Morgunblaðið - 28.06.2002, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 28.06.2002, Blaðsíða 28
FRÉTTIR 28 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ GUÐMUNDUR Hauksson, spari- sjóðsstjóri SPRON, hefur sent Morg- unblaðinu eftirfarandi yfirlýsingu sem birt er hér í heild. „Sparisjóður Reykjavíkur og ná- grennis hefur átt mikilli velgengni að fagna á síðustu áratugunum í sjötíu ára starfssögu sinni. Einhugur hefur ríkt meðal stofnfjáreigenda, starfs- manna, stjórnenda og tryggra við- skiptavina að halda sókn SPRON áfram af fullum styrk. Af hálfu lög- gjafans kom skýrt fram í breytingum sem gerðar voru á lögum um við- skiptabanka og sparisjóði á liðnu vori að fullur vilji var til þess að skapa sparisjóðunum frekari sóknarfæri á fjármálamarkaði og að þeir væru nauðsynlegur hlekkur í fjármálakerfi landsmanna. Sjálfstæði og staðartengsl Stjórn SPRON fékk afdráttarlaust umboð frá síðasta aðalfundi til þess að undirbúa formbreytingu á spari- sjóðnum í hlutafélag í samræmi við áorðnar breytingar á lögum. Tilgang- urinn var að skapa SPRON aukna möguleika til þess að starfa sem öfl- ugur sjálfstæður sparisjóður og auð- velda aukningu eiginfjár í því skyni að geta tekist á við stærri verkefni og notið hagstæðari lánakjara. Rækileg kynning hefur átt sér stað á þessum fyrirætlunum og ekki var annað vitað en að þorri hinna rúmlega 1.100 stofnfjáreigenda í SPRON væri sátt- ur við að skipta á stofnfjárbréfum fyrir hlutabréf í SPRON hf. eða fá endurgreitt endurmetið stofnfé sitt í bankanum ella eins og skýrt er kveð- ið á um í lögum. Við höfum í einu og öllu lagt til grundvallar gildandi lög og skyldu stjórnenda, stofnfjáreig- enda og starfsmanna til þess að láta langtímahagsmuni sparisjóðsins og viðskiptavina hans sitja í fyrirrúmi. Engum ábyrgum aðilum hefur dottið annað í hug en að viðhalda sjálfstæði og staðartengslum SPRON. „Undarlegar aðferðir“ Fimm stofnfjáreigendur hafa nú valdið SPRON miklum skaða með því að taka að sér fyrir borgun að gera tilraun til að eyðileggja og innlima sparisjóðinn í Búnaðarbanka Íslands með fjandsamlegri yfirtöku. Það mun ekki verða að Búnaðarbankinn nái yf- irráðum í SPRON með þessum hætti. Og það hlýtur að vera ámælisvert að banki í meirihlutaeigu ríkisins standi fyrir vanhugsaðri skyndiárás af þessu tagi, án þess að hugsa til enda afleiðingar hennar. Það verður einnig að teljast ósvífni af versta tagi að þingmaður, sem var andvígur þeim breytingum á lögum sem gerðar voru á sl. ári, skuli bjóðast til þess fyrir sjö milljónir frá Búnaðarbankanum að „svelta fjármuni út úr sjálfseignar- stofnuninni“ eins og hann hefur sjálf- ur orðað það í fjölmiðlaviðtölum. Pét- ur Blöndal alþingismaður má þó eiga það að hann er ekki að dylja tilgang- inn með yfirtökutilboði Búnaðar- bankans. Hans eigin orð segja allt sem segja þarf um gjörninginn: „Það sem við erum að gera eða Búnaðar- bankinn, með hjálp og aðstoð Bún- aðarbankans, er að stofnfjáreigendur fái þá allavegana nærri tvö þúsund milljónum af þessu verðmæti Spari- sjóðsins sem er 4,2 milljarðar en það má segja það að lagasetning frá Al- þingi geri það að verkum út af þessu furðulega fyrirbæri sem er þarna inni, þessu með sjálfseignarstofnun, að það sé ekki hægt að borga hærra verð fyrir þennan hlut stofnfjáreig- enda nema að fara að beita einhverj- um undarlegum aðferðum til að svelta fjármagnið út úr þessum sjálfseignarstofnunum.“ (Stöð 2 – Ís- land í dag 25.6. 2002.) Aðför að sparisjóðunum Þær breytingar sem fimmmenn- ingarnir leggja til að gerðar verði á samþykktum sparisjóðsins og sú yf- irfærsla á eigin fé SPRON til stofn- fjáreigenda sem felst í tilboði Bún- aðarbanka Íslands jafngilda því að sparisjóðurinn yrði lagður niður sem sjálfstæð stofnun. Ljóst er að hefði það verið vilji stofnfjáreigenda á aðal- fundi að leggja sparisjóðinn niður hefði stjórn SPRON undirbúið fund stofnfjáreigenda sem halda átti á Hótel Sögu í dag með allt öðrum hætti. Ljóst er einnig að tækist aðför- in að SPRON yrðu aðrir sparisjóðir keyptir upp með svipuðum hætti og sparisjóðakerfið með samstarfsfyrir- tækjum myndi líða undir lok á skömmum tíma. Í þriðja lagi er ljóst að stofnfjáreigendur geta ekki selt það sem þeir ekki eiga, og samkvæmt lögum frá Alþingi og samþykktum SPRON er ekki hægt að fara með stofnfé sem hlutafé við breytingu á sparisjóði í hlutafélag. Sparisjóðirnir hafa frá upphafi verið hugsaðir sem framfarastofnanir á sínu starfssvæði og stofnfjáreigendur eru þeir sem hafa viljað leggja starfseminni lið án þess að gera tilkall til hlutdeildar í uppsöfnuðu eiginfé sjóðanna. Skýr fyrirmæli eru í fjórum lagagreinum um útreikning á verði stofnfjárbréfa í tengslum við skipti stofnfjárbréfa í hlutabréf, slit á sparisjóði, innlausn stofnfjár og útgáfu nýs stofnfjár. Beinlínis er óheimilt samkvæmt lög- um að hygla stofnfjáreigendum í slík- um tilfellum. Óraunhæfar væntingar Tilboð fimmenninganna og Búnað- arbanka Íslands hefur skapað óraun- hæfar væntingar meðal stofnfjáreig- enda um hugsanlegan rétt þeirra til gjafakvóta á eiginfé sparisjóðanna í landinu. Ekki er ólíklegt að þær verði til þess að tefja aðlögun sparisjóð- anna að markaðsaðstæðum og harðn- andi samkeppni á fjármálamarkaði. Það mun hins vegar ekki verða til þess að stjórn og starfsmenn SPRON láti deigan síga í sókn sparisjóðsins á höfuðborgarsvæðinu.“ Guðmundur Hauksson sparisjóðsstjóri SPRON um yfirtökutilraunir Búnaðarbankans Árásinni verður hrundið Morgunblaðið/Brynjar Gauti SAMBAND íslenskra sparisjóða hefur sent Morgunblaðinu yfir- lýsingu vega yfirtökutilraunar Búnaðarbanka Íslands á SPRON. Yfirlýsingin birtist hér í heild. „Stjórn Sambands íslenskra sparisjóða hvetur til ítrustu að- gæslu og yfirvegunar vegna til- raunar Búnaðarbanka Íslands til yfirtöku á Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis. Stjórnin telur að verði tilboðið talið standast lög sé vegið að tilverugrundvelli spari- sjóðanna í landinu og samstarfs- fyrirtækja þeirra. Það var ótvíræður vilji löggjaf- ans að styrkja samkeppnisstöðu sparisjóðanna með þeim breyt- ingum sem gerðar voru á lögum um viðskiptabanka og sparisjóði á síðastliðnu vori. Þá var lögð áhersla á að skilgreina rétt stofn- fjáreigenda í tengslum við hugs- anlega breytingu á sparisjóðum yfir í hlutafélög eða samruna sparisjóða. Það er hafið yfir allan efa að lögin heimila ekki að farið sé með stofnfé sem hlutafé við slíkar breytingar. Sparisjóðirnir hafa frá upphafi verið hugsaðir sem framfarastofnanir á sínu starfssvæði og stofnfjáreigendur eru þeir sem hafa viljað leggja starfseminni lið án þess að gera tilkall til hlutdeildar í uppsöfnuðu eigin fé sjóðanna. Skýr fyrirmæli eru í fjórum lagagreinum um út- reikning á verði stofnfjárbréfa í tengslum við skipti stofnfjárbréfa í hlutabréf, slit á sparisjóði, inn- lausn stofnfjár og útgáfu nýs stofnfjár. Beinlínis er óheimilt sam- kvæmt lögum að hygla stofnfjár- eigendum í slíkum tilfellum. Stjórn Sambands íslenskra spari- sjóða telur að verði heimilað að fara í kringum skýr lagaákvæði í því skyni að komast bakdyra megin að eigin fé sparisjóðanna með þeim afleiðingum á skömm- um tíma að sparisjóðirnir heyri sögunni til hljóti löggjafinn að skerast í leikinn. Sé litið á sparisjóðina sem heild eru þeir með næst mest innlánsfé fjármálastofnana og næst mest eigið fé allra fjármála- fyrirtækja á Íslandi. Sá áróður sem hafður hefur verið í frammi að sparisjóðir séu á undanhaldi er marklaus í ljósi staðreynda um þróun síðustu áratuga. Sparisjóð- irnir hafa átt velgengni að fagna, stöðugt bætt markaðshlutdeild sína og fjölda viðskiptamanna auk þess sem aukning innlána hefur verið til muna meiri hjá sparisjóðunum en öðrum innláns- stofnunum. Þannig hefur straum- urinn legið til sparisjóðanna og alveg ljóst að fólk og fyrirtæki leggja upp úr því að eiga við- skipti við sparisjóð sem stendur þeim nærri. Stjórn sambands ís- lenskra sparisjóða lýsir stuðningi við þá ákvörðun stjórnar SPRON að fresta öllum ákvörðunum um breytingar á samþykktum spari- sjóðsins þar til úrskurður Fjár- málaeftirlitsins um tilboð Búnað- arbankans liggur fyrir og óskar formlega eftir viðræðum við ráð- herra viðskiptamála og efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis um þá stöðu sem upp er komin.“ Yfirlýsing stjórnar Sam- bands íslenskra sparisjóða BORIST hefur eftirfarandi yfirlýsing frá Jóni G. Tómassyni, stjórnarfor- manni SPRON: „Vegna endurtekinna fullyrðinga talsmanna Búnaðarbanka Íslands um að ég hafi farið með rangt mál þegar ég sagði að eigið fé SPRON yrði not- að til að greiða stofnfjáreigendum yf- irverð er bent á að í viðtali á Stöð II 25. þ.m. sagði Pétur Blöndal, talsmað- ur bankans og fimmmenninganna, orðrétt: „Það sem við erum að gera eða Búnaðarbankinn, með hjálp og aðstoð Búnaðarbankans, er að stofnfjáreig- endur fái þá a.m.k. nærri tvö þúsund milljónum af þessu verðmæti Spari- sjóðsins sem er 4,2. En það má segja að lagasetning frá Alþingi geri það að verkum út af þessu furðulega fyrir- bæri sem er þarna inni, þessu með sjálfseignarstofnun, að það sé ekki hægt að borga hærra verð fyrir þenn- an hlut stofnfjáreigenda nema fara að beita einhverjum undarlegum aðferð- um til að svelta fjármagnið út úr þess- ari sjálfseignarstofnum.“ Ég hef ekki séð eða heyrt þau um- mæli dregin til baka að það eigi að nota af „þessu verðmæti Sparisjóðs- ins“ til að greiða stofnfjáreigendum og það þurfi að nota undarlegar að- ferðir til að „svelta fjármagnið“ út úr sparisjóðnum til að greiða yfirverðið – þ.e. greiða af eigin fé sparisjóðsins fyrir eign sem stofnfjáreigendur hafa ekki átt eða greitt fyrir. Með yfirtökutilboðinu til stofnfjár- eigenda að fjárhæð um 1.900 millj.kr., auk kostnaðar við auglýsingaherferð og sérstakrar umbunar til fimm- menninganna að fjárhæð allt að 37 millj. kr., nær bankinn eignarhaldi á verðmætum að fjárhæð a.m.k. 5–6 milljarða kr. Hvernig Búnaðarbank- inn hagar greiðslum í bókhaldi sínu skiptir ekki máli í þessu sambandi.“ Yfirlýsing frá stjórnar- formanni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.