Morgunblaðið - 28.06.2002, Blaðsíða 1
149. TBL. 90. ÁRG. FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 28. JÚNÍ 2002
LEIÐTOGAR átta helstu iðnríkja
heims samþykktu í gær á öðrum og
síðara degi fundar síns í Kanada að-
gerðaáætlun um hjálp við Afríkuríki
gegn fyrirheitum þeirra um óspillta
stjórnarhætti og heilbrigða efna-
hagsstjórn. Einnig var ákveðið að
verja miklu fé til að aðstoða Rússa
við að eyða birgðum af kjarna- og
efnavopnum. Að öðru leyti settu
ástandið í Miðausturlöndum og efna-
hagsmálin almennt mikinn svip á
fundinn.
Samþykkt var að leggja Afríku-
ríkjunum til nærri 530 milljarða ísl.
kr. í nýjum framlögum en með því
skilyrði, að stjórnvöld í ríkjunum
ábyrgðust óspillta stjórnarhætti og
heilbrigða efnahagsstjórn. Eru ríkin
hvött til að ráðast gegn alnæmis-
vandanum og berjast gegn fátækt og
er heitið á móti auknum fjárfesting-
um og viðskiptum.
Brugðist við
hryðjuverkaógn
Aðstoðin við Rússa, 1.760 milljarð-
ar kr., verður innt af hendi á næstu
10 árum og ætla Bandaríkjamenn að
reiða af hendi helming fjárins en
Bretar, Frakkar, Ítalir, Japanir,
Kanadamenn og Þjóðverjar hinn
helminginn. Er tilgangurinn fyrst og
fremst sá að koma í veg fyrir, að
kjarna- og efnavopn eða hlutar úr
þeim komist í hendur hryðjuverka-
manna.
Bandaríkjamenn hafa lengi sóst
eftir samningi af þessu tagi og var
gengið frá honum á einkafundi
þeirra George W. Bush, forseta
Bandaríkjanna, og Vladímírs Pútíns,
forseta Rússlands. Samþykkt var
einnig, að hér eftir yrðu Rússar
formlegir þátttakendur í fundum
iðnríkjaleiðtoganna og verður fund-
urinn 2006 haldinn í Rússlandi.
Ágreiningur um Arafat
Ágreiningur Bush og evrópsku
leiðtoganna um framtíð Yassers
Arafats, leiðtoga Palestínumanna,
kom berlega í ljós á fundinum. Bush
vill, að honum verði ýtt til hliðar og
sagði í gær, að viðbrögð hinna leið-
toganna við hugmyndum sínum
hefðu verið jákvæð. Fyrir það væri
hann þakklátur. Embættismenn
Evrópusambandsins voru hins vegar
á allt öðru máli og sögðu, að afstaða
þess væri ekki, að Arafat ætti að
víkja. Tók Gerhard Schröder, kansl-
ari Þýskalands, af skarið um það og
það hefur Pútín, forseti Rússlands,
einnig gert.
Fundi leiðtoga átta helstu iðnríkjanna í Kananaskis í Kanada lokið
Samþykkt að auka veru-
lega aðstoð við Afríku
Reuters
G8-fundi leiðtoga átta helstu iðnríkja lauk í gær en hann var haldinn í Kananaskis, mjög afskekktum bæ í Al-
berta í Kanada. Þúsundir her- og lögreglumanna gættu samt öryggis leiðtoganna en mótmælendur urðu að
gera sér að góðu að koma saman í Calgary, í 100 km fjarlægð. Hér eru tveir þeirra með grímur af þeim Jean
Chretien, forsætisráðherra Kanada, og George W. Bush, forseta Bandaríkjanna.
Kananaskis. AP, AFP.
Miklu fé varið til
að eyða rúss-
neskum kjarna-
og efnavopnum
PAUL O’Neill, fjármálaráðherra
Bandaríkjanna, sagði í gær að sér
ofbyði nýjasta hneykslið í banda-
rísku viðskiptalífi, bókhaldssvik
fjarskiptarisans WorldCom, og
kvaðst vilja að forstjórar, sem
staðfestu rangar upplýsingar um
fjárhag fyrirtækja sinna, færu í
fangelsi.
„Ég tel að við ættum að lög-
sækja menn og beita til þess öllum
lagaúrræðum,“ sagði O’Neill. Hann
bætti við að þingið þyrfti að herða
ýmis lög til að gera yfirvöldum
kleift að frysta eignir fyrirtækja,
sem ákærð eru fyrir bókhaldssvik,
„til að koma í veg fyrir að pening-
arnir hverfi og fari til stjórnenda
og hluthafa“.
Bandarísk yfirvöld hafa lagt
fram ákæru á hendur WorldCom
fyrir bókhaldssvik og George W.
Bush Bandaríkjaforseti hefur for-
dæmt fjarskiptarisann fyrir að
leyna útgjöldum að andvirði 334
milljarða króna fyrir fjárfestum.
Hann sagði að hegðun stjórnenda
fyrirtækisins væri yfirgengileg.
Ákæra birt til að
hindra eyðingu skjala
„Það er óhugsandi að aðeins einn
maður hafi gert þetta,“ sagði
O’Neill, sem er fyrrverandi aðal-
framkvæmdastjóri álrisans Alcoa.
„Umfang þess sem gert var hjá
WorldCom er svo mikið að all-
margir hljóta að vera samsekir.
Bókhaldsaðferðin sem beitt var
dregur svo mikinn dilk á eftir sér
að mér ofbýður.“
Ráðherrann sagði að ákæran
hefði verið lögð fram til að koma í
veg fyrir að WorldCom eyddi
gögnum meðan verið væri að rann-
saka málið.
Verðfall varð á bandarískum
fjármálamörkuðum þegar hneyksl-
ið komst í hámæli í fyrradag en
gengi hlutabréfa hækkaði aftur síð-
ar um daginn. Óttast var að
hneykslismálið gæti orðið stærra í
sniðum en gjaldþrot orkufyrirtæk-
isins Enron og jafnvel tafið fyrir
auknum hagvexti í Bandaríkjunum.
Nýjustu hagtölur lofa þó góðu
því skýrt var frá því í gær að hag-
vöxturinn í Bandaríkjunum hefði
verið 6,1% á fyrsta fjórðungi árs-
ins. Hann var 1,7% á síðustu þrem-
ur mánuðum liðins árs.
Bandarískum ráðamönnum ofbýður WorldCom-hneykslið
Forstjórar fari í fang-
elsi fyrir bókhaldssvik
Washington. AP, AFP.
Hugmynd á munnþurrku/23
KÍNVERJAR „horfast í augu
við hörmungar, sem leitt geta
af sér skelfilegar þjáningar,
efnahagslega afturför og sam-
félagslega upplausn“. Þannig
er tekið til orða í skýrslu frá
Sameinuðu þjóðunum um út-
breiðslu alnæmis í landinu en í
henni segir, að kínversk
stjórnvöld verði að fara að líta
á faraldurinn sem alvarlegt
þjóðfélagsmein en ekki aðeins
sem afmarkað heilsufars-
vandamál.
Í skýrslunni segir, að verði
ekki ráðist gegn vandanum
strax á öllum sviðum, geti svo
farið, að fjöldi alnæmissmit-
aðra og -sjúkra verði sá mesti
í heimi innan fárra ára, að
minnsta kosti um 10 milljónir
manna 2010. Opinberlega er
gefið upp, að hann sé nú allt
að 1,5 milljónir, 500.000 fleiri
en fyrir tveimur árum, en lík-
legast er, að talan sé of lág.
Ónóg þekking
á smitleiðum
Baráttan gegn alnæmi í
Kína er nú aðeins á vegum
heilbrigðisráðuneytisins og
enginn einn maður, sem ber
ábyrgð á henni. Í skýrslunni
er hvatt til, að allir samfélags-
hópar og hvers kyns samtök
verði virkjuð í baráttunni og
fræðsla um sjúkdóminn og
smitleiðir stóraukin. Er ekki
vanþörf á því síðastnefnda því
að margir Kínverjar halda
helst, að moskítóflugur séu
smitberarnir.
Alnæm-
ið ógn-
ar Kína
Peking. AFP.
KÍNVERJAR hyggjast sýna
pandabjörnum, sem búa í dýra-
görðum, myndbönd af öðrum
pandabjörnum að hafa mök og er
þetta hluti af „kynfræðslu“ fyrir
dýrin. Þau eru helst til áhugalítil
um mökun og eru vonir bundnar
við að myndirnar hvetji þau til
dáða.
Karldýrum eru sýndar þessar
„klámmyndir“ kvölds og morgna
í Risapöndurannsóknarmiðstöð
Kína í Wolong í Sichuan-héraði,
að því er fréttastofan Xinhua
greindi frá.
Hefur þessi aðferð verið reynd
áður og er meðal þess sem gera á
til að reyna að fá dýrin til að
fjölga sér, en þau eru í mikilli út-
rýmingarhættu. Sagði í frétt
Xinhua að svona „kynfræðsla“
væri orðin viðtekin venja í upp-
eldi allra pandabjarna í rann-
sóknarmiðstöðinni.
Panda-
birnir fá
kynfræðslu
Peking. AFP.