Morgunblaðið - 28.06.2002, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 28.06.2002, Blaðsíða 22
ERLENT 22 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ BANDARÍKJAMENN eru margir hverjir æfir yfir úrskurði alrík- isdómstóls í San Francisco sem kvað á miðvikudag upp að holl- ustueiður sá, sem milljónir banda- rískra skólabarna fara með dag- lega, standist ekki stjórnarskrá landsins þar sem í honum sverji þau landi sínu hollustueið „við nafn Guðs“. Hollustueiðurinn er á þessa leið; „Ég lýsi yfir hollustu við fána Bandaríkjanna og lýðveldi það sem hann stendur fyrir, ein þjóð sem lýtur Guði, ósundruð, með frelsi og réttlæti öllum til handa.“ Þrír dómarar í alríkisdóm- stólnum sögðu orðin „ein þjóð sem lýtur Guði“ fela í sér stuðning stjórnvalda við eingyðistrú og slíkt samræmdist ekki stjórnarskrá Bandaríkjanna. Hollustueiðurinn er 110 ára gamall, en orðunum „við nafn Guðs“ var bætt inn í hann með lagabreytingu árið 1954, í forsetatíð Dwights D. Eisenhowers. Bush segir úrskurðinn „fáránlegan“ Úrskurður alríkisdómstólsins í San Francisco hefur vakið harkaleg viðbrögð í Bandaríkjunum. George W. Bush, Bandaríkjaforseti, sem er mjög trúaður og nefnir nafn Guðs næstum alltaf í ræðum sínum, sagði úrskurðinn „fáránlegan“ og sagðist hann myndu leita leiða til að fá hon- um hnekkt. Talsmaður Bush, Ari Fleischer, sagði að það væri skoðun forsetans að þessi ákvörðun væri röng og bandaríska dómsmálaráðu- neytið væri nú að skoða hvernig mætti ná fram leiðréttingu á þessu. Fulltrúar beggja stóru flokkanna í Bandaríkjunum brugðust ókvæða við úrskurðinum, en trú og föð- urlandsást hefur aukist mjög í landinu eftir hryðjuverkin 11. sept- ember á síðasta ári. Fyrrverandi varaforsetaefni demókrata, Joseph Lieberman, sagði úrskurðinn „fá- ránlega ákvörðun sem geri lítið úr styrk og samstöðu meðal Banda- ríkjamanna á viðsjárverðum tím- um“. „Alríkisdómstólnum í Kali- forníu hefur greinilega orðið á í messunni. Auðvitað erum við ein þjóð sem lýtur Guði,“ sagði Dennis Hastert forseti fulltrúadeild- arinnar. Bandaríska öldungadeildin samþykkti með hraði, með öllum greiddum atkvæðum að fela lög- fræðingi sínum að áfrýja dómnum. Úrskurðinum verður líklega breytt Úrskurður alríkisdómstólsins var gerður eftir að trúlaus Kali- forníubúi, sem ekki var sáttur við að dóttir hans þyrfti að fara með hollustueiðinn daglega í skólanum, hafði áfrýjað máli sínu til dómstóls- ins. Segir maðurinn að eftir dóminn hafi hann fengið margar hótanir í gegnum síma. Afar líklegt er að úrskurðinum verði hnekkt af hæstarétti Banda- ríkjanna, eða að hann verði ógiltur af öllum dómurum 9. umdæm- isáfrýjunarréttar í Bandaríkjunum, en dómstóllinn er þekktur fyrir frjálslyndi og hefur ákvörðunum hans oft verið snúið. Skilin milli rík- is og kirkju hafa löngum þótt óljós í Bandaríkjunum og verið þar við- kvæmt deilumál. Hafa tillögur um að banna bænir í skólum oft valdið miklu uppnámi en nafn Guðs kemur víðar fyrir en þar. Í bandarískum lögum er kveðið á um að á pen- ingaseðlum og mynt skuli standa „Við treystum Guði“, hæstiréttur Bandaríkjanna hefur setu sína með því að ákalla Guð og allir ríkis- stjórnarfundir og fundir löggjaf- arþings Bandaríkjanna hefjast á bæn. Úrskurður alríkisdómstóls í San Francisco Reuters Bush fer með hollustueiðinn ásamt skólabörnum í Houston. Hollustueiðurinn sam- ræmist ekki stjórnarskrá San Francisco. AP, AFP ’ Ég lýsi yfir holl-ustu við fána Bandaríkjanna og lýðveldi það sem hann stendur fyrir, ein þjóð sem lýtur Guði, ósundruð, með frelsi og rétt- læti öllum til handa ‘ NÁINN ráðgjafi Yassers Arafats Palestínuleiðtoga vísaði í gær á bug frétt The New York Times þess efn- is, að Arafat tengdist sjálfsmorðs- sprengjutilræðum í Ísrael undanfar- ið. „Það er ekkert hæft í því sem segir í fréttinni sem New York Tim- es birti varðandi fjármögnun Arafats forseta á [sprengjutilræðum] í Ísr- ael,“ sagði ráðgjafinn, Nabil Abu Rudeina, í samtali við AFP. „Bandaríkjamenn, og einkum George W. Bush forseti, ættu ekki að gleypa við þessari frásögn Ísraela og ættu ekki að fást um upplýsingar sem eru ekkert nema lygi,“ sagði Abu Rudeina. The New York Times greindi frá því á miðvikudaginn að hert afstaða Bush til Arafats hefði komið í kjölfar upplýsinga frá leyni- þjónustunni um tengsl Arafats við sjálfsmorðstilræði í Ísrael nýlega. Samkvæmt upplýsingum leyni- þjónustunnar hafði Arafat heimilað tæplega tveggja milljóna króna greiðslu til Al Aqsa samtakanna, sem lýstu sig ábyrg fyrir sjálfsmorðs- sprengjutilræði er varð sjö manns að bana í Jerúsalem í síðustu viku. The Washington Post kvaðst síðar hafa fengið þetta staðfest hjá háttsettum, bandarískum embættismanni. Aðrir fara varlegar í sakirnar Bush sagði í ræðu sem hann hélt á mánudaginn að kjör nýs leiðtoga Palestínumanna væri skilyrði fyrir því að hægt yrði að koma á friði fyrir botni Miðjarðarhafs. Voru orð Bush túlkuð sem svo, að hann vildi að Ara- fat yrði settur af sem leiðtogi. Á fundi sjö helstu iðnríkja heims, auk Rússlands, G-8, sem lauk í Kanada í gær, ítrekaði Bush afstöðu sína og sagði að ef Palestínumenn gerðu ekki umbætur á stjórn- og öryggis- málakerfi sínu myndu Bandaríkja- menn hætta að veita þeim stuðning. Aðrir vestrænir leiðtogar á G-8- fundinum fóru vægar í sakirnar og sögðu að Palestínumenn yrðu sjálfir að ákveða hver leiðtogi þeirra yrði. Sagði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, að ekki kæmi til greina „að við segjum fólki hvern það eigi að kjósa eða kjósa ekki – það verður fólk sjálft að ákveða. En við getum talað um hvaða afleiðingar það muni hafa ef kosið er fólk sem ekki tekur þátt í samningaviðræðum af einurð“. Bush sagði í gær, að „flestir Evr- ópuleiðtogar“ væru sammála sér um nauðsyn umfangsmikilla umbóta í stjórn- og öryggismálum „hjá Pal- estínumönnum“. Bush fullyrti enn- fremur að Evrópuleiðtogarnir væru „mjög jákvæðir“ á nýjustu friðar- áætlanir Bush, er gera ráð fyrir að stofnun sjálfstæðs Palestínuríkis verði háð því skilyrði að Arafat fari frá. Virtist sem Bush hefði fengið Evrópuleiðtogana til að sættast á þá málamiðlun, að Palestínumenn væru varaðir við því að endurkjör Arafats myndi hafa alvarlegar afleiðingar, s.s. að friðarumleitanir yrðu að engu. Palestínumenn neita því að Arafat beri fé á hryðjuverkamenn Fregnir um aðild Arafats sagðar lygi Gazasvæðinu, Kananaskis, Calgary. AFP, Los Angeles Times. HÓPUR vísindamanna lauk í gær í Genf þriggja daga ráðstefnu um hugsanlegar afleiðingar þess að mik- ið magn akrílamíðs, sem er krabba- meinsvaldandi efni, hefur fundist í algengum matvælum svo sem frönskum kartöflum. Hópurinn sagði í niðurstöðum sín- um að fregnir þessar væru mikið áhyggjuefni. Á hinn bóginn væri ekki tímabært að birta ráðleggingar til neytenda í þessu viðfangi því frek- ari rannsókna væri þörf. Alls tóku 25 vísindamenn þátt í ráðstefnunni, sem Alþjóðaheilbrigð- isstofnunin, WHO, boðaði til í flýti vegna upplýsinga um akrílamíð í al- gengum matvælum, sem sænskir rannsakendur birtu í aprílmánuði. Hópurinn fór yfir þau gögn, sem fyr- ir liggja í málinu. Akrílamíð í matvælum Þörf á frekari rann- sóknum Genf. AFP. UM það bil annar hver kjósandi í Noregi vill að hinn hægrisinnaði Framfaraflokkur Carls I. Hagens fái aðild að ríkisstjórn, ef marka má skoðanakönnun sem gerð var fyrir Dagsavisen. Þrátt fyrir þetta segir Lars Sponheim, leiðtogi stjórnarflokks- ins Venstre, að ekki komi til mála að flokkur Hagens verði tekinn inní stjórnina, að sögn Aftenposten. Sponheim segir að lífsskoðanir Hagens og liðsmanna hans séu allt aðrar en Venstre-manna. „Framfaraflokkurinn er í augum almennings orðinn eins og hver annar stjórnmálaflokkur, flokkur sem vill samvinnu við aðra flokka,“ segir Sponheim og kennir mis- heppnuðum áróðri Sósíalíska vinstriflokksins um að ímynd Hag- ens og manna hans hafi breyst með þessum hætti. Framfaraflokkurinn hefur beitt sér gegn innflutningi fólks frá fá- tækum löndum og var lengi ein- angraður og jafnvel hunsaður af öðrum flokkum en hefur á und- anförnum árum sótt í sig veðrið og stundum mælst næststærstur í skoðanakönnunum í Noregi. Sponheim útilokar samt ekki að hægt verði að ná samkomulagi við Framfaraflokkinn um gerð fjárlaga en mörg ljón séu þó á veginum. Venstre er í stjórn með Hægri- flokknum og Kristilega þjóðar- flokknum en leiðtogi hins síðast- nefnda, Kjell Magne Bondevik, er forsætisráðherra samsteypustjórn- ar hægri- og miðflokkanna. Framfaraflokkurinn vill að hluti fjárins í sjóði sem myndaður hefur verið með hagnaði af olíu- og gas- vinnslu verði notaður til að bæta velferðarþjónustu. Aðrir stjórnmálaflokkar eru yf- irleitt sammála um að sjóðurinn eigi að vera trygging Norðmanna þegar olían og gasið gangi til þurrð- ar. Helmingur Norðmanna vill Hagen í ríkisstjórn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.