Morgunblaðið - 13.07.2002, Side 8

Morgunblaðið - 13.07.2002, Side 8
FRÉTTIR 8 LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Brúin hlýtur að vera kjörinn staður til að stöðva Evrópubrölt Halldórs. Landsmót skáta í næstu viku Skátatjöldin rísa í gleði LANDSMÓT skátaverður haldið aðHömrum við Akur- eyri dagana 16.–23. júlí. Morgunblaðið ræddi við Guðmund Pálsson, móts- stjóra landsmótsins. – Hvað er landsmót haldið oft? „Það er haldið á þriggja ára fresti. Mótið er sér- staklega veglegt núna vegna 90 ára afmælis skátahreyfingarinnar á Ís- landi, sem haldið er hátíð- legt á þessu ári.“ – Hvert landsmót hefur sitt þema, ekki satt? „Jú, það er satt. Meiri- hluti atriðanna á hverju landsmóti er hefðbundinn og haldinn á hverju móti. Hins vegar er ákveðið þema á hverju móti sem gefur tóninn hvað varðar efnistök og megináherslur í dagskrárgerð- inni. Síðasta landsmót bar yfir- skriftina „Leiktu þitt lag“, og þá var mikil áhersla lögð á tónlist og tónlistarflutning. Yfirskrift mótsins í ár er „Álfar og tröll“, þjóðtrú okkar Íslend- inga um alls konar náttúruvættir og huldar verur, sem er mjög skemmtilegt. Í allan vetur höfum við unnið með þetta þema í skáta- starfinu, frætt krakkana um álfa- og tröllamenningu Íslands og þess háttar. Á þann veg litar þema landsmóts allt vetrarstarfið hjá okkur. Svo er samið sérstakt lag og texti fyrir hvert landsmót, sem eykur enn á stemninguna. Við sem eldri erum rifjum um leið upp gamla og góða mótssöngva, og minningin um þetta landsmót verður samofin mótssöngnum í ár.“ – Landsmótið er að Hömrum við Akureyri, hvers vegna? „Þannig er mál með vexti að fyrir nokkrum árum tóku skáta- hreyfingin og Akureyrarbær upp samstarf sín í milli um uppbygg- ingu á nýrri útilífs- og umhverf- ismiðstöð rétt innan við Kjarna- skóg á Akureyri, á jörðinni Hömrum. Fljótlega mun þetta svæði verða eina tjaldsvæðið á Akureyri, og er landsmótið nokk- urs konar vígsluhátíð á svæðinu. Þarna á að verða starfsemi allt ár- ið og á svæðið að vera opið al- menningi og nemendum til dvalar, umhverfisfræðslu og skemmtun- ar. Skátarnir munu sjá um starf- semi á svæðinu í framtíðinni í samstarfi við Akureyrarbæ.“ – Þetta hlýtur að verða með fínni tjaldsvæðum á landinu. „Já, þetta er að verða algjör paradís. Allt er hið glæsilegasta hvað varðar alla aðstöðu, jafnt sal- ernisaðstöðu og sturtur, einnig er til dæmis þráðlaust net, svo að þú getur setið og skoðað tölvupóstinn í tjaldinu ef þér sýnist svo.“ – Hvað eigið þið von á mörgum? „Ætli það verði ekki um 4.000 manna þorp sem rís hér í vikunni. Það er satt að segja stórvirki að slá upp heilu bæjarfélagi fyrir alla þessa gesti. Við höfum ýmiss konar þjónustu, þar á meðal banka og sjúkraskýli, en einnig þarf að setja upp eld- hús sem getur annað um 12.500 máltíðum á dag. Við leggjum mikla áherslu á að allt sé í góðu lagi og aðstæður verði sem bestar. Undirbúningur- inn hefur gengið alveg ótrúlega vel, enda býr skátahreyfingin að miklum fjölda velunnara sem eru boðnir og búnir að létta undir og taka að sér hin ólíklegustu verk.“ – Skátar hafa haldið landsmót víða um land, ekki satt? „Jú, að sjálfsögðu hefur fjöldi landsmóta farið fram að Úlfljóts- vatni, og höfum við eytt miklu fé og tíma í að gera aðstöðuna þar sem besta. Hins vegar er einnig mjög spennandi að halda lands- mót norðan heiða. Við finnum fyr- ir mikilli spennu meðal skáta og aðstandenda þeirra við að fara lengra frá höfuðborginni. Núna munu mun fleiri foreldrar og aðrir aðstandendur koma með skátun- um á landsmót, sem er mjög gleði- legt. Það hjálpar okkur mjög mik- ið í skátastarfinu að hafa öflugan stuðning aðstandenda og koma þeim í kynni við skátastarfið.“ – Er skátastarfið fjölbreytt? „Já, mikil ósköp. Það er sko ekki bara hnútar eins og margir virðast halda. Við leggjum áherslu á að skátahreyfingin er stærsta friðarhreyfing í heimi, með alls um 45 milljónir ungmenna innan sinna vébanda um allan heim. Nú á tímum ófriðar víða um heim viljum við leggja sérstaka áherslu á samstöðu og bræðralag skáta um allan heim. Skátar læra að umgangast fólk af ólíkasta þjóðerni á hinum ýmsu alþjóða- mótum skáta um allan heim, og sú upplifun er mikilsverð.“ – Er Landsmótið öllum opið? „Það er fyrst og fremst fyrir skáta um allt land til að hittast og halda sameiginlegt mót, en einnig ætla hjálpar- og björg- unarsveitir víða að að heiðra okkur með nær- veru sinni, og er öllum velunnurum skáta- hreyfingarinnar að sjálfsögðu velkomið að koma. Við höfum sérstakt tjaldsvæði tilbúið fyrir aðstandendur og fjöl- skyldu. Laugardaginn 20. júlí klukkan tvö hefst sérstök dagskrá tileinkuð aðstandendum, Vætta- dagurinn. Skátar um allt land hafa und- irbúið ýmis skemmtiatriði og eru allir velkomnir. Svo er um kvöldið aðalvarðeldurinn að skátasið.“ Guðmundur Pálsson  Guðmundur Pálsson, mark- aðs- og útflutningsfræðingur, fæddist í Reykjavík 1963. Hann vígðist sem skáti í Skátafélaginu Dalbúum árið 1972 og hefur ver- ið virkur í skátastarfi æ síðan og gegnt fjölda trúnaðarstarfa fyrir hreyfinguna. Guðmundur var verkefnastjóri Bandalags ís- lenskra skáta á árunum 1987– 1992, í markaðsdeild Nýherja á árunum 1992–1998, sölustjóri hópvinnulausna hugbún- aðarsviðs Nýherja 1998–2000 og hefur starfað sem sölustjóri Hóp- vinnukerfa ehf. frá því í október 2000. Guðmundur á tvö börn og er í sambúð með Huldu Sólrúnu Guðmundsdóttur sálfræðingi. Álfar og tröll á fjörugu landsmóti BÆNDUR í Æðey í Ísafjarðardjúpi eru nú að ljúka æðardúntekju sinni í ár. Jónas Helgason æðarbóndi seg- ir að vel hafi gengið að safna dún í sumar. Tíðin hafi verið góð, þurrt og hægviðri flesta daga, en það er ákjósanlegt veður fyrir kollurnar. Á fimmta þúsund æðarhreiður eru í Æðey. Jónas sagði að mikil vinna væri að tína dún úr hreiðr- unum, en byrjað er að tína dúninn um mánaðamótin maí–júní og tínt er fram í byrjun júlí. Farið er nokkrum sinnum yfir eyjuna og stóð til að fara síðustu ferðina í gær, en hætta varð við vegna rign- ingar. Því fer hins vegar fjarri að vinnu æðarbændanna sé þar með lokið því eftir er að þurrka dúninn og hreinsa hann. Ættingjar bændanna í Æðey hafa verið þeim til aðstoðar í sumar við tínsluna. Jónas sagði að verð á dúni væri búið að vera nokkuð gott og stöðugt að undanförnu. Gengislækkun krónunnar í vetur hefði komið bændum til góða, en sú lækkun væri gengin til baka að verulegu leyti. Æðabændur eiga í stöðugri baráttu við ref og mink og sagði Jónas að refur hefði unnið talsverð spjöll í æðarvarpi víða um land í sumar. Sem betur fer væri hann ekki í Æð- ey, en hann væri hins vegar í Djúp- inu og tíndi upp æðarunga í fjör- unni. Einn minkur lagði leið sína út í Æðey í sumar, en hann var fljót- lega lagður að velli. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Dúntínslu að ljúka í Æðey TVEIR menn voru dæmdir til skil- orðsbundinnar fangelsisvistar og hárra fjársekta fyrir fjárdrátt, fjár- svik og bókhaldsbrot, í Héraðsdómi Reykjavíkur í fyrradag. Annar hlaut 12 mánaða skilorðsbundinn fangels- isdóm og var að auki dæmdur til að greiða tæplega sex milljónir króna í sektir og lögmannsþóknun, auk dráttarvaxta. Hinn var dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða 300 þúsund krónur í sekt og málsvarnarlaun. Mennirnir ráku innheimtufyrir- tæki í Reykjavík. Þeim var gefið að sök að hafa innheimt samtals rúmar fimm milljónir króna, en dregið sér féð og ekki afhent kröfuhöfum. Einnig var annar þeirra ákærður fyrir fjársvik með því að framselja tvö veðskuldabréf, hvort að upphæð 1.250.000 kr., sem báru það með sér að vera á 9. veðrétti í fasteign. Ákærði hafði skömmu áður gefið út veðleyfi sem flutti veðréttinn niður á 11. veðrétt, en ekki fært það inn á bréfin sjálf og þannig blekkt kaup- andann til að kaupa veðskuldabréfin á þeirri forsendu að þau væru á 9. veðrétti. Þá voru þeir ákærðir fyrir að hafa ekki haldið lögbundið bók- hald fyrir fyrirtækið. Ákærðu voru sakfelldir að veru- legu leyti í samræmi við ákæruskjal. Jón Finnbjörnsson héraðsdómari kvað upp dóminn, en Jón H. Snorra- son sótti málið fyrir ákæruvaldið. Verjendur ákærðu voru Brynjar Níelsson hrl. og Indriði Þorkelsson hdl. Sekt og skilorð fyrir fjárdrátt og fjársvik LÖGREGLAN, Sjóvá-Almennar og Bindindisfélag ökumanna hafa í sumar ferðast vítt og breitt um land- ið og kannað tíðni ölvunaraksturs meðal ökumanna. Að sögn Einars Guðmundssonar, forvarnarfulltrúa hjá Sjóvá-Almenn- um, sýna tölur frá lögreglu að tíðni ölvunaraksturs er mest yfir sumar- tímann. Alls var 2.081 ökumaður tek- inn grunaður um ölvun við akstur á árinu 2001. Þar af voru 11,4% tekin í júní eða 237 ökumenn og 11,6% í júlí eða 241 ökumaður. Til samanburðar voru 7,4% ökumanna tekin grunuð um ölvun við akstur í desember en Einar nefnir að á árum áður hafi hlutfall ölvaðra ökumanna verið hvað hæst í þeim mánuði. Hann bendir á að undanfarin ár hafi mikill áróður verið rekinn gegn ölvunarakstri í desember og greini- legt að sú vinna sé að skila sér í lægri tíðni ölvunaraksturs í mánuðinum. Tíðni ölvunaraksturs mest í júní og júlí

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.