Morgunblaðið - 28.06.2002, Blaðsíða 50
DAGBÓK
50 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í dag
fara út Vædderen, Thet-
is, Lagarfoss og Merm-
aid.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
gær komu Eridanus og
Radvila og út fóru
Obsha og Vityaz.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, kl 14 bingó.
Miðvikud. 3. júlí verður
farið í heimsókn að Sól-
heimum í Grímsnesi.
Lagt af stað frá Afla-
granda 40 kl. 13. Skrán-
ing í afgreiðslu og í síma
562-2571. Hagkaup,
Skeifunni. Farið frá
Aflagranda 40 kl. 10.
Skráning í afgreiðslu og
síma 562-2571.
Árskógar 4. Kl. 9-12 op-
in handavinnustofa, 13–
16.30 opin smíðastofan.
Kl. 13 bingó 2 og 4 hvern
föstudag. Púttvöllurinn
er opin kl. 10-16 alla
daga. Allar upplýsingar í
s. 535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
12.30 böðun, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13–16
frjálst að spila í sal.
Verslunarferð annan
hvern föstudag kl. 10–
11.30. Skoðunarferð um
Þingvöll fimmtudaginn
11. júlí. Lagt af stað frá
Bólstaðarhlíð kl. 13.
Kaffihlaðborð á Valhöll.
Vinsamlega greiðið ferð-
ina í síðasta lagi fyrir há-
degi þriðjudaginn 9. júlí.
Uppl. og skráning í síma
568 5052.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin,
kl. 9 opin handa-
vinnustofan.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10
hársnyrting, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13.
„Opið hús“ spilað á spil.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Sundleikfimin
hjá Lovísu í Sundlaug
Garðabæjar byrjar 25.
júní kl. 16.00 og verður á
þriðjud. og fimmtud í 3
vikur. Allir velkomnir.
Golfnámskeiðið hjá
Sturlu verður á þriðjud.
og miðvikud. kl. 13.00
næstu 3 vikur í GKG í
Vetrarmýrinni.
Fótaaðgerðarstofar
tímapantanir eftir sam-
komulagi s. 899 4223
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli ,
Flatahrauni 3. Brids og
frjáls spilamennska kl.
13.30. Pútt á Hrafn-
istuvelli kl. 14-16. Á
morgun, laugardag,
morgungangan kl. 10 frá
Hraunseli. Rúta frá
Firðinum kl. 9.50. Or-
lofsferð að Hrafnagili við
Eyjafjörð 19.-23. ágúst,
4 nætur. Skoðunarferðir
til Húsavíkur, Mývatns,
Dalvíkur, Ólafsfjarðar
og Siglufjarðar. Skrán-
ing og allar uppl. í
Hraunseli og í síma
555 0142.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan
opin alla virka daga frá
kl. 10.00 – 13.00. Kaffi –
blöðin og matur í hádegi.
Sunnudagur: Dansleikur
kl. 20.00 Caprí-tríó leik-
ur fyrir dansi.
Þórsmörk – Langidalur
4.júlí, Kaffihlaðborð á
Hvolsvelli. Leiðsögn
Þórunn Lárusdóttir.
Brottför frá Ásgarði
Glæisb kl. 9.00.Þeir sem
hafa pantað far þurfa að
sækja farmiðann ekki
síðar en á mánudag á
skrifstofu FEB
Hálendisferð 8.-14. júlí 7
dagar Ekið norður
Sprengisandsleið, fjöl-
margir áhugaverðir
staðir skoðaðir t.d.
Herðubreiðarlindir,
Askja, Mývatn ofl. ekið
suður um um Kjöl. Leið-
sögn Sigurður Krist-
insson.
Ferð í Galtalæk á úti-
tónleika 14. júlí 2002
með Álftagerð-
isbræðrum, Diddú. Örn
Árna og Karl Ágúst slá á
létta strengi. Lagt af
stað kl. 15.00 frá
Glæsibæ. Nánari upp-
lýsingar á skrifstofunni.
Dagsferð 15. júlí Flúðir-
Tungufellsdalur-
Gullfoss-Geysir-
Haukadalur-Laugavatn-
Þingvellir. Kaffihlað-
borð í Brattholti. Leið-
sögn Sigurður Krist-
insson Skráning hafin.
Silfurlínan er opin á
mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10.00
til 12.00 fh. í síma
588 2111.
Skrifstofa félagsins er
flutt að Faxafeni 12
sama símanúmer og áð-
ur. Félagsstarfið er
áfram í Ásgarði
Glæsibæ. Upplýsingar á
skrifstofu FEB.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa m.a.
myndlist og rósamálun á
tré, kl. 9–17 hárgreiðsla,
kl. 9.30 gönguhópur, kl.
14 brids.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 10 boccia, frá hádegi
spilasalur opinn. Veit-
ingar í Kaffi Berg. Lok-
að vegna sumarleyfa frá
mánudeginum 1. júlí.
Opnað aftur þriðjudag-
inn 13. ágúst. Allar upp-
lýsingar um starfsemina
á staðnum og í s.
575 7720.
Gjábakki. Lagt verður
af stað í ferð um Norð-
austurland kl. 8.15 frá
Gullsmára og kl. 8.30 frá
Gjábakka mánudaginn
1. júlí. Nú er fullbókað í
Vestfjarðarferðina 15.-
19. júlí. Þeir sem ekki
hafa greitt staðfesting-
argjald fyrir ferðina 3.
júlí fyrirgera rétti sínum
til þátttöku í ferðinni.
Uppl. í síma 554 3400.
Hraunbær 105. Kl. 9–12
baðþjónusta, kl. 9–17
hárgreiðsla og fótaað-
gerðir, kl. 9 handavinna,
bútasaumur. kl. 13-14
pútt.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun, postulín, kl. 12.30
postulín. Fótaaðgerð,
hársnyrting. Allir vel-
komnir.
Norðurbrún 1. Kl. 9–13
tréskurður, kl. 9–17 hár-
greiðsla. Allir velkomn-
ir.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15 handa-
vinna, kl. 10 kántrý
dans, kl. 11 stepp,kl.
14.30 kaffi og dansað við
lagaval Halldóru, góðar
kaffiveitingar. Allir vel-
komnir. Mánudaginn 1.
júlí kl. 13.30-14 verður
Landsbanki Íslands með
almenna bankaþjónustu.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan,
kl. 9.30 bókband og
morgunstund, kl. 13.30
bingó.
Háteigskirkja, eldri
borgarar. Vegna sum-
arleyfa fellur starf eldri
borgara niður í júlí-
mánuði. Púttvöllur verð-
ur í umsjá kirkjuvarða í
júlí frá kl. 9-17.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Brids kl. 13.15 í
dag.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13, kl. 10 á laugardögum.
Félag fráskilinna og
einstæðra. Fundur á
morgun kl. 21 í Konna-
koti, Hverfisgötu 105.
Nýir félagar velkomnir.
Munið gönguna mánud.
og fimmtud.
Húnvetningafélagið í
Reykjavík heldur hátíð-
legt 50 ára skógrækt-
arafmæli í Þórdísarlundi
í Vatnsdal, laugardaginn
29. júní kl. 14. Fjölbreytt
dagskrá í tali og tónum
og óvæntar uppákomur.
Veitingasala í hléi. Allir
velkomnir.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt Húsið býður
ungum foreldrum (ca. 16
- 25 ára) að mæta með
börnin sín á laugard.
kl.15–17 á Geysir, Kakó-
bar, Aðalstræti 2 (Geng-
ið inn Vesturgötu-
megin). Opið hús, kaffi á
könnunni, djús, leikföng
og dýnur fyrir börnin.
Minningarkort
Slysavarnarfélagið
Landsbjörg, Stangarhyl
1, 110 Reykjavík. S. 570
5900. Fax: 570 5901.
Netfang: slysavarna-
felagid@landsbjorg.is
Minningarkort Rauða
kross Íslands eru seld í
sölubúðum Kvenna-
deildar RRKÍ á sjúkra-
húsum og á skrifstofu
Reykjavíkurdeildar,
Fákafeni 11, s. 568-8188.
Minningarkort
Hvítabandsins fást í
Kirkjuhúsinu, Lauga-
vegi 31, s. 562-1581 og
hjá Kristínu Gísladóttur,
s. 551-7193 og Elínu
Snorradóttur, s. 561-
5622.
Minningarkort
Sjúkraliðafélags Ís-
lands eru send frá skrif-
stofunni, Grensásvegi
16, Reykjavík. Opið
virka daga kl. 9–17. S.
553-9494.
Í dag er föstudagur 28. júní, 179.
dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Sjá, ég sendi yður eins og sauði
meðal úlfa. Verið því kænir sem
höggormar og falslausir sem dúfur.
(Matt. 10,16.)
Víkverji skrifar...
BÁLREIÐUR múrari sendi Vík-verja skilaboð vegna skrifa um
störf iðnaðarmanna í þessum dálki
fyrir viku. Taldi hann greinilega veg-
ið að stétt iðnaðarmanna í heild með
umfjöllun um fjallháa reikninga. Lét
múrarinn þau orð falla að aldrei væri
skrifað um það þegar iðnaðarmenn
væru að tapa peningum vegna van-
goldinna reikninga, þegar viðskipta-
vinir segðust ætla að borga að verki
loknu en borguðu síðan seint eða
ekki, jafnvel svo að iðnaðarmaðurinn
þyrfti að eyða stórum hluta launanna
í að greiða lögfræðingum fyrir inn-
heimtuna. Lagði hann til að Víkverji
liti á tímagjald lögfræðinga. Múrar-
inn sagði að það væri sjálfsagt fínt að
vinna á Mogganum og fara heim
klukkan fimm, áhyggjulaus en þufa
ekki að vinna fram á kvöld við til-
boðsgerð eða að útbúa reikninga eins
og hans stétt þyrfti iðulega að gera.
Víkverji hefur fullan skilning á
raunum reiða múrarans við inn-
heimtu reikninga en það breytir þó
ekki þeirri afstöðu sem skýrt kom
fram fyrir viku að hann vill mikið á
sig leggja til að losna við að leita til
iðnaðarmanna. En því miður kemst
hann ekki alveg hjá því og þá hittir
hann stundum á sanngjarna menn en
stundum ekki. Það er fleira vinna en
múrverk og því miður er Víkverji
bundinn í báða skó og getur ekki þeg-
ið boð mannsins um að fylgjast með
störfum hans í eina viku eða svo.
x x x
ÞAR sem Víkverji býr hefur borg-in kynnt og tekið upp nýtt kerfi
við sorphreinsun. Virðist það einkum
felast í því að ruslatunnurnar eru að-
eins tæmdar þegar húseigendur
biðja um það með því að fletta upp
spjaldi sem fest er við tunnuna. Því
fylgdi sögunni að sorhirðugjald yrði
innheimt í samræmi við sorpmagn.
Kannski af rótgróinni vantrú á
hinu opinbera fékk Víkverji strax ill-
an bifur á nýja kerfinu og sá ekki til-
ganginn með breytingunni. Og telur
hann að reynslan renni stoðum undir
þá skoðun. Eins og áður ganga menn
milli ruslatunnanna í götunni en nú
taka þeir aðeins fram að gangstétt-
arbrún og losa þær tunnur sem íbú-
arnir hafa auðkennt þannig fyrir ein-
hvern ákveðinn tíma og dag og
virðast sleppa öðrum, jafnvel þótt
þær séu greinilega fullar af sorpi.
Það er að minnsta kosti reynslan á
heimili Víkverja. Ekki er nóg með að
þessi athöfn, að fletta upp tæming-
arspjaldinu geti gleymst, heldur get-
ur það fokið til baka, lent undir snjó
eða börn verið að fikta í því.
Vissulega má taka undir þá skoðun
að ástæðulaust sé að tæma hálftómar
ruslatunnur en þarna mætti fara
milliveginn, það er að segja að rusla-
karlanir tæmi þær tunnur sem hátt
er í jafnvel þótt gleymst hafi að biðja
um það.
Þá kallar kerfið á misnotkun, fólk
getur freistast til að nota ruslatunnur
nágrannanna eða annarra, væntan-
lega til að spara sér einhverja aura.
Það hefur gerst, þótt slík framkoma
sé auðvitað ákaflega lítilmannleg.
Ekki hefur Víkverji dagsins trú á
því að sorphirðugjaldið hans minnki
við þetta. Er það ekki reynsla fleiri
að slíkar breytingar séu oftast gerðar
til að seilast dýpra í vasa íbúanna?
En það kemur auðvitað ekki í ljós
fyrr en fyrsti reikningurinn berst.
Víkverji bíður spenntur. Svo vor-
kennir hann starfsfólkinu sem situr
inni í sumarhitunum við að leggja
saman hversu oft ruslatunnur okkar
íbúanna eru tæmdar og hvað hver og
einn á að borga.
ENDURSÝNING Sjón-
varpsins á hinni hugljúfu,
bráðskemmtilegu og fal-
legu mynd Þráins Bertels-
sonar, „Sigla himinfley“,
vekur enn með mér þá
spurningu, sem lét á sér
kræla er myndin var sýnd í
fyrra sinnið. Hvað hefur
orðið um hinn fjölhæfa leik-
ara Valdimar Örn Flygenr-
ing, sem fyllilega var búinn
að sanna hvað í honum býr?
Þó ég muni ekki telja upp
þá listviðburði, sem bæði
hafa sannað sig í kvikmynd
og leikritum hér áður fyrr.
Fyrir nú utan það, hve
sterklíkir karakterar þeir
eru sem leikarar Valdimar
Örn Flygenring og Ingvar
Sigurðsson, þá er eins og sá
fyrrnefndi hafi horfið af
fjölunum nema í einhverj-
um hlutverkum núna á
seinni tímum, þar sem
hinni fjölbreyttu skaphöfn
hans er þrýst niður í ein-
hver gráthlutverk, hann
gerður sviplaus á meðan
Ingvar Sigurðsson fær að
blómstra í ólíklegustu hlut-
verkum og með ærnum
sóma sem hann á fyllilega
skilið. Það flögrar sú spurn-
ing að leikhúsunnanda
hvort annar verði að víkja
er tveir sterkir keimlíkir
hæfileikamenn birtast á
sama tíma og erfitt verður
að velja á milli. Eins er með
að þegar Margrét Vil-
hjálmsdóttir kom fram á
sjónarsviðið þá hvarf Hall-
dóra Björnsdóttir út í loftin
blá, hin afburðagóða og
sterka leikkona, sem sann-
aði sig í „Kæra Jelena“ fyr-
ir jú mörgum árum, kemur
nú öðru hvoru fram í smá
hlutverkum. Ég veit að ald-
ursmunur ræður þar ríkj-
um, en samt? Í allri þeirri
umræðu sem á sér stað um
list af allri gerð er ríkir í
okkar litla þjóðfélagi væri
gaman ef einhver vildi
svara leikhúsunnanda á
faglegan hátt.
251031-3129.
Dýrahald
Brandur er týndur
BRANDUR er stór og loð-
inn, grábröndóttur, skógar-
köttur. Hann á heima í
Grundarási í Seláshverfi og
fór að heiman frá sér á
laugardagskvöldið. Brand-
ur er með drapplita hlé-
barðaól, merktur og með
bjöllu. Hann er ákaflega
forvitinn og gæti því hafa
álpast inn í útigeymslu eða
bílskúr og læst inni. Íbúar í
nágrenni við Grundarás
eru því hvattir til að kíkja í
geymslur og bílskúra og at-
huga hvort Brandur leynist
nokkuð þar. Þeir sem hafa
orðið varir við Brand und-
anfarna daga eru hvattir til
að hafa samband í síma
861 5679 hið fyrsta.
Simbi er týndur
SIMBI hvarf frá Löngu-
mýri í Garðabæ 24. júní.
Simbi er rauðgulur fress,
loðinn og með köflótta ól
sem á hangir merkispald.
Hans er sárt saknað og við
höfum miklar áhyggjur af
honum. Vinsamlegast
hringdu ef þú hefur séð
hann eða finnur hann. Allar
upplýsingar eru vel þegnar
í síma 565 6519 eða
847 6671.
Gulur páfagaukur
týndist
GULUR páfagaukur sem
stélið vantar á týndist frá
Krummahólum 4 í Breið-
holti þriðjudaginn 25. júní.
Fuglinn er frekar styggur.
Fuglsins er sárt saknað.
Þeir sem hafa orðið hans
varir hafi samband í síma
567 0822 eða 869 3902.
SOS – Keflavík
LOPPA, sem var gestkom-
andi að Heiðarhvammi 3 í
Keflavík stökk út um
glugga á 3. hæð aðfaranótt
27. júní. Loppa er svört
með hvítt á hálsi og hvítar
loppur, mikið loðið skott og
er hálf angórukisa. Hún er
ólarlaus og ómerkt. Líklegt
er að Loppa hafi slasast í
fallinu og gæti því verið í
felum í nágrenninu og er
fólk beðið að svipast um
eftir henni. Þeir sem hafa
orðið varir við Loppu eru
vinsamlega beðnir að hafa
samband í síma 421 4614 og
896 1714.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Leikhúsunn-
andi spyr
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 íþróttagreinar, 4 aga, 7
skóflar, 8 sáum, 9 kven-
dýr, 11 sterk, 13 lítill, 14
logið, 15 skeiðahníf, 17
huguð, 20 brodd, 22 rýr,
23 mannlaus, 24 dans, 25
stó.
LÓÐRÉTT:
1 gervitanngarður, 2
náum, 3 svertingja, 4 þýð-
anda, 5 þrætum, 6 sár, 10
afturhald, 12 dá, 13 eld-
stæði, 15 úrskurður, 16
förgum, 18 kaðall, 19 var-
kár, 20 grenja, 21 rudda.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 rytjulegt, 8 lýkur, 9 tafla, 10 nær, 11 skans, 13
augun, 15 hossa, 18 ágætt, 21 not, 22 stöng, 23 teigs, 24
rummungur.
Lóðrétt: 2 yrkja, 3 járns, 4 lötra, 5 göfug, 6 glás, 7 garn,
12 nes, 14 ugg, 15 hýsi, 16 skötu, 17 angum, 18 áttan, 19
æðinu, 20 Tass.