Morgunblaðið - 28.06.2002, Blaðsíða 18
LANDIÐ
18 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SAMKAUP hafa opnað nýja verslun
í Neistanum, nýrri verslunarmiðstöð
í miðbæ Ísafjarðar. Verslunin er alls
tæpir 900 fermetrar, þrefalt stærri
en verslunarplássið í gamla kaup-
félagshúsinu.
Ágúst og Flosi ehf. á Ísafirði
byggðu húsið og voru nánast allir
undirverktakar einnig heimamenn.
Opnun verslunarinnar gekk vel fyrir
sig enda mikið lagt upp úr góðri
þjónustu í ferskvöru með glæsilegu
kjötborði, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá Samkaupum,
og sérstökum klefa inn í versluninni
fyrir ávexti og grænmeti. Fjöldi
Vestfirðinga kom í verslunina um
opnunarhelgina.
Í tilefni opnunarinnar var haldið
hóf á Hótel Ísafirði þar sem stjórn-
arformaður Samkaupa hf., Jón Sig-
urðsson, afhenti Edinborgarhúsinu,
Ungmennafélagi Bolungarvíkur,
Boltafélagi Ísafjarðar og Skrúði 150
þúsund krónur hverjum að gjöf frá
Samkaupum.
Verslunarstjóri Samkaupa á Ísa-
firði er Haukur Benediktsson.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Starfsfólk Samkaupa á Ísafirði ásamt rekstrarstjóra verslana Samkaupa og framkvæmdastjóra fyrirtækisins.
Ný verslun Samkaupa
opnuð í Neistanum
Ísafjörður
VERKALÝÐSFÉLAG Húsavíkur
hefur sent frá sér eftirfarandi álykt-
un:
„Verkalýðsfélag Húsavíkur lýsir
yfir miklum vonbrigðum með þá
ákvörðun stjórnvalda að skera niður
framlög til endurbóta á Kísilvegi um
Hólasand á árinu 2002 og tekur þar
með undir samþykkt sveitarstjórnar
Skútustaðahrepps frá 23. maí 2002.
Kísilvegurinn gegnir mikilvægu
hlutverki, ekki síst fyrir Kísiliðjuna,
ferðaþjónustu og aðra atvinnustarf-
semi á svæðinu. Þá er hann einnig
mikilvæg samgönguæð varðandi þá
þjónustu sem íbúar svæðisins þurfa
að sækja í þéttbýlið, s.s. heilsugæslu
og stjórnsýslu.
Kísilvegurinn er einnig mikilvæg-
ur kafli „Demantshringsins“ (Húsa-
vík-Mývatn-Dettifoss-Ásbyrgi) og
uppbygging hans er ein af forsend-
um þess að treysta byggð og efla at-
vinnulíf á félagssvæði stéttarfélag-
anna í Þingeyjarsýslum.
Verkalýðsfélag Húsavíkur skorar
á stjórnvöld að setja aukið fjármagn
í Kísilveginn svo að ljúka megi end-
urlagningu hans á næstu þremur
árum.“
Aukið fjár-
magn verði
sett í Kísilveg
Húsavík
HLUTI af snúningum sumarsins er
að ná sér í tröllasúrur – rabarbara –
til þess að sulta og búa til rabarbara-
sultu. Stundum getur tröllasúran
verið tröllaukin og þá er eins og um
heilan skóg sé að ræða þar sem litlar
stelpur – eins og Ásta Pétursdóttir –
geta falist inni á milli tröllasúrnanna
þegar verið er að slíta upp vænstu
leggina.
Morgunblaðið/Pétur Þorsteinsson
Tröllauknar tröllasúrur
Reykholtsdalur
Á FUNDI í Kvenfélaginu 19. júní,
þann 11. júní sl., voru afhentir styrk-
ir til Björgunarsveitarinnar Oks og
Bæjarkirkju. Björgunarsveitin fékk
65.000 kr. til endurnýjunar á búnaði
og sóknarnefnd Bæjarkirkju 40.000
kr. til að fegra kirkjugarðinn. Styrk-
fjárhæðin er ágóði af árlegu bingói
kvenfélagsins sem fram fer á Hvann-
eyri í byrjun desember ár hvert.
Kvenfélagið
19. júní af-
hendir styrki
Skorradalur
♦ ♦ ♦
6-8 meðalstórir tómatar
1 rauðlaukur
1/2 dl basil ólívuolía
1 tsk. sjávarsalt
svartur pipar
nokkur strá af graslauk
Sneiðið tómatana og breiðið á disk. Fínsaxið
rauðlaukinn og stráið yfir tómatsneiðarnar.
Sáldrið smáræði af sjávarsalti yfir og malið
svolítinn svartan pipar yfir. Að síðustu er
basilolíunni hellt yfir tómatana. Skreytið með
klipptum graslauk og piparkornum. Frábært
sumarsalat og hentar með nánast hvaða rétti
sem er eða í forrétt.
Einfalt tómatasalat
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
G
RA
1
80
33
06
/2
00
2
Uppskrift
að góðri helgi
- alltaf 1/3
Hafðu hollustuna með
Íslenskt grænmeti