Morgunblaðið - 27.06.2002, Qupperneq 52
52 FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
HINN 14. júní s.l. birtist bréf frá mér
í Morgunblaðinu sem bar yfirskrift-
ina „Nokkrar staðreyndir í Sólheima-
málinu“. Bréf
þetta virðist hafa
komið við æði
mörg kaun, ef
marka má allar
þær greinar sem
runnið hafa um
síður blaðsins síð-
an. Það er engu
líkara en að til sé
áróðursmaskína
sem hefur á sér
„on“ og „off“ takka sem hægt er að
gangsetja, þá virðist hún gubba út úr
sér ótrúlega hástemmdum og mærð-
arlegum lofgjörðum um stjórnarfor-
mann Sólheima.
Ég vil nú þakka Óla Tynes fyrir að
leiðrétta þann misskilning minn að
Pétur Sveinbjarnarson sé „heilagur
maður“ en ég er að verða þeirrar
skoðunar að Óli sé að misskilja eitt-
hvað sjálfur, því eftir málflutning
þeirra aðila sem hafa verið að skreyta
síður Morgunblaðsins síðan er ég
helst á því að þetta fólk trúi því að
Pétur sé töluvert heilagur.
Það væri gott ef hægt væri að kom-
ast hjá því að persónugera umræðuna
um þetta mál, en því miður er stað-
reyndin sú og það vita flestir sem
dvalið hafa á Sólheimum til lengri
tíma, að málið snýst að mestu leyti um
Pétur Sveinbjarnarson og þann mjög
svo innrætta misskilning margra, að
hagsmunir hans og hagsmunir fatl-
aðra íbúa Sólheima og þar með hug-
sjón Sesselju Sigmundsdóttur, séu
eitt og hið sama og hafa Sólheima-
samtökin áður gefið út yfirlýsingu
þess efnis að okkur þyki mjög miður
að nafn þeirrar sómakonu sé dregið
inn í þessar mjög svo ógeðfelldu um-
ræður.
Agnar Guðlaugsson, sem er svo
hógvær maður, að hann kýs að titla
sig „starfsmann á Sólheimum“ í bréfi
sínu til blaðsins hinn 21. júní sl. þótt
hann sé framkvæmdastjóri, fer mik-
inn í því að leiðrétta allan misskilning-
inn í bréfi mínu og verð ég að segja að
það hlýtur að vera afrek út af fyrir sig
að starfa í hálft þriðja ár á Sólheimum
og misskilja allt sem þar fer fram eins
og ég virðist hafa gert. En gæti ekki
skýringin verið fólgin í því, að fyrstu
mánuðina hefur maður aðra sýn á það
sem fram fer á Sólheimum en þegar
maður hefur unnið þar í lengri tíma
og Agnar hefur aðeins unnið á Sól-
heimum í rúmlega fjóra mánuði.
Vissulega eru fáir sem ná að safna
margra ára starfsreynslu á Sólheim-
um, enda hefur það komið fram að
starfsmannaveltan er ótrúlega mikil,
en mér sýnist á málflutningi Agnars
að hann muni örugglega eiga eftir að
starfa miklu lengur á Sólheimum,
þ.e.a.s. ef núverandi stjórn á að sitja
áfram. Að hún sitji enn er eitthvað
sem afar fáir skilja. Ég vona þó að
Agnar taki betur eftir því sem hann
þarf að læra í nýju starfi sem fram-
kvæmdastjóri en hann virðist hafa
gert er hann las bréf mitt, því þar er
hvergi minnst á Skálholtskirkju og
get því miður ekki upplýst hann um
fermetrafjölda hennar enda veit ég
ekkert um það. Hins vegar er mér
ljúft að upplýsa hann um, að það er
ekki rétt að fatlaðir íbúar Sólheima
hafi ekki kynnst Sólheimasamtökun-
um. Það er nú svo, að samtök þessi
eru ekkert „batterí“ heldur fólk. Til
að vera nákvæm, 48 manneskjur, sem
flestar eiga það sameiginlegt að hafa
starfað á Sólheimum um lengri eða
skemmri tíma og get ég fullvissað
Agnar um að heimilisfólk Sólheima
hefur þekkt okkur flest mun lengur
en þau hafa þekkt hann sjálfan.
Að endingu vil ég biðja það góða
fólk sem hefur verið að skrifa greinar
um málið að muna að á öllum málum
eru fleiri en ein og fleiri en tvær hliðar
og góð regla er að kynna sér þær sem
best áður en fólk fer að tjá sig op-
inberlega um svo viðkvæmt mál sem
Sólheimamálið er. Ég efast hins veg-
ar ekki um velvilja þeirra allra í garð
fatlaða fólksins og tek því einfaldlega
viljann fyrir verkið.
Aftur á móti á ég erfitt með að
skilja að einhver skuli trúa því, að
Ríkisendurskoðun og það fagfólk sem
þar vinnur eða félagsmálaráðherra,
Páll Pétursson, hafi annan tilgang en
velferð fatlaðra íbúa Sólheima í huga.
RUT GUNNARSDÓTTIR,
talsmaður Sólheimasamtakanna.
Sólheimar
Frá Rut Gunnarsdóttur:
Rut
Gunnarsdóttir
ÉG GET ekki orða bundist yfir skrif-
um háttvirtra velunnara Sólheima í
Morgunblaðið að undanförnu. Í þess-
um greinaskrifum er jafnaðarmerki
sett á milli Sesselju H. Sigmundsdótt-
ur stofnanda Sólheima og stjórnar-
formanns, Péturs Sveinbjarnarsonar.
Það er algjörlega fráleitt og er greini-
lega skrifað af mikilli fávisku um líf og
starf á Sólheimum í dag. Pétur Svein-
bjarnarson er ekki að vinna að sömu
hugsjónum og Sesselja H. Sigmunds-
dóttir gerði.
Vissulega er umgjörð staðarins
fögur sem má þakka stjórnarfor-
manninum, en um stjórnunina á
staðnum, hins vegar, má með sanni
segja að hún er umdeilanleg. Það hef-
ur greinilega komið fram í stjórn-
sýsluúttekt Ríkisendurskoðunar.
Það er líka sorglegt og næstum
hjákátlegt til þess að vita að talsmenn
Sólheima sem komið hafa fram í fjöl-
miðlum síðustu vikur, að undanskild-
um stjórnarformanninum, eru annað-
hvort gestir er hafa sótt staðinn heim
eða starfsfólk sem hefur ekki náð árs
starfsaldri á Sólheimum. Samt sem
áður telja þessir aðilar sig í stakk
búna til að gagnrýna skrif og ummæli
talsmanns Sólheima-samtakanna,
Ríkisendurskoðun fyrir úttekt sína og
gagnrýni Páls Péturssonar félags-
málaráðherra. Hvort sem um er að
ræða starfsmann, fyrrverandi starfs-
mann, stjórn eða aðstandanda vilja
allir sjá frið í kringum starfsemi Sól-
heima, á því er enginn undantekning.
Því þurfa að verða breytingar á stjórn
Sólheima.
GUÐRÚN HELGA
GUÐBJÖRNSDÓTTIR,
garðyrkjutæknifræðingur, búsett og
starfandi á Sólheimum frá 1993–1998.
Sólheimar
Frá Guðrúnu Helgu Guðbjörns-
dóttur: