Morgunblaðið - 28.06.2002, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 28.06.2002, Blaðsíða 15
Reykjavík, 28. júní 2002 Kæri stofnfjáreigandi. Boðun nýs stofnfjáreigendafundar í SPRON. Eins og fram kom í bréfi okkar til stofnfjáreigenda í SPRON þann 26. júní 2002 er það mat okkar að afboðun stjórnar SPRON á fundi stofnfjáreigenda sem vera átti þann 28. júní n.k. hafi verið ólögleg. Að gefnu tilefni viljum við upplýsa stofnfjáreigendur um tilefni og eðli þess fundar sem halda átti. Fundi stofnfjáreigenda var ætlað að taka á þremur dagskrárefnum, þ.e. að taka afstöðu til eftirfarandi tillagna: 1. Tillögu stjórnar SPRON um að breyta SPRON í hlutafélag. 2. Tillögu stofnfjáreigenda um að afnema hámarkseign sérhvers stofnfjáreiganda. 3. Tillögu stofnfjáreigenda um að stjórn SPRON muni ekki standa gegn framsali stofnfjárhluta í sparisjóðnum. Af þessu má ljóst vera að fundi stofnfjárfesta SPRON var hvorki ætlað að taka afstöðu til tilboðs okkar til ykkar né fjalla um aðkomu Búnaðarbankans. Fundinum var hins vegar ætlað að gera öllum stofnfjárfestum kleift að selja sín stofnfjárbréf á sanngjörnu og eðlilegu verði, hvort sem sá kaupandi kynni að vera Búnaðarbankinn eður ei. Alger forsenda fyrir því að stofnfjáreigendur geti selt stofnfé í sinni eigu með öðrum hætti en tillaga stjórnar SPRON gengur út á er að hafna tillögu stjórnar SPRON (tillaga 1) og samþykkja tillögur stofnfjáreiganda (tillögur 2 og 3) sem tilgreindar eru hér að ofan. Að öðrum kosti verður stofnfé SPRON að okkar mati illseljanlegt og í það minnsta til muna verðminna en framkomið tilboð. Með því að afboða fund stofnfjáreigenda SPRON þann 28. júní n.k. var stjórn SPRON ekki einvörðungu að koma í veg fyrir að löglega boðaður fundur yrði haldinn, heldur einnig að reyna að koma í veg fyrir að stofnfjáreigendur SPRON fái notið bestu kjara sem þeir eiga völ á og þar af leiðandi ekki að gæta hagsmuna stofnfjáreigenda. Þessu til viðbótar er tilvísun stjórnar SPRON um að nauðsynlegt sé að bíða niðurstöðu Fjármálaeftirlitsins, áður en hægt sé að halda fund stofnfjáreigenda SPRON, ekki rétt. Fyrir liggur að þær efnislegu tillögur sem lágu fyrir fundinum voru og eru fullkomlega löglegar, þó að stjórn SPRON kunni að halda að sala stofnfjár á síðari stigum að þeim fundi loknum kunni að brjóta gegn ákvæðum laga. Þar sem málum er svo háttað sem hér að ofan greinir þykir okkur nauðsynlegt, til að tryggja að stofnfjáreigendur eigi möguleika á að selja stofnfé sitt, að fara fram á aðstoð þína við að boða fund stofnfjáreigenda SPRON svo fljótt sem kostur er. Til þess að af því geti orðið þurfa stofnfjáreigendur a.m.k. 1/3 hluta stofnfjár að skrifa undir meðfylgjandi kröfu um boðun nýs fundar. Í henni eru tilgreind þau fundarefni sem taka verður fyrir og eru þau hin sömu og fyrirhugað var að taka fyrir á þeim fundi sem afboðaður var ólöglega. Kröfu um fundarboð í SPRON er rétt að koma til lögmanns okkar, Jóns Steinars Gunnlaugssonar hrl., Skólavörðustíg 6b, 101 Reykjavík. Virðingarfyllst, Sveinn Valfells Pétur H. Blöndal Ingimar Jóhannsson Gunnar A. Jóhannsson Gunnlaugur M. Sigmundsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.