Morgunblaðið - 13.07.2002, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 13.07.2002, Blaðsíða 39
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002 39 HÓPUR ungmenna víðsvegar frá Bandaríkjunum dvelst nú á Íslandi og tekur þátt í uppgræðslu- og skógræktarverkefnum á suðvest- urhorninu. Heimsóknin er sam- starfsverkefni samtakanna Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs (GFF) og bandarískra samtaka, World Horizons, með stuðningi Orkuveitu Reykjavíkur. World Horizons eru samtök sem vinna að því að gefa ungmennum frá Bandaríkjunum kost á að kynnast ólíkum heims- hornum og vinna um leið ýmis þjóð- þrifaverk í sjálfboðavinnu, m.a. á sviði umhverfismála. Unga fólkið kemur frá Georgíu, New York, Connecticut, Maryland, Massachusetts og Kaliforníu. Í vik- unni heimsótti hópurinn Bessastaði þar sem forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, tók á móti unga fólkinu, fræddi það um land og þjóð og sýndi því forsetabústaðinn. Myndin hér að ofan var tekin við það tilefni. Heimsækja landið og taka þátt í landgræðslu Glænýr lax beint úr fiskborði 10 95 / T A K T ÍK 1 2. 7´ 02 PRÓFNEFND verðbréfaviðskipta stendur reglulega fyrir prófum í verðbréfaviðskiptum í samræmi við 4. tl. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 13/1996 um verðbréfaviðskipti og reglugerð nr. 506/2000 um próf í verðbréfa- viðskiptum. Samkvæmt lögunum skulu starfs- menn fyrirtækja í verðbréfaþjón- ustu sem hafa umsjón með daglegri starfsemi í tengslum við viðskipti með verðbréf hafa lokið prófi í verð- bréfaviðskiptum. Prófin nýtast einnig öllum þeim sem starfa á fjármagnsmarkaði, segir í fréttatilkynningu. Fimmtudaginn 13. júní sl. útskrif- aði prófnefnd formlega 99 nemend- ur: Aðalbjörg E. Halldórsdóttir, Al- mar Guðmundsson, Anna Helga Ey- dís Baldursdóttir, Anna María Ágústsdóttir, Anna Sif Gunnars- dóttir, Anna Sigurðardóttir, Arnar Bjarnason, Arnar Guðmundsson, Arnar Þór Sævarsson, Arnór Heið- ar Arnórsson, Auður Finnbogadótt- ir, Axel Blöndal, Ásta Herdís Hall, Baldur Már Helgason, Baldur Þór Vilhjálmsson, Baldvin Ottó Guð- jónsson, Bárður Þór Sveinsson, Benedikt Árnason, Birna Jenna Jónsdóttir, Björn Hákonarson, Bragi Gunnarsson, Bryndís Björk Kristjánsdóttir, Dagmar Guð- mundsdóttir, Einar Georgsson, Ei- ríkur Ragnar Eiríksson, Elín Guð- ríður Egilson, Friðfinnur Ragnar Sigurðsson, Friðrik Nikulásson, Gísli Hauksson, Guðjón Guðmunds- son, Guðjón Jóhannesson, Guð- mundur Guðmundsson, Guðmundur Jóhannes Oddsson, Guðni Rafn Ei- ríksson, Guðný Magnúsdóttir, Guð- rún Ásta Magnúsdóttir, Gunnar Rafn Einarsson, Gunnsteinn R. Óm- arsson, Halldór Halldórsson, Hall- dór Hildimundarson, Halldór Sveinn Kristinsson, Hanna María Pálmadóttir, Haukur Baldvinsson, Haukur Oddsson, Helga Gunnars- dóttir, Helga Thoroddsen, Helgi Ingólfur Eysteinsson, Helgi Þór Logason, Hermann Jónasson, Hulda Saga Sigurðardóttir, Ingi- björg Birna Ólafsdóttir, Ingvar Vil- hjálmsson, Íris Fanney Friðriks- dóttir, Jón Arnar Tracey Sigurjónsson, Jón Finnbogason, Jón Guðni Kristjánsson, Jón Þorsteinn Oddleifsson, Jónas Þórðarson, Jör- undur Þórðarson, Karl Finnboga- son, Kolbeinn Þór Bragason, Krist- inn Rúnar Sigurðsson, Kristín Hrönn Guðmundsdóttir, Kristín Hrönn Guðmundsdóttir, Kristján Gunnar Valdimarsson, Kristján O. Jóhannesson, Lárus Snorrason Welding, Leó Hauksson, Marinó Freyr Sigurjónsson, Ólafur Briem, Ólafur Jörgen Hansson, Óskar Örn Ágústsson, Páll Haraldsson, Pétur Örn Sigurðsson, Ragnheiður M. Marteinsdóttir, Rúnar Gunnarsson, Rúnar Magni Jónsson, Sighvatur Sigfússon, Sigríður Þórunn Torfa- dóttir, Sigrún Ágústa Bragadóttir, Sigurjón Gunnarsson, Sigurlaug Hilmarsdóttir, Sigurrós Lilja Grét- arsdóttir, Sigurveig Grímsdóttir, Snorri Jakobsson, Sólveig Lilja Ein- arsdóttir, Stefán Sigurður Guðjóns- son, Stefán Sveinbjörnsson, Svana Huld Linnet, Sveinn Rúnar Sig- urðsson, Unnur Míla Þorgeirsdóttir, Valdimar Þorkelsson, Valtýr Guð- mundsson, Viðar Kárason, Vigdís Sif Hrafnkelsdóttir, Þorgeir Helgi Sigurðsson, Þórarinn Óli Ólafsson, Þórður Jónsson, Örn Gunnarsson. Hluti útskriftarhópsins ásamt formanni prófnefndar, Jónínu S. Lárusdóttur. 99 ljúka prófi í verð- bréfaviðskiptum STJÓRN Þjóðhátíðarsjóðs hefur ný- verið lokið úthlutun í 25. sinn. Út- hlutað var 5,3 milljónum króna í 31 verkefni en alls bárust 82 umsóknir um styrki að fjárhæð rúmlega 50 milljónir króna. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita stofnunum og öðrum aðilum styrki vegna varðveislu og verndar verðmæta lands og menningar sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf, eins og segir í frétt frá sjóðnum. Í tilefni af því að Þjóðhátíðarsjóð- ur hefur nú úthlutað í 25 skipti var tekið saman hversu mikið fé hefur runnið til hinna ýmsu málaflokka. Eru úthlutanir framreiknaðar til verðlags um mitt árið. Mest framlag hafa Þjóðminjasafn og Friðlýsingarsjóður fengið eða um 90 milljónir hvor aðili, rúm 41 milljón króna fór í endurbyggingu, húsfrið- un og fleira, 39 milljónir hafa farið í margs konar skráningu og viðgerðir, 30 milljónir í náttúruminjavernd, 29 milljónir í ritverk og útgáfur, í söfn og nýbyggingar 18 milljónir, rúmar 10 milljónir í fornleifarannsóknir og 15 milljónir í ýmislegt. Í stjórn Þjóðhátíðarsjóðs sitja frá síðustu áramótum og út árið 2005 þau Sigríður Ragna Sigurðardóttir kennari, Birgir Ísleifur Gunnarsson seðlabankastjóri, Jónína Mich- aelsdóttir rithöfundur, Rannveig Edda Hálfdánardóttir móttökuritari og Björn Teitsson magister. Ritari sjóðstjórnar er Sveinbjörn Hafliða- son lögfræðingur. Þjóðhátíðarsjóður Rúmum 5 milljón- um úthlut- að í ár KRISTINN T. Haraldsson var nú nýlega kjör- inn formaður Samfylkingar- félags Hvera- gerðis. Kristinn hefur um árabil verið þátttakandi í stjórnmálastarfi jafnaðarmanna og gegnt þar ýmsum trúnaðarstörfum. Hann á t.d. sæti í flokksstjórn Sam- fylkingarinnar og situr í nefndum Hveragerðisbæjar á vegum flokks- ins. Nýr formaður Samfylking- arfélags Hveragerðis MARKAÐUR verður haldinn í samkomutjaldinu í Lónkoti í Skagafirði sunnudaginn 28. júlí. Hefst markaðurinn kl. 13 og stend- ur til kl. 18. Markaðir í Lónkoti eru haldnir síðustu sunnudagana í júlí og ágúst. Markaður í Skagafirði MÁNUDAGINN 15. júlí kl. 11 heldur Sebastiano B. Serpico, prófessor í fjarskiptafræði við Háskólann í Gen- úa á Ítalíu, fyrirlestur sem nefnist ,,Sjálfbeind og hlut-leiðbeind greining á landbreytingum með fjarkönnunar- myndum“. Fyrirlesturinn er haldinn í VR-II, Háskóla Íslands, Hjarðarhaga 2–6, stofu 158 og er á vegum IEEE á Íslandi, rafmagns- og tölvuverkfræði- skorar Háskóla Íslands og Landmæl- inga Íslands. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Greining á landbreyting- um með fjar- könnunar- myndum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.