Morgunblaðið - 28.06.2002, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002 45
Frá Bridgefélagi Akureyrar
Sumarbrids hjá Bridgefélagi
Akureyrar heldur áfram af góðum
krafti. Þriðjudaginn 18. júní mættu
12 pör eins og reyndar öll kvöldin
fram að því. Sú nýbreytni hefur verið
í sumar að pör geta skráð sig í verð-
launapott og borgað 500 kr. aukalega
í hann sem rennur svo til þess efsta
af þeim sem skrá sig í hann. Skráðu
sig fimm pör þetta kvöld.
Skor er í % og röð efstu para varð:
Stefán Stefánss. – Björn Þorlákss. 60,7
Páll Þórss. – Frímann Stefánss. 59,6
Hjalti Bergmann – Stefán Sveinbj. 57,4
Sigfús – Kári 53,7
Stefán og Björn urðu efstir þeirra
sem voru í verðlaunapottinum og
unnu hann því.
Hinn 25. júní var sett met í mæt-
ingu í sumar þegar 14 pör létu sjá sig
og var gaman að sjá þá góðu gesti
sem komu úr öðrum héruðum og
settu þeir aldeilis mark sitt á kvöldið.
Sex pör voru í verðlaunapotti.
Lokastaðan varð (í %):
Hilmar – Úlfar 63,8
Hermann Huijbens – Jón Sverriss. 60,9
Rúnar Einarsson – Guðm. Halddórss. 56,7
Páll Þórss. – Frímann Stefánss. 55,8
Hjalti Bergmann – Arnar Einarss 55,1
Hilmar og Úlfar voru með í verð-
launapottinum og sáu ekki eftir því.
Spilað er á þriðjudögum í sumar í
Hamri, félagsheimili Þórs, kl. 19.30.
Allir velkomnir og ekkert mál er að
mæta stakur.
Fréttir frá Sumarbrids
Mánudagskvöldið 24. júní mættu
20 pör til leiks og urðu þessi efst
(meðalskor 216):
NS
Hermann Friðriksson – Jón Hjaltason 270
Gísli Steingrímss. – Sigurður Steingr. 248
Heimir Tryggvason – Gísli Tryggvas. 234
Eyvindur Magn. – Sigurvin Ó. Jónss. 217
Vilhjálmur Sig. jr. – Baldur Bjartmarss. 212
AV
Þórður Sigfússon – María Haraldsd. 252
Guðm. Baldurss. – Hallgrímur Hallgr. 250
Haraldur Ingason – Guðrún Jóhannesd. 245
Sigrún Pétursd. – Alfreð Kristjánsson 231
Guðlaugur Sveinss. – Páll Þór Bergss. 221
Kvöldið eftir, þriðjudaginn 25.
júní, urðu þessi pör hlutskörpust
(meðalskor 216):
NS
Erla Sigurjónsdóttir – María Haraldsd. 242
Guðrún Jörgensen – Gróa Guðnadóttir 237
Arnar Þorsteinss. – Sigurður Þorgeirss. 230
Vilhjálmur Sig. jr. – Daníel Már Sig. 230
Lovísa Jóhannsd. – Erla Sigvaldadóttir 220
AV
Soffía Daníelsd. – Jörundur Þórðarson 247
Helgi Bogason – Guðjón Bragason 244
Alfreð Kristjánss. – Ragnar Örn Jónss. 239
Guðmundur Pálsson – Júlíus Snorrason 235
Þórður Björnss. – Guðlaugur Sveinss. 233
Verðlaunapottur
Sumarbrids
Allir sem vinna tvímennings-
keppni í Sumarbrids eiga möguleika
á fjölbreyttum vinningum úr sér-
stökum verðlaunapotti sem dregið er
úr á hverju föstudagskvöldi. Nú þeg-
ar hafa nöfn 20 spilara verið dregin
úr pottinum og mun þeim fjölga jafnt
og þétt í allt sumar.
Í Sumarbrids 2002 er spilað alla
virka daga kl. 19 í Síðumúla 37. Allir
eru velkomnir og keppnisstjóri að-
stoðar við að mynda pör, mæti spil-
arar stakir. Reynt er að taka vel á
móti byrjendum og óvönum spilur-
um. Á föstudagskvöldum er auk þess
boðið upp á stutta Monradsveita-
keppni að loknum tvímenningi. Nán-
ari upplýsingar fást hjá BSÍ (s.
587 9360) eða hjá Matthíasi (s.
860 1003).
Einnig má senda tölvupóst til
sumarbridge@bridge.is.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Reykjavík
Þann 20. júní sl. lauk árlegri stiga-
keppni í tvímenningskeppni sem
spiluð er á fimmtudögum á tíma-
bilinu frá áramótum til síðari hluta
júnímánaðar. Í ágúst hefst önnur
stigakeppni, sem stendur til ára-
móta. Keppnin er þannig uppbyggð
að spilarar með meðalskor eða betra
í umferð fá stig eftir ákveðnum
reglum. Yfirleitt hafa 70-80 spilarar
fengið stig í þessum keppnum. Verð-
laun eru veitt spilurum með 6 flestu
stigin að lokinni keppni. Keppnin fór
fram í Ásgarði Glæsibæ.
Þessir urðu verðlaunahafar eftir
síðasta stigamót:
Júlíus Guðmundsson 286
Oliver Kristófersson 277
Sæmundur Björnsson 250
Rafn Kristjánsson 249
Albert Þorsteinss. – Bragi Björnss. 224
Magnús Oddsson 223
S
U
N
D
F
Ö
T
undirfataverslun
Síðumúla 3-5
SKARTGRIPA-
VERSLUNIN Mariella
var nýlega opnuð á
Skólavörðustíg 12, milli
Blómaverkstæðis Binna
og Heilsuhússins. Eig-
endur eru Maria Lang-
enbacher, sérfræðingur í
skartgripum og perlum,
og Elín Guðbjartsdóttir
gullsmiður.
„Eftir áralanga vin-
áttu ákváðu þær að láta
draum sinn rætast og
opna verslun á Íslandi.
Eiginmaður Mariu,
Hans Langenbacher, er
einn af virtustu gullsmiðum í Sviss
og verður verslunin með hans hönn-
un og smíði á boðstólum. Einnig er
mikið úrval af perlum og steinum.
Hans vann hér á landi við gullsmíðar
á sínum yngri árum og síðan hafa
þau hjónin haldið góðum tengslum
við Ísland,“ segir í fréttatilkynningu.
Verslunin er opin frá klukkan 10–
18 virka daga.
Ný skartgripaverslun
Morgunblaðið/Þorkell
VEFUR Ungra jafnaðarmanna á Ís-
landi, Pólitík.is, hefur fengið nýjan
ritstjóra, Ómar R. Valdimarsson
fjölmiðlafræðing. Ómar tekur við af
Sif Sigmarsdóttur sem hefur starfað
sem ritstjóri vefritsins undanfarin
misseri.
Nýr ritstjóri
á Pólitík.is
FUNDUR til að halda upp á útkomu
nýs alþjóðlegs tímarits um marxísk
stjórnmál og fræðikenningu og
stofnun kommúnistabandalags verð-
ur haldinn á Hverfisgötu 21, sal
bókagerðarmanna, kl. 16.15 laugar-
daginn 29. júní. Að fundinum standa
skipulagsnefnd kommúnistabanda-
lags og ungir sósíalistar.
Fundur um marx-
ísk stjórnmál