Morgunblaðið - 30.06.2002, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 2002 17
KNATTSPYRNA
Leikur um bronsverðlaun á HM
í Suður-Kóreu.
Suður-Kórea – Tyrkland 2:3
Mörk Suður-Kóreu: Lee Eul-young 9.,
Song Chong-gug 90.
Mörk Tyrklands: Hakan Sukur 1., Ilhan
Mansiz 12., 39.
Markskot: Suður-Kórea 20 - Tyrkland 9.
Horn: Suður-Kórea 10 - Tyrkland 4.
Rangstaða: Suður-Kórea 2 - Tyrkland 5.
Gul spjöld: Lee Eul-yong, Kóreu 23.,
Tugay Kerimoglu, Tyrkl. 50., Rustu Recb-
er, Tyrkl. 83.
Áhorfendur: 63.483.
Dómari: Saad Mane, Kúveit.
Lið Suður-Kóreu: Woon-Jae Lee, Myung-
Bo Hong (Tae-Young Kim 46.), Min-Sung
Lee, Sang-Chul Yoo, Yong-Pyo Lee, Eul-
Young Lee (Du-Ri Cha 64.), Chun-Soo Lee,
Ji-Sung Park, Chong-Gug Song, Jung
Hwan Ahn, Ki-Hyeon Seol (Tae-Uk Choi
79.)
Lið Tyrkja: Recber Rustu, Fatih Akyel,
Bulent Korkmaz, Ozalan Alpay, Penbe
Ergun, Umit Davala (Buruk Okan 75.),
Yirldiray Basturk (Havutcu Tayfur 85.),
Kerimoglu Tugay, Berezoglu Emre (Hak-
an Unsal 41.), Hakan Sukur, Ilhan Mansiz.
ÚRSLIT
Í stuttu máli var sóknarknattspyrn-an í hávegum höfð á Daegu-vell-
inum í Suður-Kóreu og voru fjögur
mörk skoruð á fyrsta hálftíma leiks-
ins og eitt í þeim síðari.
Hakan Sukur skoraði fyrsta mark
leiksins eftir aðeins tólf sekúndur og
kom Tyrkjum yfir. Aldrei fyrr hefur
leikmaður skorað á HM eftir jafn-
skamman tíma í lokakeppni en fyrra
metið átti Tékkinn Vaclav Masek frá
árinu 1962 er hann skoraði eftir
fimmtán sekúndur gegn Mexíkó.
Hinsvegar skoraði landsliðsmaður
San Marínó, Gualtieri, eftir aðeins
sjö sekúndur í undankeppni HM árið
1993 gegn Englendingum og stendur
það met enn. Sukur náði loks að sýna
hvers megnugur hann er, en hann
hefur verið harðlega gagnrýndur
fyrir frammistöðu sína á HM og var
þetta fyrsta mark hans í keppninni.
Ilhan Mansis, sem kom inn í liðið
fyrir Hasan Sas, sem tók út leik-
bann, bætti við tveimur mörkum fyr-
ir Tyrki í fyrri hálfleik eftir að Lee
Eul-young hafði jafnað úr auka-
spyrnu. Song Chong-gug bætti við
marki fyrir heimamenn undir lok
leiksins. Ilhan Mansis var hreint út
sagt stórkostlegur á stundum og
gerir tilkall til sætis í byrjunarliði
Tyrkja í undankeppni fyrir EM í
knattspyrnu sem hefst í haust.
Sáttur við dagsverkið
Tyrkir töpuðu aðeins gegn Bras-
ilíumönnum á HM að þessu sinni og
var þjálfari liðsins sáttur við dags-
verkið gegn Suður-Kóreu.
„Við sýndum það að við getum
leikið gegn bestu liðum heims og átt
möguleika gegn þeim frá upphafi allt
til enda. Að mínu mati vorum við
krydd í tilveruna í þessari keppni og
lékum litríka knattspyrnu,“ sagði
Senol Gunes þjálfari Tyrkja. „Það
var ekkert lið sem við mættum að
þessu sinni með mikla yfirburði gegn
okkur. Við tókum áskoruninni á
þann hátt að sækja og reyna að
skora. Okkur tókst að gera flest það
sem við ætluðum í keppni sem má
líkja við maraþonhlaup,“ bætti Gun-
es við en hann var á árum áður
markvörður tyrkneska landsliðsins
og lék með liði Trabzonspor í heima-
landi sínu.
„Ég hefði viljað sjá okkar lið
hampa bronsinu í leikslok,“ sagði
þjálfari Suður-Kóreu, Guus Hiddink.
„Við gerðum okkur seka um mistök í
vörninni í fyrri hálfleik og áttum á
brattan að sækja. Stuðningsmenn
okkar á vellinum og um allt land gáf-
ust ekki upp við mótlætið og við
göngum stoltir frá þessari keppni,“
sagði Hiddink en undir hans stjórn
vann liðið fyrstu sigra sína í loka-
keppni HM frá upphafi.
Bæði liðin komu verulega á óvart á
HM. Tyrkir höfðu ekki verið með í
lokakeppni frá því í keppninni árið
1954 og í þeirri keppni sigraði Tyrk-
land lið Suður-Kóreu, 7:0.
Tyrkir fögnuðu
bronsinu
AP
Það vakti athygli að leikmenn Suður-Kóreu og Tyrklands
gengu hönd í hönd af velli í Daegu í gær og þökkuðu stuðnings-
mönnum sínum fyrir stuðninginn á HM.
ÞAÐ var skemmtilegur bragur á
leik Tyrkja og Suður-Kóreu-
manna í rimmu liðanna um
bronsið á HM sem fram fór í
gær, en Tyrkir höfðu þar betur í
miklum markaleik, 3:2. Í leik
Hollendinga og Króata fyrir fjór-
um árum er keppnin fór fram í
Frakklandi sigraði Króatía og
Hollendingar sýndu leiknum lít-
inn áhuga – en að þessu sinni
voru bæði lið staðráðin í að
leggja allt í sölurnar. Það var allt
á öðrum endanum að vanda í
þjóðlífi Suður-Kóreumanna og
talið var að allt að fjórar millj-
ónir af íbúum landsins hefðu
fylgst með leiknum af risaskjám
á götum úti.