Morgunblaðið - 28.06.2002, Blaðsíða 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002 47
Hopparar
SPRENGISANDSLEIÐ var opnuð í
gærmorgun. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Vegagerðinni er það á
svipuðum tíma og síðustu ár, en
hún var „að meðaltali“ opnuð hinn
26. júní árin 1996–2001.
Búið að opna
Sprengisandsleið
LÍTIL veiði hefur verið í Vatns-
dalsá frá því að hún var opnuð á
dögunum en í fyrrakvöld urðu
menn varir við „einhverja breyt-
ingu“, eins og Pétur K. Pétursson,
leigutaki árinnar, komst að orði.
Þá sáu menn laxa bæði ofan og
neðan Flóðs, settu í fiska, misstu
þrjá eða fjóra en náðu 16–17
punda fiski í Hólakvörn.
Pétur sagði þetta allt stóra
fiska, en að hann hefði síðan vissu
fyrir því að nýrunnir smálaxar
hefðu veiðst á silungasvæðinu síð-
ustu daga, bæði ofan og neðan
Flóðs, og það væri örugg ávísun á
að sá fiskur kæmi inn á aðalsvæðið
á næstu dögum.
Kemur og fer
Jón Guðmann, veiðivörður við
Laxá á Ásum, sagði í gærdag að
áin væri búin að skila tíu löxum og
ekki væri annað hægt að segja en
veiðin hefði verið slök. „Þetta hef-
ur verið að koma í skotum. Þannig
hittu menn t.d. á smágöngu á mið-
vikudagsmorgun, fengu þrjá laxa
og sáu talsvert, en þeir sem tóku
við eftir hlé urðu einskis varir.
Annars er bara veitt á flugu í ánni
í sumar og stærri laxarnir, sem
menn sjá og vita um, hreyfa sig
ekki eftir flugunni,“ sagði Jón. Að-
eins þrír af umræddum tíu löxum
teljast stórlaxar, 10 til 11 punda
fiskar og tveir voru innan við þrjú
pund.
Sex laxlausir dagar
Ástþór Jóhannsson, leigutaki
Straumfjarðarár, sagði í gær að
laxveiðin hefði ekki gengið sem
skyldi, en það hlyti að vera
klukkustundaspursmál hvenær sá
fyrsti veiddist úr því sem komið
er. „Ég hélt að ég væri að setja
allt í gang í morgun, fékk þessa
fínu töku í Sjávarfossinum og
sagði hátt og snjallt við félaga
minn: „Jæja, hérna er kominn sá
fyrsti,“ en þá var þetta bara
þriggja punda bleikja,“ sagði Ást-
þór og hló að öllu saman. „Annars
erum við búnir að sjá laxa í ánni
og ég hugsa að það væri búið að
veiða nokkra ef það hefðu verið
duglegri menn í ánni. Sama ef við
leyfðum maðk eða spón. En þetta
snýst ekki um það, hér er bara
veitt á flugu og menn standa og
falla með því,“ bætti Ástþór við.
Fín veiði – stórir fiskar
Silungsveiðin lætur ekki að sér
hæða. Fínar tölur berast víða að.
Hollið sem opnaði Seglbúðasvæði
Grenlækjar veiddi t.d. næstum 40
bleikjur sem flestar voru á bilinu
þrjú til sex pund. Allt var veitt á
flugu og voru kúlupúpur veiddar
andstreymis það sem gaf best.
Þá fréttist af tveimur veiðifélög-
um sem voru um daginn í Veiði-
vötnum. Þeir fengu um 40 urriða,
tveggja til sex punda, og alla á
svartan Tóbí. Hörkudagur það.
Morgunblaðið/Golli
Gönguskot kom í Elliðaárnar og mátti sjá lax stökkva í Sjávarfossinum.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
„Einhver
breyting“
í Vatns-
dalnum
Helgardag-
skrá þjóð-
garðsins á
Þingvöllum
LÍFRÍKI Þingvallavatns og leikir
fyrir börnin eru meðal þess sem
verður á boðstólum fyrir gesti á
Þingvöllum nú um helgina. Farið
verður í gönguferð á laugardaginn
með strönd Þingvallavatns. Hugað
verður að margbrotnu lífríki vatns-
ins og tengslum þess við jarðfræði
vatnasviðsins. Safnast verður saman
við brúna yfir Öxará við Hótel Val-
höll klukkan 13. Á sama tíma verður
farið í Hvannagjá þar sem verður
dagskrá fyrir börn á öllum aldri.
Farið verður frá þjónustumiðstöð-
inni á Leirunum og tekur dagskráin
um klukkustund. Sunnudaginn 30.
júní verður guðsþjónusta í Þing-
vallakirkju og að venju verður þing-
helgarganga þar sem farið verður
um þingstaðinn forna og saga þings
og þjóðar reifuð. Þinghelgargangan
hefst klukkan 15 við kirkju. Þátttaka
í dagskrá þjóðgarðsins er ókeypis og
öllum opin en nánari upplýsingar um
dagskrána veita landverðir í þjón-
ustumiðstöð.
Skúlaskeið
í Viðey
SUNNUDAGINN 30. júní verður
haldið svonefnt Skúlaskeið í Viðey, en
það er þriggja kílómetra skokk fyrir
alla fjölskylduna. Bátsferðir verða
farnar eftir þörfum frá kl. 11 með
þátttakendur og eftir hlaupið verða
grillaðar pylsur, auk þess sem allir
þátttakendur fá stuttermabol og
verðlaunapening. Þeir sem hafa hug á
að taka þátt í Skúlaskeiði geta aflað
frekari upplýsinga hjá Reykjavíkur-
maraþoni.
Viðeyjarferja fer frá Sundahöfn
alla daga vikunnar og tekur ferðin yf-
ir til Viðeyjar aðeins um 5–7 mínútur,
en áætlunarferðir ferjunnar hefjast
kl. 13. Hjól eru við bryggjuna í Viðey
og getur fólk fengið þau að láni endur-
gjaldslaust með því skilyrði að þeim
sé komið fyrir á sama stað eftir notk-
un. Boðið er upp á stuttar skoðunar-
ferðir frá nýrri upplýsingaþjónustu
sem er í Viðeyjarstofu, en þess má
geta að Viðeyjarstofa verður með
kaffisölu alla næstu helgi.
Eldstöðvar
og hraun í
Grímsnesi
LAUGARDAGINN 29. júní kl. 14–
16 mun dr. Sveinn Jakobsson jarð-
fræðingur fjalla um eldstöðvar og
hraun í Grímsnesi.
„Grímsnesið á sér merka mótun-
arsögu og forvitnilega. Hvernig varð
Kerið til? Af hverju eru Seyðishól-
arnir rauðir? Hvenær brunnu
Grímsneshraun? Er Grímsnesið
virkt gossvæði? Hvaðan ætli koltví-
vetnið í gosdrykkjum okkar komi?
Verið velkomin að kynna ykkur jarð-
sögu Grímsness undir leiðsögn jarð-
fræðings sem er sérfróður um efnið.
Mæting í Alviðru kl. 14 stundvíslega
en síðan ekið að Seyðishólum og
gengið á þá. Boðið er upp á kakó og
kleinur. Þátttökugjald er 700 kr. fyr-
ir fullorðna, frítt fyrir börn,“ segir í
fréttatilkynningu frá Alviðru.
Fjórða skák-
mótið í
Bikarsyrpu
TAFLFÉLAGIÐ Hellir, Halló! og
ICC standa sameiginlega að tíu móta
röð á skákþjóninum ICC sem kallast
Bikarsyrpa Halló! á ICC. Fjórða
mótið fer fram 30. júní en það síðasta
verður haldið 24. nóvember og verð-
ur það jafnframt Íslandsmótið í net-
skák.
Þeir sem hafa teflt í þremur fyrstu
mótunum þurfa ekki að skrá sig
heldur er nægilegt að mæta fyrir kl.
20. Aðrir þurfa að skrá sig á
www.hellir.is. Tefldar verða níu um-
ferðir. Umhugsunartími er fjórar
mínútur á skák, auk tveggja viðbót-
arsekúndna á leik.
Keppt verður í fimm flokkum og
eru sigurvegararnir í hverjum flokki
jafnframt bikarmeistarar Halló! í
viðkomandi flokki. Flokkarnir eru
opinn flokkur, undir 2100, undir 1800
og stigalausir. Stigaflokkar miðast
við íslensk stig 1. apríl 2002.
LEIÐRÉTT
Blómamarkaður
hefst í dag
Blómamarkaðurinn á Lækjartorgi
í Reykjavík, sem verður starfræktur
í sumar, verður opnaður í dag en var
ekki opnaður í gær eins og kom fram
í blaðinu í gær.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111