Morgunblaðið - 13.07.2002, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.07.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isLeikmenn Aftureldingar gefa ekkert eftir í baráttunni/B3 Aðeins fimm eftir í 50 kg gullpotti/B2 4 SÍÐUR16 SÍÐUR Sérblöð í dag Á LAUGARDÖGUM L a u g a r d a g u r13. j ú l í ˜ 2 0 0 2 STJÓRNARFUNDI Alcoa lauk í gær og var ákveðið að halda áfram viðræðum um byggingu ál- vers á Íslandi. Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir að ákvörðunin sé mjög mikilvæg og ástæða sé til bjartsýni á farsæl enda- lok, en jafnvel verði hægt að hefja framkvæmdir í sumar. Í tilkynningu félagsins segir: „Stjórn Alcoa kom saman á stjórnarfundi í gærmorgun og skoðaði til- lögu um nýja fjárfestingu í álveri á Íslandi. Stjórn- in samþykkti að fela stjórnendum fyrirtækisins að halda áfram viðræðum um byggingu nýs álvers á Íslandi. Næsta skrefið verður að ganga frá sam- eiginlegri viljayfirlýsingu á milli Alcoa, ríkis- stjórnar Íslands og Landsvirkjunar vegna verk- efnisins.“ Jake Siewert, talsmaður Alcoa, vill taka fram að í allri nálgun Alcoa í þessu máli hafi verið tekið mjög mikið mið af umhverfisþáttum sem og sjón- armiðum ýmissa umhverfisverndarsamtaka. Um framhaldið segir Siewert ljóst að nokkur vinna sé framundan áður en hægt verði að ganga frá sam- eiginlegri viljayfirlýsingu. „Við teljum að þetta sé ákaflega gott verkefni, bæði fyrir okkur og eins fyrir Íslendinga. Og við höfum sem fyrr mikinn áhuga á því að vernda einhvern hluta þess svæðis sem framkvæmdir hafa ekki bein áhrif á. Við vilj- um gera þetta verkefni eins umhverfisvænt og hægt er.“ Spurður um viðbrögð íslenskra aðila við þessari hugmynd segir Siewert að Landsvirkjun hafi stutt það að skapa eitthvert slíkt svæði. „En þetta er flókið mál því þarna þarf að taka mið af því hvað íbúar á svæðinu vilja, hvað ríkisstjórnin vill gera og síðan og ekki síst hvað Íslendingar almennt vilja gera.“ Siewert segir að sú staðreynd að meirihluti Ís- lendinga sé fylgjandi álversframkvæmdum hafi skipt miklu máli. „Við skoðum verkefni um allan heim og það að mikið almennt fylgi er við fram- kvæmdir á Íslandi, bæði af hálfu ríkisstjórnarinn- ar, stjórnmálaflokanna allra og Íslendinga al- mennt, gerir verkefnið álitlegra í okkar augum.“ Siewert segir að auðvitað sé líka enn hópur manna sem leggist gegn framkvæmdum en Alcoa vilji ekki síður ræða við þá til þess að heyra hvað þeir hafi fram að færa og hvort hægt sé að taka til- lit til þeirra skoðana. Valgerður Sverrisdóttir segir að yfirlýsing Al- coa sé mjög mikilvæg. Hún þýði að allar líkur séu á að viljayfirlýsing verði undirrituð í næstu viku og að hún nái til loka verkefnisins. Ekki sé ólíklegt að hún geti leitt af sér að hægt verði að hefja fram- kvæmdir í sumar. Það skipti mjög miklu máli upp á verklok. Alcoa-menn vilji vinna verkið hratt og það sé mjög í samræmi við vilja íslenskra stjórn- valda. Stjórn Alcoa ákveður að halda áfram viðræðum FLUGLEIÐIR hafa tekið Boeing 757-200-vél á leigu sem verður notuð í leiguflugsverkefni í Dóminíska lýð- veldinu fram til 1. maí á næsta ári og kom vélin til landsins í fyrradag. Vél- in er leigð til tuttugu mánaða en ákveðið var að leigja vélina vegna nýs leiguflugsverkefnis á Grikk- landi. Vélin mun leysa af hólmi vél félagsins sem hefur verið í Karíba- hafinu en verður nú notuð í Grikk- landsverkefnið. Talið er að gríska verkefnið muni færa flugfélaginu rúman milljarð í tekjur og munu um tíu Íslendingar starfa á Grikklandi, fyrst um sinn. 15–20 Íslendingar starfa í Dóminíska lýðveldinu. Flugleiðir hafa þá þrettán vélar í flota sínum, ellefu í farþegaflugi og tvær í fraktflugi. Vélin, sem er sjö ára og tekur um 200 farþega í sæti, kom til landsins í fyrradag. Í gær var hafist handa við að merkja vélina í litum dóminíska flugfélagsins Aer- omar. Vélin fer vestur um haf í dag. Aukin áhersla á leiguflug eftir 11. september Guðjón Arngrímsson, upplýsinga- fulltrúi Flugleiða, segir að vélin muni aðallega fljúga milli Dóminíska lýðveldisins og New York í Banda- ríkjunum. Í tengslum við breytingar sem urðu á flugi í heiminum eftir hryðjuverkaárásirnar 11. september hafi verið mótuð sú stefna að fara í ríkari mæli út í leiguflugsverkefni. Um áramótin stofnuðu Flugleiðir dótturfélagið Flugleiðir-leiguflug. Guðjón segir að það hafi verið til- tölulega hratt byggt upp. Í upphafi ársins var ein vél í leiguflugi, nú eru þær orðnar þrjár og verða í lok árs- ins fjórar, en þá verður ein af vélum Flugleiða, sem notuð er í áætlunar- flug í dag, tekin í leiguflugið. Hún verður notuð í flug frá Boston til Karíbahafsins, en þetta er annað ár- ið sem sá samningur er í gildi og er sú áhöfn alíslensk, að sögn Sigþórs Einarssonar, framkvæmdastjóra Flugleiða-leiguflugs. Reiknað með þriggja milljarða veltu leiguflugs Sigþór segir að reiknað sé með því að dótturfyrirtækið velti yfir þremur milljörðum króna á þessu ári. Guðjón segir að á öllum vélum flugfélagsins séu íslenskir flugmenn, í leiguflugsverkefninum hafi þrír Ís- lendingar verið í hverri áhöfn; flug- stjóri, flugmaður og yfirflugfreyja. Sigþór segir að þrjár áhafnir séu í Dóminíska lýðveldinu auk tveggja flugvirkja, samtals 11 Íslendingar. Með tilliti til fría og annars fái alls milli 15 og 20 starfsmenn atvinnu beinlínis vegna þessa verkefnis. Um tíu Íslendingar munu vera í Grikk- landsverkefninu, sem hefst á mánu- dag. Þá er Flugleiðir-leiguflug með verkefni fyrir Kronereiser í Kaup- mannahöfn og er sú áhöfn alíslensk. Sú vél er einnig notuð í leiguflug fyr- ir Úrval-Útsýn, að sögn Sigþórs. Hann segir að þannig hafi ein- hverjir flugmenn, sem höfðu misst vinnuna um síðustu áramót, fengið atvinnu vegna leiguflugsins. Það hef- ur þó ekki áhrif á þann hóp sem var nýlega sagt upp hjá Flugleiðum. „Við erum að sækja fram og leita að fleiri verkefnum. Við vonumst til að bæta eitthvað í þannig að hægt verði að nýta þann mannskap sem nú er á uppsagnarfresti eitthvað fram á vet- urinn. Á þessu stigi er þó ekkert ljóst um það. Við erum hóflega bjartsýn á að okkur takist að finna eitthvað til að ná að létta á ástandinu,“ segir Sig- þór. Morgunblaðið/Jim Smart Í gær var hafist handa við að merkja vélina í litum dóminíska flugfélagsins Aeromar. Boeing 757-200 flugvél bætist í flugflota Flugleiða Notuð í leiguflug í Karíbahafi BORGARRÁÐ samþykkti á fundi sínum í gær tillögu að deiliskipulagi og breytingu á aðalskipulagi á svo- nefndri Alaskalóð við Skógarsel. Tillagan var samþykkt með 4 at- kvæðum gegn 3 en fyrirvari var gerð- ur um endanlega afmörkun lóða. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borgarráði mótmæltu fyrirhugaðri íbúðabyggð á svæðinu sem hefði verið auðkennt í skipulaginu sem útivistar- svæði, grænt svæði, gróðrarstöð eða opið svæði til sérstakra nota. Lóðin væri merkt þjóðminjaverndarsvæði og þar væru friðlýstar fornminjar. Ólafur F. Magnússon ítrekaði nauðsyn þess að umferðaröryggi við Skógarsel yrði tryggt og í bókun borgarráðsfulltrúa Reykjavíkurlista kom m.a. fram að við kynningu á til- lögu aðalskipulags hafi ekki borist neinar athugasemdir. Á fundinum var einnig lagt fram að nýju bréf framkvæmdastjóra Bíla- stæðasjóðs og borgarverkfræðings ásamt skýrslu dómnefndar um bíla- kjallara undir Tjörninni. Tillaga borg- arstjóra var samþykkt, þar sem segir m.a.: „Borgarráð samþykkir að óska eftir umsögn umhverfis- og heilbrigð- isnefndar, samgöngunefndar og skipulags- og byggingarnefndar um tillögur bjóðenda og niðurstöðu dóm- nefndar." Í bókun borgarráðsfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins kom m.a. fram að mjög ríkar ástæður þyrftu að vera fyrir hendi áður en ákveðið yrði að hefja viðamiklar framkvæmdir í Tjörninni, rétt eins og þegar Ráðhús- ið var reist. Fara þurfi að lögum og hagnýtt gildi framkvæmdar verði að vera ótvírætt, en þessar forsendur væru ekki fyrir hendi við kynningu í borgarráði. Deiliskipu- lag á Alaskalóð samþykkt RÚMLEGA þrítugur Íslendingur var fluttur með sjúkraflugi á slysa- deild Landspítalans í Fossvogi í gær eftir allmikla áverka sem hann sagð- ist hafa hlotið af völdum skipverja á norska loðnuskipinu Kings Bay á Ísa- firði. Skipið var kyrrsett í Ísafjarð- arhöfn á meðan rannsókn lögreglunn- ar fór fram. Norski skipverjinn var handtekinn og fluttur á lögreglustöð á Ísafirði og fóru yfirheyrslur þar fram með aðstoð túlks. Íslendingurinn var fluttur á sjúkrahúsið á Ísafirði og við rannsókn komu í ljós meiðsli sem ætla mátti að væru meiriháttar. Var ákveðið að senda manninn til Reykja- víkur á sjúkrahús og var hann fluttur með flugvél til Reykjavíkur um há- degisbilið. Samkvæmt upplýsingum læknis á slysadeild síðdegis í gær var hinn slasaði í skoðun en ekki talinn með lífshættulega áverka. Líkamsárás í norsku loðnuskipi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.