hóp þeirra
12 Evrópuríkja sem tekið hafa
upp evruna. En stjórn Blairs hef-
ur ítrekað að ekki verði gengið
til þjóðaratkvæðagreiðslu um
málið fyrr en evran standist
fimm efnahagsskilyrði sem eiga
að tryggja að aðild að mynt-
bandalaginu myndi ekki hafa nei-
kvæð áhrif á atvinnumöguleika í
Bretlandi, fjárfestingar, fjár-
málaþjónustu og efnahagslífið í
heild.
Flestar skoðanakannanir
benda til þess, að meirihluti
Breta sé andvígur því að evran
verði gerð að gjaldmiðli landsins
og pundið lagt niður. Evrusinnar
segja aftur á móti, að þetta við-
horf gæti breyst ef Blair myndi
hefja skelegga baráttu fyrir
evruaðild Bretlands.
Ekki drifið í at-
kvæðagreiðslu
Ríkisstjórn Bretlands og evran
London. AFP.