Morgunblaðið - 28.06.2002, Blaðsíða 14
Morgunblaðið/Kristján
Það verður hátt til lofts og vítt til veggja í fjölnota íþróttahúsinu.
FRAMKVÆMDIR við byggingu
fjölnota íþróttahúss á félagssvæði
Þórs við Hamar ganga samkvæmt
áætlun. Í gær var byrjað að reisa
fyrstu stálbitana í húsinu og með því
má segja að húsið sé komið upp úr
jörðinni. Alls eru 17 stálbitar undir
þaki hússins. Sævar Þorbjörnsson,
verkefnisstjóri hjá Íslenskum aðal-
verktökum, sagði að lokið yrði við að
reisa bitana í lok ágúst og klæða og
loka húsinu um miðjan október. Ís-
lenskir aðalverktakar eru aðalverk-
takar byggingarinnar en fyrirtækið
hefur leitað mikið til norðlenskra
fyrirtækja við framkvæmdina. Tré-
verk á Dalvík sér um uppsteypu á
undirstöðum fyrir stálbitana og á
veggjum og GV gröfur hafa séð um
jarðvinnu. Norðurstál í Garðabæ sér
hins vegar um að reisa stálbitana.
Fjölnota íþróttahúsið er gríðar-
legt mannvirki og það er því ljóst að
ásýnd félagssvæðisins við Hamar á
eftir að breytast mikið á næstu vik-
um. Í húsinu verður löglegur knatt-
spyrnuvöllur lagður gervigrasi og
aðstaða fyrir frjálsar íþróttir. Ráð-
gert er að ljúka framkvæmdum í
desember nk. og að þá verði strax
hægt að hefja æfingar og keppni.
Heildarkostnaður við verkið er áætl-
aður 450–500 milljónir króna.
Það þarf stóra og sterka bolta til
að tengja bitana saman.
Fjölnota íþróttahúsið
upp úr jörðinni
AKUREYRI
14 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
www. .is
ÍBÚÐIR TIL SÖLU • ÍBÚÐIR TIL LEIGU • TÆKJALEIGA • ÚTBOÐ
KÍKTU
Á NETIÐ
FÉLAGAR í Kiwanisklúbbnum
Súlum í Ólafsfirði komu færandi
hendi á leikskólann Leikhóla nú í
vikunni. Meðferðis höfðu þeir
átta þríhjól sem þeir færðu leik-
skólanum að gjöf í tilefni 20 ára
afmælis Leikhóla.
Þetta er í annað sinn sem Kiw-
anismenn fær Leikhólum þríhjól
en það gerðu þeir einnig á tíu
ára afmælinu. Þau hjól voru eins
og gefur að skilja orðin frekar
lúin.
Á myndinni má sjá börn og
starfsfólk á Leikhólum ásamt
nokkrum Kiwanismönnum.
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Leikskólanum gefin þríhjól
Ólafsfjörður
TUTTUGU umsóknir bárust um
starf bæjarstjóra í Ólafsfirði en
frestur til að sækja um stöðuna
rann út á sunnudag.
Þeir sem sækja um stöðuna eru
Atli Már Ingólfsson lögfræðingur,
Hafnarfirði, Ásmundur Helgi
Steindórsson viðskiptafræðingur,
Keflavík, Björn Helgason verk-
fræðingur, Kópavogi, Björn Sig-
urður Lárusson, rekstrar- og
markaðsráðgjafi, Akranesi, Böðvar
Jónsson viðskiptafræðingur, Kópa-
vogi, Guðjón Viðar Valdimarsson
framkvæmastjóri, Reykjavík, Hall-
dór Jónsson framkvæmdastjóri,
Ísafirði, Halldór V. Kristjánsson
deildarstjóri, Reykjavík, Jóhann
M. Ólafsson viðskiptafræðingur,
Kópavogi, Magnús Kristján Háv-
arðsson, tölvu- og kerfisfræðingur,
Bolungarvík, Njáll Gunnar Siguð-
sson alþjóðamarkaðsfræðingur,
Hafnarfirði, Páll Brynjarsson við-
skiptafræðingur, Reykjavík, Pétur
I. Jónsson sjávarútvegsfræðingur,
Ólafsfirði, Ragnar Marinósson,
Reykjavík, Reynir Þorsteinsson
sveitarstjóri, Raufarhöfn, Sigfús
Eiríkur Arnþórsson hljóðræn upp-
lýsingamiðlun, Lundúnum, Snorri
Ásmundsson, Reykjavík, Steinn
Kárason alþjóðahagfræðingur,
Danmörku, og Ævar Einarsson
iðnaðartæknifræðingur, Dan-
mörku.
Ásgeir Logi Ásgeirsson sem
verið hefur bæjarstjóri í Ólafsfirði
lætur af störfum á sunnudag. Bæj-
arritari mun gegna störfum bæj-
arstjóra þar til nýr maður hefur
verið ráðinn til starfans.
Bæjarstjóri í Ólafsfirði
Tuttugu sækja
um starfið
Ólafsfjörður
JASSKLÚBBUR Ólafsfjarðar held-
ur Blue North Music Festival í
þriðja sinn í Ólafsfirði dagana 27.–
29. júní. Hátíðin er að þessu sinni
helguð blús- og bluegrass-tónlist
sem í dag á auknum vinsældum að
fagna meðal Íslendinga.
Hátíðin hófst í gærkvöld með
„jammsession“ á Glaumbæ þar sem
fram komu Hrafnaspark, The South
Riverband, Roðlaust og beinlaust og
GSM. Í kvöld koma fram Gras,
Hrafnaspark, Roðlaust og beinlaust
og Kentár. Á laugardagskvöld, sem
yfirleitt hefur verið fyrirferðarmesta
kvöldið enda alltaf uppselt, koma
fram Deadline ásamt Páli Rósin-
kranz, The South Riverband, Chi-
cago Beau og GP Blues Band, auk
GSM. Sérstakt hátíðarútvarp verður
starfrækt meðan á hátíðinni stendur,
Blue North Music Radio FM 95,2,
sem notið hefur gífurlegra vinsælda
á síðustu hátíðum. Þá verða fjöl-
margir hliðarviðburðir meðan á há-
tíðinni stendur, s.s. Blue North
Open-golfmótið, dorgveiðikeppni,
útimarkaður við Tjarnarborg og ým-
islegt fleira.
Nánar er hægt að kynna sér dag-
skrá, miðasölu ofl. á www.1000th.is
en þar er jafnframt hægt að finna ít-
arlegri upplýsingar um listamennina
sjálfa.
Blúsað í Ólafsfirði
Ólafsfjörður
FERTUG kona hefur verið dæmd í
tíu mánaða fangelsi í héraðsdómi
Norðurlands eystra fyrir skjalafals
og fjársvik en níu mánuðir refsing-
arinnar eru skilorðsbundir til þriggja
ára og fellur sá hluti niður haldi hún
skilorðið.
Konan var ákærð fyrir skjalafals
með því að falsa nafn fyrrverandi eig-
inmanns síns sem sjálfskuldar-
ábyrgðaraðila undir skuldabréf að
upphæð 280 þúsund krónur sem hún
gaf út. Þá var hún ákærð fyrir fjár-
svik en hún lét skuldfæra vörur að
upphæð tæplega 30 þúsund krónur í
fjórum verslunum á Akureyri á
greiðslukort eiginmannsins fyrrver-
andi. Játaði konan brot sín skýlaust
fyrir dómi. Hún hefur tvívegis áður
hlotið dóm fyrir skjalafals og einnig
umferðarlagabrot.
Konunni var gert að sæta sérstakri
umsjón Fangelsismálastofnunar á
skilorðstímanum og einnig að greiða
tveimur verslunum skaðabætur. Við
ákvörðun refsingar var litið til þess að
konan hefur verið heilsuveil og búið
við erfiðar heimilisaðstæður.
Dæmd í fangelsi fyrir
skjalafals og fjársvik
Á FUNDI framkvæmdaráðs nýlega
var lagt fram kostnaðaryfirlit um
framkvæmdir við tjaldsvæði og úti-
lífsmiðstöð á Hömrum, frá upphafi og
til loka framkvæmda, samkvæmt fyr-
irliggjandi áætlunum. Gert er ráð fyr-
ir að heildarkostnaður framkvæmda
verði um 230 milljónir króna.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdir í
ár á vegum bæjarins fyrir utan fram-
kvæmdir Fasteigna Akureyrarbæjar
nemi um átta milljónum króna. Sam-
kvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð
fyrir fimm milljónum króna í þennan
þátt framkvæmdanna og vantar því
þrjár milljónir króna upp á. Fram-
kvæmdaráð samþykkti að fela fram-
kvæmdadeild að vinna að fram-
kvæmdum á Hömrum innan fjár-
hagsáætlunar ársins.
Heildarkostnaður um
230 milljónir króna
Uppbygging á Hömrum
Söguganga um Oddeyri
MINJASAFNIÐ á Akureyri býður
upp á sögugöngu um Oddeyri á
morgun, laugardaginn 29. júní.
Gangan hefst við Gránufélagshús-
in í Strandgötu 49 kl. 14 og tekur um
eina og hálfa klukkustund.
Gengið verður um elstu götur á
Oddeyri og byggingarsagan rifjuð
upp undir leiðsögn Guðrúnar M.
Kristinsdóttur. Þátttaka er ókeypis
og öllum heimil. Eyrarbúar sem
kunna að segja frá húsunum og íbú-
um þeirra eru hvattir til að slást í för
og miðla af þekkingu sinni.
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is