Morgunblaðið - 28.06.2002, Blaðsíða 43
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002 43
NÚ stendur yfir endasprettur
Evrópumótsins í brids. Þetta hef-
ur að mörgu leyti verið merkilegt
mót, m.a. vegna ótrúlegra yfir-
burða Ítala sem voru nánast búnir
að tryggja sér sigurinn þegar
keppnin var hálfnuð.
Íslenska liðið í opna flokknum
hefur staðið sig vel og átti lengi
vel möguleika á að enda í fimmta
sæti og tryggja sér þannig sæti á
næsta heimsmeistaramóti. Það
má þó segja að HM-sætið hafi
horfið úr augsýn liðsins á þriðju-
dag og miðvikudag þegar það tap-
aði m.a. 10:20 fyrir Þjóðverjum og
5:25 fyrir Englendingum.
Í kjölfarið kom jafntefli við
Búlgari, 15:15, sigur á Kýpur,
24:6, og á Færeyjum, 20:10, í 31.
umferð í gær. Eftir það var Ísland
í 12. sæti með 509 stig. Ítalir voru í
efsta sæti með 664 stig. Spánverj-
ar voru komnir í 2. sætið með
584,5 stig en þess má geta að í
spænska liðinu spila Ítalirnir Bur-
atti og Lanzarotti sem urðu Evr-
ópumeistarar fyrir nokkrum ár-
um og spiluðu síðan á Bridshátíð.
Búlgarar voru þriðju með 570
stig, Pólverjar fjórðu með 562 og
Norðmenn fimmtu með 531 stig.
Í kvennaflokki hefur íslenska
liðið átt við ramman reip að draga
á köflum og var í 21. sæti eftir 19
umferðir með 234 stig. Liðið gerði
sér þó lítið fyrir og vann Dani,
20:10, í gær en Danir eru að keppa
að HM-sæti. Þjóðverjar og Hol-
lendingar voru efstir með 350 stig,
næstir komu Englendingar með
333 stig, síðan Svíar með 327 stig
og Norðmenn með 326. Keppni í
kvennaflokki lýkur í dag.
Tvær slemmur í byrjun leiks
Ísland spilaði við Búlgaríu í 29.
umferð á miðvikudag. Búlgarar
eru með ungt en leikreynt lið og
þeir spila fast eins og Íslendingar.
Það mátti því búast við fjörugum
leik eins og raunin varð. Feðgarn-
ir Karl Sigurhjartarson og Snorri
Karlsson byrjuðu vel í leiknum því
þeir bjuggu til slemmusveiflu í
fyrsta spili:
Norður
♠ 10
♥ Á1087
♦ 108
♣ÁK10752
Vestur Austur
♠ G4 ♠ 987
♥ D54 ♥ G9632
♦ Á974 ♦ D53
♣DG63 ♣98
Suður
♠ ÁKD6532
♥ K
♦ KG62
♣4
Vestur Norður Austur Suður
Karavianov Snorri Stamatov Karl
1 spaði
pass 2 lauf pass 3 spaðar
pass 4 lauf pass 4 grönd
pass 5 hjörtu pass 6 spaðar
Karl sýndi þéttan lit með stökk-
inu í 3 spaða og þegar Snorri
sýndi laufafyrirstöðu spurði Karl
um ása og sagði slemmuna. Lauf
út hnekkir 6 spöðum en vestur
spilaði út spaðagosa. Karl tók þá
sex sinnum tromp, hjartakóng og
spilaði síðan laufi á ás. Hann henti
tveimur tíglum heima niður í
hjartaás og laufakóng og þurfti
loks að hitta í tígulinn. Karl hefur
sennilega talið líklegt að vestur
hefði spilað út tígli með drottn-
inguna og ákvað því að svína gos-
anum. Þegar hann kostaði ás var
slemman unnin, 980 til Íslands.
Vestur Norður Austur Suður
Þröstur Nanev Bjarni Mihov
1 lauf
pass 2 lauf pass 2 spaðar
pass 3 hjörtu pass 3 spaðar
pass 4 lauf pass 4 spaðar/
Mihov opnaði á sterku laufi en
leist síðan ekkert á spilin sín og
tók ekki þátt í neinum slemmu-
þreifingum. Hann fékk 12 slagi og
Ísland græddi 11 stig.
Tveimur spilum síðar var röðin
komin að Bjarna Einarssyni og
Þresti Ingimarssyni að segja
slemmu:
Norður
♠ G864
♥ Á762
♦ K874
♣G
Vestur Austur
♠ 532 ♠ D1097
♥ K863 ♥ 94
♦ G632 ♦ 1095
♣43 ♣D876
Suður
♠ ÁK
♥ DG10
♦ ÁD
♣ÁK10952
Við annað borðið opnaði Karav-
ianov í suður á sterku laufi og
norður sýndi síðan 4-4-4-1 skipt-
ingu og 0-3 kontról. Suður sló þá
af í 3 gröndum og fékk 12 slagi.
Við hitt borðið fann Bjarni opnun
á norðurspilin:
Vestur Norður Austur Suður
Mihov Bjarni Nanev Þröstur
2 tíglar pass 2 grönd
pass 3 lauf pass 3 tíglar
pass 3 grönd pass 6 grönd/
2 tíglar sýndu a.m.k. 4-4 í hálit-
unum og veik spil. Þröstur spurði
nánar um skiptingu og styrk og
stökk síðan í slemmuna. Hún var
auðunnin þegar hjartasvíning
gekk og aðeins var einn gjafaslag-
ur á lauf. 13 impar til Íslands og
staðan orðin 25:1.
Búlgararnir sýndu síðan styrk
sinn og skoruðu jafnt og þétt. Um
tíma höfðu þeir 15 stiga forskot en
leikurinn jafnaðist aftur undir lok-
in og lokastaðan var hnífjöfn,
43:43 eða 15:15 í vinningsstigum.
HM-sætið
horfið úr aug-
sýn Íslendinga
BRIDS
Salsomaggiore
Evrópumót
Evrópumótið í brids er haldið í Salso-
maggiore á Ítalíu, dagana 16.-29.
júní. Ísland tekur þátt í opnum flokki
og kvennaflokki. Heimasíða mótsins
er http://www.eurobridge.org
Guðm. Sv. Hermannsson
Kær skólasystir og
vinkona hefur kvatt
eftir langa baráttu við erfiðan sjúk-
dóm. Það er huggun harmi gegn að
vita að löngu stríði þínu er lokið,
kæra Sigga, eins og við kölluðum
þig ætíð.
Fundum okkar bar fyrst saman
2. janúar 1951, eða fyrir rúmum 50
árum, þegar við bekkjarsysturnar
mættum í dagstofu Hjúkrunarskóla
Íslands sem þá var til húsa á þriðju
hæð Landspítalans til að hefja nám
í hjúkrunarfræði. Eftir að tveggja
mánaða forskóla var lokið, bóklegu
námi, fluttum við inn í heimavist
skólans og þá tók við alvara náms-
ins að annast sjúklinga Landspít-
alans. Mikil eftirvænting var í huga
okkar allra að byrja að starfa á hin-
um ýmsu deildum spítalans og
reyndi þá á okkar faglegu og bók-
legu þekkingu. Sigga var sérlega
glögg að meta þarfir sjúklinga
sinna og var sívinnandi og natin. Á
þeim tíma sem þú varst nemandi á
Sjúkrahúsinu á Akureyri hrósaði
Guðmundur Karl yfirlæknir þér oft
fyrir árvekni og nákvæmni við
skurðsjúklinga eftir löngu brjóst-
holsaðgerðirnar sem gerðar voru á
þeim tíma á sjúkrahúsinu. Þá er
líka rétt að nefna störf þín á FSA
sem hjúkrunarfræðingur. Þar opn-
aðir þú og stýrðir B-deild, sem var
fyrsti vísir að öldrunardeild á
Sjúkrahúsi Akureyrar. Þar fékkstu
mikið hrós fyrir einurð þína og ná-
kvæmni. Á þeirri deild dvöldu einn-
ig þeir sjúklingar sem gengust und-
ir augnaðgerðir og var Helgi
Skúlason augnlæknir mjög ánægð-
ur með nákvæmni þína og þá
umönnun sem þú veittir sjúklingum
hans.
Þú varst dugmikil og áræðin, því
tæpu ári eftir að þú laukst námi við
HSÍ varstu á leið til Bandaríkjanna
til frekara náms í hjúkrun. Við
skólasysturnar biðum ávallt með
eftirvæntingu eftir bréfi frá ykkur
„nöfnunum“ frá hinni stóru Amer-
íku. Þá var kallaður saman holl-
fundur, því allar vildum við vita
hvernig ykkur vegnaði. Ekki leið á
löngu þar til tvær úr hópnum okkar
fylgdu á eftir ykkur vestur um haf,
þær Hrefna Jóhannsdóttir og Jó-
hanna Kjartansdóttir sem báðar
SIGRÍÐUR BÍLDDAL
FREYMÓÐSSON
✝ Sigríður BílddalFreymóðsson
fæddist á Siglufirði
27. febrúar 1930.
Hún lést á Villa
Bella, hjúkrunar-
heimili fyrir Alz-
heimer-sjúklinga í
Santa Barbara í Kali-
forníu, 3. mars síð-
astliðinn og var útför
hennar gerð frá
Fossvogskirkju 25.
júní.
eru látnar fyrir nokkr-
um árum, langt um
aldur fram.
Sigga okkar, eins og
við kölluðum þig, þú
ílengdist í Bandaríkj-
unum og áttir starfs-
vettvang þinn þar. Þú
eignaðist yndislegan
eiginmann, Braga
Freymóðsson, fv.
framkvstj. Magnavox
Company, og eignuð-
ust þið tvo sólargeisla,
þau Baldur og Stein-
unni. Heimili ykkar
stóð ávallt opið öllum
og þið hjónin voruð samhent að
taka á móti og liðsinna Íslendingum
sem öðrum, því mjög gestkvæmt
var á heimili ykkar. Margir landar
eru ykkur hjónum þakklátir fyrir
fyrirgreiðslu ykkar og hjálp.
Þú starfaðir við hjúkrun á Little
Company of Mary Hospital þar til
annir og skyldur heimilisins urðu
þyngri. Starfið sem móðir og eig-
inkona var þér mikilvægt og það
starf annaðistu einstaklega vel og
samviskusamlega eins og allt annað
sem þú tókst þér fyrir hendur.
Dugnaður þinn og kraftur sést hvað
best á því að árið 1981 laukst þú
B.Sc.-námi í hjúkrun og sóttir
ávallt öll námskeið til að viðhalda
hjúkrunarréttindum þínum í Kali-
forníu.
Nú að leiðarlokum viljum við
skólasysturnar þakka þér fyrir
samfylgdina gegnum öll árin og all-
ar góðu stundirnar sem við áttum
saman, bæði á námsárum okkar og
ekki síður þegar þú komst í heim-
sóknir með eiginmann og börn.
Nú er löngu stríði lokið og mun-
um við sárt sakna þín úr hópnum
okkar. Það er bjart yfir minning-
unni um þig, Sigga.
Við sendum Braga, Steinunni og
öðrum ættingjum innilegar samúð-
arkveðjur.
Bekkjarsystur
Hjúkrunarskóla Íslands,
mars 1954.
Í dag kveðjum við Sigríði Bílddal
Freymóðsson, eða Siggu eins og
hún var alltaf kölluð. Þar er gengin
kona sem mér þótti ákaflega vænt
um. Sigga var samofin lífi mínu síð-
an ég man eftir mér. Mamma og
Sigga kynntust í Hjúkrunarskóla
Íslands og héldu eftir nám saman á
vit ævintýra til Bandaríkjanna til
að afla sér meiri starfsreynslu og
þekkingar í hjúkrun. Mörgum þótti
ferð þessi hið mesta glapræði. Ör-
lögin höguðu því þannig til að báðar
giftust þær vestra, Sigga settist þar
að með Braga sínum og hafa þau
búið þar síðan, en foreldrar mínir
fluttu heim á Frón áður en ég
fæddist.
Fyrstu minningar mínar af Siggu
eru fallegar myndir af börnum
þeirra, Steinunni og Baldri, í
fallegu umhverfi. Jólakortin voru
ævintýralega falleg, stórt jólatré og
stórir jólapakkar. Eftirvæntingin
var mikil þegar mamma fékk bréf
frá Siggu og las aðalatriðin upp fyr-
ir fjölskylduna. Þá var um sérstaka
stemmningu að ræða þegar
mamma settist niður til að skrifa
Siggu til baka. Þeir voru ófáir
pakkarnir sem Sigga sendi mömmu
með dýrindis gjöfum; fötum, leik-
föngum, handklæðum, sápum og
gæti ég talið upp langan lista. Ekki
má gleyma „Sears-vörulistunum“,
þar sem tíminn varð algerlega af-
stæður við að dást að öllu dótinu
sem hægt var að kaupa í Ameríku.
Öll sú gjafmildi og væntumþykja
Siggu verður seint fullþökkuð.
Sigga var glæsileg kona svo tekið
var eftir, alltaf vel til höfð, eins og
klippt út úr tískublaði. Hún og
Bragi voru ákaflega rausnarleg og
skemmtileg heim að sækja. Ég hef
orðið þeirrar ánægu aðnjótandi að
hafa komið til þeirra af og til í yfir
tvo áratugi. Í fyrstu ferð minni til
Bandaríkjanna dvaldi ég hjá þeim í
eina viku í Los Angeles. Var það
ógleymanlegt í alla staði og Sigga
og Bragi stjönuðu við mig til að
gera tímann sérstakan. Þar tók
Sigga mig meðal annars á fornsölu
til að kaupa forngrip frá Kína til að
gefa mömmu við heimkomuna.
Ekki var annað tekið í mál en að
gripnum fylgdi vottorð um uppruna
og aldur. Okkur Dóru var ekki
heldur í kot vísað þegar við komum
fyrst saman til Ameríku. Sigga
þeyttist með okkur milli verslana til
að kaupa hitt og þetta sem vantaði.
Þar buðu þau okkur út að borða og
fengum við þar eina eftirminnileg-
ustu máltíð sem við höfum fengið.
Heimsóknir voru nokkuð tíðar á
fyrstu árum okkar í Madison. Mikið
var skrafað og skeggrætt um gamla
tíma, fjármálin, það sem var að ger-
ast á Íslandi, grillað og spilað billj-
ard. Sigga reyndist dætrum mínum
ákaflega vel og reyndi ávallt að
leiða þeim fyrir sjónir hvers virði
það er að vera Íslendingur. Sigga
var ákaflega mikill Íslendingur í
sér og í hennar huga var allt ís-
lenskt best. Hún lagði alltaf mikla
áherslu á að við flyttum aftur heim.
Síðasta heimsóknin til þeirra var
árið sem við fluttum heim. Þau
höfðu nokkrum árum áður flutt til
Santa Barbara til að vera í nálægð
við Steinunni og hennar fjölskyldu.
Þá var heilsu Siggu farið að hraka,
en hún hélt áfram reisn sinni. Þar
stóð Bragi við hlið hennar eins og
klettur. Þessar heimsóknir okkar
til Siggu og Braga munu skipa stór-
an sess í minningunni og gera okk-
ur ríkari.
Elsku Bragi, Steinunn og fjöl-
skyldur, við Dóra, Sirrý, Stína,
Stefán og Valtýr biðjum góðan guð
að styrkja ykkur í sorginni og
blessa minningu Siggu um ókoma
tíð.
Bjarni Valtýsson.
Elsku Einar, þú ert
farinn. Þú sem ert ný-
kominn inn í líf okkar.
Það eru nokkrir mán-
uðir síðan þú tókst
saman við Berglindi og
við fjögur náðum vel
saman. Við vorum búin að heyra
mikið um þig, Bettý talaði ekki um
neitt annað og við vorum orðin
spennt að hitta þig. Við hittumst á
gamlárskvöldi og þú varst svo góður,
blíður og ástfanginn. „Ekkert vanda-
mál“ var viðhorf þitt og öllu var
EINAR SIGURBJÖRN
LEIFSSON
✝ Einar SigurbjörnLeifsson fæddist
í Keflavík 24. maí
1953. Hann varð
bráðkvaddur á heim-
ili sínu 6. júní síðast-
liðinn og var útför
hans gerð frá Kefla-
víkurkirkju 19. júní.
reddað, og alltaf sást
þú það góða í öllum. Þú
reyndist Berglindi og
börnum hennar ómet-
anlegur vinur, traustur
og staðfastur. Ást þín á
Berglindi var öllum
augljós og barst þú
hana á hendi þér, henn-
ar missir er mikill og
barnanna einnig.
Hann leið eins og geisli sitt
skammvinna skeið
og skírist nú ljósinu fríða.
Hann samfundi þráir, hann
sér ykkar leið,
og sætt er hjá guði að bíða.
(Höf. ók.)
Elsku Bettý, Doddi og Maddý og
aðrir ástvinir, ykkar missir er mikill.
Við viljum votta ykkur okkar dýpstu
samúð.
Gunnar og Guðrún Valdís.
EIGI minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í
sunnudagsblaði ef útför er á
mánudegi), er skilafrestur
sem hér segir: Í sunnudags-
og þriðjudagsblað þarf grein
að berast fyrir hádegi á föstu-
dag. Í miðvikudags-, fimmtu-
dags-, föstudags- og laugar-
dagsblað þarf greinin að
berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrir birting-
ardag. Berist grein eftir að
skilafrestur er útrunninn eða
eftir að útför hefur farið
fram, er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu
greina, enda þótt þær berist
innan hins tiltekna skila-
frests.
Skilafrestur
minning-
argreina
Málarar - Múrarar - Píparar - Smiðir
Dúkarar - Rafvirkjar - Ræstitæknar
Vertu í góðum höndum!
Eitt númer - 511 1707
www.handlaginn.is
handlaginn@handlaginn.is